Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1966, Side 21
Þórður tyllir sér á úlfalda fyrir framau gröf Lazarusar í Betaniu.
1® ára, og svaf hún fiar á gauðrifnum og
grútskítugum pokaræflL
Annars hefur verið unnið stórt átak
I bygginígarmálum fólksins með bygg-
ingu hinna nýju verkamannabústaða-
Ihverfa. Sá er einn hængur þar á, að
ifóikið virðist ekki kunna að meta það.
Sá maður það á svölum húsanna, að
þangað hafði fóikið tekið með sér sóða-
ekapinn af götunum, eins og það gæti
©kki án hans verið.
Laugardaginn 15. október risum við
érla úr rekkju, og eftir morgunverð fór-
«m við í skoðunarferð um borgina. Mér
er minnisstæð koma okkar í eitt fræg-
asta forngripasafn í heimi, þar sem hin-
ar dýrmætu fornmenjar þessa gamla
og fornfræga menningarlands eru
geymdar.
í einum stórum sai voru geymdir
þeir gripir, sem fundust í þeirri einu
gröf, sem fannst órænd í Dauðadaln-
«m, þar sem konungagrafirnar voru. —
1 iNútímamaðurinn getur alls ekki gert
eér í hugarlund, hvílík geysileg auðæfi
eru þarna saman komin.
Sá konungur, sem átti þessa gröf,
liafði verið 19 ára piltur og ekki ráðið
i xíkjum í meira en 7 ár. Sagt hefur ver-
h£ð, að verðgildi þess, sem í gröfinni
' ifannst, reiknað á nútímamælikvarða,
Eiyndi duga til þess að heyja stórstyrj-
©ld í 4 ár á nútímavisu.
6 kistur hafa verið settar utan um
blessaðan Faróinn. Sú innsta, sem næst
Var líkamanum, var úr skíra gulli og
í vó 110 kíló, og mun kílóið af gullinu
Bettlega reiknað jafnvirði S5.000 króna
I felenzkra. Oig höfuðgríman var öll úr
| gulIL Næsta kista er úr sedrusviði,
*pónlögð með gulli, og er miklu dýrari
en fyrsta kistan.
Hvíteiunkar bera krossinn eftir
Via Dolorosa.
Kisturnar sex fara svo allar stækk-
tmdi, og sú síðasta er á stærð við stærð-
ar bílskúr. Allt er þetta lagt með spóna-
gulli utan og innan.
Það virðist hafa verið hugsað fyrir
611u, sem unglingurinn, kóngurinn
þurfti að hafa með sér yfir í annað
iíf, og allt lagt í gröf með honum, svo
að hann þyrfti þar enga neyð að þola
eða skorta þægindi.
ÍÞarna voru hermenn og þrælar, hest-
®r og úlfaldar, — og yfirleitt allir hlut-
ir, sem nauðsynlegir eru til lífsviður-
Væris hérna megin grafar.
Gaman var að sjá öll fegurðarlyfin,
sem lögð voru í gröfina. Þarna var and-
litsfarði, eins og ungar stúlkur nota 1
dag, Umvötn, naglasköfur, púður, hára-
litur, varalitur, augnalitur- og augn-
Ihára. AUt var þetta notað fyrir 6500 ár-
«m, og allt or það notað enn í dag. Bkki
miklar breytingar á þessu sviði i heim-
inum, og svo erum við að stæra okkur
af nýjustu tizku, O, svei!
Einnig voru lagðar 1 gröfina 16 teg-
ondir af alls kyns fræjum, ef ekkert
Bkyldi vera tU af þeim hinumegin. Og
þessi fræ eru enn í fullu gUdi og spíra,
eí þau ná í jarðveg eftir öil þessi ár,
,, ViS höldum út í eyðimörkina.
1 Eftir að hafa þrammað um saU þarna
á safnimu, var haldið út í eyðimörkina,
allt að pýramídunum frægu og Sfinx-
inum, ljóninu með mannsandlitið, sem
■tarir fram fyrir sig í ómældri og órofa
þögn aldanna.
Við riðum svolítinn spotta yfir eyði-
Biörkima á úlföldum. Þeir eru svolítið
V.
j 24. desemiber 196S. -. ■ ■■
hastir, greyin, en máski er það ekki
vel að marka, því að við riðum í hnakk,
en venjan er að sitja í söðli, áþekkum
ísienzka króksöðlinum. Þetta eru þæg
og vitur dýr, en ég held, að engin okk-
ar hafi viljað skipta á þeim og íslenzka
hestinum. Pýramídarnir eru stórkostleg
mannvirki. Þeir voru flóðlýstir, þegar
kvölda tók. Sfinxinn er örlítið brotinn,
en mikilúðlegt minnismerki aUt að einu
um horfna menninigu.
Á þessum slóðum dimmir um 8-leyt-
ið, og þar er ekkert rökkur, heldur
snöggdimmir, og á skammri stundu er
komið svartamyrkur.
Við héldum svo næst enn lengra út
í eyðimörkina og í litlum eyðimei'kur-
bæ, komum við inn í veitingaihús, sem
nefndist Sahara, þar sem dökkhærðar
og þeldökkar arabastúlkur skemmtu og
gengu um beina. Fallegustu hnátur, og
snS sjá á einni myndinni, hvar ein
þeirra reynir að faðma mig, blómakóng
úr Kópavogi. Sennilega haldið, að ég
væri einhverskonar „sheik“ í heima-
landi mínu, sem ætti stórt kvennabúr.
Mánudagurinn 17. október var notað-
ur til að skoða Aswansstífluna nafn-
frægu og Hofdalinn, þar sem verið er
að reyna að bjarga hinum fetóækostlegu
fornmenjum frá því að fara í kaf við
stíflugerðina.
Við flugum fyrst frá Kairó til Luxor
og komum þangað rétt um 10 leytið um
morguninn. Við fórum þar í bátum yfir
Níl. Skoðuðum Dauðadalinn og Þebu,
þar sem konungagrafirnar, grafir Faró-
anna eru. — Sú sjón, sem þar mætti
manni, er nærri ólýsanleg. Maður er
lengi að jafna sig eftir þau undur og
stórmerki.
Síðan flugurn við til Aswan og kom-
um á hið fræga hótel, þar sem Nasser
og Krushev ræddust við. Einstaklega
■gott hótel og góður matur. Sváfum þar
af nóttina.
Aswanstíflan er stórkostlegt mann-
virki. Við ók'um þangað í bílum. Þarna
vinna um 30.000 manns, þar af aðeins
300 Rússar, en hitt allt Egyptar.
Reyndist þarna hinn mesti munur á
klæðaburði fólks. Verkfræðingarnir
voru snyrtilega klæddir í blá föt og
hvítar skyrtur, — en verkalýðurinn
sjálfur var illa klæddur í buxnaræflum,
berfættir með helbláar lappir.
Næsta dag ókum við meðfram Súez-
skurðinum. — Þar voru akrar og rækt-
un í góðu lagi. Alveg var það furðu-
legt að sjá skipin sigla þarna inni í
miðri eyðimörkinni, rétt eins og þau
sigldu á þurru. Við fórum tvisvar alveg
að skurðinum og steinsnar frá okkur
sigldu þessir miklu risax hafsins, ýmist
tóm eða velfermd.
Við busluðum í Rauðahafinu í þrjár
kiukkustundir. Það var dásamlegt busl
í sól og hita. Yfirleitt undrast. maður
all-t það stóra og mikla, sem manns-
höndin hefur framkvæmt á þessum
eyðisöndum. Eyðimörkin stóra var áð-
ur vön að gleypa margan manninn, ea
í dag sigla skip í gegnum hana, bílar
þjóta eftir henni, glæsilegir veitinga-
staðir hvarvetna, þar sem kældur svala-
drykkur bíður manns, coca-cola virðist
fást um heim allan.
Að synda í Rauðahafinu var ógleym-
anlegt. Hlaupa upp á sandinn, velta sér
í sólbökuðum sandinum og 9vo út í aft-
ur til að skola sig. Þetta var næstum
því of gott til að vera satt.
8. korn. Leiðin liggur til
landsins helga.
„Ó, Jerúsalem, npp til þin
andi minn sífellt þráir,
en heimtufrekjan hefnir sín,
hógyjberðin góðu spáir.
Mikii er syndasektin mín,
satt er, þó viti fáir.
Þó nóg sé um þitt náðarvín,
nægja mér súrar áfir.“
Og þá komum við til hinnar himn-
esku borgar, Jerúsalem, á föstudegi 2L
október. Eftir að hafa þvegið af okkur
ferðarykið, hvílt okkur og borðað góðan
mat. fórum við um nónbil að skoða
gömlu Jerúsalem.
Það fer um mann undarleg tilfinning
við að ganga um söguslóðir Biblíunnar.
— Liggur við, að menn finni sig td
knúða að draga skó af fótum sér, því
að hér er heilög jörð.
Sögurnar um Jesú Krist og allt hana
lif, verða ljóslifandi fyrir okkur.
Rétt um það bil og við komum að
leið Krists til Golgata — Via Dolorosa
— vegi píslarinnar — eru Hvítmunk-
ar að leggja af stað í helgigöngu með
kross eftir þessum heilaga vegi. Það
er siðvenja í þessari borg á föstudögum,
og við erum svo lánsöm að vera þá
þarna stödd.
* Við hefjum ferðina á Gabbata —
Steinhlaði, — þar sem Pílatus dæmdi
Jesúm til dauða. Via Dolorosa hefúr
verið skipt í 14 áfanga, sem allir minna
á ákveðna atburði, sem píslarsagan
segir, að hafi gerzt á þessari leið.
Afskaplegur mannfjöldi gekk í fót-
spor Hvítmunkanna, og fannst mér
þetta óskaplegur viðburður.
Að standa á Golgata, — Hausaskelja-
stað, — er atburður, sem snertir hjcirta
hvers kristins manns. Gröf Krists, þar
sem engillin sagði þessi eftirminnilegu
orð: „Hann er upprisinn!" — Allt þetta
grópast í hug manns og vill ekki víkja
þaðan.
Föstudagurinn langi stendur okkur
Ijóslifandi fyrir hugskotssjónum eftir.
Næsta dag er gengið um Getsemane-
garðinn, haldið til Betaníu, og var þar
skoðuð gröf Lazarusar, farið yfir Judeu-
eiði, stanzað, þar sem miskunnsami
Samverjinn gerði líknarverk sitt. Kom-
ið til Jeríkó, fjölmennustu borgar I
Jórdaníu. Borgin sjálf liggur um 300
metra undir yfirborði sjávar, en Dauða-
hafið, þar nærri, liggur þó 50 metrum
neðar. Fólkið í Jeríkó virtist okkur gott
og fullt af lífi. Þar er mikil banana-
ræktun, því að þar eru vatnsuppsprett-
ur.
Við böðuðum okkur í Dauðahafinu,
sem er saltasta vatn heimsins. Dálitið
vax skrýtið að koma út í það. Það var
þungt að vaða í þvi, og ómögulegt að
sökkva. Maður flaut eins og korktappi,
eu við vorum vöruð við að láta sjó-
inn fara í augun á okkur. Það kom nú
samt fyrir mig, og fannst mér það ekk-
erf átakanlega vont. Mig sveið svolitla
stund, en það jafnaði sig.
Sagt hefur það verið, að fólk, sem
dottið hefur fram yfir sig í Dauðahafið,
hefði drukknað, vegna þess, hve erfit*
er að snúa sér við í því vegna seltunnar.
Faðir vor á íslenzku.
Á sunnudaginn fórum við í Allra þjóða
kirkju. Þar hefur Faðir vorinu verið
komið fyrir á töflum á 36 tungumálum.
Við fundum þar danska útgáfu, en
hvergi komum við auga á íslenzka þýð-
ingu. Til að bæta úr þessu, fór Guðni
fararstjóri með það upphátt þarna á
íslenzkiu.
Var það tilkomumikil stund, þvf a3
hann var þar. sannarlega í essinu sínu,
alveg eins og prestur með sinn myndar-
lega hökutopp.
Um nóttina gefek mikið á í JerúsaÞ
em, þrumnr og eldirtgar og hellirigning.
Þrumurnar voru svo miklar, að hótel-
ið skalf og nötraði í stærstu hrinunum.
Og þá er ekkert annað eftir en að
segja, að heim komumst við með hjáip
Faxanna hjá Ftlugfélagi fslands og læt
ég svo þessari reisubók lokið, með þá
einlægu vissu í buga, að heima er bezt
að vera, já, heima er ailra bezt.“
Arabastúlkan var þeldökk og dökkhærð og vel frísk og einhvernveginn finnst
manni, eins og Þórði líki ekki allskostar, hverju sem veldur. Þetta er á veit-
ingastað í eyðimörkiiwi, nærri Pýramidunum.
■LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 45