Morgunblaðið - 01.03.2001, Side 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
YFIRSTJÓRN lögreglunnar í
Reykjavík sendi frá sér yfirlýsingu í
gær þar sem m.a. kemur fram að yf-
irvinnubann hafi aldrei verið sett á
ávana- og fíkniefnadeild embættis-
ins, ennfremur er í yfirlýsingunni
hörmuð sú umræða sem orðið hefur
um málefni fíkniefnadeildarinnar
upp á síðkastið. Undir yfirlýsinguna
skrifa þeir Böðvar Bragason lög-
reglustjóri og Ingimundur Einars-
son varalögreglustjóri.
Böðvar sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann hefði ekki neina
sérstaka skýringu á því hvers vegna
umræðan hefði farið af stað. Hann
sagði að í yfirliti yfir unna yfirvinnu-
tíma á síðasta ári kæmi fram að það
hefði verið unnin yfirvinna alla mán-
uði ársins.
„Það vill nú svo til að fíkniefna-
deildin er sú deild lögreglunnar sem
mest hefur verið hlúð að á liðnum ár-
um,“ sagði Böðvar. „Það var skýrt
frá því á sínum tíma þegar kostn-
aðurinn við fíkniefnadeildina í heild
var kominn fram úr áætlunum. Þá
var ekkert um annað að ræða en að
beita aðhaldsaðgerðum, með þeim
afleiðingum að vinnan varð ekki eins
hröð og öflug og kannski æskilegt
hefði verið, en það var aldrei sett á
yfirvinnubann. Þá vil ég undirstrika
það sem kemur fram í yfirlýsingunni
að engin ný eða gömul mál biðu
skaða af þessum aðgerðum.“
Telja umræðuna skaðlega
fyrir starfsemi deildarinnar
Yfirlýsing yfirstjórnar lögreglu-
embættisins fer hér á eftir: „Yfir-
stjórn lögreglunnar í Reykjavík
harmar þá umræðu sem orðið hefur
um málefni ávana- og fíkniefnadeild-
ar embættisins og telur hana skað-
lega fyrir starfsemi deildarinnar,
ekki síst í ljósi þess að fjallað hefur
verið á opinberum vettvangi um við-
kvæmar upplýsingar er tengjast
rannsókn einstakra mála.
Eins og ítrekað hefur komið fram
varð að leggja ákveðnar takmarkan-
ir við yfirvinnu ávana- og fíkniefna-
deildar, sem og annarra deilda emb-
ættisins frá liðnu hausti til áramóta.
Yfirvinnubann hefur hins vegar aldr-
ei verið sett á ávana- og fíkniefna-
deild. Síðasta sumar rannsakaði
deildin umfangsmikil fíkniefnamál
sem kölluðu á yfirvinnu, langt um-
fram áætlanir embættisins. Það
leiddi til þess að flestir starfsmenn
deildarinnar, sem eru 11–12 að jafn-
aði, þurftu að vinna mikla yfirvinnu,
allt að 300 stundir á mánuði. Þegar
mest var fór heildartímafjöldi deild-
arinnar yfir 3000 stundir á mánuði.
Yfirlit um unna yfirvinnutíma í fíkni-
efnadeild á árinu 2000 sem kynnt var
í gær (þriðjudag) hlýtur að staðfesta
að aldrei hefur verið sett yfirvinnu-
bann á deildina en dregið var úr
þeirri óhóflegu yfirvinnu sem lögð
var á starfsmenn hennar er líða tók á
haustið. Yfirmanni ávana- og fíkni-
efnadeildar var þó gert að láta ekki
þessar takmarkanir standa því í vegi
að rannsaka ný mál, ef upp kæmu.“
Yfirstjórn lögreglunnar í Reykjavík sendir frá
sér yfirlýsingu um ávana- og fíkniefnadeildina
Yfirvinnubann
aldrei sett á deildinaKJARASAMNINGUR Flugstöðv-
ar Leifs Eiríkssonar og Starfs-
mannafélags ríkisstofnana var
samþykktur með 91,8% greiddra
atkvæða. Alls voru 113 á kjörskrá,
98 greiddu atkvæði. Þar af sögðu
90 já.
Samningurinn er svipaður þeim
sem almennt hafa verið gerðiren
auk þess er tekið tillit til aðlög-
unar samningsins að kjaraum-
hverfi almenna markaðarins.
Samningar í
flugstöðinni
samþykktir
ANNAR flugvirkjanna sem hand-
teknir voru á þriðjudagsmorgun
vegna smygls á um tveimur kílóum
af hassi til landsins með fragtvél
Flugleiða hefur verið úrskurðaður í
einnar viku gæsluvarðhald. Hinum
flugvirkjanum var sleppt að loknum
yfirheyrslum.
Hassið var í tveimur ógegnsæjum
áfengisflöskum sem komið hafði
verið fyrir í þili fyrir aftan flug-
stjórnarklefa fragtvélar Flugleiða
sem var að koma frá Liege í Belgíu.
Fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík verst að mestu fregna af
gangi rannsóknarinnar.
Guðjón Arngrímsson, kynningar-
fulltrúi Flugleiða, segir að báðir
flugvirkjarnir hafi verið leystir und-
an starfsskyldum sínum. Ákvörðun
um framhaldið verði tekin þegar
rannsókn málsins lýkur. Vegna
málsins var fragtvélin kyrrsett í um
fjórar klukkustundir. Guðjón segir
tjón Flugleiða vegna þessa vera um
fjórar milljónir króna.
Þetta er þriðja tilvikið á tiltölu-
lega skömmum tíma þar sem starfs-
menn flutningafyrirtækis eiga þátt í
flutningi fíkniefna til landsins. Áður
hefur slíkt gerst hjá bæði Samskip-
um hf. og Eimskip hf.
Jóhann R. Benediktsson sýslu-
maður í Keflavík segir að eftirlit
með starfsmönnum fyrirtækja í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar hafi ver-
ið aukið upp á síðkastið og verði enn
hert á næstunni. Undanfarna mán-
uði hafi þrír starfsmenn fyrirtækja í
flugstöðinni verið staðnir að því að
smygla vörum út af flugvallarsvæð-
inu. Þeim hefur verið vísað frá störf-
um.
Björn Ingi Knútsson, flugvallar-
stjóri á Keflavíkurflugvelli segir að
eftirlit á flughlöðum og í flugvall-
arhliði hafi verið hert að undan-
förnu. Nú sé verið að vinna að upp-
setningu á s.k. innri girðingu sem
mun girða af flughlöð við flugstöð-
ina. Þá verður eftirlitsmyndavélum
bætt við utanhúss. Hann býst við
því að framkvæmdir muni hefjast í
vor.
Myndavél í viðhaldsskýli
fyrir fimm árum
Samkvæmt upplýsingum frá
sýslumanninum á Keflavíkurflug-
velli var eftirlitsmyndavél komið
fyrir í viðhaldsskýli Flugleiða á
Keflavíkurflugvelli fyrir um fimm
árum. Myndavélin mun hafa verið
sett upp að beiðni tollgæslunnar á
Keflavíkurflugvelli en samkvæmt
upplýsingum frá sýslumannsemb-
ættinu var hún fjarlægð skömmu
síðar eftir kvartanir frá starfsmönn-
um í skýlinu. Um mánuði síðar fann
ræstingakona um eitt kíló af hassi í
ruslafötu í einni af flugvélum Flug-
leiða og tilkynnti það til tollgæslu.
Flugvirki í gæsluvarðhaldi vegna
smygls á um tveimur kílóum af hassi
Unnið að hertu
eftirliti á Kefla-
víkurflugvelli
ÞAÐ er ekki laust við að menn fái
rómantískan glampa í augun þegar
þeir aka um Austurgötu í Hafn-
arfirði, en þar er nú verið að und-
irbúa tökur á Mávahlátri, nýrri ís-
lenskri kvikmynd eftir Ágúst
Guðmundsson.
Götunni hefur verið breytt mikið.
Möl lögð yfir malbikið, gamlir ljósa-
staurar og rafmagnslínur látnar
teygja sig milli gamalla húsa með
litríka sögu og fyrir utan þau
standa virðulegar amerískar
drossíur.
Morgunblaðið/Ásdís
Gamli tíminn
í Hafnarfirði
HVOLPURINN Njála sem er undan
tíkinni Snældu frá Hofi í Vatnsdal
er í þann mund að komast til eig-
enda sinna í Seattle í Bandaríkj-
unum. Njála er síðust sex systkina
til að flytja til útlanda en áður eru
farnir út hvolpar til Hollands og
Finnlands. Hundar þessir eru af ís-
lensku kyni og eru vinsælir víða um
heim. Þau hjón Jón Gíslason og El-
ine Schrijver á Hofi auglýstu hvolp-
ana á Netinu og fengu þessi af-
bragðsgóðu viðbrögð að nú eru öll
afkvæmi Snældu úr þessu goti úr
landi horfin.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Snælda siðar Njálu, dóttur sína,
svo að hún verði landi og þjóð til
sóma í Bandaríkjunum.
Íslenski hundurinn
er útflutningsvara
Njála á
leið til
Seattle
Blönduósi. Morgunblaðið.
DAGLEGIR fundir eru í kjaradeilu
sjómanna og útvegsmanna. Nýr
fundur er boðaður í dag.
Ríkissáttasemjari hefur mælst til
þess að forystumenn deiluaðila tjái
sig varlega um deiluefnin á meðan
þessi fundalota stendur yfir, en sam-
kvæmt heimildum blaðsins er þungt
fyrir fæti í deilunni og mörg ágrein-
ingsmál enn óleyst. Sjómenn hafa
boðað verkfall frá 15. mars.
Daglegir
fundir í sjó-
mannadeilu
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
EKIÐ var á gangandi vegfaranda á
Akureyri um klukkan þrjú í gær-
dag. Að sögn lögreglu var vegfar-
andinn, sem var kona um áttrætt, á
leið yfir gangbraut á Þingvall-
astræti við Hrísalund þegar fólksbíll
ók á hana. Konan var flutt á slysa-
deild FSA, en var ekki talin alvar-
lega slösuð.
Ekið á konu
á Akureyri