Morgunblaðið - 01.03.2001, Blaðsíða 45
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 45
Í KASTLJÓSI 19.
febrúar sl. var til um-
ræðu fyirhugað útboð
Hafnarfjarðarbæjar á
rekstri Áslandsskóla.
Þar tókust á um málið
tveir bæjarfulltrúar
Hafnarfjarðarbæjar,
Þorsteinn Njálsson og
Lúðvík Geirsson.
Fram kom ítrekað hjá
Þorsteini sem mælti
fyrir útboðinu að um
tilraun væri að ræða.
Ein röksemd Lúðvíks
gegn útboðinu var að
börn væru ekki til-
raunadýr. Í stjórnmál-
um skiptir miklu máli
að hafa sigur í rökræðu. Þessvegna
er oft ekki um eiginlega rökræðu að
ræða, heldur röklegar skylmingar
þar sem allar mögulegar brellur og
brögð eru leyfileg. Atið á milli
stjórnmálamanna er oft hin besta
skemmtun en sjaldnast skila þær
áheyrendum skýrari hugmynd um
eðli málsins en þeir höfðu áður. Til
þess að gagn sé af rökræðu er mik-
ilvægt að menn beiti hugtökum af
vandvirkni. Börn eiga ekki að vera
tilraunadýr. Erum við
ekki öll sammála um
það? Það er siðferði-
lega rangt að gera til-
raunir á mönnum. Við
gerum tilraunir á dýr-
um og mörgum finnst
það rangt. Hvað þá á
börnum okkar.
Röbrellan í þessu til-
viki er síendurtekin
notkun á orðinu til-
raunadýr. Það er ekki
sjálfgefið að tilraunir í
skólamálum geri börn
að tilraunadýrum. Til-
raunadýr eru notuð
sem tæki til þess að ná
markmiðum í rann-
sóknum sem eru dýrunum og fram-
tíð þeirra óviðkomandi. Þessvegna
er ógeðfellt að manneskja sé notuð
sem tilraundýr. Ekki síst börn.
Brellan er sem sé fólgin í því að nota
orð yfir gjörðina, sem felur í sér
gildisdóm og gerir málið fyrirfram
tortryggilegt. Ég man ekki betur en
sá grunnskóli sem nú heitir Há-
teigsskóli hafi áður heitið Æfinga-
og tilraunaskóli Kennaraháskólans.
Þeim skóla var ætlað það hlutverk
m.a. að vera í fararbroddi í þróun
nýrra kennsluhátta. Ríki og sveit-
arfélög veita talsverðu fé í þróun-
arverkefni í skólastarfi sem eru til-
raunir í sjálfu sér. Við verðum að
gera tilraunir í menntamálum, ann-
ars ríkir stöðnun. Góður kennari
gerir tilraunir á hverjum degi. Þrátt
fyrir það þætti okkur flestum mikill
útúrsnúningur að þar með væri að
hann að gera börnin að tilraunadýr-
um. Hann prófar með börnunum ný
verkefni, nýja nálgun viðfangsefna á
ábyrgan hátt og hefur að sjálfsögðu
hag nemenda að leiðarljósi. M.ö.o.
þá er það ekki fyrirfram siðferðilega
rangt að bjóða út skólastarf einsog
Lúðvík Geirsson lét í veðri vaka.
Slíkur málflutningur er líklegri til
að drepa málinu á dreif en að varpa
ljósi á málefnið. Þeir eru örugglega
margir sem vilja átta sig betur á
rökum þeirra sem setja sig gegn
fyrirhugaðri skólatilraun í Hafnar-
firði. Vandaðri málflutningur myndi
auka skilning manna á þeim mál-
stað.
Tilraunir á börnum
Sigurður
Björnsson
Kennsla
Tilraunadýr eru
notuð sem tæki til
þess að ná markmiðum
í rannsóknum, segir
Sigurður Björnsson,
sem eru dýrunum
og framtíð þeirra
óviðkomandi.
Höfundur er lektor í heimspeki
við KHÍ.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri sem hér segir:
Bankastræti 10, Skagaströnd, þingl. eig. Johannes Marian Simonsen
og Þórdís Skúladóttir, gerðarbeiðendur Höfðahreppur, Íbúðalánasjóð-
ur og Vátryggingafélag Íslands hf., mánudaginn 5. mars 2001
kl. 11.00.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
Blönduósi 28. febrúar 2001.
Hraunsréttarsöfnunin
Ákveðið hefur verið að safna fé til endurupp-
bygginar á Hraunsrétt í Aðaldal. Hafist var
handa á sl. sumri, en ljóst er að verkið tekur
nokkur ár og um mjög kostnaðarsama fram-
kvæmd er að ræða.
Þingeyingar, búsettir í héraði, og þeir, sem
brottfluttir eru og bera góðan hug til réttarinn-
ar, eru hvattir til að leggja málinu í lið.
Reikningsnúmer söfnunarinnar er 60643 í
Landsbankanum á Húsavík.
Upplýsingar gefur Atli Vigfússon í síma
464 2022.
Hollvinir Hraunsréttar.
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins í Hnjúkabyggð
33, Blönduósi, þriðjudaginn 6. mars 2001 kl. 11.00 á eftirfar-
andi eign:
Brimslóð 8, Blönduósi, þingl . eig. Steindór Ingi Kjellberg, gerðarbeið-
endur Íbúðalánasjóður og Tryggingamiðstöðin hf.
Sýslumaðurinn á Blönduósi,
Blönduósi 28. febrúar 2001.
ÝMISLEGT
Uppboð
Eftirtaldir munir verða boðnir upp í Einarshúsi, Eyrarbakka,
fimmtudaginn 8. mars 2001 kl. 10.00:
19 tréborð á pottfæti, 2 frystikistur ca. 300 og 560 lítra, 2 frystiskápar
(annar Boss), 2 stk. uppáhelli-kaffivélar, 4 hellna Bertos gaseldavél,
60 tréstólar, bökunarskápur úr ryðfríu stáli, Electrolux ofn, Euro
pizzaofn, hitaskápur, hvítt matar- og kaffistell fyrir 300 manns A.
Karlss., kaffivél Fame, kæliborð, kælivél og blásari fyrir stórkæli,
kökukælir, vaskaborð fyrir uppvask úr ryðfríu stáli, vaskaskápur
úr ryðfríu stáli allt frá Frostverki, og Wescodisc uppþvottavél DC-6.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
28. febrúar 2001.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 5 181318 Br
Landsst. 6001030119 VII
I.O.O.F. 11 181318½ 9.III*
Fimmtudaginn 1. mars kl. 20.
Kvöldvaka í umsjón Guðmundar
Guðjónssonar og bræðranna.
Allir hjartanlega velkomnir.
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í kvöld kl. 20.00.
Vitnisburðir. Ræðumaður:
Björg Lárusdóttir.
Fjölbreyttur söngur. Kaffi að
lokinni samkomu. Allir velkomnir.
www.samhjalp.is .
Aðaldeild KFUM,
Holtavegi 28.
Sameiginlegur fundur með
AD KFUK. Heimsókn í Lang-
holtskirkju þar sem Jón Helgi
Þórarinsson, Jón Stefánsson,
Ólöf Kolbrún Harðardóttir og
Svala Sigríður Thomsen taka á
móti gestum.
Fundurinn hefst kl. 20.
Allir velkomnir, konur og
karlar.
Smiðjuvegi 5, Kópavogi.
● Lækningasamkoma kl. 20.
Guðrún Halldórsdóttir predikar,
fyrirbænir.
Allir hjartanlega velkomnir.
„Ótti er ekki í elskunni.
Fullkomin elska rekur út
óttann.“
www.vegurinn.is .
Fjölbreyttar ferðir allt árið!
Jeppaferð á Hlöðuvelli 3.—4.
mars. Ferð fyrir meðal breytta
bíla. Undirbúningsfundur verður
fimmtudagskvöld kl. 20 á Hall-
veigarstíg 1. Gist í skála.
Sunnudagsferðir 4. mars
kl. 10.30:
1. Gullfoss í klakaböndum —
Geysir og fl.
2. Skíðaganga (ef snjóalög
leyfa).
Landmannalaugar á fullu
tungli 9.—11. mars.
1. Jeppa- og skíðagönguferð.
2. Skíðagönguferð.
Helgarferðirnar eru mjög
vinsælar. Bókið því strax.
Næsta myndakvöld er mánu-
dagskv. 5. mars kl. 20 í Húna-
búð, Skeifunni 11. Á dagskrá er
hálendið norðan Vatnajökuls.
Sjá utivist.is og textvarp bls. 616.
www.mbl.is
Vettvangur fólks í fasteignaleit
w w w . m b l . i s / f a s t e i g n i r
Leitin að réttu eigninni
hefst hjá okkur
ATVINNA
mbl.is
alltaf á föstudögum
annan hvern
miðvikudag