Morgunblaðið - 01.03.2001, Blaðsíða 70

Morgunblaðið - 01.03.2001, Blaðsíða 70
Filmundur sýnir Girlfight FÓLK Í FRÉTTUM 70 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Sprengistjarna (Supernova) G e i m m y n d  Leikstjóri Thomas Hill. Aðal- hlutverk Angela Bassett, James Spader. 90 mín., Bandaríkin 2000. Skífan. Bönnuð innan 16 ára. BAKSVIÐ þessarar annars lítt merkilegu geimmyndar er allsérstakt svo vægt sé til orða tekið. Í fyrsta lagi sátu stórfrægir kappar í leikstjóra- stólunum þrátt fyr- ir að hið óþekkta nafn Thomas Hill sé síðan á endanum skráð fyrir öllu saman. Málið er nefnilega að þegar betur er að gáð virðast menn eitt- hvað hafa verið ókyrrir í brúnni og stjóraskipti orðið nokkrum sinnum. Þeir nafntoguðustu sem komu þar við eru ekki ómerkari menn en spennu- myndaleikstjórinn mistæki Walter Hill og sjálfur Francis Ford Coppola! Allt þetta havarí í kringum fram- leiðslunna hefur síðan augljóslega leitt af sér óráðsíu hina mestu því myndin kostaði heilar 60 milljónir dollara en náði síðan ekki að hala inn nema lítið brot af þeirri upphæð. Framleiðendurnir eru því trúlega enn að sleikja sárin. Það sem er verst er að þetta vafasama baksviðsrugl hefur skaðað myndina á mjög merkjanleg- an máta. Hún er stefnulaus, þung- lamaleg og heldur óspennandi áhorfs. Sem er töluverð synd þegar litið er til þess að upphaflega hugmyndin hefur örugglega litið ágætlega út á pappír – áður en farið var að þvæla henni baka til í Hollywood-vindunni. Skarphéðinn Guðmundsson MYNDBÖND Langt úti í buska Lulu á bryggjunni (Lulu on the Bridge) D r a m a  Bandaríkin. Leikstjóri og handrits- höfundur Paul Auster 1998. Leik- arar: Harvey Keitel, Mira Sorvino, Kevin Corrigan, Vanessa Redgrave, Mandy Patinkin, Willem Dafoe. MYNDIN segir sögu af ástar- sambandi djassleikara (Harvey Keitel) og hálfmisheppnaðrar leik- konu (Mira Sorv- ino), en þegar höf- undurinn Paul Auster á hlut að máli má búast við að öllu sé snúið á hvolf og aðra kanta. Eftir hina feikigóðu Smoke hefur Auster lítið fengist við kvik- myndagerð en hann hefur engu gleymt í handritsgerð og leikstjórn- in ferst honum vel úr hendi (Blue in the Face var tekin upp á tveimur dögum og varla hægt að segja að henni hafi verið leikstýrt). Það er draumkennd tilfinning yfir allri myndinni og gæti hún farið í taug- arnar á mörgum en aðrir ættu að njóta hennar. Mörg fræg andlit úr heimi leiklistar og tónlistar koma fram í myndinni og má nefna Lou Reed og David Byrne í litlum hlut- verkum. Leikararnir leysa hlutverk sín vel af hendi og er frábært að sjá Willem Dafoe fá bitastæðari hlutverk upp á síðkastið eftir ládeyðu síðustu ára. Ottó Geir Borg Draum- kennd ver- öld Austers SÍBERÍU, Rússlandi. 28. febrúar 2001. Allt er breytingum háð jafnvel hér langt fyrir norðan heimskautsbaug. Þegar ég var að rölta um bæinn í dag rakst ég á þennan sérkennilega veitingastað. Ekki vantar nú útsjónarsemina, ekki nóg með að eigandinn yrði sér út um nokkur þúsund rúblur með Coke- auglýsingu heldur leysti hann húsnæðisvanda sinn með því að kaupa sér gamlan olíutank og innrétta hann sem veitingahús. Heimamenn eru alvanir þvílíkum lausnum en mér varð æði starsýnt á fyrirbrigðið. Annars er ég núna að reyna að komast aftur til Moskvu en það lítur ekki gæfulega út þessa stundina. Það er ófært með flugi og hinn möguleikinn er ísbrjótur til Murm- ansk sem er talsvert langt fyrir vestan Tamír-skagann og talsvert sunnar. Hingað liggja engir vegir eða járnbrautir nema bara innan svæðis. Ég á nú von á að þetta leysist fljótlega, annars væsir svo sem ekki um mig. Rússarnir, vinir mínir, leggja sig í líma við að hugsa vel um útlendinginn. Dagbók ljósmyndara Sérkennilegt veitingahús Í KVÖLD ætlar Filmundur aðsýna myndina Girlfight eftirKaryn Kusama. Þetta er hennar fyrsta mynd en framleiðandi hennar er John Sayles. Diana Guzman býr í lítilli íbúð í Brooklyn ásamt föður sínum og yngri bróður. Hún á í erfiðleikum með að finna sjálfa sig, hún er stöð- ugt að lenda í vandræðum í skólan- um og upplifir mikið ofbeldi heima hjá sér. Diana finnur hjá sér þörf til að gera uppreisn gegn þeim erfiðu aðstæðum sem henni hafa verið skapaðar, bæði í skólakerfinu og um- hverfi sem mótast hefur af fátækt- inni og fordómum gagnvart uppruna hennar og kyni. Dag einn uppgötvar hún boxíþróttina fyrir tilviljun og þar með hefur hún fundið farveg fyr- ir reiðina og þau vonbrigði sem hafa haft stjórn á lífi hennar til þessa. Diana byrjar að æfa box í laumi og smám saman tekst henni að ná stjórn á skapi sínu. Girlfight kallast að mörgu leyti á við Billy Elliot sem er sýnd hér á landi við góðar undirtektir um þess- ar mundir, en báðar myndirnar fjalla um ungt fólk sem kýs að tjá sig eftir leiðum sem umhverfið samþykkir ekki auðveldlega vegna tengsla þeirra við hefðbundin kynhlutverk. Enn þann dag eru konur sem ger- endur líkamlegs ofbeldis ekki algeng sjón í kvikmyndum sem byggjast á raunverulegum aðstæðum en ekki fantasíum. Oftast er litið svo á að lík- amlegt ofbeldi sé tjáningarmáti karl- mennskunnar en í Girlfight er þess- ari hefðbundu hlutverkaskipan umturnað þar sem Diana notar of- beldi til að tjá sig, eins og fyrir henni er haft, en er ekki fyrst og fremst fórnarlamb ofbeldis. Þó er ekki hægt að segja að ofbeldi sé upphafið í myndinni og ekki verið að mæla með því sem tjáningarmáta, heldur er frekar verið að benda á margbreyti- leika tjáningar óháð stöðluðum kynjaímyndum. En Girlfight er jafn- framt raunsæ bardagamynd og kall- ast á við aðrar slíkar. Hnefaleika- íþróttin sem leið til að öðlast aukna sjálfsvirðingu, samfélagsviðurkenn- ingu og lífsfyllingu er nokkuð al- gengt minni í myndum sem taka á bardagaíþróttum á einhvern hátt, minnir t.d. töluvert á fyrstu Rocky- myndina. Girlfight vann til aðalverðlauna á Sundance-hátíðinni í fyrra og Karyn Kusama var valin besti leikstjórinn á sömu hátíð, en þá er aðeins upptalið örlítið brot af öllum þeim verðlaun- um og tilnefningum sem aðstand- endur myndarinnar hafa hlotið und- anfarið. Með aðalhlutverk fara Michelle Rodriguez, Santiago Douglas og Jaime Tirelli. Rodriguez hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir frumraun sína í þessari mynd. Sýningin í kvöld hefst kl. 22:30 en myndin verður endursýnd á mánu- dagskvöldið á sama tíma. Stúlka slær á móti Leikkonan unga Michelle Rodriguez þykir standa sig með prýði í þessari fyrstu mynd sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.