Frjáls verslun - 01.07.1999, Qupperneq 63
FJÁRMÁL
Rekstrarreikningur 19x1 Rekstrartekjur Rekstrargjöld ... 20.000 ... -18.000
Rekstrarhagnaður ... 2.000
Vextir af langtímalánum... ... -1.000
Hagnaður fyrir skatta ... 1.000
Skattar -300
Hagnaður ársins 700
Efnahagsreikningur
Árslok Ársbyrjun
Fastafjármunir ... 10.000 9.000
Veltufjármunir ... 8.700 7.000
18.700 16.000
Eigið fé ... 5.700 5.000
Langtímaskuldir ... 9.000 8.000
Skammtímaskuldir. ... 4.000 3.000
18.700 16.000
Hagnaður af fjármagni Útreikningur á arðsemi fjárfestingar er
í sjálfu sér afar einfaldur. Tengja þarf saman hagnað af rekstri fyr-
irtækis án vaxta af langvinnu ijármagni og fyrir skatta við heildar-
Ijármagn, þ.e. eigið fé og langtímaskuldir. Það er sem sé engum
sérstökum vandkvæðum bundið að reikna út þessa kennitölu, þ.e.
arðsemi heildarfjármagns, fyrir fyrirtæki í lieild, en þó er það
þannig að framsetning reikningsskila mætti almennt vera betri til
að auðvelda útreikninginn. Vandinn er að skipta arðseminni á ein-
stakar deildir fyrirtækis og kem ég að því hér á eftir. En lítum
fyrst á kennitöluna fyrir fyrirtækið í heild.
Hampiðjan til fyrirmyndar Rekstrarreikningum fyrirtækja er
venjulegast þannig stillt upp að sýnd er afkoma fyrirtækis fyrir
svokallaðar ijármunatekjur og fjármagnsgjöld. í þann flokk eru
felldar allar fjármunatekjur og allur fjármagnskostnaður, hvort
sem þessir liðir tengjast skammtíma- eða langtímaeignum og -
skuldum. Þetta er bagalegt því þessi framsetningarmáti torveldar
útreikning á kennitölunni um heildararðsemi, en í teljara brots fyr-
ir þá kennitölu setjum við rekstrarhagnað fyrir vexti af langtíma-
lánum. Að vísu er því þannig farið að sum fyrirtæki sundurgreina
vexti í skýringum og er það vel, því þá er unnt að einangra vextí af
langtímaskuldum. Þess ber þó að geta að eitt íslenskt fyrirtæki á
hlutabréfamarkaði, Hampiðjan hf„ hefur einmitt þann hátt á að
sýna vexti af langtímaskuldum sérstaklega — og er það tíl fyrir-
myndar. Hjá Hampiðjunni hf. blasa við þær tölur í reikningsskilun-
um sem nota þarf tíl þess að reikna kennitöluna út.
Fjármagn taundið í fyrirtækinu í nefnara brots-
ins, arðsemi heildarijármagns, er samtala fjái'-
magns fyrirtækis sem bundið er tíl langs tíma, þ.e.
eigið fé og langtímaskuldir. Rekstrarhagnaðurinn
fyrir vextí og skatta samkvæmt rekstrarreikningi er
arðurinn af þessu Ijármagni. Það er því mjög áhuga-
vert að rannsaka hvernig reksturinn gengur í sam-
anburði við ljárhæð þess fjármagns sem bundið er í
fyrirtækinu. I einföldunarskyni er iðulega miðað við
meðalstöðu langvinns fjármagns á árinu en rökréttast
er þó að miða við upphafsstöðu að teknu tíllití tíl breyt-
inga á fjármagnsstöðunni á árinu, þ.e. líta tíl þess hvort
nýtt lánsfé eða eigið fé hafi bætst við á árinu.
I skýringardæminu hér á eftir, en þar eru vaxtatekj-
ur og vaxtagjöld af skammtímaeignum og -skuldum
flokkaðar sem rekstrartekjur og -gjöld tíl ákvörðunar á
rekstrarhagnaði, erarðsemi heildarfjármagns um 15,4%,
þ.e. 2.000=rekstrarhagnaður/13.000=eigið fé í ársbyrjun.
Sé fyrirtækið að greiða 12% vextí af langtímalánum verð-
ur ljóst að hluthafinn fær í raun meiri arð en sá sem á láns-
féð. Það fer vel á því þegar tillit er tekið til þeirrar áhættu
sem hvílir á eigin fé. í þessu dæmi þarf ekki að huga að
leiðréttingu fyrir áhrifúm nýs fjármagns, þar sem nýtt lang-
tímalán var tekið í árslok og það hafði því ekki áhrif á tekju-
myndun fyrirtækisins á árinu. Ef það fjármagn hefði runn-
ið til fyrirtækisins fyrr á árinu, hefði á skynsamlegan hátt
þurft að taka tillil tíl þess.
Afkoma deilda. Er heildarkagnaður einhvers fyrirtœkis að mestu komin frá einhverri lítilli deild —
þar sem lítið fé er bundið og fáir starfa? Heldur kannski ein deild annarri uþþi? Hvernig er hægt
að reikna út arðsemi einstakra deilda?
63