Morgunblaðið - 01.03.2001, Síða 23
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 23
LOÐNUFRYSTING á Japans-
markað hófst á ný á Akranesi, í
Grindavík og Vestmannaeyjum í
gær, en vinnslustöðvarnar á Aust-
fjörðum halda enn í vonina. Japans-
markaður tekur við um 30.000 tonn-
um af loðnu og ætla Norðmenn sér
að selja 20.000 tonn. Sölumiðstöð
Hraðfrystihúsanna hefur samið um
sölu á a.m.k. 5.000 tonnum og SÍF
hefur gert rammasamning um sölu á
6.000 til 7.000 tonnum, en ekki er út-
lit fyrir að það náist að frysta upp í
samninga. Í fyrra fóru um 4.600 tonn
af Íslandsloðnu til Japans og var það
minna en árin þar á undan.
Víkingur AK, sem er aflahæsta
skipið á vertíðinni, var kominn með
um 26.300 tonn, en bætti við um
1.400 tonnum í gærmorgun og var
gert ráð fyrir að um 150 tonn yrðu
fryst á Japansmarkað. „Þetta er
besta loðna sem ég hef séð hingað til,
6% áta, 46 til 47 stykki í kílóinu og
hrognafyllingin tæplega 23%,“ segir
Ágúst Sveinsson, verkstjóri í loðnu-
frystingunni hjá Haraldi Böðvars-
syni hf. á Akranesi, en HB hefur tek-
ið við um 27.500 tonnum af loðnu á
vertíðinni. Hann segir að loðnan úr
Víkingi sé líka alveg ný, hafi veiðst í
21 mílu fjarlægð frá Akranesi og sé
kjörin á Japansmarkað. Um 150
tonn hafa verið fryst hjá HB fyrir
Japani á vertíðinni. „Það hefur ekki
verið hæf loðna fyrr en nú á þessari
vertíð og reyndar lengur, því í fyrra
var engin loðna góð, eintóm smá-
loðna,“ segir Ágúst.
Fyrsta frystingin
í þrjú ár
Ekki var fryst á Japansmarkað í
Grindavík í þrjú ár fyrir yfirstand-
andi vertíð en í gær hófst frysting
hjá Samherja hf. Fiskimjöli og lýsi
hf. í Grindavík, þegar Seley SU land-
aði 700 tonnum og haldið var áfram
að vinna úr ámóta miklu magni sem
Oddeyrin EA kom með. „Þetta er
svona nudd,“ segir Óskar Ævarsson,
rekstrarstjóri, og ráðgerir að um 100
til 150 tonn náist úr aflanum en áður
var búið að frysta um 150 tonn á Jap-
ansmarkað. „Átan hefur hrellt okkur
en þetta lítur ekki illa út,“ segir Ósk-
ar. Um 30.000 tonnum af loðnu hefur
verið landað í Grindavík til þessa.
Mest fryst í Eyjum
Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyj-
um hefur móttekið um 22.000 tonn af
loðnu á vertíðinni og hafa um 400
tonn verið fryst á Japansmarkað síð-
an á föstudag en um 1.000 tonn á
Rússlandsmarkað. „Þetta hefur
gengið upp og ofan,“ segir Þorsteinn
Magnússon, framleiðslustjóri hjá
Vinnslustöðinni. „Áta hefur truflað
okkur og eins hefur loðnan verið
misjöfn.“
Í fyrra frysti Vinnslustöðin um
1.000 tonn á Japan og um 600 tonn
árið þar áður.
Heimaey VE kom með um 500
tonn af loðnu til Vestmannaeyja í
gærmorgun og Harpa VE var með
um 900 tonn. Jón Ólafur Svansson,
framleiðslustjóri hjá Ísfélagi Vest-
mannaeyja hf., gerir ráð fyrir að það
náist að frysta um 100 til 150 tonn af
þessu á Japan en áður var búið að
frysta um 200 tonn af loðnu á Jap-
ansmarkað hjá Ísfélaginu. „Það hef-
ur ekkert gengið hjá okkur að frysta.
Þegar brælunni linnti á fimmtudag-
inn stóð mikið til enda loðnan góð og
stór en við vorum ekki fyrr komnir af
stað þegar kom áta í hana og hún
hefur verið að hrekkja okkur und-
anfarna daga.“
Jón Ólafur segir að átan sé á und-
anhaldi og þess vegna megi gera ráð
fyrir að hægt verði að frysta í örfáa
daga í viðbót en 23% hrognafylling
sé merki um að þessu fari að linna.
„Við erum á síðasta snúningi nema
eitthvað nýtt gefi sig til fyrir aust-
an,“ segir hann, en Ísfélagið hefur
fengið samtals um 17.500 tonn á ver-
tíðinni.
Austfirðingar halda í vonina
Síldarvinnslan hf. í Neskaupstað
hefur móttekið tæplega 42.000 tonn
af loðnu á vertíðinni. Þar hafa verið
fryst milli 1.000 og 2.000 tonn á Jap-
ansmarkað á ári en ekkert hefur ver-
ið fryst á þann markað á yfirstand-
andi vertíð. Hins vegar hafa um
6.000 tonn verið fryst á Rússlands-
markað. „Við höldum í vonina,“ segir
Jón Gunnar Sigurjónsson, verkstjóri
í frystingunni, og vísar til þess að
fyrir austan trúi menn að loðnan
byrji að veiðast á ný fyrir austan eft-
ir daginn í dag. „Þetta ástand er allt
annað en við eigum að venjast en það
fer að styttast í að farið verður að
frysta hrogn úr þessu sem fæst
þarna fyrir vestan. Það er varla
nema vika í það og þá er þetta bara
búið komi ekki annað til.“
Súlan EA landaði um 700 til 800
tonnum í Neskaupstað í gær en á
undan henni kom Börkur NK með
um 1.700 tonn og Beitir NK með um
1.100 tonn. „Ég tók það skásta af
þeim og frysti um 400 tonn á Rúss-
landsmarkað,“ segir Jón Gunnar.
Mest hefur verið landað af loðnu
hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar hf. á
vertíðinni, um 43.000 tonnum, en þar
hefur ekkert verið fryst á Japans-
markað og aðeins um 1.300 tonn á
Rússlandsmarkað, að sögn Elfars
Aðalsteinssonar forstjóra. Í fyrra
voru fryst tæplega 700 tonn á Jap-
ansmarkað og var gert ráð fyrir
svipuðu magni í ár. „Það eru mikil
vonbrigði að geta ekki fryst,“ segir
Elfar. Hann segir ennfremur að
áætlunin gangi ekki eftir nema eitt-
hvað mikið breytist og hægt verði að
veiða átulausa loðnu austan megin.
„Við bíðum enn eftir að hún gangi
upp á grunnið hérna.“
Fjögur skip hafa aflað yfir 20.000
tonn á vertíðinni. Víkingur, Örn KE
sem er kominn með um 23.700 tonn,
Sigurður VE, sem er kominn með
um 22.000 tonn, og Hólmaborg SU,
sem hafði landað samtals tæplega
21.000 tonni í gær.
Byrjað að frysta á
Japansmarkað á ný
!"#
#
$ %
"&"
'()'
*#
'+$,) (-.%
/ 01
11
+ 2 -$$2"
) #
!%
3 .
' ) $
"
'+$"%
3!""
.%
'))( 4"%"
"
5 + '&
!
#
3
$
#"
'$/'
)+ 6
)2 "
7 )(#
. 40
8
"
9
: /9
/ )$ ."
))'11
9
5/ 9
,) ( &
/ $ &&
,) $1
6! &
(()) 9
'))6"%"
;
)5)+
< +
))$
."
+ ) =
"%>"&#
%>
#">"1
#>#
"1>%
1>&"
1>1"9
"%>&
>11
>9
>
1>&9
"%>99
">9
%>&
>11
>11
>1
"9>"
1>%#
>1&
9>"
">1
%>"%
"1>%%
#>%1"
"9>""
">#&
">
">&1"
"%>1"
#>9#9
9>1
"">9""
1>1&
">#
%>9&
1>"1%
##>%1
&>1"
9>11
99>"9
?&>%"1
9
9>
?1>1"9
#>
#>
?&9
?>1
>
?9>#&
1>&9
>
?#>%
>
">%"1
?>
?9>
?9>19
?>%%
?>
?1>&9"
?#>1
>&&
?9>
?1
>&&
1>
">&
9>#&
>#
">#1%
%>
#">"1
#>#
">#%
1>&"
9>
#>
#">&&
>11
>9
>
1>
"#>19
">9
%>&
>11
9>##
>1
1>&9
"9>"
1>%#
>1&
%>"
>
>
"">""
"">%%%
#>%1"
>""
">#&
">
">&1"
">#1
>9&%
9>1
>9""
">9%
"">%%1
%>9&
>"
">%1
&>"
>&&
9>11
1>
">&
9>#&
9%>%##
>%1
1>%%&
">&&
">#
>"&
>#9
%>%"
"#>&"1
>##
%>1
9>1
9"
>
>91
#>1
%>9
>##
">9&#
>9
>9#
>"1
">#"
>#1
9>&&%
>19
">
&>#"%
>
1>
#>""
&>9"
>&&"
%>%
">"%
>%#
9>"
>9"
>#
">9
>1#
#>1&
>&"
1&>#"
>
1>%
>1#%
>"#
1>"
%>"1
?>%"
#>
%>1#
1>9&
&>&#
9>
#>&1
">9#
%>""9
>
>%%
9>##
>"
>#
">9"
1>%#
>#1
">99
1>"#
#>1
#>11
&>9
>"9
">99#
%>&
>#
9>"
#>1&%
>9&%
>#&1
>9""
>%%9
>%%
&>"
>9&#
9>"9
>99
>&&
>&
9>#&
9>""
>
#">9
)
@))
/
))
+ )
)> .
( > />
)> .