Morgunblaðið - 09.02.2001, Page 18

Morgunblaðið - 09.02.2001, Page 18
LANDIÐ 18 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Vaðbrekku, Norður-Héraði - Þorrablót Jökuldæla og Hlíðar- manna var haldið nýlega í Brúar- ási. Blótið var með hefðbundnu sniði, þar sem brugðið var spé- spegli yfir atburði liðins árs. Þar bar hæst hremmingar sem sveit- ungar lentu í varðandi meintar óleyfilegar hreindýraveiðar og einnig var nokkuð fjallað um fjöl- hæfan dýralækni sem getur bæði læknað skepnur og menn. Skemmtiatriðin voru borin uppi af annál ársins fluttum af Páli Pálssyni frá Aðalbóli, inní hann var fléttað styttri atriðum sungn- um og leiknum. Alls tók skemmtidagskráin um tvo klukkutíma undir borðum, á eftir lék hljómsveitin XD3 fyrir dansi fram á nótt. Myndavél stolið Blótið fór hið besta fram utan að þar var stolið myndavél, er það nokkurt áhyggjuefni vegna þess að hingað til hafa þorrablótsgestir á Norður-Héraði getað verið nokkuð vissir um að þurfa ekki að hafa áhyggjur af sínu hafurtaski þó þeir líti af því stundarsakir. Er það mál manna að því miður virð- ist „stórborgamenningin“ vera að færast útum sveitir. Grunsemdir vöknuðu um að ákveðnir menn væru viðriðnir þennan þjófnað. Þegar gengið var á þjófana daginn eftir skiluðu þeir myndavélinni eftir nokkra eftir- gangsmuni. Það verður þó að virða þjóf- unum til málsbóta að þetta virðast vera smekkmenn, vegna þess að þeir stálu filmunni úr myndavél- inni, hefur líklega langað til þess að eiga góðar myndir frá blótinu. Þorra- blót í Brúarási Mogunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Þorrablótið í Jökuldal var að þessu sinni haldið undir sér- stakri lögregluvernd. Þórshöfn - Þorrablótið á Þórshöfn var mjög fjölmenn samkoma en gott veður og færð á vegum hafði þar mikið að segja því að jafnan er mikið um aðkomufólk og gesti á blóti. Skemmtidagskráin vakti lukku en þorrablótsnefndin sá nær eingöngu um hana. Sú nefnd hefur fundað stíft síðan í nóvember svo heimilislíf nefndarfólks raskaðist allverulega þennan tíma og reyndi mjög á þolrif aðstandenda enda er fundafjöldi þessarar nefndar kom- inn í sögulegt hámark. Svo sem venja er á þorrablóti er skemmti- nefndinni ekkert heilagt, menn og málefni eru sett í nýjan búning og leikin á sviði, oftast við mikinn fögnuð áheyrenda enda var leik- gleði nefndarmanna mikil. Margt var til skemmtunar og þar kom í ljós að ýmsir bjuggu yfir hæfi- leikum sem öllum hafði yfirsést í daglegu lífi. Félagarnir frá Raufarhöfn, hljómsveitin Kokkteill, héldu fjör- inu gangandi fram á rauða morgun, að undanskildu hléi sem dansfólki þótti heldur langt og er það til marks um vinsældir Kokkteils. Fjörugt þorrablót Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Símtal hjóna þar sem frúin er orðin langeyg eftir eiginmanninum sem bíður í Kína eftir skipi sínu sem er í smíðum og konan heldur helst að nýtt Titanic sé í smíðum. Hann nýtur góðrar þjónustu tveggja kvenna en hún bíður staurblönk heima á Fróni – ætlar þó að stelast á þorrablótið. Hnappavöllum - Tvíburar voru skírðir í Hofskirkju í Öræfum 4. febrúar sl. í messu hjá sóknar- prestinum sr. Einari Jónssyni á Kálfafellsstað. Það eru hjónin Ár- mann Guðmundsson og Hólmfríð- ur Guðlaugsdóttir í Svínafelli í Öræfum sem eignuðust börnin snemma í desember. Voru þau skírð Aðalheiður og Víðir. Nokkurt fjölmenni var við athöfnina í góðu veðri enda ekki mjög algengt að tvíburar séu skírðir í fámennum sveitum nú til dags. Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson Tvíburaskírn í Hofskirkju Sauðárkróki - Sturla Böðvarsson samgönguráðherra kom í byrjun vikunnar í heimsókn til Sauðár- króks. Í stuttu spjalli benti ráð- herrann á að með gildistöku nýrra laga um kjördæmisskipan væri ljóst að hans umbjóðendur til þings væru ekki aðeins á Vesturlandi heldur á öllu norðvestursvæðinu og því þyrfti hann nú ekki síður að koma hingað og hitta fólk, ekki að- eins sveitarstjórnarmenn heldur ætlaði hann einnig að fara á vinnu- staði og hitta starfsmennina þar og ræða málin. Ráðherrann sagði að hér væri vissulega mikil þörf á að skoða hverju nýr Þverárfjallsvegur myndi breyta og hugsanlega hvort þörf væri á að herða á þeirri fram- kvæmd og hvernig sá vegur myndi hafa áhrif á byggðirnar beggja vegna Skagans. Þá sagði hann að menn yrðu að gera sér grein fyrir því hvort og þá hvernig jarðgöng frá Siglufirði myndu hafa áhrif á byggð í Skagafirði og sérstaklega í Fljótum. Þjónustuver í hvern landshluta Sturla Böðvarsson sagði það mik- ilsvert að Skagafjörður héldi sínum hlut og það yrði best tryggt með góðum samgöngum innan svæðis- ins. Ekki væri nægilegt að gera leiðina suður sífellt greiðfærari heldur yrði að skapa jafnvægi bæði með öruggara og betra umferðar- og samgönguneti á svæðinu sjálfu og einnig til Akureyrar sem þannig myndi styrkja aðalþjónustusvæðin á Norðurlandi. Þá sagðist ráð- herrann vilja stuðla að því að koma upp í helstu byggðarkjörnum hvers landshluta því sem kallað hefur verið þjónustuver en þar gætu allir þættir samgangna verið á einum stað. Þannig mætti gera þjónustu skilvirkari, styrkja einingarnar um leið og rekstrarkostnaður yrði lækkaður og þjónustan bætt. Sagði hann að í ráðuneytinu væri um þessar mundir verið að vinna að þessum málum og skoða hvern veg þeim yrði best fyrir komið. Frá flugstöðinni á Alexand- ersflugvelli hélt ráðherrann í heim- sókn á Heilbrigðisstofnunina á staðnum, Byggðastofnun og fleiri vinnustaði á Sauðárkróki. Samgönguráðherra í heimsókn á Sauðárkróki Vill styrkja samgöngu- kerfið innan svæðisins                                            ! "  "  ! # $%   &' (!  !  )   ! *              

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.