Morgunblaðið - 06.01.2001, Síða 62
FÓLK Í FRÉTTUM
62 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ungt fólk
í Evrópu
Næsti umsóknarfrestur
er 1. febrúar 2001
Þeir, sem ætla að vinna verkefni á tímabilinu 1. maí-
30. september með styrk frá UFE, geta nýtt sér um-
sóknarfrestinn í febrúar. UFE styrkir fjölbreytt verk-
efni, má þar nefna ungmennaskipti hópa, sjálf-
boðaþjónustu einstaklinga og frumkvæðisverkefni.
Landsskrifstofa Ungs fólks í Evrópu
Hinu Húsinu, Aðalstræti 2, 101 Rvík.
Sími 552 2220
ufe@rvk.is
www.ufe.is .
ÞAÐ verður ekki af tæknóhausum
Íslands skafið að þeir eru algerlega
óþreytandi að veita erlendum raf-
tónlistarstraumum til landsins.
Ýmislegt bitastætt hefur borist
með þessum reglubundnu straum-
um en í þetta sinnið færi kannski
betur á að tala um risahnullung
fremur en bita þar sem sjálfur Carl
Craig mun heiðra danstónlistar-
menningu klakans á Gauki á Stöng
í kvöld. Mun hann spila á upp-
ákomu sem nefnist Rými#2 en
fyrra rýmið var sett upp á al-
þjóðlegu tónlistarhátíðinni Iceland
Airwaves, sem fram fór í Reykja-
vík í október á síðasta ári. Rýmið
tekur yfir allar hæðirnar þrjár á
Gauknum en Craig til fulltingis
verða Herb Legowitz og Alfred
More ásamt söngkonunni Lolu B.
Nice (í umboði Gus Gus), DJ Frí-
manni (í umboði 303/Hugar-
ástands) og DJ Bjössa (í umboði
Brunahana Inc.).
Það er óhætt að segja að Carl
Craig þessi hafi verið einn af
stærri áhrifavöldum í nútíma raf/
danstónlist. Hann hóf ferilinn við
lok níunda áratugarins og gaf út á
merkinu Transmat, sem Derrick
May, upphafsmaður tæknótónlist-
arinnar, á og rekur. Hann vann
nokkuð með May fyrstu árin en ár-
ið 1991 setti hann eigin útgáfu á
fót, Planet E. Communication.
Carl Craig hefur snert á flestum
raftónlistarstílum sem hægt er að
finna og gefið út plötur undir nöfn-
um eins og Psyche og BFC (trans
og tæknó), 69 (tæknó og hús),
Paperclip People (diskó-fönk og
hús), Innerzone Orchestra (til-
raunadjass, taktbrotslist og hús) og
svo undir eigin nafni (sveim, tæknó
og raflist (e. electronica)). Einnig
hefur hann verið liðtækur í að end-
urhljóðblanda aðra listamenn.
Heimsókn Craig til landsins er
liður í Evrópureisu kappans sem
farin er til að kynna nýja plötu,
Designer Music.
Carl Craig – einn áhrifamesti raf/danstónlistarmaður síðari tíma.
Guðfaðir á
Gauknum
Carl Craig spilar á Íslandi