Frjáls verslun - 01.07.1999, Síða 55
Kristinn Þórarinsson við rafsuðu.
Jeþpakerra smíðuð hjá Víkurvögnum.
þannig að ekki næði vindur undir hann. Vagninn sjálfurer 2,10 m á lengd og 1,45
m á breidd ótjaldaður en tjaldið 15 fm uppsett og vegur um 300 kg. Með þenn-
an vagn er hægt að fara um allt landið."
Húsgögn og fylgihlutir
Fleiri tegundir vagna eru seldir hjá Víkurvögnum og má nefna Holtkamper
Flyer, og Holtkamper Astro sem margir kannast við en þeir eru mjög sterkir og
vandaðir og þola fslenskar aðstæður. „Það má heldur ekki gleyma húsgögnum og
viðlegubúnaði, einnig fylgihlutum sem við eigum til í miklu úrvali. Við eigum líka
nær alla varahluti sem þarf í tjaldvagna þá og kerrur sem fást hér á landi. Okkar
helsti samkeppnisaðili er innflutningurinn, en við erum bara með miklu betri vöru
og vandaðri og erum fyllilega samkeppnishæfir í verði," segir Þórarinn.
Reglum ehhi framfylgt
Þórarinn er ósáttur við þróunina í öryggiseftirliti varðandi aftanívagna og
tengibúnað bifreiða „Þetta var miklu strangara og meira lagt upp úr því að fylgja
reglugerðum þegar Bifreiðaskoðun íslands var og hét," segir hann. „Nú, þegar
eftirlit með bifreiðum og vögnum hefur færst í hendur margra aðila og enginn
einn hefur yfirlit yfir málið, þá er það undir hælinn lagt hvernig til tekst. Það eru
ekki lengur teknar stikkprufur og þær gegnumlýstar eins og var áður og afleið-
ingarnar af þessum breytingum eru vægast sagt slæmar. Sem dæmi get ég sagt
frá því að ég kom að stórslysi fyrir nokkru þar sem fellihýsið var af svipaðri
þyngd og bíllinn og var ekki með bremsur. Beislið var ekki nógu sterkt fyrir felli-
hýsið og það brotnaði, afleiðingarnar voru þær að fellihýsið þeyttist á tvo aðra
bila sem voru á veginum. Beislið hafði verið heimasmíðað af mikilli vankunáttu
og þoldi engan veginn álagið. Þarna þarf að koma til ábyrgðar skoðunarstöðva
sem eiga að stöðva svona lagað, enda mannslíf í veði."
Ég tel að tryggingarfélög eigi að skipta sér meira af örrygismálum varðandi
útbúnað á dráttarbeislum, kerrum og vögnum. Það skapaði kannski meira aðhald
fyrir skoðunarstofurnar. Ég er alls ekki að setja út á skoðunarstöðvarnar sem slík-
ar heldur er málið það að þar vinna skoðunarmenn
sem hvorki hafa þekkingu né menntun til að meta
hvort dráttarbeisli séu rétt smíðuð. Eins á við um
kerrur. Þetta er mjög alvarlegt mál sem þarf að
komast í fyrra horf sem allra fyrst." B3
Dvergshöfða 27 • 112 Reykjavík • S: 577 1030 • Fax: 577 1099
nk.
VÍKURVAGNAR EHF.
Knstinn Þórarinsson er dráttarbeislahönnuður Víkur-
vagna og beislasmiður.
Kristinn Gestsson og Sigurgeir Þórðarson sölumenn ásamt
Þórarni Kristinssyni, forstjóra Víkurvagna.