Morgunblaðið - 09.02.2001, Side 14

Morgunblaðið - 09.02.2001, Side 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 14 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ BÖRNUM á biðlista hjá Leikskólum Reykjavíkur hef- ur fjölgað um 43% á síðustu fimm árum. Á síðasta ári fjölgaði börnum á biðlista eft- ir leikskólaplássi hvað mest, en þá voru samtals 2.853 börn 5 ára og yngri á listanum eða um 23% fleiri en árið 1999. Bergur Felixson, fram- kvæmdastjóri Leikskóla Reykjavíkur, sagði að ástand- ið væri vissulega ekki eins og hann hefði óskað sér og að ýmsir þættir spiluðu þar inn í eins og t.d. aukinn dvalartími barna í leikskólum og skortur á starfsfólki. Í þriggja ára áætlun um rekstur, fram- kvæmdir og fjármál Reykja- víkurborgar segir að framboð á leikskólaplássum ætti að verða fullnægjandi árið 2005. „Eins og málin standa núna er ég afar óhress yfir því hvað biðlistinn er ennþá langur,“ sagði Bergur. „Við héldum að við yrðum búnir að fullnægja þörfinni fyrir tveggja ára börn um þetta leyti, en það hefur ekki tek- ist.“ Daglegur dvalartími barna hefur aukist Bergur sagði að börnum í leikskólum hefði lítið fjölgað síðustu ár og sagði hann að það skýrðist að hluta af því að tímafjöldi hvers barns á leik- skólunum hefði aukist mikið. Árið 1994 hefði daglegur dvalartími barna verið að meðaltali 5,9 stundir, en 7,3 stundir árið 2000. „Öll uppbyggingin hefur farið í það að fjölga heilsdags- plássum á kostnað hálfs- dagsplássa,“ sagði Bergur. „Þessi ósk er orðin svo sterk hjá foreldrum að við ráðum ekkert við það. Fólk þiggur ekki hálfsdagspláss. Þetta er stóra breytingin sem hefur orðið á undanförnum árum. Árið 1996 voru um 55% barna í heilsdagsplássum en núna er þetta hlutfall komið upp í rúm 70%. Síðan varð líka ákveðin breyting árið 1994, þegar for- eldrum var leyft að skrá börnin sín á biðlista þótt þau væru ekki orðin eins árs og hafa foreldrar í auknum mæli gert það, þannig að biðlistinn er mjög erfiður.“ Níu leikskólar byggðir á síðustu 5 árum Bergur sagði að sam- kvæmt skoðanakönnun, sem gerð hefði verið fyrir fjórum árum, hefðu um 25% foreldra yngri barna viljað heilsdags- pláss en að nú vildu um 80% foreldra slíkt pláss. „Þetta hefur valdið okkur miklum erfiðleikum. Þetta er eins og þegar Skeiðará hleyp- ur – við höfum ekki nein tök á að sinna þessum óskum.“ Bergur sagði að þótt biðl- istinn væri langur mætti ekki líta framhjá því að borgaryf- irvöld væru að niðurgreiða vist fyrir um 1.600 börn, sem væru hjá dagmæðrum og í einkareknum leikskólum. Hann sagði að gera mætti ráð fyrir því að þessi börn væru nánast öll á biðlistanum og því væri vandamálið kannski ekki alveg eins slæmt og það liti út fyrir að vera í fyrstu. Vantar 40 starfsmenn Skortur á starfsfólki hefur nokkur áhrif á starfsemi leik- skóla í Reykjavík og framboð á rýmum. Bergur sagði að staðan í dag væri sú að um 40 starfsmenn vantaði og að ef það tækist að manna þær stöður myndu um 200 pláss losna. Bergur benti á það að í töl- um um biðlista barna væri að finna börn sem ættu ekki lög- heimili í Reykjavík og einnig börn sem væru yngri en eins árs. Hann sagði að líklega væri Reykjavík eina sveitar- félagið sem teldi þessi börn með, en skráningarreglur væru afar misjafnar milli sveitarfélaga. Auk þess að bæta og byggja við þá leikskóla sem eru í borginni hafa 9 nýir leik- skólar verið byggðir á svæð- inu á síðustu fimm árum, eða síðan 1996. Þessi uppbygging hefur ekki breytt þeirri stað- reynd að börnum á biðlista hefur ávallt fjölgað á milli ára. Þannig voru 1.989 börn á biðlista árið 1996 en árið 2000 var þessi tala komin upp í 2.853, sem er um 43% aukn- ing eins og áður kom fram. Ástandið er einna verst í Grafarvogi Af þeim nýju leikskólum sem reistir voru á tímabilinu eru fjórir í Grafarvogi en samt er ástandið einna verst þar. Hinir leikskólarnir risu í Bústaðahverfi, Laugarnes- hverfi, Seláshverfi og tveir í vesturbæ. Samkvæmt ársskýrslu Leikskóla Reykjavíkur árið 1999 var 51% barna 5 ára og yngri í Víkurhverfi á biðlista eftir leikskólaplássi og 36% barna í Húsahverfi. Í Graf- arvogi er hlutfallið lægst í Hamrahverfi en þar eru 24% barnanna á biðlista, sem er í takt við meðaltal allra barna sem eru á biðlista í Reykja- vík. Af öðrum hverfum, þar sem ástandið er slæmt, má nefna Hlíðahverfið, en þar voru 38% barna á biðlista og í Laugarneshverfinu var þetta hlutfall 37%. Ástandið er best í vesturbænum en þar voru um 11 til 13% barna yngri en 5 ára á biðlista árið 1999. Bergur sagði að ástandið í Víkurhverfi hefði batnað nokkuð því um áramótin hefði ÁRIÐ 2000 starfrækti Reykjavíkurborg 74 leikskóla og 20 gæslu- velli, en alls dvelja um 5.600 börn í leikskólun- um. Starfsmenn eru um 1.700 talsins í 1.200 stöð- ugildum. Auk leikskól- anna 74 voru í gildi þjón- ustusamningar um rekstur tveggja leik- skóla og í fyrra voru um 430 börn í einkareknum leikskólum og um 1.400 börn hjá dagmæðrum. 74 leik- skólar starfræktir Börnum á biðlista hefur fjölgað um 43% á fimm árum Morgunblaðið/Ómar  ,+  %  + ,1 3  %  + ,2 8  %  -               7883 7884 7882 7888 5::: '(    )  ( *   + ,(  !$$# --- #   7888 #   7882 #   7884 #   7883 .  *  + ,(      + ,)=7& &5::: #  !  7 9!  !+& #      !  !   !+ #        = ',          2    "3      2 % *     #      #    , $ #   !  #    !)   = ', ? !!>    2     #41   3    @ @ @ ,  + 5::: %''+AB-  #   -  # 1 3        2    %''+- %''.AB-  #   -  # 1 3         %''&AB-  #   -  # 1 3          %'''AB-  #   -  # 1 3        AB-  #   -  # 1 3        Tæplega 3.000 börn eru á biðlista eftir leikskólaplássi í Reykjavík og hefur ástandið sjaldan verið jafnslæmt. Biðlistinn hefur hægt og bítandi lengst undanfarin ár en á milli áranna 1999 og 2000 fjölgaði börnum á listanum um 23%. Trausti Hafliðason skoðaði málið og ræddi við Berg Felixson, framkvæmdastjóra Leikskóla Reykjavíkur, um stöðuna. Reykjavík Borgaryfirvöld stefna að því að koma leikskólamálum í lag árið 2005 nýr leikskóli með 84 nýjum heilsdagsplássum, risið þar. Hann sagði þróun leikskóla- mála næstu ára myndi fyrst og fremst velta á uppbygg- ingunni og því hversu vel tækist að manna leikskólana. 400 milljónum varið til leikskóla á næstu árum Samkvæmt þriggja ára áætlun um rekstur, fram- kvæmdir og fjármál Reykja- víkurborgar árin 2002 til 2004, kemur fram að um 400 milljónum króna verði varið til leikskóla. Áætlað er að byggja tvo fjögurra deilda leikskóla í nýja hverfinu sem er að rísa í Grafarholti, tvo leikskóla í Grafarvogshverfi og einn nýj- an leikskóla á Kjalarnesi. Ráðgert er að á tímabilinu muni leikskóladeildum fjölga um allt að 29 og ef það geng- ur eftir mun heilsdagspláss- um fjölga um 580. Þá er á þessu ári stefnt að því að bæta við 7 til 8 nýjum leik- skóladeildum með 140 til 160 heilsdagsrýmum. Samkvæmt þriggja ára áætluninni mun breytt fæð- ingarorlof, sem tekur gildi á næstu árum, draga úr eftir- spurn eftir heilsdagsrýmum fyrir börn 2 ára og yngri. „Ef þetta gengur eftir má búast við að á árinu 2004 til 2005 verði framboð á leik- skólaplássum fullnægjandi,“ segir í áætluninni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.