Morgunblaðið - 01.03.2001, Blaðsíða 63
BRÉF TIL BLAÐSINS
RÍKISÚTVARPIÐ hefur nú í tví-
gang verið með beinar útsendingar
frá verðlaunaafhendingum, Golden
Globe-verðlaunanna og síðan
Grammy-verðlaunanna, frá Banda-
ríkjunum og á hrós skilið fyrir það. Ís-
lenskir þulir reyndu að skila því sem
fram fór á íslensku – sem reyndar
framan af voru ægilegar pælingar
bandarískra sjónvarpskvenna um
tísku, smekk stjarnanna og fengu
sumar stjörnurnar að kyssa sjón-
varpskonurnar og segja alheimi frá
fatakaupum sínum. Í báðum tilvikum
var Íslendingur meðal tilnefndra og
létu áreiðanlega margir sig hafa það
að bíða spenntir og reyna að upplifa
stemmninguna. Í beinum útsending-
um er sjálfsagt að hafa íslenska þuli
sem tjá okkur það sem fram fer, þótt
óneitanlega skemmi það fyrir þegar
þeir tala ofaní hið erlenda mál, þannig
að áhorfendur missa af því sem á eftir
fer.
Það sem vekur hinsvegar ómælda
hneykslan mína er að á meðan mikill
styr stendur um flutning lags í Evr-
ópusöngvakeppninni í Kaupmanna-
höfn, og útvarpsráð RÚV stendur
vörð um íslenska tungu, svo að hún
mengist ekki um alla tíð við flutning
popplags á óæðri málum, er ekki að
finna nokkurt samræmi í orðum og
gjörðum.
Ég hef nefnilega nú í tvígang orðið
vitni að endursýningum fyrrnefndra
verðlaunahátíða, þar sem öll útsend-
ingin var endursýnd, væntanlega fyr-
ir þá sem kusu að horfa ekki á beinu
útsendingarnar. En þarna máttu hin-
ar óæðri tungur flæða á ný yfir land-
ann, rétt eins og um beinar útsend-
ingar væri að ræða. Enginn var
íslenski textinn, heldur var einungis
spiluð upptaka af beinu útsendingun-
um eins og þær fóru fram og máttu
áhorfendur þannig þola þá vankanta
sem óhjákvæmilega verður að þola í
beinni útsendingu. Fyrir þetta metn-
aðarleysi RÚV í vörslu tungunnar fór
fram fleiri klukkutíma flutningur
enskrar tungu, ótextaður, að vísu með
innskotum þula.
Óskað er eftir samanburði á áhrif-
um þessa endurflutnings á íslenska
tungu við flutning þriggja mínútna
popplags. Þessar endurtekningar
hefði auðveldlega mátt texta eins og
hvert annað erlent efni. Íslenskir
áhorfendur eiga betra skilið en að hrá
ótextuð 5 tíma upptaka af beinni út-
sendingu sé endurflutt á föstudags-
kvöldi, eins og gert var 23. febrúar sl.,
á sama tíma og óskarsverðlaunamynd
með íslenskum texta var sýnd á sam-
keppnisstöð og íslenskar lesbíur kom-
ust á blint stefnumót í beinni útsend-
ingu á íslensku, á annarri stöð. Ég
bendi að lokum RÚV á, verði framlag
Íslands í Evrópusöngvakeppninni á
erlendri tungu, að þeim er tæknilega
mögulegt, með samvinnu textahöf-
undar, að setja íslenskan texta við
flutning íslenska lagsins, meira að
segja í beinu útsendingunni, ef ein-
ungis viljinn er fyrir hendi.
ÁSA BJARNADÓTTIR,
Grandavegi 41, Reykjavík.
Hvar liggur metnaður RÚV?
Frá Ásu Bjarnadóttur:
FYRIR um það bil 60 árum flutti
Benedikt Sveinsson frá Víkingavatni,
faðir Bjarna Benediktssonar ráð-
herra, útvarpserindi um íslensk
mannanöfn. Þetta voru tillögur um
nafngiftir Íslendinga. Benedikt
Sveinsson var gáfaður hugsjónamað-
ur og hugsuður og þess verður að til-
lögur hans væru teknar til greina.
Hann var af merkum þingeyskum
ættum og var um skeið þingmaður
Þingeyinga, var þá framsóknarmað-
ur, en gerðist síðar sjálfstæðismaður.
Eins og margir aldamótamenn var
hann mikill ættjarðarvinur og þjóð-
ernissinni sem mat íslensku þjóðina
mikils. Ef þetta útvarpserindi er til
annaðhvort hjá afkomendum Bene-
dikts eða hjá útvarpinu þá ætti að
senda afrit af því til mannanafna-
nefndar, sem ætti að taka þessar til-
lögur til greina.
Í stórum dráttum voru þessar til-
lögur eitthvað á þessa leið: Öll ætt-
arnöfn skal leggja niður og allir kenna
sig við föður sinn, og endingunni -son
ekki sleppt aftan af föðurnafninu, t.d.
Haraldsson, ekki Haralds, Pétursson,
ekki Péturs. Tví- eða fleirnefni verði
lögð niður og allir heiti aðeins einu
nafni. Endingunni -ur verði ekki
sleppt aftan af nöfnum, t.d. Erlingur,
ekki Erling, Bæringur, ekki Bæring,
Bernharður, ekki Bernharð. Öll bibl-
íunöfn og önnur nöfn af suðrænum
uppruna skal leggja niður og aðeins
notuð nöfn af norrænum uppruna.
Norræn nöfn sem afbakast hafa í
meðförum útlendinga verði þýdd á ís-
lensku og breytt samkvæmt því, t.d.
Helga, ekki Olga, Elfráður, ekki Al-
freð, Hróbjartur, ekki Róbert, Vil-
hjálmur, ekki Vilhelm svo að dæmi
séu tekin.
Eðlilega er erfitt að muna nákvæm-
lega hvernig Benedikt orðaði ræðu
sína, hefur hann sennilega gert það
meira í formi ábendinga um það hvað
best færi við íslenskt beygingakerfi.
MAGNÚS ÞORSTEINSSON,
Vatnsnesi, Grímsnesi.
Tillögur
Benedikts
Sveinssonar
um nafngiftir
Íslendinga
Frá Magnúsi Þorsteinssyni:
Þumalína, Pósthússtræti 13
GJAFABRJÓSTAHÖLD
fyrir nætur og daga.
Flísar
og
parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri
KRINGLAN
sími 568 6062
ÓDÝRU STÍGVÉLIN
KOMIN AFTUR!
1750.-
st. 28-36
1750.-
st. 28-46
1000.-
st. 21-30
Minn
a en
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 63