Morgunblaðið - 09.02.2001, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
RAGNAR Örn Ás-
geirsson, verkstjóri á
auglýsingadeild
Morgunblaðsins, lést í
gærmorgun á líknar-
deild Landspítalans í
Kópavogi, 55 ára að
aldri.
Ragnar Örn fæddist
9. janúar 1946 í
Reykjavík. Foreldrar
hans voru Ásgeir Þor-
steinsson sjómaður
sem látinn er fyrir
nokkrum árum og
Ásta Sigurðardóttir.
Ragnar hóf nám í
prentiðn hjá Morgun-
blaðinu 1. október 1964, þá 18 ára,
og vann á blaðinu til dánardags.
Hann vann lengst af á
auglýsingadeild blaðs-
ins við auglýsinga-
teiknun og uppsetn-
ingu blaðsins en
starfaði í nokkur ár
sem útlitsteiknari.
Eftirlifandi eigin-
kona Ragnars Arnar
er Jónína Ágústsdótt-
ir. Þau giftu sig 27.
september 1969 og
eiga þrjú börn.
Morgunblaðið þakk-
ar Ragnari Erni fyrir
farsæl störf á langri
samleið og sendir eig-
inkonu, börnum og að-
standendum öllum innilegar sam-
úðarkveðjur.
Andlát
RAGNAR ÖRN
ÁSGEIRSSON
Hamar vann stórsigur
í Grindavík / B3
Bjarni Þorsteinsson
fer til Molde / B1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á FÖSTUDÖGUM
ÍBÚUM Hríseyjar fækkaði um 30 í
fyrra, eða um 14%. Á atvinnuleys-
isskrá voru 16 manns um miðjan síð-
asta mánuð, í byggðarlagi þar sem
búa 188 manns, eða um 9% af íbúum
sveitarfélagsins. Þannig má gera
ráð fyrir að 20-30% af vinnufæru
fólki í eynni séu á atvinnuleysisskrá.
Í þessa veru hefur ástandið verið nú
í um 12 mánuði. Þetta kom fram í
máli Péturs Bolla Jóhannessonar,
sveitarstjóra í Hrísey, á fjölmennum
fundi um atvinnu- og byggðamál
með þingmönnum Norðurlandskjör-
dæmis eystra í félagsheimilinu Sæ-
borg í gærkvöld.
Tilefni fundarins var að um þess-
ar mundir er liðið eitt ár frá því að
Snæfell hætti starfseminni í Hrísey
og hefur sveitarfélagið orðið fyrir
miklum skakkaföllum við brotthvarf
fyrirtækisins. Pétur Bolli sagði að
þrátt fyrir brottflutning fólks í fyrra
væri mikil umræða um að fólk sé
enn að íhuga flutninga. Ef ekkert
yrði gert á næstunni myndi það fólk
sem er að tala um að flytja láta
verða af því. Hann sagði að til að
sporna við því væri orðinn lítill tími.
Pétur Bolli gerði málefni Ís-
lenskrar miðlunar Hrísey ehf. að
umtalsefni og sagði að því miður
hefði ekki tekist enn að hefja full-
mannaðan rekstur þar sem flutning-
ur verkefna frá ríkinu hefur látið á
sér standa.
„Í byrjun árs 2000 unnu sjö
manns við fjarvinnslustörf í stöðinni
á kvöldin en því miður er slíku ekki
til að dreifa í dag. Mjög stopul vinna
hefur verið hjá fyrirtækinu og
tekjur þess litlar sem þýtt hefur að
starfsfólk hefur ekki fengið greidd
laun síðustu fjóra mánuði. En
tryggðin og trúin á starfsemina og
að stuðningur ríkisvaldsins sé í aug-
sýn hefur gert það að verkum að
fyrirtækið er enn þá til.“
Heimamenn leita nýrra
leiða í atvinnumálum
Pétur Bolli sagði að yfir stæði
endurskipulagning á rekstri félags-
ins og öflun nýs hlutafjár og ætti sú
endurskipulagning að skýrast á
næstu vikum. „Byggðastofnun hefur
gefið vilyrði um að leggja fram
hlutafé, allt að 10 milljónum króna, í
nýtt miðlunarfyrirtæki. Ljóst má
vera að það eitt kemur ekki í staðinn
fyrir þá starfsemi sem Snæfell var
með í Hrísey,“ sagði Pétur Bolli.
Einnig kom fram í máli Péturs
Bolla að heimamenn hafa unnið að
því að því að leita fleiri leiða í at-
vinnumálum, eins og að koma á fót
skammtímavistun í Hlein og stofnun
eignarhaldsfélags um kaup á veiði-
heimildum til að stunda vistvænar
veiðar, þar sem allur afli yrði unninn
í Hrísey. Þetta hefur ekki gengið
eftir. Byggðastofnun hefur ekki vilj-
að leggja fram hlutafé í eignarhalds-
félagið og þá hefur félagsmálaráðu-
neytið tilkynnt að ekki sé til
fjármagn á fjárlögum til starfsem-
innar í Hlein.
Eftir framsögur þingmanna voru
fyrirspurnir þar sem heimamenn
lögðu fram fjölmargar spurningar
um þau mál sem heitast brenna á
þeim um þessar mundir.
Íbúum fækkaði um
14% á síðasta ári
Morgunblaðið/Kristján
Húsfyllir var á borgarafundi í Hrísey í gærkvöldi þar sem staðan í
atvinnu- og byggðamálum var til umræðu.
Þingmenn héldu fund með Hríseyingum
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
gerði einkavæðingaráform ríkis-
stjórnarinnar og úthlutun þriðju kyn-
slóðar farsímaleyfa að umtalsefni í
ræðu á Viðskiptaþingi í gær.
„Enn eru eftir fyrirtæki og stofn-
anir sem ríkisvaldið getur sleppt
hendi af og þar með tryggt í senn
meiri hagkvæmni, meiri nýsköpun og
betri og ódýrari þjónustu við fólkið í
landinu. Fyrir skömmu samþykkti
ríkisstjórnin að leita eftir heimild til
að selja Landssímann í þremur áföng-
um. Um leið var ákveðið að svokall-
aðri þriðju kynslóð farsímaleyfa yrði
úthlutað til þeirra aðila sem geta boð-
ið landsmönnum öllum hvað besta
þjónustu.“
Tvö sjónarmið takast á
„Þessi tilhögun er umdeild. Þarna
takast á tvö sjónarmið. Annars vegar
það sjónarmið að nýta eigi þann kost
að færa sem mesta fjármuni í ríkis-
sjóð. Gallinn við þá aðferð er sá, að
fyrirtækin sem í hlut eiga neyðast til
að reisa sér hurðarás um öxl í barátt-
unni fyrir leyfunum og hljóta síðan að
ná inn kostnaðinum af leyfisgreiðsl-
unum með mun hærra verði til neyt-
enda og til langs tíma með lélegri
þjónustu. Þessi virðist hafa orðið
raunin víða þar sem útboðsleiðin hef-
ur verið farin. Hins vegar er það sjón-
armið að betra sé að úthluta leyfunum
eftir fyrirframskilgreindum mark-
miðum og láta síðan fyrirtækin keppa
sín í milli um hylli neytendanna. Þar
með færist virðisaukinn til notenda í
formi góðrar og ódýrrar þjónustu.
Ríkissjóður hefur, þegar fram í sækir,
einnig hagsbætur af því. Ódýr og góð
fjarskipti í hvaða mynd sem er hljóta
að verða grunnur að framförum og
nýjungum í hagkerfi framtíðarinnar,“
sagði forsætisráðherra í ræðu sinni.
Fyrirtækin keppi
um hylli neytenda
Davíð Oddsson um úthlutun þriðju kynslóðar farsímaleyfa
Viðskiptaþing/34-35.
GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráð-
herra, sem í gær tilkynnti framboð
sitt til varaformennsku í Framsókn-
arflokknum, segist í samtali við
Morgunblaðið vera mótfallinn því að
hluti Þjórsárvera fari undir vatn
vegna lóns við Norðlingaöldu.
Hann segist hafa grun um að
Landsvirkjun hafi einmitt þessi
áform uppi vegna Vatnsfellsvirkjun-
ar. Hann vill ekki sjá að „fermetra af
þeim verði fórnað“, eins og hann
orðar það. Menn eigi að standa vörð
um Þjórsárverin og í raun sé
pólitískur vilji fyrir því skýr af hálfu
Alþingis.
Þegar hann er spurður af hverju
hann sé þessarar skoðunar segir
Guðni gildi Þjórsárvera sem grið-
lands fyrir fugla og annað dýralíf
mikið. Þau eigi vart sinn líka hér á
landi og þótt víðar væri leitað.
„Þjórsárver eru dýrmæt í sögu,
menningu og ferðaþjónustu lands-
ins. Þessari perlu eigum við ekki að
raska eða skapa ófrið um hana,“ seg-
ir Guðni.
Guðni telur að þessi skoðun njóti
stuðnings innan Framsóknarflokks-
ins, Halldór Ásgrímsson hafi t.d.
einnig lýst þessu yfir í umræðunni
um Eyjabakka.
Guðni Ágústsson mótfallinn
skerðingu Þjórsárvera
Ekki verði
fórnað einum
fermetra
MAÐUR, sem var við vinnu í ný-
byggingu í Mosfellsbæ í gærkvöld,
féll 4–5 m niður af þaki hússins. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglunni
í Reykjavík kenndi maðurinn eymsla
í baki auk þess sem hann hlaut lítils
háttar áverka á höfði. Maðurinn var
fluttur með sjúkrabifreið á slysa-
deild Landspítala – háskólasjúkra-
húss í Fossvogi.
Nokkru eftir hádegi féll maður
2–3 metra niður af svölum nýbygg-
ingar við Einarsnes í Reykjavík.
Maðurinn var ekki með öryggis-
hjálm og skarst talsvert á höfði.
Hann var fluttur á slysadeild.
Féll 4–5 m
niður af
húsþaki
HERVAR Gunnarsson var
endurkjörinn formaður Verka-
lýðsfélags Akraness í gær með
51% atkvæða en mótframbjóð-
andi hans, Georg Þorvaldsson,
fékk 47,5% atkvæða.
Atkvæði greiddu 647 af þeim
1.147 sem voru á kjörskrá eða
56,4%. Georg fékk 307 atkvæði
og Hervar 330. Auðir seðlar
voru tíu eða 1,5%. Hervar var
því kjörinn formaður félagsins
til aðalfundar þess árið 2003.
Hervar
Gunnarsson
endurkosinn
Verkalýðsfélag
Akraness