Morgunblaðið - 09.02.2001, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 09.02.2001, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Gísli, Eiríkur, Helgi, ekki er kyn þótt Búkolla bauli, dr. Dýri ætlar að troða norskum fósturvísum í hana. Náttúrufræðslusamkomur KFUM&K Ánamaðkurinn og kóngulóin ÍKVÖLD klukkan 20.30hefst fyrsta samkom-an af þremur sem KFUM&K í Reykjavík stendur fyrir í húsnæði þess á Holtavegi, hinar verða á laugardag á sama tíma og kl. 17:00 á sunnu- dag og er sú á laugardag einkum ætluð ungu fólki. Á fundunum verða teknir fyrir ýmsir þættir úr sköp- unarverkinu. Dr. Bjarni Guðleifsson náttúrufræð- ingur flytur erindi á þess- um fundum og hugleið- ingu. Hann var spurður um hvað hann ætlaði að fjalla í máli sínu. „Ég ætla að taka fyrir þrjú fyrirbæri sem mér finnast áhugaverð og ég hef sérstaklega kynnt mér og safnað gögnum um. Í fyrsta lagi ætla ég að fjalla um farfugla og ferðir þeirra og tek kríuna sem dæmi. Það er furðulegt hvernig farfuglarnir rata fram og til baka og einnig furðuleg árátta hjá þeim að leita hingað í svalann, þar sem þeir geta sannarlega búið við betri kjör á suðlægari slóðum. Í öðru lagi ætla ég að fjalla um ánamaðk- inn sem mörgum finnst viðbjóðs- legur en þegar maður fer að skoða lífshætti hans sér maður að þetta er merkileg lífvera sem vinnur nauðsynlegt starf í hringrás nátt- úrunnar. Í þriðja lagi ætla ég að taka fyrir hið merkilega fyrirbæri kóngulóna og þá einkum hvernig hún spinnur vef og veiðir bráð.“ – Þá langar mig í fyrsta lagi að vita hvaða niðurstöðu þú hefur frá að segja um kríuna? „Ég er ekki með nýjar kenning- ar en það sem mér finnst merki- legt er fyrir utan ratvísina hið mikla flugþol sem hún hefur, en hún flýgur frá norðurpól til suð- urpóls og er nær stöðugt á flugi. Mér finnst stórkostlegt að þessi fugl skuli lifa í stöðugri náttleysu, hann er hér yfir sumarið þegar aldrei er nótt og á suðurpólnum þegar aldrei er nótt þar. Þetta er ljóssins fugl.“ – Hvað vakti áhuga þinn á ána- maðkinum öðrum kvikindum fremur? „Það er hin þekkta gagnsemi sem ánamaðkurinn hefur með nið- urbroti og loftun jarðvegs. Ég hef safnað töluverðu af ánamöðkum og þegar ég fór að kynnast lífs- háttum þeirra sá ég hve merkileg lífvera þetta er og langt frá því að vera viðbjóðsleg þegar henni er brugðið undir stækkunargler.“ – Er kóngulóin eins grimm og af er látið? „Já, hún er rándýr og grimm en engar íslenskar kóngulær eru hættulegar mönnum og reyndar eru þær það fæstar. Ég hef ekki rannsakað hana eins mikið og ána- maðkinn en ég hef skoðað hana og safnað gögnum um hana. Einkum finnst mér merkilegt hvernig hún spinnur þráð og myndar veiðivef, það eru ekki margar lífverur sem gera þetta. Kóngulóin er ein þeirra lífvera sem hafa aðlagað sig best mismunandi að- stæðum í heiminum og er þess vegna nær alls staðar.“ – Hvers vegna er þetta efni tek- ið fyrir á vegum KFUM&K? „Í fyrsta lagi finnst mér að fræðsla um þessar lífverur eigi er- indi til allra. Þetta eru skemmtileg viðfangsefni. Í öðru lagi þykir mér skoðun á þessum lífverum eins og reyndar öðrum lífverum segja talsvert um skaparann.“ – Hvað áttu við með því? „Ég á við það að á bak við svona stórkostleg fyrirbæri hlýtur að standa einhver kraftur og einhver skapari. Í mínum huga er það Guð almáttugur, skapari himins og jarðar.“ – Er ekkert erfitt fyrir há- menntaðan náttúrufræðing að samræma sköpun og þróun þeim vísindum sem hann hefur lært? „Nei, ég hef frá ungaaldri verið sannfærður um tilveru Guðs og að hann hafi skapað heiminn, þetta mikla listaverk. Þróunarkenning- in er bara eins og hver önnur vís- indakenning sem vísindamenn geta notað, hún hrærir ekki við þeirri bjargföstu trú að á bak við allt standi skaparinn. Eftir því sem ég skyggnist meira ofan í sköpunarverkið, því sannfærðari verð ég um að Guð hafi skapað heiminn.“ – Á sex dögum? „Já, hvers vegna ekki, Guð er almáttugur og hann gæti alveg eins gert það. Hins vegar hef ég aldrei látið sköpunarsöguna eins og hún stendur í Biblíunni eða þróunarkenninguna hindra mig í að trúa á almáttugan skapara.“ – Hvað ræðir þú um í hugleið- ingu þinni eftir að hinum fræði- legu efnum hafa verið gerð skil? „Þessi þrjú efni gefa gott tilefni til að tala um Guð almáttugan og trúna á hann. Hugleiðingin er í raun og veru boðun fagnaðarer- indisins.“ – Hefur þú lengi tekið þátt í kristilegu starfi? „Ég er uppalinn í KFUM í Reykjavík og starfaði innan vébanda þess á yngri árum og síðar á Akureyri.“ – En við hvað starfar þú að öllu jöfnu? „Ég starfa við rannsóknir á grösum, einkum þoli grasa gegn ýmiskonar álagi. Hins vegar eru þessi þrjú efni sem ég fjalla um ekki innan míns sérfræðisviðs en hafa vakið sérstakan áhuga minn, oft eru það áhugamálin sem verða skemmtilegri en hin daglegu við- fangsefni. Bjarni E. Guðleifsson  Bjarni E. Guðleifsson fæddist 1942 í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum í Reykjavík 1962 og bú- fræðiprófi frá Öxnavaði í Noregi 1963, árið 1966 lauk hann búfræðikanditatsprófi frá Ási í Noregi og doktorsprófi í jurtalíf- eðlisfræði 1971 frá sama skóla. Hann hefur starfað sem nátt- úrufræðingur hjá Rannsókn- arstofnun landbúnaðarins á Möðruvöllum í Hörgárdal og gerir enn. Bjarni er kvæntur Pál- ínu Jóhannesdóttur sjúkraliða og eiga þau fjögur börn. Sannfærður um að Guð hafi skapað heiminn „ÞETTA er skólabókardæmi um hvernig á ekki að standa að útboði ef áhugi er á því hjá stjórnvöldum að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að halda verkefninu í landinu,“ segir Ingólfur Sverrisson, deildar- stjóri hjá Samtökum iðnaðarins, þegar hann er spurður um viðbrögð samtakanna við ákvörðun um að ganga að tilboði pólskrar skipa- smíðastöðvar vegna viðgerða á varð- skipunum Tý og Ægi. Sjö milljóna króna munur var á til- boði Pólverjanna og tilboði Orms og Víglundar eftir að kostnaður vegna eftirlitsmanna og siglingar varðskip- anna hafði verið reiknaður inn í pólska tilboðið. Einnig barst tilboð frá Stáltaki sem var nokkru hærra. „Það hefði verið hægt að ganga öðruvísi frá útboðslýsingu og setja inn ákvæði sem koma íslenskum fyr- irtækjum vel,“ segir Ingólfur enn- fremur. „Þar á ég til dæmis við að það er ekki skylda að hafa útboðs- gögn á ensku og það hefði verið hægt að setja inn ákvæði sem hefðu komið íslenskum skipasmíðastöðvum betur en erlendum." Draga á lærdóm af útboðinu Ingólfur segir að þessi niðurstaða ætti að verða til þess að standa að út- boðum sem þessum á annan hátt. „Þetta á ekki að þurfa að vera svona og við verðum að nýta þær leiðir sem unnt er til að breyta þessu ef áhug- inn er fyrir hendi hjá stjórnvöldum. Þetta tíðkast í nágrannalöndum okk- ar í þessum tilvikum en það virðist sem stjórnvöld hér hafi ekki tileink- að sér sömu vinnureglu að þessu leyti. Afleiðingin er sú að við eitt landa þurfum að sjá á eftir slíkum verkefnum til útlanda. Ég vil hins vegar trúa því að menn dragi lær- dóm af þessu útboði og taki nú hönd- um saman um að koma þessum mál- um til betra horfs. Við getum ekki horft upp á þetta svona áfram.“ Ganga átti frá útboðs- lýsingu á annan hátt Ingólfur Sverrisson um viðgerð á varðskipum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.