Morgunblaðið - 01.03.2001, Blaðsíða 67
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 67
Vesturgötu 2, sími 551 8900
VINIR DÓRA
spila í kvöld
ASTRÓ: Tískusýning frá verslun-
inni Kiss í Kringlunni föstudagskvöld.
Kvöldið hefst kl. 22 með því að boðið
er upp á rauðan, hvítan og gylltan
vökva.
ÁLAFOSS FÖT BEZT: Ellen Krist-
jánsdóttir og Kombóið leika frá kl. 22
fimmtudagskvöld. Miðaverð 500 kr.
Hinir eldhressu Kjartan og Jói leika
föstudags- og laugardagskvöld.
ÁRSEL: Furðufataball fyrir fatlaða
verður haldið kl. 20–23 laugardags-
kvöld. Þeir sem mæta í furðufötum
borga 300 kr., hinir borga 400 kr. Ald-
urstakmark 16 ára.
ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Dansleikur
með Caprí-tríó sunnudagskvöld kl. 20
til 23.30.
ÁSLÁKUR, Mosfellsbæ: Rúnar Þór
leikur og syngur föstudags- og laug-
ardagskvöld.
BIFRÖST, Sauðárkróki: Á móti sól
leikur á stórdansleik laugardags-
kvöld.
BREIÐIN, Akranesi: Land og synir
mæta á svæðið laugardagskvöld. Hús-
ið opnað kl. 23.
CAFÉ 22: Dj-ar kvöldsins leika allt
frá rokki í dúndrandi diskó bæði
kvöldin. Tilboð á barnum föstudags-
og laugardagskvöld. Breakbeat.is
kvöld miðvikudagskvöld. Fram koma
dj. Habit, sem m.a. er þekktur fyrir
spilerí sitt á Hjartsláttarkvöldunum,
dj. Addi, dj. Eldar og dj. Reynir. Leik-
in verður jungle-, drum & bass- og ex-
perimental-tónlist á efri hæð Café 22
fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði
frá kl. 21–1. Aldurstakmark er 18 ár,
aðgangseyrir 300 kr. en 500 kr. eftir
kl. 23.
CAFÉ AMSTERDAM: Hljómsveit-
in Spútnik verður með dúndurdans-
leik föstudags- og laugardagskvöld.
CATALINA, Hamraborg: Það eru
hinir eldhressu Hilmar og Pétur sem
leika föstudags- og laugardagskvöld.
DÚSSA-BAR, Borgarnesi: Gleði-
gjafinn Ingimar leikur á harmonikk-
una frá kl. 23–3 föstudagskvöld.
FJÖRUKRÁIN: Dansleikur með
hljómsveitinni KOS föstudags- og
laugardagskvöld. Víkingasveitin leik-
ur og syngur fyrir veislugesti.
Fjaran: Jón Möller spilar rómantíska
tónlist fyrir matargesti.
GAUKUR Á STÖNG: Hljómsveitin
Buttercup leikur föstudagskvöld.
Þess má geta að hljómsveitin fer senn
í stúdíó til að taka upp ný lög fyrir
sumarið. Sænski teknóspilarinn Joel
Mull á Rými #4 laugardagskvöld.
Joel Mull er vel þekktur í heimi teknó-
tónlistarinnar. Hann spilar pumpandi
hardhouse-tónlist í bland við fönkí
teknó. Hann hefur leikið á stærstu
teknóhátíðum heims og auk þess að
gefa út sína eigin tónlist hjá Inside
hefur Joel átt plötur hjá nokkrum
virtustu plötuútgáfum teknóbransans.
Aðrir sem koma fram um kvöldið eru
Grétar G., dj. Kái og dj. Lux.
GRAND HÓTEL REYKJAVÍK:
Tónlistarmaðurinn Gunnar Páll leikur
og syngur öll fimmtudags-, föstudags-
og laugardagskvöld. Gunnar leikur
hugljúfa og rómantíska tónlist. Allir
velkomnir.
GULLÖLDIN: Svensen og
Hallfunkel leika fyrir dansi föstudags-
kvöld. Sælusveitin, þeir Hermann
Arason og Níels Ragnarsson, leikur
laugardagskvöld.
HITT HÚSIÐ : Föstudagsbræðing-
ur á Geysi Kakóbar. Það eru hljóm-
sveitirnar Sofandi, Rými og Náttfari
sem ætla að leika framsækið og furðu-
legt rokk. Sofandi ætlar að kynna efni
af nýútkominni breiðskífu sinni Ang-
uma, sem verður til sölu á staðnum.
Tónleikarnir byrja upp úr kl. 20. Að-
gangur auðvitað ókeypis, ekkert rugl
og allir 16 ára og eldri velkomnir.
INGHÓLL, Selfossi: Hljómsveitin
Sixties leikur fyrir dansi föstudags-
kvöld.
JÓI RISI, Breiðholti: Dúettinn
Blátt áfram leikur föstudags- og laug-
ardagskvöld.
KAFFI REYKJAVÍK: Vinir Dóra
halda tónleika fimmtudagskvöld.
Hljómsveitin Hunang með Karl Örv-
ars fremstan á sviði í diskófíling föstu-
dags- og laugardagskvöld.
KLAUSTRIÐ: Opnunarpartý hár-
greiðslustofunnar Fólk & fiðrildi og
hefst það kl. 22 föstudagskvöld. Wake
me up-partý laugardagskvöld. Tekin
verða nokkur lög úr sýningunni. Hús-
ið opnar kl. 22. Aldurstakmark 21 árs.
Dj. Jói, dj. Heiðar Austmann og dj.
Gonzalez í búrinu bæði kvöldin.
KRINGLUKRÁIN: Hljómsveitin
Léttir sprettir leikur fyrir dansi föstu-
dags- og laugardagskvöld. Stjörnu-
kvöld með Borgardætrum laugar-
dagskvöld. Húsið opnar kl. 19 fyrir
matargesti. Sýningin hefst um kl.
21.30.
LEIKHÚSKJALLARINN: Fyndnir
fimmtudagar með Erni Árna og Karli
Ágústi fimmtudagskvöld. Austfirð-
ingaball föstudagskvöld. Fram koma
hljómsveitirnar Súellen og Rokk-
abillybandið með Pollock-bræðrum,
Einari Ágústi o.fl. Hljómsveitin Sixt-
ies sér um stuðið laugardagskvöld.
LIONSSALURINN, Kópavogi,
Auðbrekku 25: Áhugahópur um línu-
dans verður með dansæfingu kl.
20.30–23.30 fimmtudagskvöld. Elsa
sér um tónlistina. Allir velkomnir.
LUNDINN, Vestmannaeyjum:
Hljómsveitin Hafrót leikur föstudags-
og laugardagskvöld.
MÓTEL VENUS, Borgarnesi:
Hljómsveitin Undryð leikur föstu-
dagskvöld.
N1-BAR, Reykjanesbæ: Hljóm-
sveitin Buttercup leikur fyrir dansi
laugardagskvöld.
NAUST-KRÁIN: Góugleði. Matur
og drykkur eins og hver vill til kl. 22
fyrir 2.500 kr föstudags- og laugar-
dagskvöld. Hljómsveitin Furstarnir
ásamt söngvurunum Geir Ólafssyni
og Mjöll Hólm leikur til kl. 3.
NAUSTIÐ: Liz Gammon leikur fyr-
ir matargesti kl. 22 til 3. Naustið er
opið alla daga frá kl. 18. Stór og góður
sérréttaseðill.
Reykjavíkurstofa – bar og koníaks-
stofa: Söngkonan og píanóleikarinn
Liz Gammon frá Englandi leikur. Op-
ið frá kl. 18.
NELLY’S CAFÉ: Dj. Le Chef í
búrinu og sér um að koma dansþyrst-
um í rétta gírinn föstudags- og laug-
ardagskvöld.
ODD-VITINN, Akureyri: Hljóm-
sveitin Bahoja skemmtir föstudags-
og laugardagskvöld.
ORMURINN, Egilsstöðum: Diskó-
tek um helgina.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópa-
vogi: Hot ’n’ Sweet leikur um helgina
en þeir eru Sigurður Dagbjartsson og
Birgir J. Birgisson. Söngkonan Helga
Möller syngur með þeim félögum
laugardagskvöld.
RAUÐA LJÓNIÐ: Trúbadorinn
Gulli Reynis sér um tónlistina föstu-
dags- og laugardagskvöld.
SJALLINN, Akureyri: Bubbi Mort-
hens og hljómsveitin Stríð og friður
leika föstudags- og laugardagskvöld.
Undanfarnar vikur hafa þeir verið í
hljóðveri að taka upp efni á væntan-
lega plötu þannig að á efnisskránni
verður góð blanda af því gamla góða
og nýju efni. Óli Palli, einræðisherra
Rokklands, verður með og dj-ast eitt-
hvað fram undir morgun.
SKUGGABARINN: Útsending frá
Djúpu lauginni verður á Skugganum
alla föstudaga fram á vor föstudags-
kvöld. Allir velkomnir. Húsið opnað
kl. 22. Að lokinni útsendingu verður
dj. Nökkvi með öll heitustu R&B-lög-
in alla nóttina en hann leikur einnig
laugardagskvöld. 500 kr. inn eftir kl.
24. Aldurstakmark 22 ára.
SPOTLIGHT: Land og synir leika
órafmagnað frá kl. 22.30 í tilefni bjór-
dagsins fimmtudagskvöld. Dj. Cesar
verður með brjálaða föstudagsstemm-
ingu föstudagskvöld. Drykkur fylgir
hverjum drykk til kl. 2. Limbókeppni.
Skráning í keppnina er á barnum frá
kl. 24 laugardagskvöld. Dj. Paul Oscar
hefur umsjón með keppninni og held-
ur uppi dansstemmingu fram eftir
nóttu.
ÚTLAGINN, Flúðum: Diskórokk-
tekið og plötusnúðurinn Skugga-Bald-
ur sér um tónlistina föstudagskvöld.
Reykir, ljósadýrð og skemmtilegasta
tónlist síðustu 50 ára. Miðaverð 500
kr. frá miðnætti.
VIÐ ÁRBAKKANN, Blönduósi:
Trúbadorarnir Halli og Kalli halda
uppi fjörinu laugardagskvöld. Miða-
verð 500 kr.
VIÐ POLLINN, Akureyri: Tón-
leikar með Guitar Islancio kl. 21
fimmtudagskvöld. Gítarsveitina skipa:
Björn Thoroddsen, Gunnar Þórðarson
og Jón Rafnsson. Hljómsveitin Karma
með Labba í broddi fylkingar leikur
föstudags- og laugardagskvöld.
Frá A til Ö
Sænski teknóspilarinn Joel Mull
leikur á Rými #4 laugardags-
kvöld á Gauki á Stöng.
HEY! Ég var að heyra hreint geggj-
aða plötu með nýrri sveit frá London
sem kallar sig Sugababes. Jú, þú ert
örugglega búinn að heyra smáskíf-
una „Overload“, eða taka eftir mynd-
bandinu þar sem þær líða framhjá
þér við hvítan bakgrunn. Spice
Girls? Nei, þetta eru raunverulegar
vinkonur sem kynntust í barnaskóla
og hafa sungið saman allt sem að
kjafti (og barka) kemur síðan þá. Og
haltu þér fast: Þetta eru raunveru-
legar „lólítur“ – þær eru bara 15 ára!
Þessi fyrsta plata þeirra í fullri
lengd er auðheyranlega unnin af
hljómlistarmönnum með margra ára
reynslu að baki. Þetta eru lagasmiðir
og útsetjarar sem eru búnir að fara í
fullt af tónfræðitímum, og útskrifað-
ir úr djassskólum og klassísku námi
– en ástríða þeirra og virðing fyrir
góðu poppi er aldrei langt undan.
Þar koma 15 ára gellurnar inní spil-
ið! Þessi plata er frábært kjaftshögg
á allar þær froðupoppssöngsveitir
sem mengað hafa öldur ljósvakans
með innantómu tísti sínu. Aldrei aft-
ur S Club 7!
Sugababes voru ekki uppgötvaðar
í djassballetskóla Báru. Þær elska að
syngja saman og harmónera, og ein-
faldlega löbbuðu inná skrifstofu
London Records, hittu herra Lond-
on og sungu fyrir hann eins og eitt
En Vogue-lag án undirleiks. Samn-
ingaviðræður hófust á staðnum. Svo
var hóað í nokkra lítt þekkta en klára
músíkanta til að semja lög og texta
ásamt stelpunum, sem heita... ööö...
Siobhan, Mutya og Keisha. (Þetta
eru skírnarnöfnin þeirra.)
Textarnir eru bara nákvæmlega
um það sem 15 ára stelpur eru að spá
í þessa dagana: Stráka, stráka og
aftur stráka! Sem slíkir búa þeir yfir
töluvert meira innsæi en sambæri-
legir textar um sama málefni. Stelp-
unar hafa lagt línurnar um það sem
þær eru að pæla, og fullvaxnir texta-
höfundar hafa dregið hugmyndir
þeirra að landi. Þetta er of flott til að
vera samið af 15 ára óhörðnuðum
stelpuhnátum.
Svo koma líka pælingar um kross-
göturnar sem maður stendur á þeg-
ar maður er bólugrafinn unglingur á
bömmer. Bendi ég þar á eitt pott-
þéttasta lag plötunnar, „Look At
Me“ (ruglist ekki saman við jómfrú-
arsmáskífu Geri „Fag Hag“ Halli-
well). Það lag er mjög fallegt upp-
gjör milli foreldris og barns, sem
biður um að takinu af sér verði
sleppt svo það fái óáreitt að læra af
eigin mistökum. Þetta er alltaf mjög
byltingarkennt augnablik fyrir alla
foreldra – og unglinginn, sem líður
eins og hann sé í stofufangelsi ann-
ars. Kominn tími til að kveða um
þetta í góðu popplagi. „Papa Don’t
Preach“ var jú í gangi þegar Suga-
babes voru enn á brjósti.
Önnur útúrfrábær lög sem hafa
rúllað endalaust í geislaspilaranum
mínum, fyrir utan „Overload“ og
„Look At Me“ eru „Same Old Story“,
„One Touch“, „Real Thing“ og svo
besta lag plötunnar, „Just Let It
Go“. Nú er ég búinn að telja upp
helminginn af plötunni! Nokkuð góð
afköst af fyrstu plötu að vera, það
verð ég að segja!
Upptökur og útsetningar eru
fyrsta flokks, með óvenju mikið
næmi fyrir smáatriðum og hljóðfær-
anotkun. Sem popp má flokka þetta
undir „næstum því“ R&B, með
sterkum áhrifum frá TLC og smá
Craig David. Það má vera að söngur
stelpnanna sjálfra virki einhæfur við
fyrstu heyrn, þær hafa jú sungið
með útvarpinu síðustu 15 árin, þar
sem Mariah Carey og aðrar slaufu-
söngkonur hafa ráðið ríkjum. Þær
kunna alveg sínar trillur og slaufur,
en það er eitthvað annað og meira í
gangi þarna. Ég hlakka til að heyra
hvernig þær koma til með að hljóma
eftir 5 ár.
One Touch með Sugababes er
plata sem kemur í heimsókn til þín
inn um bakdyrnar og reynist svo
vera velkominn aufúsugestur þegar
þú nærð að kynnast henni betur.
Lögin eru pottþétt, textarnir flottir,
„fílingurinn“ svalur, þær eru sætar,
syngja flott, allt smellur saman...
mér þrýtur þakkarorðið... þetta er
svo æðislegt að... vá, þetta er svo
geggjað að ég held að það sé að líða
yfir mig aaaaaahhh... PLONK!
Mutya Buena, Keisha Buchanan og Siobhan Donaghy, liðsmenn hljóm-
sveitarinnar S Club 7 – reynið að bera þessi nöfn fram!
ERLENDAR
P L Ö T U R
Páll Óskar tónlistarmaður,
fjallar um fyrstu plötu
Sugababes – One Touch.
Ekkert S Club 7 hér