Morgunblaðið - 01.03.2001, Blaðsíða 26
ERLENT
26 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Barnaskautar
(Smelluskautar)
Stærðir 29-36
Áður kr. 3.990
nú kr. 2.400
Skeifunni 11, sími 588 9890
Opið laugardaga frá kl. 11-15
40%
AFSLÁ
TTUR
Ú T S A
L AListskautarVinilHvítir: 28-44Svartir: 33-46Áður kr. 4.201
nú kr. 2.500
Hokkískautar
Reimaðir
Stærðir 37-46
Áður kr. 9.338
nú kr. 5.600
Smelluskautar
Stærðir 29-41
Áður kr. 4.989
nú kr. 2.993
Hokkískautar
Smelltir
Stærðir 36-46
Áður kr. 5.990
nú kr. 3.600
Listskautar
Leður
Hvítir: 31-41
Svartir: 36-45
Áður kr. 6.247
nú kr. 3.800
VLADÍMÍR Pútín Rússlandsforseti
sagði í gær að áform Bandaríkja-
stjórnar um að koma upp eldflauga-
varnakerfi brytu í bága við Gagneld-
flaugasáttmálann frá 1972, sem hann
lýsti sem grundvelli alþjóðlegra ör-
yggismála.
„Allar tilraunir til að breyta sátt-
málanum munu grafa undan öryggi
og friði í heiminum,“ sagði Pútín í
ræðu á þingi Suður-Kóreu í Seoul,
þar sem hann var í opinberri heim-
sókn. Varaði hann við afleiðingum
þess að sáttmálinn missti gildi sitt.
Pútín mælti í síðustu viku fyrir þró-
un evrópsks eldflaugavarnakerfis,
sem ekki bryti í bága við Gagneld-
flaugasáttmálann.
Í sameiginlegri yfirlýsingu Pútíns
og Kims Dae-jung, forseta Suður-
Kóreu, segir ennfremur að Gagneld-
flaugasáttmálinn sé „hornsteinn
stöðugleika í heiminum og mikilvæg-
ur grundvöllur alþjóðlegrar viðleitni
til afvopnunar og banns við út-
breiðslu kjarnavopna“. Suður-kór-
eska utanríksiráðuneytið sendi þó
frá sér yfirlýsingu í gær, þar sem
áréttað er að í yfirlýsingunni sé ekki
tekin afstaða til eldflaugavarnaá-
forma Bandaríkjastjórnar. Suður-
Kórea er náinn bandamaður Banda-
ríkjanna og þar eru að jafnaði um
37.000 bandarískir hermenn.
Í heimsókn sinni til Suður-Kóreu
hét Pútín einnig stuðningi við sátta-
ferlið, sem nú er hafið milli Kóreu-
ríkjanna tveggja, og mælti fyrir
auknum viðskiptum milli Rússlands
og Suður-Kóreu. Forsetinn hélt til
Víetnam í gærdag.
Nauðsynlegt að beita
eldflaugavörnum
Skömmu eftir að Pútín hélt ræðu
sína á þingi Suður-Kóreu í gærmorg-
un að staðartíma, mælti George W.
Bush Bandaríkjaforseti fyrir drög-
um stjórnar sinnar að fjárlagafrum-
varpi fyrir fjárhagsárið 2002, á
þriðjudagskvöld að bandarískum
austurstrandartíma.
Í ávarpinu á Bandaríkjaþingi gaf
Bush til kynna að áfram yrði unnið
að undirbúningi eldflaugavarnakerf-
isins. „Til að vernda bandarísku
þjóðina, bandamenn okkar og vini er
okkur nauðsynlegt að þróa og beita
virkum eldflaugvörnum,“ sagði for-
setinn í ræðu sinni.
Pútín varar
við afleið-
ingunum
Seoul. AFP, AP.
Bush segir áfram unnið að þróun
eldflaugavarnakerfis
Reuters
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
og Kim Dae-jung, forseti Suður-
Kóreu, við upphaf heimsóknar
hins fyrrnefnda.
LÉLEGRI vegamerkingu hefur
verið kennt um alvarlegt slys í
Kaupmannahöfn í fyrrakvöld, sem
kostaði tvo Svía lífið, auk þess sem
26 slösuðust. Tveggja hæða rúta,
sem fólkið var í, keyrði á Knipp-
elsbrú, sem er skammt frá danska
þinghúsinu, og var höggið svo mik-
ið að þak rútunnar rifnaði af. Er
þetta í fjórtánda sinn sem ekið er
á brúna á 18 árum, þar af hafa
nokkrar alvarlegar ákeyrslur orðið
sl. hálft ár. Engu að síður telja
borgaryfirvöld að nægar aðvaranir
hafi verið við brúna. Vegna slyss-
ins kann sú niðurstaða að breytast
að sögn Søren Pind, yfirmanns
tækni- og umferðarmála borgar-
innar.
Rútan var full af starfsmönnum
og eigendum veitingahúsa í Sví-
þjóð sem sótt höfðu matvælasýn-
ingu í Bella Center. Var stemmn-
ingin þar í gær að vonum þung og
kokkar í keppninni um matreiðslu-
mann Norðurlanda báru sorgar-
bönd. Farþegar í rútunni sögðu
höggið hafa verið líkt og spreng-
ingu en þeim sem sátu niðri var
ekki ljóst hvað gerst hafði fyrr en
bílstjórinn skipaði þeim út. „Það
er algert brjálæði að byggja því-
líka dauðagildru í miðri borg,“
sagði einn farþeganna, Bertil
Andreasson.
Vegurinn undir brúna er mjög
fjölfarinn enda liggur ein aðalum-
ferðaræðin frá borginni til Sjá-
lands þar. Fjölmargir hafa orðið til
þess að gagnrýna skort á merk-
ingum við brúna, sem er aðeins 3,1
metri á hæð. Það eru ekki síst út-
lendir bílstjórar sem það gera en
erfitt er að nálgast upplýsingar,
t.d. um hugsanlega vegartálma
fyrir langferðabifreiðar, viður-
kenndu samgönguyfirvöld í gær.
Yfirvöld
gagnrýnd
Á blaðamannafundi með lög-
reglu og yfirmönnum samgöngu-
mála í gær var hart deilt á yfirvöld
að bregðast ekki fyrr við öllum
þeim slysum sem orðið hafa við
brúna. Var einkum vísað til þess
er tveggja hæða rúta festist undir
brúnni í nóvember sl. Farþegarnir
voru skólabörn og eftir slysið var
fullyrt að hefðu farþegarnir verið
fullorðnir, hefðu afleiðingarnar
orðið mun alvarlegri. Søren Pind
sagði að niðurstaða rannsóknar
sem gerð var eftir það slys, hefði
verið sú að merkingarnar við
brúna væru fullnægjandi og ekki
væri ástæða til að auka þær. Slys-
ið á þriðjudagskvöld breytti ekki
þeirri skoðun en vegna þess hve
alvarlegar afleiðingarnar hefðu
verið, hefði verið ákveðið að bæta
við aðvörunarskiltum.
Þá yrðu aðrir möguleikar, svo
sem að koma fyrir bómu sem gef-
ur til kynna hæð brúarinnar,
lækka veginn undir brúna, hækka
hana og takmarka umferð hárra
bifreiða, kannaðir. Auk aðvörunar-
skilta er geisli við brúna sem nem-
ur hvort bifreið sem nálgast er of
há, og í því tilfelli blikka ljós. Við-
bragðstíminn ef rúta er á 65 km
hraða, eins og í þessu tilfelli, er
hins vegar aðeins hálf önnur sek-
únda. Viðvörunarljósin voru próf-
uð eftir slysið og voru í lagi.
Nokkrir fá
varanlegan skaða
Af þeim 26 sem slösuðust eru 6
alvarlega sárir og segja læknar að
þrír muni líklega bíða varanlegan
skaða. Björgunarlið var fljótt á
vettvang og var fólkið flutt á
sjúkrahús um allt Sjáland. Erfitt
var að fá upplýsingar um hvað
gerst hafði og streymdu aðstand-
endur frá Svíþjóð til ríkissjúkra-
hússins í Kaupmannahöfn til að
reyna að fá upplýsingar um ástvini
sína.
Bílstjórinn hefur verið yfir-
heyrður en ekkert gefið upp annað
en að áfengispróf sem tekið var á
staðnum reyndist neikvætt.
Scanpix Nordfoto
Slasað fólk var flutt á sjúkrahús víða á Sjálandi og voru yfir 30 sjúkra-
bílar sendir á staðinn. Efri hæð rútunnar sópaðist af eins og sjá má.
Lélegar merkingar
sagðar orsök slyssins
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Tveir menn létust og 26 slösuðust er tveggja hæða rúta
ók á brú í Kaupmannahöfn