Morgunblaðið - 01.03.2001, Qupperneq 22
NEYTENDUR
22 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TÍSKUVIKUR standa nú yfir víða
um heim þar sem fremstu tísku-
hönnuðir sýna það sem koma skal í
vetrartískunni næsta vetur. Fatnað-
ur úr kasmírull hefur sjaldan verið
jafnáberandi á tískusýningum og
raunin er nú enda er kasmírullar-
klæðnaður með eindæmum vinsæll
um þessar mundir. Kasmírull er
jafnframt óvenju ódýr núna þannig
að það má jafnvel finna vandaðar
kasmírullarpeysur í verslunarkeðj-
um í milliverðflokki.
En ódýr kasmírull er í þann mund
að hverfa af markaðinum vegna
skorts á hráefni að því er fram kem-
ur í breska ríkissjónvarpinu, BBC.
Fyrir tveimur árum féll kasmírull
allverulega í verði sem gerði það að
verkum að nær hvaða fataframleið-
andi sem er hafði ráð á að framleiða
fatnað úr kasmír. Afleiðingin er sú
að eftirspurnin víða um heim eftir
kasmírullinni, sem flutt er inn frá
Mongólíu, er orðin svo mikil að
gengið hefur svo á vörubirgðir að
þær eru nær uppurnar.
Og til þess að bæta gráu ofan á
svart hefur veturinn í ár verið sá
kaldasti í sögu Mongólíu sem hefur
leitt til þess að tugþúsundir kasm-
írgeita hafa drepist.
Kasmírklúbburinn
Af þessum sökum hefur hráefn-
isverð þrefaldast og nú er nær
ómögulegt að komast yfir kasmírull.
Fataframleiðendur í Bretlandi sem
hafa sérhæft sig í kasmírullarfatnaði
hafa skýrt frá því að þeir geti engan
veginn annað eftirspurn eins og
staðan er nú og afar erfitt sé að
komast yfir hráefni. Óhjákvæmilegt
sé því að verð hækki upp úr öllu
valdi og barist verði um þá litlu ull
sem til er og framleiðendur kasm-
írullarklæðnaðs í lágum verðflokki
eða milliverðflokki komi til með að
þurfa að hætta allri kasmírullar-
framleiðslu.
Nokkrir framleiðendur í Skot-
landi hafa þó tekið annan pól í hæð-
ina og ætla sér að markaðssetja
fatnað sinn sem lúxusvarning. Þeir
hafa myndað samtök sem þeir hafa
nefnd Kasmírklúbbinn og látið
hanna sérstakt merki með því nafni
þar sem gæði vörunnar er ábyrgst.
Þeir segjast sannfærðir um að
þetta sé eina leiðin til þess að kom-
ast af í vaxandi samkeppni og segja
að kasmírull hafi fengið slæma út-
reið undanfarin ár og ímynd hennar
sé eyðilögð. Hlutverk Kasmír-
klúbbsins er að endurvekja þá stað-
reynd að besta kasmírull í heimi sé
framleidd í Skotlandi.
Það er þó sama til hvaða ráðs
verður brugðið, verð á kasmírullar-
fatnaði mun óhjákvæmilega hækka
á næstunni og ódýrari framleiðend-
ur munu hrekjast af markaðnum.
Verð á kasmír-
ullarafurðum
mun hækka
London. Morgunblaðið.
Skortur á hráefni
annan hvern miðvikudag
Í VIKUNNI var bætt við um 300
nýjum vörum í netverslun Hag-
kaups, www.hagkaup.is. Meðal nýj-
unga eru lífrænn barnamatur og
brauð frá bakaranum Jóa Fel.
„Við erum með um 5.500 vöruteg-
undir á Netinu núna en markmiðið
með fjölgun vara á Netinu er að end-
urspegla vöruúrval verslana Hag-
kaups. Þá stefnum við að því að vera
mun virkari í að setja nýjar vörur inn
á Netið,“ segir Þór Curtis, fram-
kvæmdastjóri hagkaups.is. „Dæmi
um þetta eru danskir dagar sem
byrja í dag í verslunum Hagkaups en
dönsku vörurnar verða bæði á tilboði
í verslunum og á Netinu.“ Þá var ný-
lega farið að senda matvöru heim á
laugardögum ef pantað er fyrir
klukkan 16 á föstudögum og í vik-
unni var byrjað að bjóða upp á send-
ingar á Bakkafjörð.
Frá því að netverslunin hóf að
selja matvörur í október á síðasta ári
hefur aukningin numið í kringum 40-
50% milli hvers mánaðar en við-
skiptavinirnir eru að stórum hluta
útivinnandi fólk.
Nýjar vörur hjá
Hagkaupi á Netinu
KOMIÐ er á markað nýtt súkkulaði
frá Sælgætisgerðinni Freyju ehf.
Nýja súkkulaðið nefnist villikött-
ur og er með salthnetum, karamell-
um og kornkúlum. Þetta er önnur
tegund súkkulaðsins en fyrir er
villiköttur með karmellum og korn-
kúlum.
Súkkulaðið fæst í flestum versl-
unum.
Súkkulaði
Nýtt
Morgunblaðið/Kristinn