Frjáls verslun - 01.02.2000, Blaðsíða 13
Nethugmynd verðlaunuð
FRETTIR
markaðs fyrir sjávarafurðir
á Internetinu og að verða
leiðandi afl á því sviði.
Markmiðið er að nýta ann-
ars vegar þann mikla og
góða aðgang sem Berkeley
háskóli og Silicon Valley
veita að öllu því nýjasta á
sviði Netviðskipta og há-
tækni og hins vegar sér-
þekkingu og sérstöðu ís-
lands á öllu sem viðkemur
sjávarútvegi," segir Einar
sem leggur áherslu á frum-
kvöðlafræði, hátækni og
áhættuijármagnsfræði í
námi sínu.
Þóroddur Ingvarsson
fékk önnur verðlaun fyrir
hugmynd á sviði íþróttaiðk-
unar sem á erindi um allan
heim en væri hægt að út-
færa frá Islandi með hagnýt-
ingu Internetsins og Gæða-
Margrét Sigvaldadóttir tók við verðlaununum fyrir hönd Einars Sig-
valdasonar, Darri Mikaelsson veitti verðlaunum Þórodds Ingvars-
sonarviðtöku ogSigrún Kr. Magnúsdóttirframkvæmdastjóri tók við
verðlaunum Gæðastjórnunarfélagsins.
FV-mynd: Geir Olafsson.
stjórnunarfélag íslands fékk
þriðju verðlaun fyrir hug-
mynd sem auðveldar félög-
um, fyrirtækjum og stofnun-
um að dagsetja ráðstefnur
og stærri viðburði ásamt því
að auka hagræði við skipu-
lagningu og framkvæmd
viðburða.
Aukaverðlaun fengu
Helgi Örn Viggósson fyrir
Þekkingarsetur á Netinu og
Högni Hallgrímsson, Hlynur
Konráðsson og Brent
Thompson fyrir hugmynd
sem auðveldar notendum
sendingu gagna á öruggan
hátt yfir Internetið.
Alls bárust tólf tillögur í
keppnina. 33
□ urnham Inter-
national hefur til-
kynnt úrslit í sam-
keppni um bestu viðskipta-
hugmyndina á Internetinu.
Einar Sigvaldason, við-
skiptafræðingur og MBA
nemandi í Berkeley háskóla
í Kaliforníu í Bandaríkjun-
um, hlaut fyrstu verðlaun
fyrir hugmynd sem er að
sögn dómnefndar í senn al-
þjóðleg og byggist á sér-
þekkingu Islands á sölu og
markaðssetningu fisks.
Dómnefndin taldi að ef út-
færslumarkmiðum yrði náð
væri líklegt að viðkomandi
fyrirtæki næði lykilstöðu á
markaðnum og gæti verið í
aðstöðu til að vernda hana
til langframa.
„Hugmyndin snýst um
stofnun alþjóðlegs uppboðs-
Hversu öruggt er
í þínu fyrirtæki?
Hver les tölvupóstinn þinn?
Eru gögn fyrirtækisins í öruggu umhverfi?
Eru gögn á fartölvunni þinni vernduð ef þú glatar henni?
70% fyrirtækja hafa orðið fyrir skaða vegna gagna
sem hafa verið misnotuð eða horfið!
Yfir 60 % tölvuglæpa eiga sér stað innan veggja fyrirtækisins!
Nokkrir aðilar sem Utimaco hefur unnið fyrir.
Evrópusambandið siðan 1996
USB bankinn Sviss, Barclays bankinn Bretlandi
Swedbanken, einn stærsti banki f skandinavíu
Hollenska og Belgíska lögreglan
VW bílaverksmiðja í Þýskalandi
Norska póstþjónustan.
Rittækni
TÖLVUÖRYGGI & HUGBUNAÐARLAUSNIR
Skipholti 50d 105 Reykjavfk
sími 561 5040 fax 511 2289 www.rittaekni.is
13