Morgunblaðið - 09.02.2001, Page 27

Morgunblaðið - 09.02.2001, Page 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 27 BJÖRN Bjarnason menntamálaráð- herra ræddi mikilvægi þess að styrkja kennslu í erlendum tungu- málum í íslensku skólakerfi við setn- ingu Evrópsks tungumálaárs 2001 í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Evr- ópuráðið og Evrópusambandið standa sameiginlega að tungumála- árinu en Ísland er eitt 45 þátttöku- landa. Markmið átaksins er að vekja athygli á mikilvægi tungumálanáms í að efla gagnkvæman skilning, um- burðarlyndi og virðingu fyrir sér- kennum og ólíkri menningu þjóða. Auk menntamálaráðherra fluttu ávörp á setningarathöfninni frú Vig- dís Finnbogadóttir, fyrrverandi for- seti Íslands og velgerðarsendiherra tungumála hjá UNESCO, og Hulda Styrmisdóttir, aðstoðarmaður for- stjóra Íslandsbanka-FBA. Torfi H. Tulinius dósent var kynnir á setning- arathöfninni en auk þess komu fram nemendur úr grunn-, framhalds- og háskólum og skemmtu með upplestri og söng á ýmsum tungumálum. Skilningur þjóða á milli Í setningarávarpi sínu ræddi Björn Bjarnason mikilvægi tungumála- kunnáttu við að greiða veg fólks á starfsvettvangi í alþjóðlegu sam- hengi og ítrekaði efnahagslegt og við- skiptalegt gildi hennar. Þá sagði hann það mikils vert að eyða tor- tryggni milli manna og þjóða með aukinni tungumálakunnáttu á tímum þegar þjóðernislegar öfgastefnur vekja ótta. „Þá er ljóst að það eitt að læra erlend tungumál til nokkurrar hlítar opnar okkur áður óþekktar víddir, eflir skilning á öðrum þjóðum, er menntandi í sjálfu sér og styrkir vitund um gildi móðurmálsins,“ sagði Björn í ræðu sinni og gat þess einnig að nauðsynlegt væri að Íslendingar auðvelduðu aðfluttu fólki hingað til lands að tileinka sér íslensku. Björn gerði tungumálakennslu í íslenska skólakerfinu að umræðuefni og sagði rök hníga að því að færa kennslu í er- lendum tungumálum til enn yngri nemenda í grunnskóla en þegar hefur verið gert enda ættu börn auðveldara með að læra tungumál eftir því sem námið hefst fyrr. Björn ítrekaði auk þess tækifæri Íslendinga til framfara í upplýsingatækni, en auknu fé hefur verið varið til þróunar þekkingar og kunnáttu á því sviði. Björn þakkaði þeim sem komu að undirbúningi að þátttöku Íslands í Evrópsku tungu- málaári og færði frú Vigdísi Finn- bogadóttur sérstakar þakkir fyrir starf hennar sem málsvara íslenskrar tungu hérlendis og á alþjóðlegum vettvangi. Fjöldi tungumála muni hverfa Frú Vigdís Finnbogadóttir hóf mál sitt með því að minna á það starf sem Daninn Rasmus Christian Rask vann í þágu íslenskrar tungu á 19. öld er hann hratt af stað átaki til að sporna við dönskuáhrifum í málinu. Sagði Vigdís að þótt ekki væri oft munað eftir þessum þætti í sögu móðurmáls okkar hefði hann haft geysileg áhrif til langs tíma. Vigdís gerði hnattvæð- ingu heimsins að umtalsefni og benti á að auknar framfarir í upplýsinga- tækni og margmiðlun, sem færu mestmegnis fram á ensku í vestræn- um löndum, hefðu aukið áhyggjur manna af afdrifum ólíkra þjóðtungna heimsins. Sagði hún að rannsóknir UNESCO á þessu sviði bentu til þess að við þessi aldamót væri helmingur tungumála heims í svo mikilli hættu vegna utanaðkomandi áhrifa að þau yrðu horfin innan fárra áratuga. Þá hefðu Evrópusambandið og Evrópu- ráðið tekið höndum saman um að beita sér fyrir varðveislu evrópskra þjóðtungna. Lögð væri áhersla á að menn lærðu tungumál annarra til þess að auka samskipti, efla skilning á menningu þjóða og styrkja eigin tungu. Að lokum ræddi Vigdís þá þróun í átt til orðfátæktar sem bæri á meðal yngri kynslóðarinnar. Mikill hluti afþreyingar- og upplýsingaefnis væri á ensku en eigi að síður væri kunnátta í því tungumáli grunn og ófullnægjandi. Vigdís sagði mikil- vægt að bregðast við þróuninni áður en í óefni yrði komið. Tungumál í alþjóðaviðskiptum Hulda Styrmisdóttir ræddi mikil- vægi tungumálakunnáttu í atvinnulífi á tímum alþjóðaviðskipta og fagnaði því átaki sem felst í Evrópsku tungu- málaári. Sagði hún íslenskt atvinnulíf vera sérlega undir slíkri þekkingu komið og að mikilvægt allri uppbygg- ingu á sviði viðskipta væri að geta sett sig inn í menningar- og viðskipta- heim þeirra þjóða sem eiga hlut að máli. Hulda ítrekaði auk þess mik- ilvægi kunnáttu í ensku, sem væri megintungumál alþjóðaviðskipta. Hulda minnti á mikilvægi þess að geta tjáð skoðanir sínar og aflað sér þekkingar á fleiri tungumálum en ís- lensku og þar væri enskan mjög mik- ilvæg. Hún lagði að lokum til að Ís- lendingar ynnu að því að ná forskoti á sviði almennrar tungumálakunnáttu og nýttu til þess aukna þekkingar- miðlun og fjarskiptatækni. „Eflir skiln- ing á öðrum þjóðum“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Vigdís Finnbogadóttir, Hulda Styrmisdóttir og Björn Bjarnason. Íslendingar aðilar að átaki til eflingar tungumálakunnáttu í Evrópu á þessu ári ERWIN Metz, sendiráðsritari þýska sendiráðsins, afhenti Þjóð- arbókhlöðu – Háskólabókasafni yfirgripsmikla bókagjöf frá Þýskalandi í vikunni. Bókagjöfin, sem er um 50 bækur, samanstend- ur af verkum um og eftir Johann S. Bach, Heinrich Heine, Nóbels- verðlaunaskáldið Günter Grass og Friedrich Nietzsche. Hundrað ára afmæli hans var haldið hátíðlegt í fyrra. Bækurnar eiga að gera íslensk- um stúdentum kleift að auka þekkingu sína á þýskum bók- menntum og heimspeki. Morgunblaðið/Þorkell Þorleifur Jónsson tekur við bókagjöfinni úr hendi Erwin Metz. Með þeim á myndinni er Karin Hartjenstein. Bókagjöf frá Þýskalandi HUGTAKIÐ nútímatónlist, í merkingunni nýtískuleg tónlist, er orðið nokkuð gamalt og á tónleik- unum í gærkveldi gat að heyra skemmtilega samskipan þess sem er verið að gera í dag og það sem gert var fyrir 80 til 90 árum. Charl- es Ives (1874–1954) er t.d. einstak- ur að því leyti, að margt það sem hann fékkst við í tónsmíðum sínum var vart orðið til sem hugmynd í Evrópu. Hann hafði samið þrjár sinfóníur um aldamótin og verkið „Þrír staðir á Nýja-Englandi“ er samið á árunum 1903 til 14. Hann hafði mikil áhrif á bandarísk tón- skáld, menn eins t.d. Cowell, Grainger og Cage. Ives fékkst við fjölsamsetta hrynskipan, fjöltóna og tilviljanlega (aleotoríska) radd- skipan, á meðan Evrópubúar voru á kafi í síðrómantíkinni og „im- pressionisma“. Þetta eru enn við- fangsefni tónskálda dagsins í dag og í raun er Ives enn þá aðferða- lega nýtískulegastur af flestum þeim sem fást við tónsmíðar í dag, ef til vill fyrir utan raf- tónlistina. Flutningur Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Þremur stöð- um á Nýja-Englandi, eftir Charles Ives, var mjög vel mótaður af stjórnandanum James MacMillan og auð- heyrt og séð, að hér fer efnilegur stjórn- andi er fékk hjóðfæra- leikarana með sér, svo að flutning- urinn í heild geislaði af leikgleði. Annað viðfangsefni tónleikanna var frumflutningur þriðju sinfóní- unnar eftir John Speight. Verkið er nokkuð stórt í sniðum, tveir þættir sem mynda þó eina heild þar sem skiptast á kraftmikil átök og ljóð- rænir og lagrænir millikaflar. Þarna mátti heyra margvísleg nú- tímaleg vinnubrögð, þrástefjun, „aleotorik“ í kraftmiklu köflunum og svo sem andstæður, hægferðugt og lagrænt tónmál, stundum ná- lægt því að vera kammertónlist og er þessi samskipan andstæðnanna sérlega áhrifamikil. Þriðja sinfóní- an eftir John Speight er vel samið verk og er hljómsveitarrithátturinn einstaklega skýr og vel útfærður. Mótun hljómsveitar- stjórans var sannfær- andi og hljómsveitin lék þetta marg- slungna verk mjög vel, svo sem dæmt verður við fyrstu heyrn. Lokaviðfangsefni tónleikanna var selló- konsert eftir stjórn- andann og þar lék Raphael Wallfisch (1953) á sellóið en hann er víðfrægur sellisti, enda var leik- ur hans sérlega glæsi- legur. Eitt af því sem einkennir tónmál verksins er að það er oft ofið um „orgelpunkt“, þ.e. liggjandi „undirtón“, oftast í strengjum en einnig í slagverki og blásurum. Þetta gefur verkinu inni- hald hugleiðslu og oft töluvert al- vöruþrungna, sérstaklega í mið- þættinum sem er sérlega fallegur. Í lokakaflanum kveða við ógn- þrungin hamarshögg en verkið endar á eins konar tilbeiðslu og sátt. Þetta áhrifamikla verk var af- burða vel flutt af Wallfisch og hljómsveitin lék mjög vel, undir ár- vökulli stjórn höfundar sem tókst, ásamt einleikaranum, að laða fram mjög sterkar stemmningar, þar sem skiptast á ógnir og friðsæl lífs- sáttin. Ógn og friðsæl sátt TÓNLIST H á s k ó l a b í ó Flutt voru verk eftir Charles Ives, frumflutt var sinfónía eftir John Speight og sellókonsert eftir James MacMillan. Einleikari: Raphael Wallfisch Stjórnandi James MacMillan. Fimmtudagurinn 8. febrúar 2001. SINFÓNÍUTÓNLEIKAR John Speight Jón Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.