Morgunblaðið - 10.01.2001, Page 20
LANDIÐ
20 MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
2000
GÓÐAR MINNINGAR
Sendu inn ljósmynd og þú átt möguleika
á að fara í menningarferð til Evrópu
Ljósmyndasamkeppni
Reykjavík--Menningarborg 2000, Morgunblaðið -- blað menningar-
borgarársins, Hans Petersen og Kringlan efna til ljósmyndasam-
keppni um góðar minningar sem festar hafa verið á filmu frá
menningarborgarárinu sem er að líða. Efnt verður til ljósmynda-
sýningar á innsendum myndum í Kringlunni 3.--12. febrúar.
Þú gætir unnið!
Tíu myndir verða verðlaunaðar
og þú gætir haft heppnina með þér
1. verðlaun: helgarferð fyrir tvo, flug og bíll,
til Amterdam
2. verðlaun: Stafræn myndavél frá Kodak
3.--10. verðlaun: Miðar fyrir tvo í leikhús ásamt
gjafabréfi frá Kringlunni og ein-
nota myndavél með framköllun
➧ Öllum er heimil þátttaka og frjálst er að senda
fleiri en eina mynd.
➧ Skilafrestur er til 15. janúar 2001.
➧ Myndum má skila inn í verslanir Hans Petersen í
Reykjavík og á aðra Kodak Express sölustaði um
land allt, merktar 2000 minningar, og eiga
myndirnar að vera á pappír. Einnig má
skila myndum inn á tölvutæku formi á
slóðinni www.hanspetersen.is.
➧ Innsendum myndum verður
ekki skilað til baka og áskilja
að-standendur keppninnar
sér rétt til að nota
myndirnar í auglýs-
ingar á sínum
vegum.
- blað menningarborgarársins 2000
Egilsstöðum - Vinafélag Íslands og
Kanada á Austurlandi, VÍKA, var
stofnað sunnudaginn 17. desember sl.
Á stofnfundinum voru mættir rúm-
lega 30 manns sem allir gerðust
stofnfélagar, samþykkt var að þeir
sem gengju í félagið fyrir 1. febrúar
2001 teldust stofnfélagar. Frá stofn-
fundi hafa félaginu bæst nýir félagar
þannig að í dag, 30. desember, eru
þeir 39.
Á stofnfundinum voru samþykkt
markmið fyrir félagið og því kosin
stjórn. Markmið félagsins eru eftir-
farandi : Að efla gagnkvæm söguleg
og menningarleg samskipti fólks af
íslenskum uppruna í Norður-Amer-
íku við Ísland, að koma upplýsingum
á framfæri og stuðla að ferðalögum á
milli landanna. Í stjórn félagsins voru
kosin: Emil Björnsson, Egilsstöðum,
formaður, Ágústa Þorkelsdóttir, Ref-
stað í Vopnafirði, gjaldkeri, og Hrafn-
kell A. Jónsson, Fellabæ, ritari. Ár-
gjald í félaginu var ákveðið 1.000 kr.
Gestur frá Kanada
Sérstakur gestur á fundinum var
frú Norma Guttormsson frá
Vancouver í Kanada. Norma er meðal
forystumanna í öflugu Íslendinga-
félagi þar í borg og sagði hún frá
starfi þess. Norma var hér í heimsókn
á slóðum forfeðra á Austurlandi en
hún á hér fjölmennan frændgarð.
Arndís Þorvaldsdóttir sagði frá Steini
Dofra ættfræðingi og las kafla úr
bréfum sem hann skrifaði frá Kanada
til frænda síns í Borgarfirði syðra, en
Steinn, sem hét reyndar Jósafat Jón-
asson, hafði þá verið týndur í 13 ár.
Ágústa Þorkelsdóttir sagði síðan
fundarmönnum frá gamla kaup-
félagshúsinu á Vopnafirði, sem nú er
hafin viðgerð á, en margir ala þá von í
brjósti að í þessu húsi geti orðið veg-
leg miðstöð samskipta Austfirðinga
og frænda þeirra vestan hafs. Frá
Vopnafirði fóru á sínum tíma fjöl-
margir Vesturfarar og áttu þá sín síð-
ustu spor á íslenskri grund í um-
ræddu húsi á Vopnafirði.
Þeir sem vilja gerast félagar í
VÍKA geta haft samband við ein-
hvern eftirtalinna stjórnarmanna,
Emil Björnsson netfang. emil@is-
mennt.is, Ágústu Þorkelsdóttur, net-
fang refsstaður@simnet.is eða
Hrafnkel A. Jónsson, netfang hrafn-
kell@heraust.is.
Egilsstaðir
Vinafélag Íslands
og Kanada stofnað
Tálknafirði - Nýverið fékk Héla
ehf. á Tálknafirði afhenta nýja
dráttarvél. Þetta er í fyrsta skipti í
16 ár sem ný dráttarvél kemur í
hreppinn, en 1984 keypti Magnús
Guðmundsson bóndi á Kvígindis-
felli nýja dráttarvél í samvinnu við
Björgvin Sigurjónsson og er vélin
enn í notkun.
Vélin sem Héla ehf. fékk afhenta
fyrir hátíðarnar er Valmet 6400, 95
ha. vél frá Búvélum/Bújöfri á Sel-
fossi, framleidd af Valtra verk-
smiðjunum í Finnlandi. Héla ehf.
hefur sinnt tilfallandi verkefnum í
hreppnum, m.a. séð um söfnun og
vinnslu á lífrænum heimilisúr-
gangi, þjónustað fiskeldis- og fisk-
vinnslufyrirtæki ásamt því að sinna
snjómokstri. Kaupverð vélarinnar
er tæplega 5 milljónir að meðtöld-
um moksturstækjum sem fylgdu.
Morgunblaðið/SMBP
Finnur Pétursson, stjórnarformaður Hélu hf., og Magnús Guðmunds-
son, bóndi á Kvígindisfelli.
Ný dráttarvél á Tálknafjörð
Hvammstanga - Starf Ungmenna-
sambands V-Hún. hefur verið með
blóma á liðnu ári. Sambandið hef-
ur nokkur ungmennafélög innan
sinna vébanda og er Umf. Kor-
mákur á Hvammstanga stærst
þeirra. Unglingalið USVH tók þátt
í mörgum mótum á liðnu ári og
varð árangur þess einkar glæsi-
legur á Unglingalandsmóti UMFÍ.
USVH hefur á liðnum árum
staðið fyrir kjöri Íþróttamanns
ársins og nú á gamlársdag voru
birtar niðurstöður kosningar til
þeirrar nafnbótar fyrir árið 2000
á Hótel Seli á Hvammstanga.
Í fyrsta sæti varð Sigurbjörg
Þorsteinsdóttir Umf. Dagsbrún.
Hennar svið eru kastgreinar –
kúluvarp, kringlukast og spjót-
kast og er hún í Úrvalshópi FRÍ
2000. Hún er einnig öflugur leik-
maður í körfubolta.
Sigurbjörg hlaut verðlaun
Sparisjóðs Húnaþings og Stranda
vegna titilsins, kr. 25.000.
Í öðru sæti varð Bára Dröfn
Krisinsdóttir, einnig Umf. Dags-
brún. Hennar greinar eru einnig
kastgreinar – kúluvarp og
kringlukast. Einnig er hún góður
liðsmaður í körfubolta.Bára Dröfn
var valin í Úrvalshóp FRÍ 2000
Í þriðja sæti varð Björn Þór
Hermannsson Umf. Kormáki.
Hann leikur bæði körfuknattleik
og fótbolta.
Öll þessi ungmenni eru félögum
sínum til sóma og mikilvæg í liðs-
heildum í æfingum og keppni.
Þá voru einnig tilnefndir Afrek-
sunglingar USVH 2000. Þá við-
urkenningu hlutu: Bára Dröfn
Kristinsdóttir, Fanney Dögg Indr-
iðadóttir, Sigurbjörg Þorsteins-
dóttir, Sonja Líndal Þórisdóttir,
Björn Þór Hermannsson, Daníel
Geir Sigurðsson og Einar Örn
Rafnsson
Íþróttamað-
ur ársins
hjá USVH
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Sigurbjörg Þorsteinsdóttir með
verðlaunagripina.