Frjáls verslun - 01.07.1999, Page 66
Gróa Ásgeirsdóttir hafði umsjón með fegurðarsamkeppnum árum saman en starfar
nú hjá markaðsdeild Flugfélags íslands og veiðir lax í tómstundum sínum.
FV-mynd: Geir Olafsson.
Flugfélagi Islands
kkar meginverkefni um þess-
ar mundir er að kynna fyrir
markaðnum nýja þjónustu
þar sem Flugfélag Islands vill einkum
höfða til fyrirtækja og þeirra farþega
sem ferðast mikið í viðskiptaerindum
innanlands og vilja t.d. fara fram og til
baka sama daginn. Góð ferðatíðni ger-
ir það mjög auðvelt.“
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
Gróa Ásgeirsdóttir er verkefna-
stjóri í markaðsdeild Flugfélags Is-
lands og þannig lýsir hún kjarnanum í
helsta verkefni deildarinnar um þess-
ar mundir.
Það er ekki þannig að verið sé að
búa til fýrsta farrými eða Saga Class
um borð í Fokkernum því til þess er
varla aðstaða og flugleiðir innanlands
yfirleitt styttri en svo að ráðrúm gefist til að veita
mikla þjónustu um borð. Þess vegna er reynt að
koma tíl móts við þarfir viðskiptafarþega eftir öðr-
um leiðum.
„Þeir sem nýta sér þessa þjónustu þurfa ekki að
bíða í röð eftír miðanum heldur fara beint í innritun
15 mínútum fyrir brottför enda fýrirtæki yfirleitt
búin að ganga frá miðanum áður. Farþegar hafa for-
gang á biðlistum og geta breytt bókunum eftir
þörfum án þess að greiða aukalega fyrir það. Flest-
ir afsláttarmiðar eru háðir ýmsum skilyrðum en
þessi þjónusta er án skilyrða.
Flugfélag íslands hefur í tengslum við þessa nýj-
ung boðið einstaklingum og fýrirtækjum að gerast
handhafar sérstakra greiðslukorta, svokallaðra
Flugkorta, sem það gefur út í samvinnu við
Europay.
Handhafar Flugkorts fá send viðskiptayfirlit
reglulega þar sem sjá má útlagðan ferðakostnað og
önnur viðskipti við samstarfsaðila Flugkortsins á
tímabilinu. Hagræðið af þessum kortum er mikið
því með þessu er fýrirtækjum í reikningsviðskipt-
um við Flugfélag íslands gert mun auðveldara að
fýlgjast með hinum ýmsu kostnaðarþáttum sem
fýlgja ferðalögum starfsmanna.
Flugkortið má nota að vild hjá öllum þeim sem
að kortínu koma. Um hver mánaðamót er greiddur
afsláttur inn á reikninginn sem nemur 10 til 35%.
„Stórum fýrirtækjum þar sem margir starfs-
menn ferðast víða finnst þessi þjónusta afar þægi-
leg því þarna sést í sjónhending hver ferðast hvert
og til hvers.“
Með haustinu verður síðan fyrirtækjum boðið
upp á sérstaka nýjung sem felst i því að fara út á
land með vinnufundi og blanda svolítilli afþreyingu
saman við. Saman í pakkanum verða fargjöld á sér-
stöku verði og fúndaraðstaða.
Gróa hefur komið að mörgum þáttum sem lúta
að ferðaþjónustu með einum eða öðrum hættí. Hún
starfaði lengi á hótelum, bæði í gestamóttöku og
síðan um árabil á Hótel íslandi, og var einnig fram-
kvæmdastjóri fegurðarsamkeppna sem Olafur
Laufdal sá um.
„Ég á ungan son sem er sex ára og var heima-
vinnandi um hríð eftír að hann fæddist en fór síðan
í Ferðamálaskóla Flugleiða og í framhaldinu fór ég
að vinna hérna í markaðsdeildinni. Þetta var mjög
góður skóli sem veitir mér ákveðin réttíndi á því
starfssviði sem ég vil helst starfa á.“
Gróa er í sambúð með Hermanni Gunnarssyni
þáttagerðarmanni og hún segir að tómstundir gef-
ist misjafnlega miklar.
„Mitt stóra áhugamál eru laxveiðar og uppá-
haldsáin mín er Norðurá í Borgarfirði. Því miður
hef ég ekkert komist í veiði í sumar vegna anna.
Mér finnst líka gaman að fara á skíði og ég stunda
leikfimi og líkamsrækt í Ræktinni útí á Seltjarnar-
nesi.“ 35
66