Morgunblaðið - 24.01.2001, Side 48
48 MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ÉG HELD að flestir verði til að líta
til baka og þakka drottni fyrir hand-
leiðslu á liðnum tíma, hafa fengið að
eiga góða heilsu, en hún er með því
dýrmætasta sem við eigum í lífinu.
Mér finnst að við Íslendingar höfum
yfir svo mörgu að gleðjast og þá ekki
síst að eiga þetta góða land, sem hef-
ir fóstrað svo margan góðan og gegn-
an mann um dagana. Þakka alla sól-
argeislana sem skaparinn hefir sent
inn í okkar líf, og gefið því gildi. Að fá
að vera sólarmegin í lífinu verður
aldrei þakkað sem vert er og finna
nálægð almættisins í hverju spori. Ef
rétt væri á haldið gætu lífsgæðin orð-
ið fleirum hliðholl en þeim sem njóta
handleiðslu í lífinu. Til dæmis þeim
sem sitja nú við erfiðleika og áhyggj-
ur út af mistökum og sjálfskaparvíti
sem mest stafa af dekri við allskyns
óvana og fíknir. Það er sárt til þess
að vita hversu fjöldinn fer illa með
gjafir guðs og eyðir og sóar bæði
fjármunum og fjöri á altari lægstu
hvata. Mér rennur oft til rifja öll sú
neysla sem á sér stað í þjóðfélaginu,
fólki til skaða í stað þess að byggja
upp fagurt mannlíf. Og hversu
heimskulegt það er að eyða sínum
kröftum og tómstundum í allskonar
fíknir, bæði tóbaks- og áfengis-
neyslu, allskonar fjárhættuspil að
ekki sé talað um eiturefnin sem flæða
yfir og skilja eftir blóði drifna slóð.
Og hvernig er svo samviska þeirra
sem dreifa þessu út á milli ungra og
fullorðinna? Það er mikið sem menn
fórna þegar peningar eru í augsýn,
þótt þeir viti að einhverntímann
kemur að skuldadögunum, og eru
þeir peningar sem áunnist hafa með
dreifingu eiturefna orðnir lítilsvirði
og eftirsókn eftir vindi. Því í upphafi
skyldi endirinn skoða, segir gamalt
spakmæli og vissulega er það satt og
rétt. Ég er því oft að hugsa um
hvernig samviska þess sé sem hefir
hagnast á ógæfu annarra. Ég hefi
hitt á lífsleiðinni marga forherta
menn í ýmsum efnum og saga þeirra
er ekki eftirsóknarverð, svo ekki sé
meira sagt.
Ég hefi oft velt því fyrir mér ef
samtök allra heiðarlegra manna
gætu tekið sig til og hjálpast að og
spyrnt á móti af einlægum huga, allri
þeirri ógæfu sem vímuefnin hafa leitt
yfir og eiga eftir að leiða yfir land og
þjóð, t.d. með því að neyta sér um
hina göróttu drykki og verða þannig
æskunni til fyrirmyndar og leiðsögu
um lífsins brautir, hve mikils mætti
vænta í baráttunni við hið illa í heim-
inum sem allsstaðar er að verki?
Væri ekki gaman að vakna upp á ný
og vera á þeim gullaldardögum, er
hver maður segir að þýið sé þý, eins
og Þorsteinn Erlingsson orðaði það á
sínum tíma? Þetta væri mögulegt, ef
hver maður legði sitt af mörkum. Ef
við gætum í komandi framtíð velt
þessu oki af okkur, samtaka, er ég
viss um að lífið myndi batna. Er
þetta mögulegt? segir hin ráma rödd
úrtölu og efasemda. En því ekki að
reyna? Vill nú ekki Alþingi og rík-
isstjórn verða í forystu með því að
hætta að veita vímuefni í veislum?
Það myndi hafa stórkostleg áhrif og
verða til þess að fleiri kæmu á eftir.
Stór sigur. En það er kannske of
mikið að biðja um slíkt? Ég óska þjóð
minni velfarnaðar á þessu ári og þess
að bindindi og reglusemi mættu fær-
ast í aukana. Það væri mikil guðs
gjöf.
ÁRNI HELGASON,
Stykkishólmi.
Í upphafi nýs árs
Frá Árna Helgasyni:
KÆRU íslensku frændur. Sá dyggi
siðferðislegi stuðningur sem þið Ís-
lendingar, frændur okkar, hafið veitt
okkur Færeyingum í baráttunni við
að losna undan nýlenduvaldi Dana
og verða aftur fullvalda þjóð, ornar
okkur Færeyingum um hjartarætur.
Hér á ég m.a. við heimasíðuna www.
fullveldi.org þar sem margir Íslend-
ingar hafa sýnt samstöðu með okkur.
Einnig vil ég þakka fyrir þær grein-
ar sem sendar hafa verið til heima-
síðunnar www. fullveldi. fr., kærar
þakkir fyrir þær.
Sérstaklega vil ég þakka Stein-
grími J. Sigfússyni, alþingismanni,
sem ekki vílaði fyrir sér að spyrja
Poul Nyrup Rasmussen forsætisráð-
herra ágengra spurninga um full-
veldismálið. Sömuleiðis bið ég Ís-
lendinga að fyrirgefa óþjóðlegt
framferði Dans R. Petersen, fulltrúa
okkar í Norðurlandaráði, hann varð
öllum Færeyingum til skammar.
Það er skammarlegt að það skuli í
okkar eigin landi finnast þannig fólk
og stjórnmálaflokkur sem segist
vinna fyrir frelsi, jafnrétti og
bræðralagi en rekur erindi annarrar
þjóðar, þvert á hagsmuni sinnar eig-
in. Þetta skilja Íslendingar ekki því
slíkir skutilsveinar eru ekki og hafa
ekki verið til á Íslandi. Hvað kalla Ís-
lendingar slíka menn?
En eitt harma ég mjög og það er
að hvorki íslenska ríkisstjórnin né
ríkisstjórnir hinna Norðurlandanna
hafa séð sóma sinn í að gagnrýna
framferði dönsku stjórnarinnar við
Færeyinga. Ég dreg þá ályktun að
þær vilji ekki móðga forsætisráð-
herra Danmerkur og hafi því gefið
Færeyjar upp á bátinn.
Hefði einhver önnur þjóð í heim-
inum komið fram við aðra á sama
hátt og Danir hafa komið fram við
Færeyinga hefðu allar Norðurlanda-
þjóðirnar gagnrýnt það harkalega,
en nú þegar ein Norðurlandaþjóð-
anna berst fyrir frelsi þá lítur út fyr-
ir að hinar lygni bara aftur augunum
og láti sem þær sjái ekki Færeyinga.
Enn og aftur vil ég þakka Íslend-
ingum og óska þeim gleðilegs árs.
Guð blessi Ísland og íslenska þjóð.
Með frændakveðju,
KAI VÁGFJALL
Gripsvegur 11 kj.
FO-100 Þórshöfn í Færeyjum.
Kærar þakkir til
Íslendinga!
Frá Kai Vágfjall: