Morgunblaðið - 01.03.2001, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 01.03.2001, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 53 NÝTT Fæst í flestum apótekum Innflytjandi: Pharmaco hf. A U K IN V EL LÍÐAN HVÍTAR I TE N N U R Hreinni og hvítari tennur W H I T E N I N G Fyrir gervitennur K O R T E R K O R T E R Í ÞJÓÐSÖGUM Jóns Árnasonar er saga um sýslumannskonu á Burstar- felli í Vopnafirði sem aðstoðar álf- konu í barnsnauð og fær að launum dýrindis dúk gullofinn úr „guðavef“. Guðavefur þýðir skv. orðabók Máls og menningar; dýrt klæði eða slikju- silki sem er vefnaður með sléttri slikjukenndri áferð þar sem lítið ber á þráðunum. Þjóðsagan segir að enginn í sókn- inni hafi séð annan eins dúk og var hann því hafður fyrir altarisdúk í kirkjunni sem Burst- arfell átti kirkjusókn að og sagt er að hann hafi verið þar enn þegar sagan var færð í letur fyrir u.þ.b. hundrað árum. Á Burstarfelli var í katólskum sið svokölluð hálfkirkja, en það er kirkja sem hefur minni skyldur en alkirkja, m.a. var ekki messu- skylda á hverjum messudegi. Talið er að sú kirkja hafi lagst af um siðaskipti. Síðan átti Burstarfell sókn að Hofi. Í kirkjunni að Hofi var lengi altarisklæði sem var einmitt kallað „álfkonudúkurinn frá Burstarfelli“. Þessi um- ræddi dúkur komst síðan í hendurnar á Sig- urði Vigfússyni, þáverandi forstöðumanni Ís- lenska forngripasafnsins, árið 1890 og er dúkurinn nú í eigu Þjóðminjasafns Íslands. Í bókinni Hundrað ár í Þjóðminjasafni er svart/ hvít mynd af einu horni dúksins og ber hann á sér mikinn ævintýrablæ. Þar situr fögur og hárprúð ljóshærð kona í íburðarmiklum kjól. Hún situr og er að spila á hörpu og í kringum hana eru fögur blóm og tré. Konan er engin venjuleg íslensk bóndakona og minnir frekar á erlenda hefðardömu frá 18. öld. En er hér ekki bara um að ræða sjálfsmynd álfkonunnar sem gaf dúkinn í þakklætisskyni fyrir hjálp sýslumannskonunnar frá Vopnafirði. Dúk- urinn er þá greinileg sönnun þess að raun- verulegar álfkonur eru þá til! Það væri nú ekki amalegt að þekkja einhverja slíka og fá kennslu í að vefa guðavef úr slikjusilki. (Heim- ildir: Þjóðsögur Jóns Árnasonar og Hundrað ár í Þjóðminjasafni). Í Spuna marsmánaðar er boðið upp á peysu og húfu í stíl sem fundust við hamra nokkra í Grafarvogi og er því ekki ólíklegt að sé prjón- að af álfkonu sem þar ku víst búa. Peysan er prjónuð úr yndislega mjúku pelsgarni sem ef til vill er arftaki slikjusilkisins. Húfa og peysa með eða án hjarta Upplýsingar um hvar garnið fæst er í síma 565-4610. Garn: Funny-pelsgarn og Kitten Mohair. Stærðir: (1/2) 1 (2) 4-6 ára. Yfirvídd: (58) 65 (72) 79 sm Sídd: (31) 35 (39) 42 sm Garn í peysu: Funny nr. 4517: (3) 3 (3) 4 dokkur. Kitten nr. 4345: (2) 2 (2) 3 dokkur. Garn í húfu: Ein dokka af hvorri tegund. Prjónar: Hringprjónar og sokkaprjónar nr. 7. Sokkaprjónar eða lítill hringprjónn nr. 6. Sokkaprjónar nr. 4 í húfu og lítill hringprjónn nr. 4 í hjarta. Prjónfesta með 1 þræði af hvorri tegund: 11 1/2 lykkja í sléttu prjóni á prjóna nr. 7 = 10 sm á breidd. Bolur: Fitjið upp með 1 þræði af Funny og 1 þræði af Kitten á hring- prjón nr. 7 (66) 74 (82) 90 lykkjur. Prjónið kant þannig: 1. umf.: * 1 slétt, takið 1 lykkju óprjónaða fram af með bandið fyrir framan.* End- urtekið frá *-* allan hringinn. 2. og 3. umf.: Eins og 1. umf. Prjónið síðan slétt prjón. Þegar bolurinn mælist (18) 21 (23) 25 sm skiptist hann í tvennt með (33) 37 (41) 45 lykkjum á hvoru stykki. Bakstykki: Fellið af undir höndum á öðrum hverjum prjóni (1,1,1) 1,1,1 (2,1,1) 2,1,1 lykkju = (27) 31 (33) 37 lykkjur. Prjónið slétt þar til handvegur mælist (12) 13 (14 1/2) 16 sm. Fellið af miðjulykkjurnar (15) 15 (17) 19 og prjónið hvora öxl fyrir sig þar til bolurinn mælist (31) 35 (39) 42 sm. Fellið af lykkjurnar á öxlum á öðrum hverjum prjóni (3,3) 4,4 (4,4) 4,5 lykkjur. Framstykki: Prjónað eins og bakstykkið þar til það er (4) 4 (6) 6 umferðum færra en bak- stykkið þar sem miðjulykkjurnar voru felldar af. Fellið af miðjulykkjurnar (9) 9 (11) 13 og prjónið hvora öxl fyrir sig. Fellið af í hálsmáli á öðrum hverjum prjóni 2 lykkjur einu sinni og 1 lykkju einu sinni. Fellið lykkjurnar af á öxlum þegar bolurinn mælist (31) 35 (39) 42 sm. Ermar: Fitjið upp (22) 24 (24) 26 lykkjur á hringprjón nr. 7 og prjónið fyrstu 3 umferð- irnar eins og á bolnum. Prjónið áfram slétt prjón. Athugið: síðasta lykkjan í hringnum er alltaf prjónuð brugðin = merkilykkja. Aukið í 1 lykkju sitt hvoru megin við merkilykkjuna und- ir erminni þegar hún mælist (4, 8, 12) 5, 10,15 (5, 10, 15, 20) 5, 10, 15, 20, 25 sm = (28) 30 (32) 36 lykkjur. Þegar ermin mælist (15) 19 (23) 27 sm er merkilykkjan felld af. Prjónið fram og til baka og fellið af 2 lykkjur í byrjun næstu (10) 10 (12) 14 umferða. Fellið af síðustu (7) 9 (9) 7 lykkjurnar. Frágangur: Saumið axlir saman. Hálskantur: Prjónið upp með tvöföldu KITT- EN-garni á prjóna nr. 6 u.þ.b. (48) 48 (53) 57 lykkjur. Prjónið garðaprjón í hring = * 1 umf. brugðið, 1 umf. slétt*. Endurtakið frá *-* þrisv- ar sinnum. Fellið af. Hjarta: Tvær stærðir = 1/2-1 árs og 2-6 ára. Fitjið upp (2) 2 lykkjur með Kitten á prjóna nr. 4, prjónið 1 prjón brugðið. 2. prjónn: Prjónið 2 lykkjur í hverja lykkju = 4 lykkjur á prjóni, prjónið 1 prjón brugðið. 4. prjónn: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið þver- bandinu á milli lykkjanna og prjónið það snúið slétt, 2 lykkjur slétt, lyftið þverbandinu á milli lykkjanna og prjónið það snúið slétt, 1 lykkja slétt = 6 lykkjur. Prjónið 1 prjón brugðið. Prjónið áfram slétt prjón og aukið í um 1 lykkju á réttunni í hvorri hlið fyrir innan kant- lykkjuna þar til komnar eru (36) 40 lykkjur á prjóninn. Aukið nú í á 4. hverjum prjóni tvisvar sinnum en í síðari útaukningunni er hjartanu skipt í tvennt = (20) 22 lykkjur á hvoru stykki. Prjónið 1 prjón brugðinn. Næsti prjónn: Prjón- ið 2 sléttar saman u.þ.b. á miðju stykkinu = (19) 21 lykkja, prjónið 3 prjóna. Úrtakan er á réttunni þannig: Þar sem tekið er úr í upphafi prjóns eru prjónaðar 2 slétt sam- an, þar sem tekið er úr í enda prjóns eru prjón- aðar 2 snúnar slétt saman. Fellið svona af á hvorri hlið frá réttu þar til (13) 13 lykkjur eru eftir og endið á brugðnum prjóni. Fellið af í lok- in 2 lykkjur í hvorri hlið á næstu 2 prjónum þannig: 1 slétt, 3 slétt saman, 5 slétt, 3 snúnar slétt saman, 1 slétt = (9) 9 lykkjur. Snúið við og prjónið 1 brugðið, 3 brugðnar saman, 1 brugðin, 3 snúnar brugðnar saman, 1 brugðin = (5) 5 lykkjur. Snúið við og prjónið 2 slétt saman, 1 slétt, 2 snúnar slétt saman. Snúið við og prjónið 3 brugðnar saman. Klippið þráðinn frá og drag- ið hann í gegnum lykkjuna. Prjónið hina hlið hjartans eins. Saumið hjartað framan á miðju peysunnar. Húfa: Stærðir: (1/2-1) 2 (4) ára. Fitjið upp með Kitten á 3 sokkaprjóna nr. 4 (72) 76 (80) lykkjur. Prjónið stroff, 1 lykkja slétt og 1 brugðin alls 3 sm. Prjónið slétt prjón þar til mælist (8-9) 10 (11) sm. Stærð 2ja ára: takið úr 4 lykkjur jafnt yfir prjóninn = 72 lykkjur. Allar stærðir: Prjónið 6 slétt, 2 slétt saman allan hringinn = (63) 63 (70) lykkjur. Prjónið 4 um- ferðir slétt. Prjónið 5 slétt og 2 slétt saman allan hring- inn. = (54) 54 (60) lykkjur. Prjónið 4 umf. án úr- töku. Prjónið áfram og fellið jafnframt af í 5. hverri umferð með 1 lykkju minna á milli úr- taka þar til (18) 18 (20) lykkjur eru eftir. Prjón- ið 1 umferð 2 slétt saman allan hringinn. Slítið frá og dragið bandið í gegnum lykkjurnar og festið vel. Pelskantur: Fitjið upp með 1 þræði Funny og 1 þræði Kitten á sokkaprjóna nr. 7 (42) 44 (46) lykkjur. Prjónið í hring 3 fyrstu prjónanna eins og neðst á bol og ermum. Prjónið síðan áfram 1 slétt og 1 brugðið þar til mælist (5) 5 1/2 (6) sm. Fellið af. Eyru: Fitjið upp með Kitten 4 lykkjur á prjón nr. 4. Prjónið 2 prjóna slétt. Prjónið garðaprjón og aukið í 1 lykkju í annarri hverri umferð fyrir innan kantlykkjuna tvisvar sinnum. Aukið síð- an í á 4. hverjum prjóni tvisvar sinnum og síðan á 6. hverjum prjóni (2) 3 (3) sinnum = (16) 18 (18) lykkjur. Prjónið þar til eyrað mælist (6) 7 (7) sm, fellið af. Prjónið hitt eyrað eins. Frágangur: Saumið eyrun á húfuna með (14) 14 (16) sm bili á milli eyrnanna í miðju að aftan. Leggið pelskantinn yfir stroffið á húfunni þann- ig að affellingin á pelskantinum leggst við kant- inn á húfunni. Saumið niður frá réttu með Kitt- en-garni. Búið til snúrur úr Kitten-garni og festið neðst á eyrun. Álfkonudúkur í laun fyrir hjálpina Peysan er prjónuð úr einum þræði af KITTEN-mohair og öðrum af FUNNY-pelsgarni sem er mjúkt viðkomu, þægilegt, fljótlegt og létt að prjóna úr. Athugið að hægt er að sleppa hjartanu. SPUNI HANDMENNT Umsjón: Bergrós Kjartansdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.