Morgunblaðið - 09.02.2001, Side 4

Morgunblaðið - 09.02.2001, Side 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Sléttari húð, aukinn ljómi og fullkomin ró. Róandi næturkrem sem færir húðinni vítamín. Útsölustaðir: Andorra Hafnarfirði, Bjarg Akranesi, Bylgjan Kópavogi, Fína Mosfellsbæ, Hjá Maríu Amaró, Akureyri, Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ. l i : i i, j i, l j i, í ll , j í , i, i l i, i, ti l i l i . D-STRESS NÆTURKREM GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráð- herra tilkynnti í gær framboð sitt til varaformennsku í Framsóknar- flokknum þegar flokksþing fer fram um miðjan marsmánuð næstkom- andi. Á fundi með blaðamönnum lagði hann fram nokkurs konar stefnuskrá þar sem fram koma nokk- ur áhersluatriði. Hann sagðist hafa tekið ígrundaða ákvörðun um fram- boð eftir hvatningar frá stuðnings- mönnum og vinum um allt land. Von- aðist hann eftir drengilegri baráttu um skipan forystusveitar flokksins. Guðni lýsti jafnframt yfir stuðningi sínum við Halldór Ásgrímsson sem formann flokksins. Hann hefði til- kynnt honum ákvörðun sína um að fara í varaformannsframboð. Þá gaf Guðni út þá afdráttarlausu afstöðu sína að aðild að Evrópusambandinu væri ekki á dagskrá flokksins í dag. EES-samningurinn væri við- skiptabrú Íslands til Evrópu og þann samning ætti að styrkja og bæta. Enda hefði fjölmenn nefnd komist að þessari niðurstöðu eftir grandskoðun á Evrópumálunum. Meðal þess sem Guðni leggur áherslu á er velferð fjölskyldunnar og hefur hann þar kjörorð flokksins að leiðarljósi, fólk í fyrirrúmi. Hann telur það eitt mikilvægasta verkefni Framsóknarflokksins að ná þjóðar- sátt í velferðarmálum, samhjálpin verði skilgreind þannig að þeir ein- staklingar sem verst eru settir hljóti mannsæmandi stuðning. Guðni legg- ur sérstaka áherslu á baráttu flokks- ins gegn „sölumönnum dauðans“, eða þeim er selja fíkniefni til ungs fólks. Guðni vill fella niður lögbundin af- notagjöld Ríkisútvarpsins og að hluti tekna komi af fjárlögum. Hann vill minnka áhrif stjórnmálaflokka í út- varpsráði og telur að í framtíðinni eigi það að vera skipað fulltrúum verkalýðshreyfingarinnar og at- vinnulífsins. Í samtali við Morgun- blaðið um þetta atriði sagði Guðni það koma til greina að undanskilja Rás 2 frá ríkiseign. Það þyrfti þó nán- ari skoðunar við. Hvort það veiki möguleika hans að koma af landsbyggðinni eins og for- maðurinn, Halldór Ásgrímsson, taldi Guðni svo ekki vera. Í litlu landi eins og Íslandi þýddi ekki að skipta því upp. Flokksþing væri fyrir landið allt. Hann sagðist aldrei hafa staðið í fjandskap við höfuðborgina og hon- um þætti vænt um fólkið sem þar byggi. „Ég lít á mig sem góðan mál- svara allra flokksmanna, hvar sem þeir eru á landinu,“ sagði Guðni við Morgunblaðið. Ólafur Örn Haraldsson hefur þeg- ar gefið kost á sér í varaformanns- kjörið og ekki er talið útilokið að fleiri eigi eftir að bætast í hópinn. Að- spurður hvort staða hans myndi veikjast innan flokksins, nái hann ekki kjöri, sagðist Guðni ekki óttast afleiðingarnar. Hefði hann ekki boðið sig fram hefði hann verið að bregðast trausti sinna stuðningsmanna. Hann myndi standa réttur eftir þótt hann ynni ekki þennan slag. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra býður sig fram til embættis varaformanns í Framsóknarflokknum Kveðst vonast eftir drengilegri baráttu Morgunblaðið/Ásdís Guðni Ágústsson kynnir framboð sitt til varaformennsku í Framsókn- arflokknum á fundi með blaðamönnum í landbúnaðarráðuneytinu í gær.  Greinargerð Guðna/48 ÞAÐ hefur ekki farið hátt í vetur en Sigurður Valur Sveinsson handboltakappi, betur þekktur sem Siggi Sveins, er enn að á 42. aldursári þrátt fyrir að hann hafi lýst því yfir nokkrum sinnum í seinni tíð að hann væri hættur. Hann skoraði eitt mark fyrir HK í fyrrakvöld í undanúrslitaleik í Mosfellsbæ gegn Aftureldingu og er Kópavogsliðið á leið í bik- arúrslit í fyrsta sinn í sögu þess. Þetta eru ekki aðeins tímamót fyrir félagið heldur einnig fyrir Sigurð og þjálfara HK, Pál Ólafsson, sem urðu fyrst bikar- meistarar í handbolta er þeir léku með Þrótti gegn Víkingi í úrslitaleik í Laugardalshöllinni fyrir nákvæmlega 20 árum. Sem kunnugt er þjálfaði Sigurður HK áður en Páll tók við liðinu. Baðvigtin var komin í þriggja stafa tölu Sigurður sagði við Morg- unblaðið að hann hefði byrjað að æfa á ný með HK skömmu fyrir jól og haldið áfram af krafti eftir hátíðarnar. Hann sagði að nú yrði tekið á því fram að bikarúr- slitaleik gegn Haukum 17. febrú- ar næstkomandi. „Við Páll ætlum að sjálfsögðu að landa þessum bikar fyrst við erum komnir þetta langt,“ sagði Sigurður. Aðspurður hvað hefði valdið því að hann fór að æfa aftur, eft- ir að hafa leikið nokkra kveðju- leiki, sagði Sigurður að HK hefði vantað örvhentan mann í liðið. Að vísu hefði það einn slíkan frá Kúbu, 38 ára að aldri. „Það er kannski rétt að fara að hleypa þessum ungu að,“ sagði Sig- urður, léttur að vanda, en hann fagnar 42 ára afmæli í byrjun næsta mánaðar. Hann sagði að það hefði einnig haft áhrif á ákvörðun sína að byrja aftur að baðvigtin hefði verið farin að sýna þriggja stafa tölu. „Ein- hvern tímann lofaði maður sjálf- um sér að fara aldrei í þriggja stafa töluna.“ Má líta svo á að bikarúrslita- leikurinn verði þinn allra síðasti leikur eða ætlarðu að verða eilíf- ur í boltanum? „Nei, ef við tökum bikarinn þá held ég að skórnir fari endan- lega í fötuna. Það held ég að sé alveg á hreinu.“ Morgunblaðið/Þorkell Sigurður Valur Sveinsson segir það tímabært að hætta endanlega í handboltanum, takist HK að verða bikarmeistari. Sigurður Sveinsson á leið í úrslit bikarkeppni HSÍ 20 árum eftir að hann varð fyrst meistari Skórnir endanlega í föt- una ef við tökum bikarinn RÍKISSAKSÓKNARI hefur höfðað mál á hendur bílstjóra hópferðarbif- reiðar sem lenti út í Jökulsá á Fjöll- um 16. ágúst sl. með þrettán farþega innanborðs. Bílstjórinn er ákærður fyrir brot gegn umferðarlögum og al- mennum hegningarlögum með því að hafa stofnað lífi og heilsu farþeganna í augljósan háska með atferli sínu. Í ákæru ríkissaksóknara segir að bílstjórinn hafi ekið hópferðabifreið- inni suður þjóðveg F88 framhjá veg- artálma og merki við gatnamót á þjóðvegi 1 við Hrossaborgir, en á merkinu kom fram að ástæða lokun- arinnar væri vatnsflóð við Herðu- breiðarlindir. Ákærði ók áfram veg- inn við neðra Lindahraun þrátt fyrir að Jökulsá á Fjöllum hefði flætt þar yfir veginn á stórum kafla. Skömmu eftir að bifreiðinni var ekið út í jök- ulvatnið gaf vinstri vegkanturinn sig. „Við þetta hreif áin bifreiðina og barst hún um 400 metra í þungum strauminum þar til hún stöðvaðist með framhlutann á kafi í vatninu. Farþegarnir komust við illan leik upp á hált þak bifreiðarinnar, sem stóð að hluta til upp úr árflaumnum, og komust þeir naumlega þar fyrir. Farþegarnir þurftu að bíða björgun- ar í um þrjár klukkustundir, í kulda og rigningu, úti í beljandi jökulvatn- inu sem bifreiðin sökk stöðugt dýpra í. Með atferli sínu stofnaði ákærði lífi og heilsu farþeganna í augljósan háska,“ segir í ákæru ríkissaksókn- ara. Bílstjóri hóp- ferðabifreiðar ákærður JÓNÍNA Bjartmarz, þingmaður Framsóknarflokksins í Reykjavík, hefur ekki tekið afstöðu til þess hvort hún gefur kost á sér í embætti varaformanns Framsóknarflokks- ins. Jónína sagði í samtali við Morg- unblaðið að hún væri hins vegar að hugleiða framboð vegna þess að lagt hafi verið að henni að gefa kost á sér af mjög breiðum hópi flokks- manna víðs vegar að af landinu. „Ég er að hugleiða málið vegna þeirrar miklu hvatningar sem ég hef fengið, en ég hef ekki enn tekið ákvörðun,“ sagði Jónína. Aðspurð hvort eitt- hvað væri til í því að hún hefði fundað um varaformannsframboð uppi á Akranesi með Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðisráðherra og fleiri frammámönnum í Framsókn- arflokknum, sagðist Jónína kannast við það að hafa heimsótt Ingibjörgu flokkssystur sína, sem væri í veik- indaleyfi, og sér þætti það ekki fréttnæmt þó hún vitjaði hennar. „Ég vænti þess að hún hafi fengið fleiri heimsóknir jafnt og upphring- ingar í veikindum sínum,“ sagði Jónína ennfremur. Jónína Bjartmarz hugleiðir framboð HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest 9 ára fangelsisdóm yfir 46 ára Hollend- ingi, Fernando José Andrade, sem var tekinn með ríflega 14 þúsund e- töflur í fórum sínum í Leifsstöð 18. september sl. Þetta er einn þyngsti dómur sem kveðinn hefur verið upp í fíkniefnamáli hér á landi. Andrade millilenti á Keflavíkur- flugvelli á leið sinni frá Amsterdam til New York. Við skoðun á vegabréfi hans varð hann órólegur og sáu starfsmenn Keflavíkurflugvallar ástæðu til að kalla til lögreglu. Ekkert reyndist athugavert við vegabréfið en þegar hann var spurður að því hvort hann hefði eitthvað í buxnavösunum sagðist hann vera með 2.000 e-töflur innan klæða. Við talningu kom hins vegar í ljós að hann var með 14.292 e- töflur og 22,46 g af e-töflumulningi í fimm pakkningum sem hann hafði stungið niður í hjólabuxur sem hann klæddist undir síðbuxum. Hæstirétt- ur sagði að þótt Andrade hefði ekki ætlað að dreifa efnunum á Íslandi heldur í Bandaríkjunum tækju ákvæði almennra hegningarlaga til fyrirhugaðrar sölu hans eða afhend- ingar þar, enda næði íslensk refsilög- saga jafnframt til brota sem beinast að erlendum hagsmunum. 9 ára fang- elsisdómur Héraðsdóms Reykjavíkur frá 7. nóvember sl. var því staðfestur. 9 ára fangelsi fyrir e-töflusmygl

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.