Frjáls verslun - 01.02.2000, Blaðsíða 79
SKANNAR
Hewlett Packard með ScanJet
HP Scanjet 6300 serían er fáanleg í
þrem útfærslum. 6300C skann-
inn er seldur án allra aukahluta.
Með 6350C skannanum fylgir 25
bls. pappírsmatari. í 6390C skann-
anum fæst hvort tveggja matari og
glærulok sem skannar inn glærur yg|
af allt að 12,7 x 12,7 sm stærð plús
SCSI kort og kapall. Að auki fylgir
35mm skyggnulok með öllum skönnunum.
HP Scanjet 6300 serían eykur vinnuafköst með
auknum hraða og nýjum flýtimöguleikum. Með því
að ýta á einn flýtihnapp er hægt að skanna beint hvort sem
er í ljósritun, í tölvupóst, á faxið, inn í skrá eða einfaldlega bara
skannað...
Skannarnir eru með USB tengi (Windows 98) en hafa möguleika á
SCSI tengingu (Windows 95/98 og NT) með þar til gerðu SCSI korti
og kapli. Þeir skanna inn í allt að 1200x2400 punkta upplausn og eru
innan við níu sekúndur með 10x15 sm ljósmynd. HP PrecisionScan
LAN hugbúnaður fylgir með öllum skönnum en það gerir mönnum
kleift að nettengja skannann. B!]
HP Scanjet serían fœst í þremur útfærslum.
OPIN KERFIHF
HEWLETT
PACKARD
Linoscan hjá Aco
Linoscan 1200 er nýjasta af-
kvæmi Heidelberg sam-
steypunnar á fýrirtækja- og
heimilismarkaðnum. Skanninn
er með USB tengi, hann er
hraðvirkur, áreiðanlegur og
hljóðlátur.
Skönnunin er í 1200
punkta upplausn, 36 bita með
Density 2,8. Skannflöturinn
er 215,9x355 á pappír en
215,9x297 á skyggnur.
Hugbúnaðurinn er LinoColor
Elite og er það einn besti skannahug-
búnaður sem völ er á. Með LinoColor kem-
ur einnig ICC litstýringarkerfi sem byggist á al-
þjóðlegum staðli.
Linoscan skanninn hentar mjög vel fyrir fyrirtæki og Linoscan hentar vel fyrir heimili ogfyrirtœki.
heimili þar sem menn vilja skanna góðar myndir á hámarks-
hraða. 33
79