Morgunblaðið - 09.02.2001, Page 29

Morgunblaðið - 09.02.2001, Page 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 29 1. Ávarp - Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingkona Samfylkingarinnar. 2. Í nafni góðgerða eða réttlætis? Hrund Gunnsteinsdóttir, þróunarfræðingur, fjallar um skuldavanda fátækustu ríkja heims og tilraunir til lausnar á honum. 3. Lýðræði og alþjóðlegt gildismat. Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur, fjallar um alþjóðlega samvinnu og mikilvægi hennar í lýðræðisþróuninni. 4. Lýðræðisþróun í skugga stríðsátaka. Natasa B. Friðgeirsson, blaðamaður, fjallar um uppbyggingu lýðræðislegra stjórnarhátta í fyrrverandi Júgóslavíu og áhrif stríðsátaka á lýðræðisþróun. 5. „Aðeins eftir lögunum“ Sigurður Líndal, lagaprófessor, fjalla um valdmörk dómstóla og skörun dómsvalds og löggjafarvalds. Fundarstjóri og stjórnandi umræðna: Björgvin G. Sigurðsson, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar. Frekari upplýsingar á samfylking.is Fundaröð Samfylkingarinnar um lýðræðið -2. fundur „Lýðræði - hugsjón og veruleiki“ laugardaginn 10. febrúar kl. 11-14, í Norræna húsinu SÍMINN hefur undirritað styrkt- arsamning við Listasafn Íslands sem gildir út árið 2001. Samning- urinn felur í sér að Síminn er nú þriðja árið í röð aðalstyrktaraðili safnsins. Þetta er liður í þeirri stefnu Símans að styðja markvisst og ötullega við menningu og listir í landinu. Samningurinn fyrir árið 2001 felur í sér styrk til sýningar- innar Náttúrusýnir – Visions de la nature sem kemur frá Musee de Pe- tit Palais í París og verður opnuð í byrjun mars. Einnig veitir Síminn aðstoð í kynningarmálum Lista- safnsins með vistun á heimasíðu safnsins. Síminn leggur til tölvu- kost í safnið með ADSL sítengingu sem veitir almenningi meðal annars aðgang að netinu og gagnasöfnum Listasafnsins. „Þetta markar mikilvæg tímamót í fræðslustarfi safnsins og auðveld- ar almenningi aðgang að upplýs- ingum á þennan hátt,“ segir Eva Magnúsdóttir, kynningarfulltrúi Símans. „Síminn mun jafnframt veita fjármagn til útgáfu á vegum Lista- safnsins,“ segir Eva. Þórarinn V. Þórarinsson, forstjóri Símans, og Ólafur Kvaran, safnstjóri Listasafns Íslands, undirrituðu samninginn. Síminn styrkir Listasafn Íslands „FÁTT eitt er eins mikið á mörk- um hins byggilega heims og ís- lensk myndlist,“ segir Magnús Sigurðarson, sem opnar sýningu sína, Stormur, í galleríi@hlemm- ur.is, á morgun, laugardag, kl. 17. „Margvíslegir samverkandi þættir koma þar til en stærsta þáttinn vil ég tileinka hinum til- finningalega doða og kulda sem safnast saman hér á hjara ver- aldar. Því liggur beinast við að skilgreina „Storminn“ sem ískalda íhugun á stöðu hins ís- lenska myndlistarmanns fyrr og nú en við nánari athugun kemur margt á óvart,“ segir Magnús. „Í „Storminum“ sprettur fram hin hálflukta þrá listamannsins að takast á við tilfinningar sínar frammi fyrir alþjóð án þess þó að tileinka þeim eitthvert ákveðið svið heldur gefa þeim allegorísk- an samhljóm við lífsbaráttuna á norðlægum slóðum. Í „Stormin- um“ á hver maður við sjálfan sig og hefur engan annan að stóla á. Í allri sinni umkomulausu ein- semd stendur þó listamaðurinn af sér „Storminn“ og yljar sér við hugsanir og atferli sem fær blóð- ið til að streyma ögn hraðar. Sí- breytileiki stormsins og óstöðug- leiki gerir áhorfandanum kleift, inn á milli hríða, að berja augum hina forboðnu ávexti ásta og un- aðar,“ segir Magnús. Sýningin stendur til sunnu- dagsins 4. mars og er opin frá kl. 14–18, fimmtudaga til sunnu- daga. Stormur Magnús- ar Sigurðarsonar MYNDLISTARMAÐURINN Rúrí talar um eigin listaverk í fyrirlestri sem haldinn verður í Listaháskóla Íslands á Laugarnesvegi 91, stofu 24, mánudaginn 12. febrúar, kl. 12.30. Listaverk Rúríar fjalla um tíma og tímahugtakið. Í Listasafni Íslands stendur nú yfir sýning Rúrí- ar á verki hennar Glerregn sem gert var árið 1983. Harpa Björnsdóttir myndlistar- maður og myndlistarkennari heldur fyrirlestur í Skipholti 1, miðvikudag- inn 14. febrúar kl. 12.30 í stofu 113. Fyrirlesturinn nefnir hún „Afrísk áhrif á myndlist 20. aldar“ og fjallar um þau áhrif sem afrísk listsköpun hafði á þróun módernismans og hvernig vestrænir myndlistarmenn nýttu þessi áhrif í verkum sínum. Námskeið Þrjú námskeið hefjast 19. febrúar. Sigurborg Stefánsdóttir myndlistar- maður kennir á námskeiðinu Bækur og bókverk. Á námskeiðinu Módel- teikning I verður lögð er áhersla á stöðu, hlutföll og líkamsuppbygg- ingu. Kennari er Hafdís Ólafsdóttir myndlistarmaður. Spuni – list augnabliksins. Markmið námskeiðs- ins er að þátttakendur fái beina reynslu af því hvað spuni er og styrki með því sköpunargleði sína og lífsleikni. Kennari er Harpa Árnadóttir. Fyrirlestrar og námskeið í LHÍ Á 1. HÆÐ Kringlunnar verður opn- uð sýning á úrvali ljósmynda, sem bárust í ljósmyndasamkeppnina 2000 góðar minningar, í dag föstu- dag kl. 14. Jafnframt verður tilkynnt um vinningshafa samkeppninnar og afhent verðlaun fyrir tíu bestu myndirnar. Samhliða myndunum úr samkeppninni verður einnig til sýnis úrval mynda frá menningarborgar- árinu úr ljósmyndasafni Morgun- blaðsins. Þátttaka í samkeppninni var góð og myndefnið á sýningunni fjöl- breytt; allt frá ljósmyndum af form- legum viðburðum til persónulegra mynda, sem tengjast yfirskrift árs- ins með einhverjum hætti. Reykjavík Menningarborg 2000, Morgunblaðið – blað menningar- borgarársins, Hans Petersen og Kringlan stóðu að samkeppninni og sýningunni, sem lýkur miðvikudag- inn 14. febrúar. Myndir frá menningar- árinu í Kringlunni GÖMUL rússnesk stórmynd, Stríð og friður, verður sýnd á „maraþon- sýningu“ í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, á morgun, laugardag. Sýningin hefst kl. 10 og lýkur um kl. 18.30. Myndin er byggð á samnefndri skáldsögu Lévs Tolstoj. Myndin var gerð í Sov- étríkjunum á árunum 1966–1967 og var Sergei Bondartsjúk leikstjóri, en hann fer jafnframt með eitt aðalhlut- verkið. Einnig verður sett upp ljósmynda- sýning um Tolstoj í efri sal MÍR. Maraþon- sýning í MÍR FYRSTA árs nemar hönnunarsviðs Listaháskólans opna sýningu í Kælinum í Laugarnesi í dag, föstu- dag, kl. 13. Sýningin samanstendur af verk- efnum nemenda sem unnin hafa verið á námskeiði sl. fimm daga. Námskeiðið var leitt af Precious Mcbane, skoskum hönnuðum sem starfa í London. Námskeiðið fjallaði um heim byggingavöru- verslana og var markmiðið að vinna með ódýr efni á nýstárlegan hátt. Úrlausn verkefnisins fólst í að skilgreina efnin og skapa þeim nýtt samhengi með protótýpu (módeli) af nýrri vöru. Sýningin er opin í dag til kl. 17 og einnig á mánudag frá kl. 8.15– 12. Nemendasýning í Kælinum BORGARLEIKHÚSIÐ og Mímir– Tómstundaskólinn ætla að bjóða upp á námskeið í tengslum við uppfærslu sænska leikstjórans Peter Engkvist á hinu margfræga leikriti Samuel Beckett, Beðið eftir Godot. Leikritið verður forsýnt nú í vor og frumsýnt þegar nýr salur Borg- arleikhússins, sá þriðji, verður opn- aður næsta haust. Leikarar í verkinu eru Benedikt Erlingsson, Björn Ingi Hilmarsson, Halldór Gylfason og Hilmir Snær Guðnason. Námskeiðið fer fram á þriðjudags- kvöldum 13. febrúar til 13. mars. Árni Ibsen, þýðandi leikritsins, mun kynna verkið og höfund þess, Borgarleikhúsið verður skoðað, fylgst með æfingu og spjallað við leikara og leikstjóra. Á síðasta kvöldi námskeiðsins, þriðjudaginn 13. mars, mun rithöf- undurinn Hallgrímur Helgason, hitta þátttakendur á námskeiðinu ásamt Árna Ibsen, og verður þá tek- ist á um kosti leikritsins og galla. Námskeiðið byrjar þriðjudaginn 13. febrúar og stendur yfir næstu 5 þriðjudagskvöld, kl. 20–22:15. Skráning fer fram á skrifstofu Mímis–Tómstundaskólans, Grensás- vegi 16a. Síðasti skráningardagur er í dag. Námskeið um Beðið eftir Godot ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Geisladiskahulstur aðeins 500 kr. NETVERSLUN Á mbl.is Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.