Morgunblaðið - 09.02.2001, Page 20

Morgunblaðið - 09.02.2001, Page 20
VIÐSKIPTI 20 FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ EIMSKIP hf., Flugleiðir hf. og TölvuMyndir hf. gerðu í gær samn- ing við upplýsingatæknifyrirtækið Skyggni hf. um heildarábyrgð á rekstri upplýsingakerfa fyrirtækj- anna. Þessi þjónustusamningur er sá stærsti sinnar tegundar hér- lendis til þessa og er verðmæti samningsins um 1,5 milljarðar króna. Skyggnir hf. var formlega stofn- að í desember síðastliðnum og hóf fyrirtækið starfsemi í byrjun árs 2001. Stofnendur og eigendur þess eru Eimskip, Flugleiðir og Tölvu- Myndir. Starfsemi tölvurekstrar- deilda Eimskips og Flugleiða var sameinuð í Skyggni hf. og inn í nýja fyrirtækið rann einnig dótturfélag TölvuMynda. Þjónusta Skyggnis nær til vélbún- aðar, hugbúnaðar og hvers kyns samskiptalausna innan og utan fyr- irtækja, og þjónar fyrirtækið nú nær 2.500 útstöðvum hjá um 50 fyr- irtækjum í 17 löndum. Starfsmenn Skyggnis eru rúmlega 50 talsins og störfuðu flestir þeirra áður hjá Eim- skipi, Flugleiðum og TölvuMyndum. Áætluð velta Skyggnis árið 2001 er um 600 milljónir króna og í til- kynningu frá fyrirtækinu kemur fram að gert er ráð fyrir aukinni veltu á næstu misserum. Framtíðaraðsetur Skyggnis verð- ur í Holtasmára 1 í Kópavogi og er stefnt að flutningi starfseminnar þangað nú í vor. Morgunblaðið/Ásdís Svavar G. Svavarsson, framkvæmdastjóri Skyggnis, Ingimundur Sigur- pálsson, forstjóri Eimskips, Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, og Friðrik Sigurðsson, forstjóri TölvuMynda, undirrituðu samninginn um heildarábyrgð á rekstri upplýsingakerfa fyrirtækjanna. Þjónustusamningar að verð- mæti 1,5 milljarðar króna REKSTRARHAGNAÐUR Slátur- félags Suðurlands svf. á árinu 2000 var 91 milljón króna en hagnaðurinn á árinu áður var 123 milljónir króna. Lakari afkoma milli ára skýrist fyrst og fremst af hækkun fjármagns- gjalda vegna gengisbreytinga er- lendra lána, að því er fram kemur í til- kynningu frá Sláturfélaginu. Hagnaður hefur verið á rekstri félagsins samfellt í 7 ár og gert er ráð fyrir svipaðri afkomu á árinu 2001 og var árið áður. Gengi bréfa félagsins hækkaði umtalsvert á Verðbréfaþingi í gær í kjölfar þess að félagið birti árs- uppgjör, eða um 17,6%. Rekstrartekjur Sláturfélags Suð- urlands og dótturfélags voru 3.098 milljónir króna á árinu 2000, en 2.879 milljónir á árinu 1999. Velta samstæð- unnar jókst um 7,6% frá fyrra ári. Rekstrargjöld án afskrifta námu 2.794 milljónum króna en 2.609 mkr. árið áður, sem er 7,1% aukning milli ára. Afskriftir rekstrarfjármuna voru 136 milljónir króna, en 124 milljónir árið 1999. Rekstrarhagnaður án fjár- munatekna og fjármagnsgjalda var 167 milljónir króna, en var 145 millj- ónir króna árið áður. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 68 milljónir króna en á árinu á undan 15 milljónir og hækkuðu um 53 milljónir króna, aðallega vegna gengisbreyt- inga erlendra lána og hærri vaxta. Hagnaður af reglulegri starfsemi var 99 milljónir króna, en nam 130 millj- ónum króna árið áður. Veltufé frá rekstri var á árinu 270 milljónir króna en 243 milljónir árið áður, sem er 11% aukning milli ára. Í árslok 2000 voru heildareignir Sláturfélags Suður- lands og dótturfélags 2.521 milljón króna og höfðu aukist um 12% frá fyrra ári. Skammtímaskuldir voru 473 milljónir króna, langtímaskuldir voru 868 milljónir og eigið fé 1.180 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall í lok ársins 2000 var 47% en var 48% á sama tíma árið áður. Veltufjárhlutfall var 2 í árslok 2000 en var 1,9 í árslok 1999. Arðsemi eiginfjár var 8% en 12% árið áður. Á árinu festi Slátur- félagið kaup á húsnæði undir nýja kjötvinnslu í Videbæk í Danmörku ásamt stórri lóð sem nýtt verður til frekari uppbyggingar. Framleiðsla verður hafin á íslensku lambakjöti í neytendapakkningum í apríl næst- komandi, en undirbúningur stendur nú yfir að opnun verksmiðjunnar. Til að bæta þjónustu við neytendur var á árinu opnaður vefurinn uppskriftir.is sem er ætlað það hlutverk að vera stærsti og öflugasti uppskriftavefur landsins. Í tilkynningu félagsins segir að viðtökur hafi verið ákaflega góðar og markmið félagsins sé að þróa áfram á næstu árum heimasíðu félagsins og samskipti við vefnotend- ur með það að leiðarljósi að þeir geti afgreitt sem flest sín mál gagnvart félaginu með þeim miðli. Aðalfundur Sláturfélags Suður- lands verður haldinn á Hótel Selfossi föstudaginn 30. mars næstkomandi og þar mun stjórn félagsins leggja til að greiddur verði 10% arður af nafn- verði hluta í B-deild stofnsjóðs og reiknaðir verði 8% vextir á höfuðstól inneigna í A-deild stofnsjóðs. Viðmið- unardagur arðsúthlutunar er aðal- fundardagur. Arður verður greiddur út eigi síðar en 30. apríl. Hagnaður Sláturfélags- ins 91 milljón króna =    =   !   %    !   %  %           5     C"   6 3    "!  C !      ! D / 0    ---              $- 1 !-      1 !-    5&2423 5&3:85 751: 7191 595 76:5 7:8 %(7% ).7 7&:435 7&74:2 ).7 5154 12@ 75@ 663 & '( & )( * +( ), *( )&- '( ./, -( .)- )( ./' 0( )/ /( * '( ), '( )/ /( )) -( - *(          1  2  2 2  2 2  2     1   --   $$      1   BANDARÍSKA matsfyrirtækið Moody’s í New York sendi frá sér frétt í fyrradag þar sem tilkynnt var að fyrirtækið hefði staðfest lánshæf- ismat sitt fyrir Ísland. Í fréttinni segir Moody’s að horfur um lánshæf- ismatið séu taldar stöðugar í nýrri skýrslu fyrirtækisins um Ísland. Þá segir að þessi niðurstaða endur- spegli verulega bætta skuldastöðu opinbera geirans hér á landi og stað- festu stjórnvalda í hagstjórn sem lagt hafi grunn að öflugum hagvexti, stöðugleika og miklum lífskjarabata á liðnum árum. Umfangsmiklar skipulagsbreytingar á síðasta áratug hafi falið í sér styrkingu á fjármálum hins opinbera, aukið frjálsræði á fjármála- og vörumarkaði, aukna fjölbreytni í framleiðslu og útflutn- ingi, bætta stjórn fiskveiða og frjáls- lyndari viðhorf til erlendrar fjárfest- ingar. Moody’s varar á hinn bóginn við því að miklum hagvexti hafi fylgt al- varlegt ójafnvægi í þjóðarbúskapn- um sem gæti grafið undan efnahags- legum stöðugleika á komandi tíð. Hjöðnunin sem nú sé hafin valdi ráðamönnum vanda í ljósi mikils að- halds í peningamálum, tiltölulega að- haldssamrar stefnu í ríkisfjármálum og mikils viðskiptahalla. Miklar er- lendar lántökur banka og fyrirtækja verði þyngri í skauti vegna um það bil 10% lækkunar á gengi krónunnar á síðasta ári. Moody’s segir þetta vekja ugg um afkomu þessara fyr- irtækja ef gengið lækki frekar á komandi misserum. Þrátt fyrir þessi varnaðarorð leggur Moody’s áherslu á að geta íslenskra stjórnvalda til að greiða erlendar skuldir samræmist lánshæfiseinkunninni Aa3 um þessar mundir. Aðgangur að erlendu lánsfé frá erlendum bönkum og norrænum seðlabönkum sé mjög góður og skil- vísi ekki dregin í efa. Af þessum ástæðum séu taldar horfur á óbreyttri lánshæfiseinkunn þrátt fyrir áhyggjur af erlendri stöðu og hugsanlegum erfiðleikum í greiðslu- jöfnuði eða gjaldeyrismálum. Skipar Íslandi í hóp traustustu lántakenda Ólafur Ísleifsson, framkvæmda- stjóri alþjóðasviðs Seðlabanka Ís- lands, segir niðurstöðu Moody’s mjög ánægjulega og að hún staðfesti trausta stöðu Íslands á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Hann segir ástæðu til að benda sérstaklega á þá niðurstöðu fyrirtækisins að aðgang- ur íslenskra stjórnvalda að lánsfé sé mjög góður eins og nýlegir lána- samningar ríkissjóðs og Seðlabank- ans eru til marks um. „Þessi niðurstaða Moody’s skipar Íslandi áfram í hóp traustustu lán- takenda á alþjóðlegum vettvangi og er í víðtækari skilningi ákveðinn gæðastimpill fyrir landið gagnvart alþjóðlegu viðskiptalífi. Í mati af þessu tagi er ekki eingöngu komið inn á efnahagslega þætti heldur einnig stjórnkerfið og stöðu landsins í samfélagi þjóðanna. Matið hefur því ótvíræða þýðingu, til að mynda gagnvart erlendum aðilum sem eru hugsanlega að velta fyrir sér fjár- festingu hér á landi,“ segir Ólafur. Moody’s staðfestir óbreytt lánshæfismat íslenska ríkisins Skilvísi ríkisins ekki dregin í efa KÆRUNEFND, samkvæmt lögum um opinbert eftirlit með fjármála- starfsemi, tók efnislega á þeim rök- um sem Búnaðarbankinn hafði uppi varðandi ákvörðun Fjármálaeftir- litsins að vísa máli vegna viðskipta bankans með hlutabréf í Pharmaco til Ríkislögreglustjóra. Í tilkynningu bankans sagði að kærunefndin hefði fellt úrskurð í þessu máli á þann veg að vísa því frá án þess að taka efn- islega á rökum bankans. Málið á forræði Ríkislögreglustjóra Morgunblaðið fór fram á að fá af- rit af úrskurði kærunefndarinnar í máli Búnaðarbankans gegn Fjár- málaeftirlitinu með hliðsjón af upp- lýsingalögum og segir í úrskurðinum að líta beri til þess að mál kæranda, þ.e. Búnaðarbankans, sé nú til rann- sóknar hjá Ríkislögreglustjóra og sé málinu því ekki lokið. Málsmeðferðin þar ákvarðist af lögum nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála og sé á forræði Ríkislögreglustjóra. Með vísan til ákvæðis 2. málsgreinar laga nr. 37/1993 um stjórnsýslu verði ekki hjá því komist að vísa kæru Búnað- arbankans frá. Í úrskurði kærunefndarinnar seg- ir einnig að ágreiningur aðila, þ.e. Búnaðarbankans og Fjármálaeftir- litsins, sé jafnframt um það hvort kærandi, Búnaðarbankinn, hafi átt rétt til þess að fá aðgang að þeim gögnum sem kærði, Fjarmálaeftir- litið, byggði á það mat sitt að kær- andi hefði gerst brotlegur við 1. tölu- lið 1. málsgreinar 27. greinar, samanber 29. grein, laga nr.13/1996. Kærunefndin segir að eðli máls samkvæmt geti það varðað mikil- væga rannsóknarhagsmuni að sak- borningi sé ekki veittur ótakmark- aður aðgangur að gögnum máls áður en rannsókn hefst hjá lögreglu. Þá segir í úrskurðinum að í 15. grein stjórnsýslulaga séu ákvæði um að aðili máls eigi rétt á því að kynna sér skjöl og önnur opinber gögn er málið varði. Í 3. málsgrein sömu greinar segi hins vegar að ákvæði þessarar greinar taki ekki til rann- sóknar og saksóknar í opinberu máli. Kærunefndin segir í úrskurðinum að telja verði að ákvæði 3. málsgrein- ar eigi við um mál þetta og hafi Fjár- málaeftirlitinu því verið rétt að hafna aðgangi Búnaðarbankans að þessum gögnum. Það sé á forræði lögreglu að ákveða hvenær sakborningur fái aðgang að gögnum máls með þeim takmörkunum sem um geti í 43. grein laga um meðferð opinberra mála. Því beri einnig að vísa þessum hluta kröfu Búnaðarbankans frá. Frávísun í máli Búnaðarbankans gegn Fjármálaeftirlitinu Kærunefndin tók efnis- lega á rökum bankans SEX fyrirtæki gerðust í gær form- lega Bandamenn Háskólans í Reykja- vík með það að markmiði að stórefla menntun og fjölga útskrifuðum tölv- unarfræðingum. Fyrirtækin eru Baugur, Eimskip, Íslandsbanki– FBA, Íslandssími, Íslensk erfða- greining og Opin kerfi (í samstarfi við Skýrr og Teymi). Fyrirtækin undirrituðu sérstakan Bandamannasamning við Háskólann í Reykjavík á viðskiptaþingi Verslun- arráðs Íslands í gær og felur samn- ingurinn í sér að fyrirtækin munu leggja skólanum til um 70 milljónir á næstu tveimur árum. Í flestum tilfell- um er um að ræða bein fjárframlög en einnig er um að ræða styrki í formi þjónustu. „Þetta mun gjörbreyta tækifærum Háskólans í Reykjavík og gera hon- um jafnframt kleift að efla rannsóknir og sækja vel menntaða íslenska tölv- unarfræðinga sem nú vinna erlendis og aðra vel menntaða prófessora og dósenta til starfa,“ segir í tilkynningu frá Háskólanum í Reykjavík. Frá 1990 til 2000 útskrifuðust á Ís- landi að meðaltali 23 tölvunarfræð- ingar með BS-próf á ári. Þá eru ótald- ir þeir kerfisfræðingar sem Há- skólinn í Reykjavík og forveri hans, TVÍ, hafa útskrifað frá 1989, en það eru alls 36 kerfisfræðingar að með- altali ár hvert. Síðastliðið vor útskrif- aði Háskólinn í Reykjavík í fyrsta sinn tölvunarfræðinga með BS-próf, alls 21 tölvunarfræðing, og í vor stefnir í að skólinn muni útskrifa rúmlega 40 tölvunarfræðinga. Mark- miðið er að innan fárra ári muni fjöldi útskrifaðra tölvunarfræðinga frá Há- skólanum í Reykjavík verða nálægt 80 á ári. Bandamenn Háskólans í Reykjavík Skólanum lagðar til 70 milljónir króna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.