Frjáls verslun - 01.02.2000, Blaðsíða 42
HEILSUBÆKT
Aannarri hæð Hótels Esju er Planet
Pulse, svokölluð SPA stöð þar sem
unnið er eftir hugmyndinni um að
líkamleg og andleg næring séu ein heild
og að þarfir athafnafólks, sem hefur lít-
inn tíma, beri að virða. Fólkið fær m.a.
einkaþjálfun, séð er til þess að tími þess
nýtist vel og það fær að öllu leyti bestu
þjónustu sem völ er á ásamt axlanuddi,
sem nýtist vöðvabólgufólkinu vel.
Þær Jónína Benediktsdóttir og Júlía
Þorvaldsdóttir hafa rekið Planet Pulse í
þrjú ár en SPA hugmyndin er upphaf-
lega komin frá Belgíu. Jónína notaði
SPA fyrst á heilsuræktarstöð sinni í Sví-
þjóð en hefur þróað það talsvert síðan
og leggur nú áherslu á samvinnu við
hótel fýrst og fremst; að hótelin séu við-
urkennd SPA hótel.
Ferðamenn koma í SPA „Heilsurækt á
víðum grunni er líklega sá starfsvett-
vangur sem vex hraðast í heiminum í
dag fyrir utan margmiðlun," segir Jón-
ína. „Það sem við höfum fyrst og fremst
verið að vinna að undanfarin ár er sú
hugmynd að ferðamenn komi hingað til
landsbyggðinni eru ákjósanlegir til
þessa og ég hef þegar farið á nokkra
staði til að kynna SPA hugtakið. Meðal
annars á Egilsstaði, Klaustur og Isafjörð
þar sem áhugi reyndist mikill, sérstak-
lega hjá konunum því þetta er atvinnu-
grein sem hentar konum alveg einstak-
lega vel og getur orðið til þess, þar sem
hótelin eru nánast tóm yfir vetrarmán-
uðina, að skapa betri grunn undir at-
vinnulífið.
Jónina BenediktsAóttir
ogjúlía Þorraldsdáttir.
eigendur Planct Pnlsc á Hótcl Esjit.
Nýsköpunarsjóður aðstoðar Þær stöll-
ur leituðu til Nýsköpunarsjóðs sem
reiknaði út kostnaðaráætlanir fýrir ýms-
ar stærðir hótela og nú hafa þær í hönd-
unum tilbúnar áætlanir fyrir rekstur
SPA hótela af öllum stærðum og ráða
yfir skóla til starfsmannaþjálfúnar; allt
sem þarf til að koma á laggirnar full-
kominni SPA þjónustu hvar sem er á
landinu. FBA hefur og sýnt því áhuga
að athuga möguleikana hér heima og
erlendis og þær eru bjartsýnar um
framtíðina en vilja samt ekki missa sjón-
ir á þeirri grasrótarhugsun sem er
grunnurinn að hugmyndafræðinni: Að
SPA hugmynd
Jónínu
að fara í SPA meðferð og til að hvílast.
Þessi hugmynd er ekki ný af nálinni,
t.d. er heilt þorp í Austurríki þar sem
allir eru á einn eða annan hátt viðriðnir
geysistórt SPA hótel. Öll aðföng koma
úr héraðinu og má einu gilda hvort það
er matur, lín eða annað sem nota þarf
og starfsfólkið er allt úr nágrenninu.
Þetta gerir að verkum að ótrúlega þægi-
legur blær er yfir staðnum og hótelið er
með öllu laust við „Hollywood" tilfinn-
ingu sem annars getur komið upp þar
sem boðið er upp á svona þjónustu.
Þetta er það sem okkur dreymir um
að skapa hér á landi. Margir staðir á
Þær Jónína Benediktsdóttir og
Júlía Þorvaldsdóttir, sem reka
Planet Pulse, hafa í höndunum
tilbúnar áætlanir fyrir rekstur
SPA hótela, heilsuhótela, hvar
sem er á landinu!
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur Mynd: Geir Ólafsson
notfæra sér afurðir náttúrunnar til
heilsubótar og að virkja áhugasamt
starfsfólk sem gjarnan kemur úr ná-
grenninu.
Míkið í húfi Jónína segir þær ekki
hafa auglýst mikið erlendis, aðeins
einu sinni í blaði Flugleiða. „Sú aug-
lýsing gerði að verkum að nú hafa
komið á annað hundrað ferðamenn til
að njóta þjónustu Planet Pulse á Is-
landi. Við áttum svo sannarlega ekki
von á svona góðri svörun þó svo að við
vissum að hún yrði nokkur. Nú eru öll
meðferðarherbergi full hjá okkur og
eftirspurnin mun meiri en framboðið,"
segir Jónína.
Þarna eru gífurlegir peningar í húfi.
Hver ferðamaður sem kemur til lands-
ins og fær t.d. fjögurra tíma þjónustu
FBA hefur og sýnt því áhuga að athuga möguleikana hér heima og erlendis og
þær eru bjartsýnar um framtíðina en vilja samt ekki missa sjónir á þeirri gras-
rótarhugsun sem er grunnurinn að hugmyndafræðinni; Að notfæra sér afurðir
náttúrunnar til heilsubótar.
42