Morgunblaðið - 01.03.2001, Síða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 25
BMW 318i
Nýskr. 1. 1999, 1900cc vél,
4ra dyra, sjálfsk., silfurgrár,
ekinn 25 þús.
Verð 2.230 þ.
OPIÐ:
Mánud. - föstud. kl. 9-18,
laugard. kl. 10-14
Við Fellsmúla
Sími 588 7332
www.heildsoluverslunin.is
H
ö
n
n
u
n
&
u
m
b
ro
t
e
h
f.
©
2
0
0
0
D
V
R
0
5
0
- trygging fyrir l
águ verði!
Baðinnréttingar
fjölbreytt úrval
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti lagði í gær upp í ferð um landið
til að mæla fyrir efnahagsáætlun
stjórnar sinnar, sem lögð var fram í
gær. Forsetinn kynnti áætlunina
fyrir Bandaríkjaþingi í ræðu á
þriðjudagskvöld og þótti honum tak-
ast vel upp við flutninginn. Ýmsir
þættir efnahagsáætlunarinnar eru
hins vegar afar umdeildir, ekki síst
áform um gríðarlegar skattalækkan-
ir sem mæta jafnvel andstöðu hóf-
samari arms Repúblikanaflokksins.
Skattalækkunaráformin gera ráð
fyrir að ríkissjóður verði af samtals
1,6 billjón dollara (eða 1,6 þúsund
milljörðum) á næstu tíu árum.
Demókratar og ýmsir hófsamari
repúblikanar telja þetta of miklar
lækkanir og segja tillögurnar byggja
á óraunhæfum spám um afgang af
fjárlögum.
Demókratar eru almennt sam-
mála því að svigrúm sé til nokkurra
skattalækkana, en vilja ganga mun
skemur. Jafnt repúblikanar og
demókratar hafa enn fremur lagt
fram kröfur um að sett verði skilyrði
um að lækkanirnar verði minni ef
spár um fjárlagaafgang ganga ekki
eftir. Þá hafa margir gagnrýnt að
skattalækkanirnar séu sniðnar
þannig að þær komi sér best fyrir
efnafólk.
Demókratar vilja lækka
skatta um 900 milljarða
Viðbrögðin við ræðu Bush voru af-
ar blendin. „Ef orð forsetans í kvöld
hljómuðu of vel til að geta verið sönn
er það líklega tilfellið,“ sagði Dick
Gephardt, leiðtogi demókrata í full-
trúadeildinni á þriðjudagskvöld.
„Áætlanir Bush ganga ekki upp,“
hélt Gephardt áfram og fullyrti að
tillögur demókrata um að lækka
skatta um 900 milljarða dollara á
næstu tíu árum væru raunhæfari.
Stórblöðin The New York Times
og The Washington Post voru einnig
full efasemda í umfjöllun um málið í
gær. Leiðarahöfundur fyrrnefnda
blaðsins segir áætlun forsetans „af-
bakaða af þráfylgni hans um að
lækka skatta meira en er nauðsyn-
legt, sanngjarnt eða skynsamlegt,“
og bendir á að skoðanakannanir sýni
að meirihluti bandarísku þjóðarinn-
ar telji svo miklar skattalækkanir
draga úr getu stjórnvalda til að
greiða niður skuldir, komast hjá fjár-
lagahalla og veita nægilegu fé til
mennta-, lífeyris- og heilbrigðismála.
Í The Washington Post eru tillögur
Bush sagðar hafa „jafnmetnaðarfull
markmið og þær byggja á ótraustum
fjárhagslegum forsendum,“ og full-
yrt er að stjórnin hafi vanmetið ýmis
útgjöld, til dæmis vegna fram-
kvæmda er lúta að varnarmálum og
umbóta í lífeyriskerfinu.
The Wall Street Journal er hins
vegar jákvæðara í garð áætlana for-
setans og segir þær nauðsynlegar til
að stemma stigu við tilhneigingu
þingsins til að auka útgjöld. „Með að-
eins nokkurra mánaða vinnu á síð-
asta ári fundu þingmenn ótal nýjar
leiðir til að eyða meira en þriðjungi
af kostnaðinum við skattalækkunar-
áætlun Bush. Þó eru þetta að nokkru
leyti sömu mennirnir og halda því nú
fram að þetta séu of miklar skatta-
lækkanir,“ segir í blaðinu í gær. „Það
sem vakir fyrir þeim í raun og veru
er að halda fjárlagaafganginum fyrir
sig til að endurvekja tíð umfangs-
mikils ríkisvalds.“
Bandaríkjaforseti kynnir áform sín um skattalækkanir
Viðbrögð við ræðu
Bush afar blendin
Washington. AFP, AP, Reuters.
AP
George Bush Bandaríkjaforseti skömmu áður en hann flutti ræðu sína á
þingi á þriðjudag. Lengst t.v. er Dick Cheney varaforseti.
TÆPUR helmingur kjósenda í New
York-borg er hlynntur því að Bill
Clinton, fyrrverandi Bandaríkjafor-
seti, sækist eftir því að verða borg-
arstjóri New York, ef marka má nýja
skoðanakönnun.
47% aðspurðra sögðust vera hlynnt
framboði Clintons en 49% á móti og
4% voru óákveðin. Skekkjumörkin
voru 3 prósentustig.
Clinton hefur ekki gefið neinar vís-
bendingar um að hann hyggist sækj-
ast eftir borgarstjóraembættinu.
Hann hefur keypt hús nálægt borg-
inni ásamt eiginkonu sinni, Hillary,
öldungardeildarþingmanni New
York-ríkis. Einnig hyggst hann opna
skrifstofu í Harlem og sú ákvörðun
mælist mjög vel fyrir meðal kjósenda.
New York-borg
47% hlynnt
framboði
Clintons
New York. Reuters.