Frjáls verslun - 01.07.1999, Side 47
á hræðslu þeirra sem halda að það sér flókið.
Einnig er hægt að fá í versluninni gott úrval
af bókum og kennsluefni sem hentar fólki á
öllum aldri og með kunnáttu á hvaða stigi
sem er. Má nefna bækur eins „Internetið á
eigin spýtur", bráðskemmtilega bók og létta
aflestrar, nýjan margmiðlunardisk frá Mynd-
bandaskólanum og ýmsar erlendar bækur
sem Guðmann Bragi Birgisson, forstöðumað-
ur Símans Internet, segir mjög góðar.
Netið, vettvangur samskipta
„Við leggjum okkur alla fram um að þjóna
viðskiptavinum okkar og segjum það megin-
markmið okkar að bæta samskipti manna á
milli," segir Guðmann. „Við lítum svo á að
Netið sé fyrst og fremst vettvangur bættra
samskipta og opni upp á gátt möguleika á því
að margir hafi samskipti samtímis (many to
many). Við reynum eftir fremsta megni að
fylgjast með nýjungum á þessu sviði og okk-
ur er kappsmál að vera fyrstir með nýjungar
sem nýtast viðskiptavinum okkar."
5 MB heimasiðusvæði og hrjú netföng
Þeir sem gerast áskrifendur að netinu hjá
Símanum Internet geta látið setja upp hug-
búnaðinn á staðnum sér að kostnaðarlausu.
Um það sjá tæknimenn fyrirtækisins og eftir
því að dæma hve margar tölvur biðu
eftir eftir afgreiðslu er enginn skortur
á fólki sem vill tengjast Netinu. Þeir
sem hinsvegar vilja setja upp netað-
gang sjálfir hafa til þess góða mögu-
leika, því með samningnum fylgir
geisladiskur með öllu því sem fólk
þarf til að hafa samskipti á Netinu.
Og vilji fólk búa til eigin heimasíðu,
sem er mjög vinsælt, fær það aðstoð
til þess hjá tæknimönnum Símans
Internet. Heimasíðusvæði það sem
viðskiptamenn Símans Internet fá við áskrift
er ríflegt, eða 5 MB að stærð og hver og einn
fær að auki til umráða þrjú netföng sem er
mjög hentugt fyrir fjölskyldur þar sem fleiri
en einn vilja komast að og hafa persónulegt
netfang.
Aðgangur að hugbúnaðarbanka
„Internetið snýst um samskipti milli
manna. Það að gera okkur kleift til að vinna
saman, leika okkur saman, gera hvað sem er
þar sem tveir eða fleiri hafa gagnvirk sam-
skipti sín á milli. Ein af augljósustu leiðunum
sem nú bjóðast til þess er (netleikjum," seg-
I þjónustuverinu er mikið álag. Þar hafa viðskiþtavinir Símans Internet aðgang að þjónustu-
fulltrúum fram á kvöld.
ir Guðmann. „í gegnum þá getur fólk keppt
við aðra í leikjum í gegnum netið og við fylgj-
umst stöðugt með nýjungum á þeim markaði
og breytum leikjaþjónunum eftir þörfum.
Áskrifendur okkar fá líka aðgang að einum
stærsta hugbúnaðarbanka heimsins,
Tucows. Ef einhvern vantar forrit er auð-
Síminn Internet er til húsa að
Grensásvegi 3.
velt að hafa samband þangað og skoða það
sem í boði er. Mestar líkur eru á því að forrit-
ið finnist hjá Tucows og þá hafa bæði tími og
peningar sparast með því að leita bara á einn
stað."
Stutl og gagnleg námsheið
„Það má kannski segja að við viljum að
Internetnotkun sé hverjum og einum sem
hagnýtust og m.a. þess vegna höfum við far-
ið út (að bjóða viðskiptavinum okkar fræðslu-
efni sem við kaupum í magni af framleiðend-
um þess og látum svo viðskiptavinina njóta
afsláttarins," segir Guðmann. „Við höfum líka
msEMmm
boðið upp á námskeið fyrir þá sem vilja læra
á Internetið, en þau eru stutt, aðeins eitt
kvöld. Þá er farið í gegnum það hvernig á að
nota netforritin, tölvupósturinn kynntur, bæði
hvernig hægt er að nota hann til einstaklings-
bréfaskrifa og þátttöku í póstlistum. Síðast
en ekki síst er farið í spjallrásirnar og frétta-
hópa, hvernig á að komast inn á þá og
hvernig þeir virka. Þessi námskeið
hafa verið vinsæl hjá okkur og þeim
verður haldið áfram f vetur."
Meðalaldurinn ekki hár
Hjá Símanum Internet starfa um 20
manns og meðalaldur er ekki hár.
Starfsmenn hafa menntun á ýmsum
sviðum, en sumir eru bara „fæddir með
tölvu í höndunum", eins og einn starfs-
maður skaut inn í samtalið. Þannig að
fjölbreytni er mikil og samstarf milli starfs-
manna gott og Guðmann segir þá alla keppa
að sama marki; gera viðskiptavinum kleift að
nota netið betur. 30
SIMINNintern er
-tengir þig við lifandi fólk
Sími: 800 7575 • Grensásvegi 3 • 108 Reykjavík
47