Morgunblaðið - 01.03.2001, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 01.03.2001, Blaðsíða 48
UMRÆÐAN 48 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ Ráðgjafi verður á staðnum fimmtudag og föstudag. Libia s n y r t i v ö r u v e r s l u n Snyrtivörudeild Kringlunni. kynnir Skinperfect Evolution nýja og endurbætta línu, sem Fyrir viðkvæma húð létt rakakrem eða næringaríkt dag- og næturkrem. Fyrir viðkvæma húð með rósroða (háræðaslit) - sérstök meðferð Fyrir þurra húð - sem þarf sérstaka umönnun Fyrir blandaða og feita húð létt krem sem hefur mattandi áhrif á húðina Líttu við og fáðu ráðgjöf og prufur. Þú finnur örugglega eitt eða tvö krem sem henta þinni húðgerð. inniheldur 7 tegundir af dag- og næturkremum, nýja hreinsilínu og maska.     Veglegir kaupaukar í boði NÚ GET ég ekki lengur orða bundist – undanfarin misseri hef ég lesið svo mik- inn þvætting um Reykjavíkurflugvöll. Á síðum Morgun- blaðsins undanfarnar vikur og mánuði hafa margir látið álit sitt í ljós um framtíð flug- vallarins og hefi ég sem gamall og áhuga- samur flugmaður reynt að fylgjast með þessum skrifum. Margt gáfulegt hefur komið fram en sam- tímis hafa ýmsir „spekingar“ látið frá sér fara hina mestu firru. Ég ætla ekki að blanda mér í pólitísku umræðurn- ar, en leyfi mér hins vegar að benda á eftirfarandi skoðanir mín- ar. Við getum lagt á hilluna allar bollaleggingar um að flytja innan- landsflugið til Keflavíkur. Það yrði dauðadómur flugs til margra ákvörðunarstaða úti á lands- byggðinni. Margir hafa bent á að ferðatíminn á milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar, auk slysahættunnar vegna aksturs – einkum á vetrarmánuðum – myndi hreinlega útiloka áætlun- arflug til ýmissa staða. Annað, sem virðist gleymast í allri þess- ari umræðu er, að oftast eru veð- urskilyrði á Keflavíkurflugvelli lélegri en í Reykjavík. Reykjavík- urflugvöllur liggur nánast við sjávarmál, og fjöllin í nánd hafa áhrif á skýjahæðina (lyfta skýj- unum) en Keflavíkurflugvöllur er í 168 feta hæð yfir sjávarmáli og fjöll hafa lítil sem engin áhrif á skýjahæðina þar – þannig að oft er mjög lágskýjað yfir Kefla- vík þegar þokkaleg skýjahæð er yfir Reykjavík. Eftir skrifum þeirra að dæma, sem vilja flytja Reykjavík- urflugvöll, skyldi maður ætla að ann- aðhvort væri ósköp einfalt og kostnaðar- lítið að hanna og byggja nýjan flugvöll, sem stæðist allar ör- yggiskröfur, eða þá að ríkissjóður væri næstum ótæmandi hít. Auk þess virðast þessir aðilar ekki hafa komið auga á að í nágrenni Reykjavíkur finnst ekki óbyggt svæði sem nothæft væri undir flugvöll. Fyrir nokkrum tugum ára, eða áður en íbúðabyggð lagði það undir sig, hefði vestanvert Álftanesið verið ákjósanlegt flugvallarstæði, en þá hafði ríkissjóður ekki – frekar en nú – efni á því að leggja út í svo kostn- aðarsamar framkvæmdir sem bygging alvöruflugvallar er. Stað- setning áætlunarflugvallar í Kap- ellu- eða Hvassahrauni er útilokuð vegna þess hve nærri fjöllum hann yrði. Einn „spekingurinn“ hafði orð á því að flugmálayfirvöld í Bretlandi hefðu haft vit á að byggja aðal- flugvöll Lundúna langt fyrir utan borg, en lét þó í léttu rúmi liggja að benda á að hvergi nær fannst þá nægilegt pláss fyrir flugvöllinn. Þessi aðalflugvöllur er Heathrow sem er aðeins 24 km. frá borg- armiðju Lundúna en til saman- burðar er Keflavíkurflugvöllur hvorki meira né minna en 45 km. frá borgarmiðju Reykjavíkur. Síð- an, af illri nauðsyn, var London City-flugvöllurinn byggður við Thamesá, eða í sjálfri miðborginni, nánar tiltekið í hinu svokallaða City-hverfi sem er helsta fjármála- og viðskiptahverfi Lundúna. Ekki fluttu Norðmenn aðalstarfsemi SAS frá Fornebuflugvelli til Gard- emoen (langt fyrir utan borg) vegna þess hve Fornebu var nærri miðborg Oslóar heldur vegna þess að Fornebu var orðinn of lítill og alls engir möguleikar á að stækka hann. Ég held að enginn vafi sé á því að stjórnendur margra stórborga úti í heimi öfunda Reykjavík af legu flugvallarins svo nærri mið- bænum. Auðvitað getum við, allir Reyk- víkingar, látið okkur dreyma um að flugvöllurinn verði fluttur á annan stað í nánd við borgina svo að miðbærinn geti breitt úr sér suður í Vatnsmýrina. En þetta er því miður bara óskhyggja. Góðir Reykvíkingar, eigum við heldur ekki að vera raunsæir, hætta þessu þjarki og sameinast um að gera Reykjavíkurflugvöll að þeirri glæsilegu umferðarmiðstöð sem hann vafalaust getur orðið! Verum raunsæ! Þorsteinn E. Jónsson Reykjavíkurflugvöllur Hættum þessu þjarki, segir Þorsteinn E. Jónsson, og sameinumst um að gera Reykja- víkurflugvöll að þeirri glæsilegu umferðar- miðstöð sem hann vafa- laust getur orðið! Höfundur er fyrrverandi flugstjóri. ÞRÁTT fyrir sí- auknar hæfnis- og menntunarkröfur á öllum sviðum þjóð- félagsins sér ekki fyr- ir endann á þeirri hneisu að ómenntaðir einstaklingar séu látnir gegna lögreglu- störfum, líkt og ekk- ert þyki sjálfsagðara. Á tímum sífellt meiri niðurskurðar eru lög- regluembættin og æðstu ráðamenn guðslifandi fegnir þessari stöðu mála, enda er kostnaðar- lækkun hagnýtur fylgifiskur hennar. Ef ekki fæst menntaður lögreglumaður til starfans (þar sem launin eru of lág) þá er ekki annað að gera en að henda næsta manni í einkenn- isbúning og þá ertu kominn með lögguna sem þig vantar og það ódýrt. Maðurinn á götunni er engu nær, embættin spara, ráðherra setur upp sparibrosið og allir eru ánægðir, nema við lögreglumenn. Við vitum enda manna best um hvað málið snýst. Sjálfir hófum við nefnilega margir ferilinn með ná- kvæmlega þessu móti, sem ófag- lærðir „fúskarar“ í einkennisbún- ingi lögreglu. Sjálfur var ég „sumarlögga“ í rúm tvö ár sam- fleytt áður en ég hóf nám í Lög- regluskóla ríkisins. Ég dreg ekki dul á það í dag að ég taldi mig í raun varla þurfa á þessu námi að halda, ég var jú búinn að vinna við þetta allan þennan tíma og kunni þetta allt. Það var hinsvegar ekki liðin vika af náminu þegar ég átt- aði mig á þeirri staðreynd að þrátt fyrir alla þá reynslu og þekkingu sem ég þó bjó yfir kunni ég í raun ekki neitt, alls ekki neitt. Þegar ég lít til baka tel ég mig hafa verið heppinn að sleppa við að hafa gert meiriháttar glappaskot sakir kunnáttuleysis. Og hafi ég verið heppinn, þá voru samborgarar mínir enn heppnari, því mistök mín hefðu ekki bitnað svo mjög á mér, heldur þeim. Eitt er þó víst, að meðan ríkisvaldið kemst upp með þetta fyrirkomulag verður það við lýði. Öryggi borgaranna Hinn almenni borgari á allt sitt öryggi undir lögreglunni. Vinnu- brögð lögreglu og kunnátta þeirra manna sem að málum koma skipta þar sköpum. Það hlýtur því að vera sjálfsögð krafa og réttur manna að geta treyst því að lög- reglan kunni til verka. Ég leyfi mér að fullyrða að lögreglumennt- un hérlendis stendur sambærilegri menntun nágrannalandanna ekki að baki. Menntaðir íslenskir lög- reglumenn kunna vel til verka og er vel treystandi, enda búa þeir að þeirri menntun sem þeir hafa hlot- ið. Nú er meginþorri ómenntaðra lögreglumanna hið vandaðasta fólk en það hrekkur þó skammt. Sjálf- ur var ég ekki verri maður sem „sumrungur“, ég kunni hinsvegar bara brot af því sem ég hefði þurft að kunna. Lögreglustarf átti ég auðvitað aldrei að hafa með hönd- um án tilskilinnar menntunar, „af- leysingalöggur“ eiga ekki að fyr- irfinnast og eru ekki afsakanlegar í nútímaþjóðfélagi. Sjálfur held ég að ég hafi í raun ekki gert mér grein fyrir ábyrgðinni sem starf- inu fylgir, og því er vart hægt að búast við því að meðaljóninn geri sér grein fyrir þeirri hættu og óör- yggi sem ófaglærðum lögreglu- mönnum fylgir. Það var kannski sök sér hér áður fyrr þegar skóla- krakkar gerðust „sumarlöggur“ og unnu undir stjórn reyndra lög- reglumanna yfir sumarleyfistím- ann. Í dag er staðreyndin hins- vegar sú að mörg lögreglulið landsins hafa ófaglærða lög- reglumenn innan sinna raða allan árs- ins hring. Ekki er t.d. óalgengt hjá ónefnd- um embættum í nánd höfuðborgarinnar að ófaglærðir starfi einir án umsjónar reyndra lögreglumanna. Þetta á einnig við víða á landsbyggðinni. Það getur engum dulist að þetta ástand er óvið- unandi og algerlega ólíðandi, enda óþekkt um allan hinn vest- ræna heim – nema á Íslandi. Það hlýtur að vera skýlaus krafa sér- hvers hugsandi manns að þeir sem veljast til lögreglustarfs séu til þess hæfir og þess megnugir að vernda þá sem þess þurfa með. Við sem byggjum þetta sker höfum tilhneigingu til þess að ætla að þetta reddist allt á morgun og sjálfsagt reddast þetta allt ein- hvern veginn. Redding er hins vegar í besta falli aldrei annað en annars flokks málamiðlun. Gerum við ekki kröfur um annað og meira? Erum við sátt við fagurgala um átak þetta og átak hitt, pappa- löggur hér og tilbúið eftirlit þar, sjónhverfingar, töfrabrögð, leik- sýningar og loforð? Eða gerum við kröfu um eitthvað annað og meira? Við trúum því kannski líka að gengdarlaus niðurskurður hjá lög- regluembættum landsins bitni ekki á löggæslunni? Svari hver fyrir sig. Flótti hinna hæfu Hæfileikaríkt fólk hefur oft og tíðum þann leiða ágalla að vera meðvitað um eigið ágæti. Það hef- ur það oftar en ekki í för með sér að upp rísa kröfur um laun sem svífa aðeins yfir niðurlægingar- mörkum, þótt ekki væri meira. Ég ætla mér ekki að þylja hér upp allt það sem lögreglumenn þurfa að þola starfa síns vegna, andlega og oft líkamlega. Það fylgir starfinu eins og sagt er, og lögreglumenn vorkenna sér það ekki. Við gerum aðeins þá hógværu kröfu að sam- félagið virði það við okkur að við skulum bjóða okkur fram í það starf sem allir vilja að einhver annar inni af hendi. Virði það við okkur með því að greiða okkur laun sem við þurfum ekki að fyr- irverða okkur fyrir. Hinn 15. des- ember sl. útskrifaðist 31 lögreglu- maður frá Lögregluskóla ríkisins, undirritaður þar með talinn. Ekki fór það svo að allir okkar sæktu um starf innan lögreglunnar og ég leyfi mér að fullyrða að á næstu 2–3 árum munu margir samnem- enda minna hverfa til annarra starfa. Sjálfur fer ég vísast þá leið- ina ef ekki verður breyting á. En það er líka allt í lagi, sjálfsagt verður alltaf nóg af skólakrökkum til að fylla það skarð sem myndast við brotthvarf mitt. Ég vona bara að líf mitt eða öryggi verði aldrei undir þeim komið... Fúsk í fyrirrúmi! Þórarinn Þórarinsson Höfundur er lögreglumaður. Löggæsla „Afleysingalöggur“ eiga ekki að fyrirfinn- ast, segir Þórarinn Þórarinsson, og eru ekki afsakanlegar í nútímaþjóðfélagi. Mörkinni 3, sími 588 0640G læ si le ga r gj af av ör ur Hitakanna kr. 6.600 Opið mán.-fös. frá kl. 12-18. Lau. frá kl. 11-14. Símar 557 2000 og 557 7100 Skemmuvegi 36 Bleik gata Kópavogi Þakrennur og rör úr Plastisol- vörðu stáli. Heildarlausn á þakrennuvörnum í mörgum litum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.