Morgunblaðið - 01.03.2001, Blaðsíða 17
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 17
TILRAUNAVERKEFNI á vegum
Stígamóta hófst á Akureyri þriðju-
daginn 27. febrúar. Starfsemin
verður í húsnæði Vinnuklúbbs
Menntasmiðjunnar á Glerárgötu
26, 1. hæð. Starfskona Stígamóta
verður til viðtals á þriðjudögum
frá kl. 13–17. Á þriðjudagskvöldum
verða í gangi sjálfshjálparhópar
fyrir konur sem orðið hafa fyrir
sifjaspellum eða nauðgunum.
„Markmiðið með starfinu er að
flytja reynslu Stígamóta norður
yfir heiðar. Hugmyndin er að
þjálfa upp konur sem síðan geti
stýrt sjálfshjálparhópum, þannig
að Akureyringar verði sjálfbjarga
um þjónustu við þolendur sifja-
spella og nauðgana. Lengi hefur
það verið ljóst að þörfin fyrir þjón-
ustuna er brýn og eru þegar
komnir biðlistar eftir henni,“ segir
í fréttatilkynningu.
Frá upphafi starfsemi Stígamóta
hafa sjálfshjálparhópar verið
kjarninn í starfseminni. Boðið er
upp á hópa fyrir konur sem orðið
hafa fyrir sifjaspellum og nauðg-
unum. Í þessum hópum koma kon-
ur saman til þess að sækja þangað
styrk til að takast á við vanda-
málin, sem rekja má til afleiðinga
sifjaspella og nauðgana. „Með
þátttöku í hópstarfi sem þessu er
einangrun rofin, þar veita þátttak-
endur hver öðrum stuðning. Sam-
kennd og trúnaður ríkir þar í sam-
skiptum þátttakenda,“ segir í
fréttatilkynningunni.
Í hverjum sjálfshjálparhópi eru
að jafnaði 5–6 konur auk leiðbein-
anda. Leiðbeinendur eru konur,
sem sjálfar hafa orðið fyrir kyn-
ferðisofbeldi og hafa unnið úr
þeirri sáru reynslu. Hóparnir eru
lokaðir og hittast í 15 skipti með
leiðbeinendum á þriggja mánaða
tímabili.
Það voru starfskonur hjá Komp-
aníinu, upplýsinga- og þjónustu-
miðstöð ungs fólks, sem svo ein-
dregið lýstu þörf fyrir þjónustu að
Stígamót brugðust við. Verkefnið
er styrkt af félagsmálaráði og
jafnréttisnefnd Akureyrar. Síminn
hjá Stígamótum á Akureyri er 461
5959. Þjónustan á þriðjudögum er
ókeypis og öllum opin.
Stígamót hefja
starfsemi
á Akureyri
SR. SIGURÐUR Pálsson, prestur
við Hallgrímskirkju í Reykjavík,
flytur fyrirlestur í Kapellu Akureyr-
arkirkju í kvöld, fimmtudag kl. 20.
Fyrirlesturinn nefnir hann: Sjálfs-
víg, áhættuþættir og úrvinnslu sorg-
ar er þeim tengjast.
Sú sorglega staðreynd blasir við í
okkar samfélagi í dag að æ fleiri ein-
staklingar taka sitt eigið líf. Einnig
fjölgar til muna þeim tilvikum þar
sem ungir og aldnir gera tilraun til
að svipta sig lífi. Því hafa samtökin
Samhygð á Akureyri fengið sr. Sig-
urð Pálsson, prest við Hallgríms-
kirkju, til að koma til Akureyrar og
halda fyrirlestur um þetta efni. En
um það býr sr. Sigurður bæði yfir
eigin reynslu og djúptækri þekk-
ingu, segir í fréttatilkynningu.
Sjálfsvíg, áhættuþætt-
ir og úrvinnsla sorgar
FÉLAGSFUNDUR Umsjón-
arfélags einhverfra verður
haldinn í Síðuskóla á Akureyri
föstudaginn 2. mars kl. 20.
Tíu útvarpsrásir og sand-
pappír. Jarþrúður Þórhalls-
dóttir, sjúkraþjálfari og starfs-
maður Svæðisskrifstofu
Reykjavíkur um málefni ein-
hverfra, fjallar um skyntruflan-
ir hjá fólki með einhverfu.
Félagið hefur látið þýða
grein eftir mann með einhverfu
þar sem skyntruflunum er lýst
á áhrifaríkan hátt. Greinin og
fleira fræðsluefni mun liggja
frammi á fundinum.
Einnig mun stjórn Umsjón-
arfélags einhverfra kynna
starfsemi félagsins og sitja fyr-
ir svörum að því loknu.
UE hvetur alla sem tengjast
einhverfu til þess að fjölmenna
á fundinn. Það kostar ekkert
inn og fundurinn er opinn öll-
um, segir í fréttatilkynningu
frá félaginu.
Fundur Um-
sjónarfélags
einhverfra