Morgunblaðið - 01.03.2001, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 01.03.2001, Blaðsíða 36
UMRÆÐAN 36 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ LÍKLEGA er vand- fundin sú fjölskylda á Íslandi sem ekki hefur komist í kynni við krabbamein. Afleið- ingar krabbameins fyrir sjúklinga og ást- vini þeirra eru marg- víslegar, m.a. sorg, vonbrigði, kvíði og oft á tíðum ólýsanlega erfið barátta. Nýgengi krabbameins hefur aukist talsvert á und- anförnum árum en fyrir tilstuðlan krabbameinsrann- sókna og aukinnar þekkingar á sjúk- dómnum hefur dregið úr dánartíðni af völdum hans. Vegna bættrar greiningar og meðferðar þekkja fjölmargir Íslendingar gleðina og þakklætið þegar glíman við sjúk- dóminn vinnst. Árangur í baráttunni gegn krabbameini má þakka þrotlausum rannsóknum færustu vísinda- manna. Íslenskir vísindamenn hafa lagt sitt af mörkum til krabba- meinsrannsókna enda kjöraðstæð- ur hér fyrir slíkar rannsóknir; landið fámennt og sjúkdómaskrár góðar. Krabbameinsfélag Íslands hefur verið brautryðjandi í rann- sóknar- og forvarnastarfi hér á landi síðastliðin 50 ár. Með frábæru starfi hefur félagið reynst bakhjarl okkar og stoð þegar á hefur reynt. Sem dæmi um fram- úrskarandi árangur af rannsóknarstarfi á Ís- landi má nefna rann- sóknir á brjósta- krabbameini. Það er áhyggjuefni að ný- gengi þess fer vaxandi á Vesturlöndum og nú mun að meðaltali ein af hverjum tíu íslensk- um konum greinast með brjóstakrabba- mein fyrir áttrætt. Krabbameinsfélag Íslands stóð að rannsóknum sem áttu veigamikinn þátt í að greina brjóstakrabba- meinsgenin BRCA1 og BRCA2 en fundur þeirra markaði tímamót í baráttunni við þennan illvíga sjúk- dóm. Nú stendur yfir viðamikil rannsókn á um sex þúsund íslensk- um konum þar sem könnuð eru tengsl áhættuþátta brjóstakrabba- meins við breytingar á geni sem stýrir viðgerð skemmdra fruma. Vísindamenn hafa skilgreint bet- ur fjölbreytilegt eðli krabbameina og betri skilningur er á áhættu- þáttum sjúkdómsins. Nú er hægt að greina krabbamein fyrr sem eykur möguleika á lækningu og bata. Vísindasamfélagið býr nú yfir meiri þekkingu á eðli og hegðun ill- kynja frumna, lyf eru orðin betri og taka betur mið af sérkennum hvers æxlis. Á næstu árum væntum við enn meiri framfara í krabba- meinsrannsóknum, forvörnum og lækningum. Rannsóknir og forvarnastarf eru áhrifaríkustu vopnin í baráttunni gegn krabbameini. Við skulum tryggja að Krabbameinsfélagið fái þann stuðning sem því ber í ís- lensku samfélagi. Ég hvet lands- menn alla til að sýna stuðning í verki með þátttöku í fjáröflunar- átaki félagsins. Styðjum rannsóknir í bar- áttu gegn krabbameini Guðfinna Bjarnadóttir Landssöfnun Rannsóknir og for- varnir, segir Guðfinna S. Bjarnadóttir, eru áhrifaríkustu vopnin í baráttunni gegn krabbameini. Höfundur er rektor Háskólans í Reykjavík. ÞÓ að yfir þúsund Íslendingar greinist ár hvert með krabbamein hafa lífslíkur krabba- meinssjúklinga aukist mikið og má þakka það forvörnum, betri skiln- ingi á orsökum krabbameins, grein- ingu og markvissri meðferð. Ekki má gleyma því forvarna- starfi í tóbaksvörnum sem unnið er í grunn- og framhaldsskólum landsins og hefur skil- að góðum árangri. Tóbaksvarnafræðsla hefur oft beinst að því að gera grein fyrir langtímaafleið- ingum tóbaksneyslu. Mörg börn hafa átt erfitt með að skilja að ákvörðun sem þau taka í æsku get- ur haft afdrifaríkar afleiðingar í framtíðinni. Enginn vafi er á því að fræðsla um skaðsemi tóbaksneyslu skiptir máli. Þekking á afleiðingum tóbaksneyslu er helsta ástæða þess að meginþorri almennings byrjar ekki að reykja og reykingamenn reyna að hætta reykingum. Nýleg- ar rannsóknir sýna að reykingar meðal íslenskra unglinga eru fátíð- ari en í flestum öðrum Evrópulönd- um. Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur unnið gott starf að tóbaks- vörnum í mörg ár. Með því að koma í veg fyrir að unglingar byrji að reykja er ver- ið að draga úr ýmsum sjúkdómum, ekki síst fjölgun krabbameina. Tóbaksvarnir eru einn liður í heilbrigðisupp- eldi í grunnskólum landsins og mun meiri þekking er á skaðsemi reykinga nú en fyrir nokkrum árum. Ég vona að þessi þróun haldi áfram á næstu misserum og að ung- lingar geri sér grein fyrir því hve mikið þeir græða í lífinu á reykleysi. Fyrir þremur árum átti ég hlut að átaki hjá Krabbameinsfélaginu undir kjörorðinu „Berjumst gegn brjóstakrabbameini“. Mikilvægt er að konur mæti reglulega í brjósta- myndatöku eftir fertugt og skoði brjóst sín sjálfar í hverjum mánuði. Með því móti á að vera hægt að fækka dauðsföllum af völdum brjóstakrabbameins. Allar íslensk- ar konur á aldrinum 40–60 ára fá boð frá Leitarstöð Krabbameins- félagsins um að mæta í brjósta- myndatöku á tveggja ára fresti. Rannsóknir sýna að með regluleg- um brjóstamyndatökum megi fækka dauðsföllum vegna brjósta- krabbameins um 20–30%. Ég hvet alla Íslendinga til þess að hugsa um velferð sína og fjöl- skyldu sinnar. Hægt er að minnka líkurnar á því að fá krabbamein með því að reykja ekki, stunda lík- amsrækt, vanda fæðuval og neyta áfengis í hófi. Þriðji hver Íslend- ingur fær krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Þess vegna verða flest okkar aðstandendur krabba- meinssjúklinga. Því vil ég hvetja alla landsmenn til þess að taka þátt í landssöfnuninni 3. mars næstkom- andi og leggja sitt af mörkum til þess að efla starfsemi Krabba- meinsfélagsins. Mikilvægi forvarna Hólmfríður Karlsdóttir Landssöfnun Mörg börn hafa átt erfitt með að skilja, segir Hólmfríður Karlsdóttir, að ákvörðun sem þau taka í æsku getur haft afdrifaríkar afleiðingar í framtíðinni. Höfundur er fóstra. DAVÍÐ Oddsson birtist svo að segja í einu vetfangi sem þungavigtarmaður á sviði íslenskra stjórn- mála er hann varð borgarstjóri í Reykja- vík að afloknum sveit- arstjórnarkosningum 1982. Mér er það enn í fersku minni hve lítt mér hugnaðist fram- ganga hans í ljósvaka- miðlum næstu árin. Þegar hann átti í höggi við andstæðinga sína virtist mér tónn hans og talandi er hann mætti andstæðingum sínum einkennast af hroka og allt að því fyrirlitningu á viðmælandanum. Líkast var því sem hann teldi sig eiga þar orðastað við undirmálsfólk sem enga virðingu ætti skilið. Síðla í nóvember 1987 tók ég þátt í 60 ára afmælishátíð Ferðafélags Íslands í krafti þess að þá taldist ég til forystusveitar Ferðafélags Akur- eyrar. Margt stórmenna tók þátt í hátíð þessari, þar á meðal þáverandi for- sætisráðherra, Þorsteinn Pálsson og Davíð Oddsson sem borgarstjóri. Báðir fluttu þeir ræður og skipti þar mjög í tvö horn. Davíð fór á kostum, reytti af sér brandara og kitlaði hláturtaugar samkomugesta. Þorsteini fataðist gjörsamlega flug- ið í sinni ræðu og áreiðanlega stökk engum bros meðan þessi valdamesti maður þjóðarinnar talaði Þessi lífs- reynsla breytti viðhorfi mínu til Davíðs verulega svo að ég fór jafn- vel að taka svari hans á vinnustaðn- um við daufar undirtektir margra vinnufélaganna. Veturinn 1989–90 stóð Stöð 2 fyr- ir spurningakeppni undir stjórn hina þjóðkunna sjónvarpsmanns, Ómars Ragnarssonar. Þar kepptu 3ja manna sveitir frá kaupstöðum landsins í útsláttarkeppni og fór svo að til úrslita kepptu á vordögum 1990 sveitir Akureyrar og Reykja- víkur. Ég var liðsmaður í sveit Akureyr- ar ásamt kornungu fólki, stúlku sem þá var nemandi í MA og pilti við nám í Verkmenntaskólanum á Ak- ureyri. Töluvert tilstand var af hálfu Stöðvar 2 í sambandi við þessa úr- slitarimmu. Bæjarfulltrúar og bæj- arstjóri Akureyrar voru viðstaddir svo og kollegar þeirra í Reykjavík. Óneitanlega vakti það töluverða at- hygli mína að Davíð Oddsson gekk fram og heilsaði okkur Akureyring- um innvirðulega þegar við komum í salinn. En þáverandi bæjarstjóri á Akureyri, hvers nafn skal ekki upp- lýst hér, lét slíkt ógert. Úrslit urðu þau að við Akureyr- ingar unnum nokkuð örugglega. Þegar viðureigninni var lokið kom Davíð aftur til okkar og ósk- aði okkur til hamingju með sigurinn. Mér þótti töluvert til þess koma og eftir á þeim mun meira sem hinn ónefndi bæjar- stjóri Akureyrar virti okkur ekki viðlits. Ekki fór hjá því að við- horf mitt til Davíðs yrði miklum mun já- kvæðara eftir þetta. Rúmlega ári seinna settist Davíð í stól for- sætisráðherra um leið og hann tók sæti á þingi því sem hann líkti við Gaggó Vest. Mér fannst framkoma hans á þessu nýja valdsviði með töluvert öðrum blæ en upphaflega í borgarstjórn. Enn bet- ur var þessi landsföðurlega ímynd hans staðfest í sambandi við hin hörmulegu snjóflóð á Vestfjörðum árið 1995. Að mínum dómi var fram- koma hans þar til fyrirmyndar. Á síðustu misserum hefur fram- ganga hans við ýmis tækifæri alls ekki verið í samræmi við áður- nefnda ímynd landsföðurins. Dæmi um slíkt eru viðbrögð hans við tilkomu Samfylkingarinnar. Þá varð ekki betur séð en aftur birtist hinn gamli Adam borgarstjóraár- anna. Ummæli hans um það fólk sem vann að stofnun flokksins voru í hinum sama tón mannfyrirlitningar og lítilsvirðingar sem hann sýndi andstæðingum sínum í borgar- stjórn. Þegar Kári Stefánsson hóf „inn- rás“ sína í íslenskt þjóðlíf kom fljót- lega í ljós að fyrirætlanir hans með stofnun Íslenskrar erfðagreiningar nutu stuðnings forsætisráðherrans. Sú skýring kom fram í því efni að þeir hefðu verið bekkjarbræður í MR. Vel kann það hafa sitt að segja en trúlega er þyngri á metum sú skoðun Davíðs að um sé að ræða hinn mesta happafeng fyrir íslenskt atvinnulíf. Ágreiningur er þó ærinn um fyrirtækið eins og öllum er kunnugt. Að því er ég best man var það á árinu 1999 sem maður í þjónustu ís- lensku þjóðkirkjunnar birti smá- sögu í Lesbók Morgunblaðsins sem augljóslega var helguð andspyrnu gegn Íslenskri erfðagreiningu. Sag- an var skreytt með teikningu þar sem erlendur auðkýfingur hefur fest kaup á Esjunni og verið er að hefja fjallið úr sínum stað til flutn- ings í annað land að ósk kaupand- ans. Á teikningunni sjást nokkrir menn og einn þeirra greinilega í lík- ingu Davíðs. Mátti skilja að sá hefði forystu um sölu fjallsins. Skömmu síðar hvarf höfundur sögunnar úr starfi sem hann gegndi við undirbúning kristnihátíðar. Ekki man ég betur en fram kæmi af hálfu Davíðs að hann hefði ráðið því að maðurinn hvarf frá þessu starfi. Hið síðasta sem hér verður um rætt verður varla nefnt annað en dæmi um valdhroka og á ég þar við viðureign Davíðs og Garðars Sverr- issonar, formanns Öryrkjabanda- lagsins. Þar mætast stálin stinn því að Garðar lætur hvergi deigan síga að halda fram málstað umbjóðenda sinna gegn æðsta valdsmanni þjóð- arinnar. Upphaf þessara skylminga var gagnrýni Davíðs á Öryrkja- bandalagið þess efnis að það hefði lagt milljónir króna í auglýsingar til stuðnings Samfylkingunni í aðdrag- anda alþingiskosninga 1999 sem Garðar svaraði fullum hálsi. Seinni hólmganga þeirra stendur enn yfir þar sem eru eftirmál hins margfræga dóms Hæstaréttar um ólögmæti þess að skerða örorku- bætur vegna tekna maka. Sér ekki fyrir endann á þeim átökum þegar þetta er ritað en báðir virðast ganga fram á ystu nöf í málflutningi sínum; Davíð með því að reyna að lítillækka Hæstarétt og Garðar með því að heimta leiðréttar bætur umsvifa- laust, ekki öllu seinna en sama dag og dómur féll. Nýlegur þjóðarpúls Gallups gefur vísbendingu um hverjum augum þjóðin lítur þetta mál. Vinsældir rík- isstjórnar í lágmarki og fylgi stjórn- arflokkanna dalar verulega frá fyrri könnun. Einhverjir mundu einnig benda á kjör Garðars sem maður ársins. Eitthvað er til í því en öðrum þræði ber það þess vitni hve minni fólks nær skammt til baka í tíma, al- veg á sama hátt og þegar Davíð var valinn stjórnmálamaður aldarinnar. Á nítjándu öld var einn svipmesti frammámaður íslenskur Arnljótur Ólafsson, prestur og alþingismaður. Samtímamaður hans, Páll Ólafsson skáld, orti um hann vísu, mannlýs- ingu sem margir kunna. Mér finnst vel megi heimfæra hana upp á for- sætisráðherra vorn sem niðurlag og ályktunarorð þessarar greinar: Mér er um og ó um Ljót, ætla hann bæði dreng og þrjót, í honum er gull og grjót, hann getur unnið mein – og bót. Í honum er gull og grjót ... Guðmundur Gunnarsson Þjóðfélagsmál Vinsældir ríkisstjórnar eru í lágmarki, segir Guðmundur Gunnarsson, og fylgi stjórnarflokkanna dalar verulega frá fyrri könnun. Höfundur er ellilífeyrisþegi, búsettur á Akureyri. flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.