Morgunblaðið - 24.01.2001, Síða 35
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001 35
Útsala - Bútasala
35-50%
afsláttur
❖
❖
❖
❈
❈
❈
❄
❄
❄
❄
❈
❈
❂
❂ ❂
❂
❂
❆
❆
❆
❆
Laugavegi 71, sími 551 0424
því fyrir ekki löngu, að þjóð sín
ætti að hafa það markmið í augsýn
að verða „ríkasta þjóð veraldar“.
Hann talaði áreiðanlega um þessa
hugsjón í peningalegum og efna-
legum skilningi. Það skiptir ugg-
laust minna máli hvort þjóðin
verður rík af mannlegum verð-
mætum; umhyggju, heilbrigði,
menntun, öryggi og nauðþurftum
sálarinnar.
Í eina tíð var maður einn sagður
svo fégráðugur, að hann myndi
selja ömmu sína fengi hann ein-
hverja aura fyrir hana. Er ekki
rétt að draga mörkin einhvers
staðar? En án gamans: Það er
ekkert ljótt við að eignast peninga
í krafti dugnaðar og hyggjuvits
þar sem leikreglur eru skýrar og
farið er að lögum.
Og þá er komið að kjarna máls-
ins: Það væri fáránlegt, siðlaust,
galið, lyginni líkast og þjóðinni til
ævarandi skammar ef hluti af
Þingvöllum yrði eign erlends
manns eða manna. Hvorki brot né
brotabrot af helgu landi Þingvalla
á að vera í eigu íslensks eða er-
lends einstaklings. Þingvellir eru
eign þjóðarinnar allrar; hvers ein-
asta Íslendings, ungs sem aldins.
Hraunið, vatnið, birkið og sagan er
eign okkar allra.
Það er fáránleikinn uppmálaður
að selja eina flís úr þessu lífstré
þjóðarinnar. Nóg er
sumarbústaðaskömmin, þótt ís-
lensk sé. Er hugsanlegt að allt sé
falt fyrir peninga eða pólitíska
hagsmuni? Af hverju horfum við á
og aðhöfumst ekkert? Erum við
tilbúin að selja Heklu eða Gullfoss,
Geysi eða Ásbyrgi, Mývatn,
Herðubreiðarlindir eða hvert það
náttúruundur sem einstaklingar,
auðugir af fjármunum, vilja kaupa
og við selja til að ná því göfuga
markmiði að verða ríkasta þjóð
veraldar. Vilja Íslendingar ganga
um Þingvelli, rifja upp sögu eins
elsta löggjafarþings sem ritaðar
heimildir fjalla um, benda á Lög-
berg, segja frá lögréttu, Drekking-
arhyl og greina frá átökum, dóm-
um og friðarheitum. Ganga síðan
nokkurn spöl til suðurs og rekast
þar á hlið eða girðingu þar sem
stendur : „No trespassing. Private
Property“ eða „Öll umferð bönnuð.
Einkaeign.“
Eru menn að tala í alvöru? Það
verður ekki amast við sölu á land-
spildum undir hross eða trjárækt,
hvorki til útlendinga né Íslend-
inga. En er mönnum alvara þegar
rætt er um sölu á Valhöll á Þing-
völlum. Áður en sú sala verður að
veruleika mun ég hvetja þjóðina til
að skunda á Þingvöll, mæta betur
en á kristnihátíð, og mótmæla svo
bergmáli frá Lögbergi. Ekki sæi
ég eftir þeim skattpeningi, sem
færi til kaupa ríkisins á eigninni,
ef koma mætti í veg fyrir óhapp
sem kalla mætti þjóðsögulegt slys.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Heilsustofnunar NLFÍ.
KÚARIÐA í búpen-
ingi og ekki síður
Creutzfeldt-Jakob-
sjúkdómurinn virðast
hafa náð að stinga sér
niður í vaxandi mæli
víða í Evrópu á und-
anförnum árum og er
nú sjúkdómstíðnin
orðin slík að í ýmsum
löndum hefur ofsa-
hræðsla gripið um sig
hjá neytendum.
Stjórnmálamenn, sem
talað hafa digurbarka-
lega um að þeir hefðu
stjórn á málum og
reynt að róa neytend-
ur, hafa ekki getað
staðið undir loforðunum og orðið
að segja af sér.
Þessir sjúkdómar eru einstak-
lega erfiðir í greiningu. Sjúkling-
urinn er er oft búinn að ganga með
sjúkdóminn árum saman áður en
einkenni koma í ljós og ekki er
hægt að greina hann með fullri
vissu nema við nákvæma rannsókn
á aðalhlutum taugakerfis. Smit-
leiðir eru líka lítt þekktar. Öll
þessi einkenni þekkjum við Íslend-
ingar sem um áratugaskeið höfum
barist gegn hliðstæðum sjúkdómi í
sauðfé með athyglisverðum ár-
angri. Það hefur miklu verið fórn-
að og skorið niður fé af heilu land-
svæðunum og í sumum tilfellum
hefur þurft að endurtaka niður-
skurð jafnvel þótt ýtrustu varúðar
hafi verið gætt og virðast mörg
landsvæði sem áður voru sýkt nú
vera orðin riðufrí þótt seint verði
nokkuð fullyrt í því efni. Brýn þörf
er á að hafa áfram fyllstu aðgát
vegna þess hve lævís sjúkdómur-
inn er.
Ég hefi lengi fylgst af miklum
áhuga með baráttunni við sauð-
fjárriðu á Íslandi og verið stolt af
þeim árangri sem við höfum náð
og verið sannfærð um að það
myndi gefa íslenskum sauðfjárbú-
skap nýjan styrk þegar við gætum
sýnt fram á að þær afurðir sem við
byðum til sölu á erlendum mörk-
uðum væru af riðufríum svæðum.
Ímynd íslensks
landbúnaðar
Það skiptir miklu máli að við Ís-
lendingar höfum þá ímynd að hér
geti menn neytt nautakjöts sem er
öruggt hvað varðar kúariðusmit
þar sem slík riða hafi aldrei komið
upp á Íslandi. Ég verð því að við-
urkenna að mig rak í rogastans
þegar ég varð þess áskynja að
flutt hafði verið inn nautakjöt frá
riðulandinu Írlandi til að Íslend-
ingar gætu gætt sér á því í hátíða-
matinn. Það verður að segjast eins
og er að í Írlandi grasserar riða
landsmönnum til mikillar skelfing-
ar. Í nóvembermánuði síðastliðn-
um fundust þar 20 ný tilfelli af
kúariðu og í byrjun
desember höfðu á
árinu greinst þar 125
ný tilfelli. Egyptar,
sem hafa keypt 25%
af allri nautakjöts-
framleiðslu Íra, hafa
nú bannað innflutning
þaðan af ótta við kúa-
riðusmit. Nú stendur
fyrir dyrum stórfelld-
ur niðurskurður naut-
gripa á Írlandi vegna
fársins.
Ekki allar smit-
leiðir þekktar
Hvernig gat það
hvarflað að starfs-
mönnum landbúnaðarráðuneytis
og yfirdýralækni að veita innflutn-
ingsleyfi við slíkar aðstæður jafn-
vel þótt um væri að ræða hreina
vöðva eins og sagt er. Það hefur
engan veginn verið sannað að smit
berist ekki með slíku kjöti, það er
auðvitað taugavefur líka í vöðvum
og að auki er engin leið að tryggja
að smit berist ekki með við slátrun
eða vinnslu. Mér finnst ábyrgð
þeirra vera mikil í þessu máli og
held að það minnsta sem væri
hægt að gera væri að landbún-
aðarráðuneytið gæfi neytendum
tryggingu fyrir því að slíkt frum-
hlaup endurtæki sig ekki.
Það er auðvitað skýlaus krafa ís-
lenskra neytenda að ekki sé verið
að flytja inn nautakjöt frá löndum
þar sem kúariða er útbreidd og
geta engir alþjóðasamningar kom-
ið í veg fyrir að orðið sé við slíkri
kröfu.
Hvað varðar kröfu neytenda-
samtakanna um að framleiðslu
beinamjöls verði hætt á Suður-
landi tek ég ekki undir hana. Þar
er unnið kjöt frá riðufríu svæði og
mjölið ekki gefið jórturdýrum.
Nær væri að hvetja til framleiðslu
íslensks gæludýrafóðurs úr slíku
hráefni en þannig fóður er einmitt
flutt inn í miklum mæli frá löndum
sem hafa vafasaman feril hvað
varðar framleiðslu fóðurs úr sýkt-
um búpeningi.
Írafár
Sigríður
Jóhannesdóttir
Höfundur er alþingismaður.
Riða
Það er skýlaus krafa ís-
lenskra neytenda, segir
Sigríður Jóhannes-
dóttir, að ekki sé verið
að flytja inn nautakjöt
frá löndum þar sem
kúariða er útbreidd.
ÉG get nú hreinlega
ekki orða bundist
vegna þeirrar umræðu
sem á sér stað út af
innflutningi á nauta-
kjöti frá Írlandi.
Staðreynd málsins
er sú að íslenskir
bændur hafa í áratugi
verið að berjast við
riðu í íslensku fé. Við
skyldum því stíga
hægt til jarðar þegar
við heimtum að sett
séu einhliða lög og
reglugerðir sem banna
innflutning frá riðu-
sýktum löndum í Evr-
ópu. Það gæti orðið
okkur óþægilegt búmerang. Ef tek-
in er einhliða ákvörðun hér á landi
getum við átt von á samhliða banni
á okkar vörur. Mögulegar eru aðr-
ar leiðir til að hindra að kjöt berist
hingað frá verst stöddu löndunum.
Einstrengingslegar aðgerðir geta
kollvarpað útflutningi okkar hreinu
afurða þannig að betra er að vanda
sig við laga- og reglugerðarsmíð-
ina.
Fiskimjölsbannið
Það er eins og mig rámi í að uppi
hafi orðið fótur og fit hér á Íslandi
þegar ákveðnir aðilar innan EB
vildu algjörlega banna fiskimjöl
sem dýrafóður. „Engin vísindaleg
forsenda fyrir banninu“ var aðal-
frasinn hjá okkur og var hneykslast
yfir skammsýni og taugaveiklun
EB-manna. Mig rámar einnig í að
títtræddur yfirdýralæknir hafi ver-
ið fenginn til liðs við þá sem vildu
stöðva þessa stefnu EB sem byggð-
ist á engum vísindalegum rökum.
Nú er hins vegar skórinn kominn
á hinn fótinn og skítt með öll vís-
indaleg rök. Við getum vart ætlast
til að aðrar þjóðir taki tillit til nið-
urstöðu okkar rannsókna og vís-
indalegra raka ef við síðan tökum á
málum þeirra á tilfinningalegum
grunni.
Vönduð vinnubrögð
Ég hef á undanförnum árum
komið reglulega í landbúnaðar-
ráðuneytið að sækja leyfi til út-
flutnings á kjöti. Þegar ýjað er að
því að þar sé unnið af kæruleysi og
óvandvirkni verð ég algjörlega
hlessa. Ég get borið vitni um að
starfsmenn yfirdýralæknisembætt-
isins eru nákvæmir og strangir
þegar kemur að veitingu leyfa
hvort heldur er til innflutnings eða
útflutnings. Ég hef oftar en einu
sinni andvarpað yfir smámunasemi
þeirra sem ég þó skil þörfina fyrir.
Nei, þessir starfsmenn hafa unnið
eins og fyrir þá er lagt og gert það
vandlega, um það er enginn vafi.
Ef erlendur embættismaður tæki
það upp hjá sjálfum sér að stöðva
allar sendingar á kjöti eða fiski frá
Íslandi færi allt í háa-
loft hér. Allir sem
vettlingi gætu valdið
myndu leggjast á eitt
að stöðva slíka ós-
vinnu. Farið væri
fram á að lög og
reglugerðir væru
látnar ganga fyrir
persónulegum skoð-
unum embættis-
manna. Helst er að
skilja í núverandi um-
ræðu að starfsmenn
íslenska yfirdýra-
læknisembættisins
hefðu átt að taka sjálf-
stæðar ákvarðanir um
innflutning, burtséð
frá öllum samningum og reglum.
Þetta gengur ekki upp. Á Íslandi
höfum við ekkert að gera með emb-
ættismenn sem taka geðþóttaákv-
arðanir og ef slíkt viðgengist myndi
heyrast hljóð úr hverju horni.
Nautakjöt í Evrópu
Ef einhvern langar verulega að
komast í hressilegt móðursýkisást-
and gæti sá hinn sami komist á rúss
með eftirfarandi vangaveltum.
Sennilegt er að um helmingur þjóð-
arinnar hafi ferðast til Evrópu á
síðastliðnu tuttugu ára tímabili og
hafa vikulegir flugvélafarmar af ís-
lenskum ferðalöngum skroppið til
Englands og Írlands. Þorri þessara
ferðamanna hafa fengið sér safarík-
ar nautasteikur eða hamborgara í
útlandinu. Við gætum sannfært
okkur um að stór hluti Íslendinga
hafi smitast af riðu í þessum ferð-
um. Auðvitað stendst það ekki al-
veg. Hlutfall þeirra sem sýkjast er
svo lágt að við þyrftum trúlega að
borða nautakjöt með beini í öll mál
og naga þess á milli hryggsúlur til
að að komast í áhættuhóp. En hafa
ber það sem betur hljómar en sann-
ara reynist og engin ástæða fyrir
þá sem vilja upplifa æsandi hroll að
horfa í svoleiðis smáatriði.
Hver skoðar hvað?
Ráðherra hefur réttilega bent á
nauðsyn þess að skoða uppruna og
samsetningu á innfluttri matvöru
með kjöti sem íhlutarefni. Það er
flestum ljóst að ekki er verið að
spandera nautalundum í þessa mat-
vöru. Sjálfsagt er stærstur hluti
þessara erlendu framleiðanda góðir
og vandvirkir en hvað með hina?
Hver skoðar uppruna og samsetn-
ingu á þessu kjöti? Hver ber
ábyrgð á því eftirliti og hvernig
hefur verið staðið að því síðastliðin
ár? Hvað síðan með allt það nauta-
kjöt sem smyglað hefur verið til
landsins, hver lagði fram uppruna-
vottorð með því? Nei ég bara spyr.
Sérfræðingar í hysteríu
Nú hafa hinir ýmsu sérfræðing-
ar, bæði sjálfskipaðir og aðrir,
fjallað um málið með mismunandi
ábyrgum hætti. Sumir hafa ólmast
á meðan aðrir reyna að róa móð-
ursýkina. Löngu hættir embættis-
menn finna sig knúna að stíga á
stokk og andvarpa um liðna tíð þeg-
ar landið var gjörsamlega lokað og
haftasjónarmið í hávegum höfð. Ég
ætla ekki að elta ólar við menn sem
tárfella í hvert sinn sem rifið er af
dagatalinu heldur beina því til
þeirra sem fjalla um þetta mál að
þeir átti sig á að auðvelt er að
skapa ótta og vanlíðan í umræðu
sem þessari, þannig að betra er að
vanda val orða sinna.
Ég hef heyrt átölur á innflutn-
ingsaðilann á þessu fræga írska
nautakjöti. Varla er hægt annað en
að brosa. Hverjum dettur í hug að
verslanir eins og Nóatún eða aðrar
verslunarsamsteypur hafi ekki á
stefnuskrá sinni að vera með
ómengaða og góða vöru. Þessir að-
ilar eru í „bisness“ til frambúðar en
ekki bara fyrir daginn í dag. Þeir
vita sem er að endanlegi yfirmað-
urinn erum við neytendur og það
væri léleg viðskiptafræði að fækka
þeim mjög mikið.
Til að fyrirbyggja allan misskiln-
ing skal það tekið fram að undirrit-
aður er enginn sérstakur áhuga-
maður um innflutning á nautakjöti
frá Írlandi. Hann hefur hins vegar
gert sig sekan um að borða safarík-
ar nautasteikur, í töluverðum mæli,
á ferðalögum til annarra landa sem
sjálfsagt er ástæðan fyrir því að
heili hans neitar að trúa að þessi
móðursýki geti haldið áfram miklu
lengur.
Erlendur Á.
Garðarsson
Nautakjöt
Ég get borið vitni um,
segir Erlendur Á
Garðarsson, að starfs-
menn yfirdýralækn-
isembættisins eru ná-
kvæmir og strangir
Undirritaður hefur starfað um
árabil að útflutningi matvæla
frá Íslandi.
Móðursýkt kúariða
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi