Morgunblaðið - 24.01.2001, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 24.01.2001, Qupperneq 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001 23 Stólpi fyrir Windows Kynning á Hótel Loftleiðum, Þingsal 1, 24. janúar, kl. 16.00 -18.00 Kynnt verður ný útgáfa af Stólpa fyrir Windows og nær bókhaldskerfið nú til flestra þátta atvinnurekstrar. Einstaklega notendavænn viðskiptahugbúnaður í takt við tímann. Kerfið hefur alla sömu eiginleika og Word og Excel. Kerfisþróun ehf. byggir á fimmtán ára reynslu við gerð viðskiptahugbúnaðar og þjónar um 1500 viðskiptavinum á öllum sviðum atvinnulífsins. Um 150 fyrirtæki hafa nú þegar tekið Stólpa fyrir Windows í notkun. Hægt er að skoða kerfin á heimasíðu Kerfisþróunar:http://www.kerfisthroun.is Komdu, sjáðu og láttu sannfærast um hvernig upplýsingakerfi á að líta út. Helstu bókhaldskerfin frá Kerfisþróun: Fjárhagsbókhald, Skuldunautabókhald, Lánardrottnabókhald, Sölukerfi, Innheimtukerfi banka, Birgðakerfi, Vefverslun, Framleiðslukerfi, Verkbókhald, Launakerfi, Stimpilklukkukerfi, Tilboðskerfi, Bifreiðakerfi, Pantanakerfi, Tollkerfi, Útflutningskerfi og EDI samskipti. Námskeið í launakerfinu verður mánudaginn 29. janúar kl. 13 - 17 • Námskeið í bókhaldskerfunum verður miðvikudaginn 31. janúar kl. 9 - 12 • Staður: Tölvuskóli Reykjavíkur. Bókanir í síma 568 8055. Fákafen 11 • Sími 568 8055 • Fax 568 9031 Netfang: kerfisthroun@kerfisthroun.is DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ í Manila bannaði í gær Joseph Estr- ada, fyrrverandi forseta, og 22 skyld- mennum og samstarfsmönnum hans að fara frá Filippseyjum meðan yf- irvöld rannsaka spillingarmál hans. Yfirvöld bjuggu sig einnig undir að loka bankareikningum Estrada. Hernando Perez dómsmálaráð- herra setti ferðabannið til að tryggja að hægt yrði að yfirheyra Estrada, eiginkonu hans, son hans, mág, þrjá ráðherra í stjórn hans og sextán aðra samstarfsmenn hans. Estrada sætir nú sakamálarannsókn vegna meints fjárdráttar, glæps sem varðar dauða- dóm. Perez varaði Estrada einnig við því að höfða mál til að reyna að endur- heimta forsetaembættið. Estrada hafði skrifað þinginu bréf þar sem hann kvaðst hafa látið af embætti um stundarsakir og varaforsetinn, Gloria Arroyo, yrði við völd til bráðabirgða. Estrada hefur haldið kyrru fyrir í stórhýsi sínu í einu úthverfa Manila frá því að hann fór úr forsetahöllinni á laugardag. Hæstiréttur landsins úr- skurðaði þá að enginn gegndi forseta- embættinu og Arroyo bæri því að taka við því eftir að herinn, lögreglan og meirihluti stjórnarinnar sneru baki við Estrada og studdu hundruð þúsunda mótmælenda sem kröfðust afsagnar hans. Tveir samstarfsmenn flúnir Saksóknarinn Aniano Desierto hef- ur hafið rannsókn á ásökunum um að Estrada og samstarfsmenn hans hefðu gerst sekir um fjárdrátt, mútu- þægni og fleiri lögbrot. Desierto sagði að tveir af samstarfsmönnum Estr- ada hefðu þegar flúið frá Filippseyj- um. Ferðabannið nær ekki til tveggja öldungadeildarþingmanna, Johns Osmena og Tessie Oreta, þótt þeir séu taldir viðriðnir málið. Perez sagði að ferðabannið næði ekki heldur til héraðsstjórans Luis Singsons, fv. drykkjufélaga Estrada sem vitnaði gegn honum í réttarhöld- um öldungadeildar þingsins. Ráð- herrann sagði að stjórnin kynni að veita Singson friðhelgi og hann nyti nú sérstakrar verndar sem vitni. Estrada bannað að fara frá Fil- ippseyjum Manila. AFP, AP. STJÓRN Ekvadors lýsti í gær yfir neyðarástandi á eyjaklasanum Gal- apagos vegna olíumengunar sem ógnar sérstæðu dýralífi eyjanna. Íbúar eyjanna segjast hafa misst helsta lífsviðurværi sitt vegna meng- unarslyssins. „Sjórinn er lífsviðurværi okkar. Vegna mengunarinnar erum við at- vinnulaus,“ sagði Pedro Mieles, 35 ára íbúi Puerto Baquerizo. Rúmlega 640.000 lítrar af díselolíu hafa lekið úr olíuskipinu Jessica sem strandaði um hálfum km undan eyj- unni San Cristobal. Lekinn hófst á föstudag og olíuflekkurinn var orð- inn um 1.250 ferkm stór í gær. „Við getum ekki veitt á grunnsæv- inu vegna þess að það er mengað, þannig að við fórum á önnur fiski- mið. Eins og þið sjáið er ég kominn aftur,“ sagði Mieles og benti á svarta olíubletti á fótunum. Íbúar eyjanna voru varaðir við því að borða fisk eða að synda í sjónum. Sjómaðurinn Robin Betancourt kvaðst hafa séð um 50 dauða fiska á reki sunnan við eyjuna Manglecito. Þekktar fyrir sérstætt lífríki Galapagos-eyjar eru tæplega 1.000 km undan vesturströnd Ekva- dors og kunnar fyrir mjög sérstætt lífríki, m.a. risavaxnar skjaldbökur (galápago á spænsku) sem eyjarnar draga nafn sitt af og voru nær al- dauða fyrir friðun. Charles Darwin kom til eyjanna 1835 og athuganir hans þar lögðu grunn að kenningum hans um náttúruval og þróun teg- undanna. 90% skriðdýranna, 46% skordýranna og um helmingur fuglanna á eyjunum lifa ekki á öðr- um stöðum í heiminum. Á síðustu árum hafa komið upp deilur milli sjómanna á eyjunum og umhverfisverndarsamtaka sem segja að viðkvæmu vistkerfi eyjanna stafi hætta af mannfjölgun sem þar hefur orðið á síðustu áratugum. Íbú- ar Galapagos voru aðeins tæplega 1.000 árið 1950 en þeir eru nú um 16.000. Sjómenn hafa krafist auk- inna veiðiréttinda til að hægt verði að sjá íbúunum fyrir atvinnu. Tals- maður þjóðgarðs Galapagos, Fabian Oviedo, sagði að ídræg efni væru notuð til að draga úr áhrifum olíu- flekksins sem hefði þegar náð til eyj- unnar Santa Fe, um 60 km vestan við San Cristobal. Hann bætti við að sæljón, svölur og 50 pelíkanar hefðu þegar sést þar með olíubletti og starfsmenn þjóðgarðsins hefðu hreinsað þá með sérstökum efnum. Sæljón og græneðlur í hættu Hundruð sæljóna og þúsundir græneðla eru á Santa Fe og talið er að þeim stafi mikil hætta af meng- uninni, að sögn Carlos Valle, sem stjórnar starfsemi umhverfisvernd- arsamtakanna World Wildlife Fund í Ekvador. Hann sagði að sjávar- skjaldbökur gætu einnig verið í hættu. Olíumengunin er hins vegar ekki talin ógna ýmsum dýrategund- um, sem eru í útrýmingarhættu, svo sem Galapagos-mörgæsum og ófleygum skörfum, þar sem þær lifa vestast á eyjaklasanum. Risaskjaldbökurnar, sem eyjarn- ar draga nafn sitt af og geta orðið 250 kg að þyngd, eru ekki heldur í hættu þar sem þær lifa ekki nálægt sjónum. Rodolfo Rendon, umhverfisráð- herra Ekvadors, sagði að um 227.000 lítrum hefði verið dælt úr olíuskipinu um helgina. Bandarískir sérfræðing- ar hefðu náð rúmlega 70.000 lítrum úr tönkum skipsins í gær og fyrra- dag. Í skipinu voru um 920.000 lítrar. Talsmaður umhverfisverndar- samtakanna Nature Foundation sagði að mengunin myndi valda „óbætanlegum skaða“ til lengri tíma litið. Líffræðingar óttast að olían sökkvi til botns og eyðileggi þörunga sem eru mikilvægur hlekkur í fæðu- keðjunni. Það gæti haft alvarleg áhrif á ýmsar tegundir, svo sem sjávargræneðlur, hákarla og fugla sem lifa á fiski. Mistök skipstjórnenda Lögreglan á San Cristobal sagði að skipstjóri olíuskipsins hefði ekki enn verið ákærður. Gustavo Noboa, forseti Ekvadors, sagði á sunnudag að strandið yrði rannsakað sem sakamál og krafðist ýtarlegrar skýrslu um orsök þess. AP Pelíkani á flugi við olíuskip er strandaði undan eynni San Cristobal. Um 640.000 lítrar af olíu hafa lekið úr því. Lýst yfir neyðarástandi vegna mengunarslyssins Puerto Baquerizo, San Cristobal. AP, AFP. Olíumengun ógnar sérstæðu lífríki Galapagos-eyja og lífsviðurværi íbúanna                                           VLADIMÍR Pútín Rússlandsforseti hefur falið öryggislögreglunni stjórn mála í Tsjetsjníu, þar sem bardagar geisa enn milli rússneska hersins og tsjetsjneskra skæruliða. Er þetta álitin veruleg breyting á stefnu Rússa varðandi átökin í héraðinu. Herinn fór áður með stjórn mála í Tsjetsjníu, en undir stjórn öryggis- lögreglunnar verði meiri áhersla lögð á að leita uppi hópa skæruliða og uppræta þá. Að sögn embættis- manna í Moskvu munu sérsveitir hér eftir fást við skæruliða, en venjulegt lögreglulið sjá um að halda uppi lög- um og reglu í héraðinu. „Þetta þýðir ekki að bundinn hafi verið endi á aðgerðir gegn hryðju- verkamönnum [í Tsjetsjníu]. Þeim verður þvert á móti haldið áfram af sama krafti, en af öðrum aðilum og með öðrum áherslum,“ sagði Pútín í sjónvarpsviðtali. Pútín sagði enn- fremur að dregið yrði úr herviðbún- aði í héraðinu en sagði ekki hvenær af því yrði. Aslan Maskhadov, leiðtogi að- skilnaðarsinna í Tsjetsjníu, dró í gær í efa að Rússar myndu standa við heit sín um að fækka í herliði sínu. Tsjetsjnía Öryggislög- reglunni falin stjórn Moskva, Strasborg, SÞ. AFP, AP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.