Frjáls verslun - 01.02.2000, Page 66
STJÓRNUN
Leiðtogaþjálfun fyrir konur
Ein af ástæðunum fyrir því að mikil-
vægt er að þjálfa konur í leiðtoga-
hlutverkið er að konur eru stund-
um hikandi við að vera í ábyrgðar- og
stjórnunarstöðu vegna spennu sem
kann að myndast á milli hlutverka innan
heimilis annars vegar og atvinnu hins
vegar. I viðbót við þá spennu kemur
álagið af því að þurfa sífellt að líta vel út
og vera harður af sér. Þær hafa gjarnan
minni hvatningu en karlar í þeim skiln-
ingi að þeirra bíður ekki eitthvert net
sambanda og samskipta sem gott er að leita til sem stjórn-
andi.
Ljóst er að íslensk fyrirtæki þurfa að takast á við nýja og
krefjandi stjórnarhætti á nýrri öld þar sem þörf er á betri nýt-
ingu beggja kynja til að halda samkeppnisstöðu. Heilsárs
leiðtogaþjálfun fýrir konur, sem gengur undir heitinu
STEPS, var fyrst kynnt á kvennaráðstefnunni „Konur og lýð-
ræði“ sl. haust af starfsþróunarfyrirtækinu Skref fyrir skref.
Framvinda mála eftir ráðstefnuna hefur verið hröð en ásamt
því að bjóða núna íslenskum konum í stjórnunarstöðum leið-
togaþjálfun er hafinn útflutningur á verkefninu, m.a. til Rúss-
lands og Litháen. Fyrsta þjálfunarnámskeiðið á Islandi hófst
þann 29. febrúar og samanstendur þátttakendahópurinn af
fjórtán konum víðsvegar að úr atvinnu-
lífinu.
Sérhönnuð þjálfun „STEPS er alfarið
þróað innnan Skrefs fyrir skref og bygg-
ist á rannsóknum og margra ára reynslu
fyrirtækisins við almenna þjálfun stjórn-
enda,“ segir Sigrún Jóhannesdóttir
verkefnastjóri. „Notast er m.a. við þekk-
ingu sem hefur fengist í rannsóknum
fyrirtækisins, sem styrkt er af Evrópu-
sambandinu, um þátttöku kvenna í
ákvarðanatöku. A Islandi hefur ekki fyrr verið boðið upp á
sérhannaða þjálfun sem þessa og er markmiðið að þjálfa kon-
ur til forystu og leiðtogastarfa." Einnig er ætlunin að þær
konur sem taka þátt í námskeiðinu geti flutt sína þekkingu
áfram til annarra kvenna og orðið lærimeistarar þeirra, ef svo
má að orði komast. Styrkur einnar konu verður þannig styrk-
ur fleiri sem vilja gerast góðir og farsælir stjórnendur og leið-
togar á sínu sviði. Markmið STEPS eru að auka hlut kvenna
í framkvæmda- og stjórnunarstöðum, að virkja ónýttan
mannauð kvenna og efla þannig samkeppnishæfni fýrirtækja.
Að takast á Við hið Óvænta Einkenni góðra leiðtoga og frum-
kvöðlahugsun eru meðal þess sem þátttakendur munu tileinka
sér á þjálfunartimanum. Aukin þekking á og árangursrík-
ar aðferðir við að skapa og þróa nýjar hugmynd-
ir, þ.e. nýsköpun og upplýsingaleikni, eru
einnig áberandi námskeiðsþættir. Þátttak-
endur munu auka þekkingu sína og verk-
lega færni í alþjóðlegum samskiptum og
samvinnu og styrk sinn í myndun og
viðhaldi tengslaneta að lokinni þjálfun.
Þær munu hafa lært sérstakar aðferðir
við að glíma við erfiðar aðstæður sem
stjórnendur með aukinni sjálfsþekk-
ingu og fengið þjálfun í að glíma við sið-
ferðislegar spurningar. Auk þess má
sérstaklega nefna að þátttakendur
munu hafa eflt nauðsynlega
hæfni til að breyta kvíða í
jákvæða orku. I þvi
felst m.a. hæfni til
að takast á við hið
óvænta í síbreyti-
legu starfsum-
hverfi 21. aldar-
innar, m.a. með
tilliti til
tækninýjunga,
Qölmiðla og
fjölbreyttari
samskipta-
hátta.
Konursitja aðeins í örfáum af
œðstu stjórnunarstöðum hér á
landi, innan við 2%, þrátt jyrir
að þær hafi í auknum mœli afl-
að sér menntunar til jafns við
karla.
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur Myndir: Geir Ólafsson