Morgunblaðið - 09.02.2001, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2001 49
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Sölufulltrúi
Heildverslun óskar að ráða sölufulltrúa til starfa
við sölu á vönduðu sælgæti og skyldum vörum.
Við leitum að samviskusömum starfskrafti með
góða framkomu, er reglusamur og hefur metnað
til að takast á við krefjandi starf.
Starfssvið: Skrifstofu- og sölustarf. Reynsla
æskileg. Um er að ræða framtíðarstarf.
Uppl. eru veittar á skrifstofu Íslenskrar Dreifing-
ar, Skútuvogi 1e, í dag, föstudaginn 9. febrúar,
milli kl. 15.00 og 19.00.
Íslensk Dreifing er heildverslun sem er sérhæfð í sælgæti og skyldum
vörum.
Frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
Spænkukennsla
Kennara vantar í spænskukennslu á vorönn
2001.
Upplýsingar í síma 570 5600.
Skólameistari.
Laust starf
Laust er til umsóknar hálft starf, 50% starf, al-
menns skrifstofumanns á skrifstofu sýslu-
manns Snæfellinga í Stykkishólmi.
Vinnutími er eftir hádegi.
● Tölvukunnátta er áskilin.
● Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna.
Nánari upplýsingar um starfið veita Hulda Hall-
freðsdóttir og Ólafur K. Ólafsson á opnunar-
tíma skrifstofunnar í síma 430 4100.
Skriflegar umsóknir um starfið berist til skrif-
stofu embættisins í Stykkishólmi á Borgarbraut
2 fyrir 23. febrúar 2001.
7. febrúar 2001,
Ólafur K. Ólafsson,
sýslumaður.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Rauði kross Íslands
Borgarfjarðardeild
Aðalfundur
Borgarfjarðardeild RKÍ heldur sinn árlega aðal-
fund 15. febrúar í húsnæði deildar Brákareyjar
kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagsmenn og aðrir áhugamenn um Rauða
krossinn hvattir til að mæta.
Kaffiveitingar.
Stjórn Borgarfjarðardeildar RKÍ.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Ránarbraut
1, Vík, sem hér segir á eftirfarandi eign:
Langholti, Skaftárhreppi, þingl. eig. Helgi Backman og Jarðasjóður
ríkisins, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn í Vík í Mýrdal, fimmtudaginn
15. febrúar 2001 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn í Vík,
6. febrúar 2001.
Sigurður Gunnarsson.
Uppboð
Eftirtaldir munir verða boðnir upp í Austurmörk 18, Hvera-
gerði, föstudaginn 16. febrúar 2001 kl. 14.00:
Álímingarvél, GRUMAC model uR mod 46, álímingarvél, GRUMAC
MODEL 2RS, ser.nr. 846, dekkjamót, 4 stk. CIO, dekkjamót, 68 stk.
C.I.M.A., dekkjarekkar, 14 stk. CIO, gufuketill, K. Jónsson 170kw teg.
D55, serial 586, límsprauta, K2 AENGEL S50, ser.nr. 10777, loftpressa,
FF Buster, ser.nr. LD 100, loftpressa, Steinhög Ka 112F ser.nr.
3906842, rafmagnstafla, Rafha, raspur, SIO Ra 2A, skoðari, Collmann,
ser.nr. 1011167, snyrtimaskína, Collmann, suðupottur, CIMA RPU
1 hf, ser.nr. 4725, suðupottur, CIMA RPU 1 hf, ser.nr. 4727, suðupott-
ur, CIMA RPU 1 hf ser.nr. 4725, suðupottur, CIOM 5, ser.nr. 12070
og vara- og aukahlutir.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
7. febrúar 2001.
TILKYNNINGAR
Búðarhálsvirkjun allt að 120 MW
og 220 kV Búðarhálslína 1.
Mat á umhverfisáhrifum
- athugun Skipulagsstofnunar
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla
um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur
frammi til kynningar frá 9. febrúar til 23.
mars 2001 á eftirtöldum stöðum: Á skrifstof-
um Ásahrepps, Holta- og Landsveitar, Gnúp-
verjahrepps og Djúpárhrepps. Einnig liggur
skýrslan frammi í Þjóðarbókhlöðunni og hjá
Skipulagsstofnun, Reykjavík. Matsskýrslan er
aðgengileg á heimasíðu Landsvirkjunar:
http://www.lv.is
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina
og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir
skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en
23. mars 2001 til Skipulagsstofnunar, Lauga-
vegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur
nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrif-
um.
Samtímis er auglýst tillaga að breytingu á
Svæðisskipulagi Miðhálendis Íslands 2015 er
tekur til sama svæðis.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfis-
áhrifum, nr. 106/2000.
Skipulagsstofnun.
Tillaga að breytingu á Svæðisskipulagi
Miðhálendis Íslands 2015
Búðarhálsvirkjun
og Búðarhálslína
Samvinnunefnd miðhálendis auglýsir skv. 14.
gr. a sbr. 13. gr. a í skipulags- og byggingarlög-
um nr. 73/1997 m.s.br. tillögu að breytingu á
Svæðisskipulagi Miðhálendis Íslands 2015 er
tekur til framkvæmdasvæðis Búðarhálsvirkjun-
ar og Búðarhálslínu eins og það er skilgreint
í skýrslu um mat á umhverfisáhrifum fram-
kvæmdarinnar sem auglýst er samtímis sbr.
lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000.
Gerð er tillaga um eftirfarandi breytingar á
svæðisskipulaginu: Stöðvarhús færist vestur
að Sultartangalóni og aðrennslisgöng liggja
að því frá Sporðöldulóni. Tungnaá verður
brúuð við Hald og lagður vegur þaðan að
stöðvarhúsi og yfir fyrirhugað stíflustæði
Sporðöldulóns sem stækkar um 1 ferkílómeter
að flatarmáli frá fyrri áætlunum. Ný 220 kV há-
spennulína verður lögð yfir Búðarháls að tengi-
virki Sultartangastöðvar.
Breytingartillagan verður til sýnis á skrifstofu-
tíma á eftirtöldum stöðum frá og með föstu-
deginum 9. febrúar til og með föstudagsins
9. mars 2001:
Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík,
Holta- og Landsveit, hreppsskrifstofunni Laugalandi í Holtum,
851 Hellu
Ásahreppi, hreppsskrifstofunni Laugalandi í Holtum, 851 Hellu
Djúpárhreppi, Samkomuhúsi Þykkvabæjar , 851 Hellu
Gnúpverjahreppi, hreppsskrifstofunni í Árnesi, 801 Selfossi
Sýslumanninum á Ísafirði Stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1,
400 Ísafirði
Héraðsnefnd Eyjafjarðar, Strandgötu 29, 600 Akureyri
Hafnarfjarðarbæ, afgreiðslu umhverfis- og tæknisviðs Hafnarfjarðar-
bæjar, Strandgötu 8-10, 220 Hafnarfirði
Þjóðarbókhlöðunni, Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík
Þeim, sem telja sig eiga hagsmuna að gæta,
er hér með gefinn kostur á að gera athugasemd-
ir við breytingartillöguna. Frestur til þess að
skila inn skriflegum athugasemdum rennur út
föstudaginn 23. mars 2001. Skila skal athuga-
semdum á skrifstofu samvinnunefndar miðhá-
lendisins á Skúlagötu 21, 101 Reykjavík.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir við breyting-
artillöguna fyrir tilskilinn frest, teljast samþykk-
ir henni.
Samvinnunefnd miðhálendis.
Mat á umhverfisáhrifum
- ákvörðun Skipulagstofnunnar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
Sjókvíaeldi Silungs ehf. í Stakksfirði út
af Vogastapa skuli háð mati á umhverfisáhrif-
um samkvæmt lögum nr. 106/2000 um mat
á umhverfisáhrifum.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er
einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnun-
ar: http://www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 9. mars
2001.
Skipulagsstofnun.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Hrauntjörn 4, íbúð, Selfossi, fastanr. 218-6425, þingl. eig. Rakel Gísla-
dóttir og Ketill Leósson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Sam-
einaði lífeyrissjóðurinn og sýslumaðurinn á Selfossi, fimmtudaginn
15. febrúar 2001 kl. 10.30.
Jörðin Hróarsholt II, að undanskildum tveimur 50 ha spildum, þingl.
eig. Ingibjörg Magnúsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og
Kaupás hf., fimmtudaginn 15. febrúar 2001 kl. 14.00.
Sjöfn ÁR-123, skipaskrárnúmer 2004, þingl. eig. Ásþór ehf., gerðar-
beiðendur Olíuverslun Íslands hf. og Vátryggingafélag Íslands hf.,
fimmtudaginn 15. febrúar 2001 kl. 9.30.
Sunnuvegur 14, íbúð, Selfossi, fastanr. 218-7423, þingl. eig. Karl
Ómar Ársælsson, gerðarbeiðendur Almenna málflutningsstofan
sf., Búnaðarbanki Íslands hf., Íbúðalánasjóður, Landsbanki Íslands
hf. höfuðst., sláturhúsið Þríhyrningur hf., sýslumaðurinn á Selfossi
og Vátryggingafélag Íslands hf., fimmtudaginn 15. febrúar 2001
kl. 10.00.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
7. febrúar 2001.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 1 181298½ Sp.
I.O.O.F. 12 181298½ Fl.
Aðalstöðvar KFUM og KFUK,
Holtavegi 28.
Náttúrufræðisamkoma í kvöld kl
20.30.
Upphafsorð: Klara Valdís Þór-
hallsdóttir.
Einsöngur: Helga Vilborg Sigur-
jónsdóttir.
Fyrirlestur og hugleiðing: Dr.
Bjarni E. Guðleifsson, náttúru-
fræðingur.
Aðgangur er ókeypis. Allir hjart-
anlega velkomnir.
Í kvöld kl. 21 heldur Kristján Val-
ur Ingólfsson erindi um helgi-
hald í kristnum klaustrum á
Sturlungaöld í húsi félagsins,
Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15—17 er opið
hús með fræðslu og umræðum,
kl. 15.30 í umsjón Halldórs Har-
aldssonar sem sýnir myndband
með Krishnamurti.
Á sunnudögum kl. 17—18 er
hugleiðingarstund með leiðbein-
ingum fyrir almenning.
Hugræktarnámskeið Guð-
spekifélagsins verður fram-
haldið fimmtudaginn 15. febrúar
kl. 20.30 í umsjá Birgis Bjarna-
sonar „Opið spjall um hug-
rækt“.
Á fimmtudögum kl. 16.30—
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra bók-
mennta.
Guðspekifélagið er 122 ára
alþjóðlegt félag um andleg mál,
hið fyrsta sem byggði á hug-
myndinni um algert frelsi, jafn-
rétti og bræðralag meðal mann-
kyns.
Nauðungarsala
Framhald uppboðs á eftirtalinni fasteign verður háð á henni
sjálfri sem hér segir:
Suðurbraut 3, Hofsósi, þingl. eign dánarbús Friðvins J.S. Jónssonar,
eftir kröfu Íbúðalánasjóðs, verður háð á eigninni sjálfri fimmtudaginn
15. febrúar 2001 kl. 11.00.
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki,
8. febrúar 2001.
Ríkarður Másson. VEÐUR
mbl.is