Morgunblaðið - 01.03.2001, Side 16

Morgunblaðið - 01.03.2001, Side 16
ÖSKUDAGUR 16 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÖSKUDAGURINN var haldinn há- tíðlegur í gær þar sem börn á öllum aldri fögnuðu ævintýralegasta degi ársins og umbreyttust í engla og forynjur, álfa og tröll og hvaðeina sem nöfnum tjáir að nefna. Sköp- unarkrafti og ímyndunarafli yngstu kynslóðar borgarbarnanna virtust engin takmörk sett og skríkjandi krakkaskarar spásseruðu um stræti og torg og sungu í von um að fá smá góðgæti í poka að launum. Grunnskólum var það í sjálfsvald sett hvort þeir gæfu nemendum frí í gær eða ekki. Nokkrir skólar kusu að hafa sérstaka dagskrá fyrir nemendur sína og var Hamraskóli í Grafarvogi einn þeirra. Yngvi Hagalínsson, skólastjóri Hamra- skóla, sagði þessa ákvörðun hafa verið tekna til að koma til móts við óskir margra foreldra sem finnst lítið gert fyrir börn sín þennan dag. „Við ákváðum því að vera með skipulagða dagskrá og láta reyna á hvernig það gengi upp,“ sagði Yngvi en skólinn hefur verið með hefðbundin starfsdag kennara öll fyrri ár. Nemendur skólans unnu að þemaverkefnum síðustu dagana fyrir öskudag þar sem merkir at- burðir og einstaklingar síðustu þús- und ára voru viðfangsefnið. Ösku- dagur var svo sannkölluð uppskeruhátíð þar sem krakkarnir settu upp hátíðarsýningu með söng, glímu og þjóðdönsum sem þau lærðu á þemadögunum. Greyið kötturinn var svo sleginn þrisvar úr tunnunni. Laugavegurinn iðaði af lífi enda veður í borginni með besta móti, heiðskýrt og vægt frost. Kaupmenn í miðbænum og í Kringlunni fengu óumbeðið órofna söngdagskrá allan daginn og lumuðu flestir þeirra á einhverju góðgæti til að launa söng- inn. Árrisulir krakkar fengu mest fyrir sinn snúð þar sem fljótlega upp úr hádegi tóku skilti með áletr- uninni „Allt nammi búið“ að spretta upp í búðargluggum við mismikla ánægju grallaranna. Ungir Hafnirðingar þurftu ekki að leita langt eftir skemmtun þar sem Lionsklúbburinn Kaldá og æskulýðsráð bæjarins buðu til ösku- dagsballs í íþróttahúsinu við Strandgötu. Hljómsveitin Ösku- buskarnir hélt uppi fjörinu og al- vöru töframaður sýndi listir sýnar við ómældan fögnuð barnanna. Verðlaun voru veitt fyrir skemmti- legustu búningana og var greini- legt að ballgestir höfðu lagt mikla alúð í að klæðin væru sem best úr garði gjörð. Ævintýraklæði öskudagsins hafa nú verið sett inn í skáp og skólaföt- in dregin fram að nýju. Þá er bara að byrja niðurtalninguna – 364 dag- ar í næsta öskudag. 364 dagar í næsta öskudag! Morgunblaðið/Árni Sæberg 1. til 3. bekkur í Hamraskóla tekur lagið hátt og snjallt á skólaskemmt- un sem allir nemendur skólans tóku þátt í. Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir Töframaðurinn Mighty Gareth töfraði Hafnfirðinga upp úr skónum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Vinkonurnar Jóhanna, Hrefna og Fríða voru skrautlegar og skælbros- andi þegar ljósmyndari átti leið hjá. Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir Eyðimerkurriddari, ævintýraprins og -prinsessa taka örstutta hvíld- arpásu á milli dansa á öskudagsballi. Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir Mjólkurgengið spókaði sig á Laugaveginum í blíðskaparveðri. Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir Ólíklegustu verur birtast í mannheimum á öskudag þegar mörkin milli raunveruleikans og drauma mást í burtu og verða að engu. ÖSKUDAGUR var bjartur og fagur í Vestmannaeyjum og tóku börnin daginn snemma. Leið þeirra lá m.a. í Íslandsbanka þar sem starfsmenn tóku sérstaklega vel á móti þeim með ríflegum nammiveitingum. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Bjartviðri á öskudegi Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. HÉR Í Bolungarvík hefur það verið siður, svo lengi sem elstu menn muna, að unga fólkið klæði sig upp að kvöldi bolludags, sprengidags og öskudags og gangi á milli húsa og hafi uppi ýmsa leikræna tilburði, taki lagið eða bara bjóði gott kvöld og fái að launum sælgæti sem safnað er í poka ef ekki er þá fallið fyrir þeirri freistingu að borða það bara jafnóð- um. Hér í bæ er þessi siður kallaður að fara á maska og er alltaf jafn-vinsælt hjá unga fólkinu að bregða sér í hin og þessi hlutverk af þessu tilefni. Þessir hressu krakkar voru meðal þeirra sem fóru á maska í Bolung- arvík á sprengidagskvöld og eins og sjá má var létt yfir hópnum enda hafði þeim víðast hvar verið vel tekið þar sem þau knúðu dyra. Morgunblaðið/Gunnar Hallsson Maska- „vertíð“ í Bolung- arvík Bolungarvík. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.