Frjáls verslun - 01.07.1999, Page 45
að vera skráðir í hluthafaskrá. Hluthafar
geta hins vegar geta verið eigendur hluta-
bréfa, hafi þeir keypt þau, en geta ekki sótt
hluthafafund eða greitt atkvæði á hluthafa-
fundi nema vera skráðir á hluthafaskrá.
Allir hluthafar eiga hins vegar rétt á að
vera skráðir í hluthafaskrá.“
Ógilding hlutabréfa „Með breytingum
sem gerðar voru á hlutafélagalögunum,
sbr. lög nr. 2/1995, er gefinn kostur á ein-
faldari meðferð og kostnaðarminni en
áður gilti til að koma réttarstöðu þess á
hreint sem glatað hefur hlutabréfi. Reglan
er sú að glatist hlutabréf (sama regla gild-
ir um bráðabirgðaskírteini), sem gefið
hefur verið út, getur stjórn félagsins
stefnt handhafa þess til sín með
þriggja mánaða fyrirvara frá síðustu
birtingu áskorunar sem birta skal
tvisvar í lögbirtingarblaði. Gefi eng-
inn sig fram áður en fresturinn er
liðinn falla niður öll réttindi á hend-
ur félaginu samkvæmt hlutabréfinu.
Skal þá stjórn félagsins að ósk upp-
haflegs eiganda bréfsins gefa út
nýtt bréf honum til handa eða þeim
sem sannar að hann leiði rétt sinn
löglega frá aðila, sbr. nánar 8. mgr.
27. gr. laga nr. 2/1995. Þar með
hefúr upphaflegur eigandi að jafn-
aði náð fyrri réttarstöðu. Ekki er
þó útilokað að réttarágreiningur
kunni að vera fyrir hendi um það
hver sé raunverulegur eigandi bréfsins.
Þann réttarágreining geta aðeins dómstól-
ar dæmt um.“
Og Sigurður heldur áfram: „Hér áður
fyrr, fyrir ofangreinda lagabreytingu, var
eina leiðin fyrir hluthafa sem hafði glatað
hlutabréfi sínu að steiha málinu til héraðs-
dóms og fá ógildingardóm fyrir því að bréf-
ið væri týnt. Flest af þessum málum voru
með þeim hætti að engin mætti í þeim aí
hálfu varnaraðila til að halda uppi vörnum
og því engin réttarágreiningur fyrir hendi.
Með ógildingardóm í höndum gat dómhafi
ráðstafað þeim rétti sem bréfinu fylgdi.
Þessu möguleiki er vissulega ennþá fyrir
hendi en tekur bæði lengri tíma og meiri
fyrirhöfn og er jafnframt kostnaðarsamari
en sú aðferð sem nefnd er hér að ofan.
Varasamt getur þó verið að ógilda hluta-
bréf þar sem óvíst getur verið um hver hafi
rétt tíl bréfsins. Þetta gildir t.d. um hluta-
bréf sem eru í eigu dánarbús, en þá verður
óskin um ógildingu að koma frá þeim sem
hefur heimild tíl slíks en ekki frá hveijum
og einum erfingja.“
Bankahólf eru ágætur kosturfyrir þá sem vilja geyma verðmœtin sín á vísum stað. Þó er lík-
lega betra að geyma bréfin í verðbréfavörslunni.
bréfi. Hvað er til ráða?
Getur hver og einn sagst
eiga skuldabréf og rukk-
að inn skuld sem kannski
er í annars eigu?
„Sá sem á rétt sam-
kvæmt skuldabréfi getur
ekki krafist greiðslu
nema hann hafi bréfið
sjálft undir höndum og
skuldara er heldur ekki
óhætt að borga honum
nema svo sé því annars á
hann það á hættu að þurfa
að greiða aftur,“ segir Sig-
urður.
GlÖtUð skuldabréf Til verndar þeim sem
lenda í því að skuldabréf þeirra glatast eða
ónýtíst eru reglur þeim til bjargar í XVIII
kafla laga um meðferð einkamála. Ógild-
ingin fer þannig fram að gefin er út stefna
til hvers þess sem kann að hafa bréfið und-
ir höndum, um að mæta á dómþing. Stefn-
an er birt í lögbirtingarblaðinu. Ef engin
mætir á dómþingið með bréfið er kveðinn
upp ógildingardómur um það sbr. XVIII
kalla ofangreindra laga.
„Meginreglan er sú að dómhafi ógild-
ingardóms er næstum því eins settur og
hann hefði skjalið sjálfur undir höndum, en
munurinn felst í því að nú er um almenna
kröfu að ræða en ekki viðskiptabréfakröfú.
Þrátt fyrir að bréfið komi síðar í ljós og það
sannist að annar maður er kröfuhafi, þarf
skuldari ekki að greiða aftur ef hann greið-
ir dómhafa í grandleysi (þ.e. ef ekki sann-
ast á hann að hann hafi vitað að sá sem
hann greiddi til hafi ekki átt réttinn)," seg-
ir Sigurður að lokum. 55
Staðurinn fyrir hlutabréfin er ekki undir koddanum.
Skuldabréfin líka Svo mörg voru þau
orð. En hvað um skuldabréf? Þau eiga það
til að týnast líka og stundum heyrist af fólki
sem er að borga af einhverju hulduskulda-
Áskorun í Lögbirtingablaðinu
Reglan er sú að glatist hlutabréf
(sama regla gildir um bráðabirgðaskír-
teini), sem gefið hefur verið út, getur
stjórn félagsins stefnt handhafa þess
til sín með þriggja mánaða fyrirvara
frá síðustu birtingu áskorunar sem
birta skal tvisvar í Lögbirtingablaðinu.
4 þúsund bankahólf auð hjá
Landsbanka
Hjá Landsbanka íslands um allt land
eru 11.930 bankahólf. Af þeim eru alls
3.834 auð. Á Reykjavíkursvæðinu einu
eru 10.049 bankahólf. Það er því ekki
fyrirsjáanlegur skortur á bankahólfum
á næstuni.
45
L