Morgunblaðið - 01.03.2001, Side 29
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 29
mörgum. „Ég var í miklu uppnámi,“
útskýrir hún.
Mennirnir þrír, sem voru ákærðir í
réttarhaldinu sem hér að ofan var
vitnað til, heita Dragoljub Kunarac,
yfirmaður í hernum, Radomir Kovac,
einnig yfirmaður, og Zoran Vukovic,
óbreyttur hermaður. Stríðsglæpa-
dómstóll SÞ dæmdi þá alla í síðustu
viku seka um nauðganir og pyntingar
í fangabúðunum í Foca árið 1992 og
hlutu þeir 28, 20 og 12 ára fangelsi.
Ljóst þótti að múslimskum fjölskyld-
um í Foca var á meðan á hernáminu
stóð sundrað; karlar settir í fangelsi
eða jafnvel skotnir á staðnum og kon-
um og börnum safnað saman á
ákveðna staði og þeim haldið þar
nauðugum viljugum. Þar var þeim
misþyrmt og nauðgað aftur og aftur.
Sé tekið mið af frásögnum vitna og
fjölmiðla síðustu árin voru nauðgan-
irnar í Foca dæmigerðar fyrir glæpi
sem voru framdir víða og það jafnvel
að því er virtist stundum í skjóli yf-
irvalda og lögreglu viðkomandi
staða. Að mati þeirra sem til þekkja
virðist sem allir aðilar í átökunum á
Balkanskaga hafi gerst sekir um
nauðganir í stríðinu þótt Bosníu-
Serbar virðist hafa gengið lengst í að
beita þeim markvisst til að niður-
lægja andstæðinga sína.
Dómurinn þykir mildur
Dómurinn yfir Bosníu-Serbunum
þremur hefur að vonum vakið mikla
athygli víða um heim enda tímamóta-
dómur að margra mati. Ein þeirra
sem telur að svo sé er Vjollca Krasn-
iqi, bókmenntafræðingur frá Kosovo,
en hún er stödd hér á landi til að taka
þátt í ráðstefnu Rannsóknarstofu í
kvennafræðum á morgun, föstudag,
undir heitinu Konur og Balkanstríð-
in.
,,Þetta er í fyrsta sinn sem ásak-
anir á hendur mönnum um nauðg-
anir í stríði eru rannsakaðar og jafn-
framt í fyrsta sinn sem menn eru
sakfelldir fyrir nauðganir sem stríðs-
glæpi,“ segir hún í samtali við Morg-
unblaðið. Margir aðrir sem tjáð hafa
sig um úrskurðinn í erlendum fjöl-
miðlum telja hann gefa mikilvægt
fordæmi í málum í framtíðinni sem
höfðuð verða á alþjóðavettvangi
vegna gruns um kynferðislegt of-
beldi.
Krasniqi bendir á að athygli um-
heimsins hafi að undanförnu í aukn-
um mæli beinst að þeim nauðgunum
og misþyrmingum sem áttu sér stað í
Balkanstríðunum og telur það vera
vitni um alþjóðlega fordæmingu
slíkra glæpa að nauðganir hafi verið
viðurkenndar sem stríðsglæpir í lög-
um Stríðsglæpadómstólsins. ,,Og
dómurinn yfir mönnunum þremur er
því stórt skref í átt til réttlætis í þess-
um efnum.“
En þótt uppkvaðning dómsins
þyki marka tímamót eru ekki allir á
eitt sáttir um niðurstöðu hans. Þær
fregnir berast m.a. frá Sarajevo að
Bosníumönnum sem hraktir voru frá
Foca þyki dómurinn allt of vægur.
Er eftir þeim haft að nær hefði verið
að ákveða hámarksrefsingu eða
dæma mennina í lífstíðarfangelsi.
Vitni númer 96 var kona sem
greindi frá reynslu sinni í réttarhöld-
unum gegn Bosníu-Serbunum þrem-
ur. ,,Ég hafði búist við mun harðari
refsingu miðað við allt það sem þeir
gerðu,“ segir hún. ,,Ég treysti ekki
þessum dómstóli lengur.“ Bætir hún
því við að vegna vonbrigða með dóm-
inn myndi hún ekki fara aftur til
Haag til að bera vitni í frekari mála-
ferlum.
Krasniqi segir aðspurð að aðalat-
riði málsins sé ekki hve refsingin sé
þung heldur að dómur hafi verið
kveðinn upp. ,,Aðalatriðið er að
mennirnir voru dæmdir fyrir nauðg-
anir,“ segir hún. Í málflutningi
tveggja kvensaksóknara dómstólsins
í Haag í kemur fram sama afstaða en
til þeirra er vitnað í erlendum fjöl-
miðlum. Aðrir talsmenn dómstólsins
hafa jafnframt lofað hugrekki þeirra
fórnarlamba sem báru vitni í málinu.
Réttarhaldið hefði ekki endað með
dómi nema vegna þess að fórnar-
lömbin stóðu frammi fyrir réttinum
og kvölurum sínum og vitnuðu um
skelfilega lífsreynslu.
Hvers vegna nauðganir?
Stríðsdómstóll SÞ í Haag hefur
fram að þessu gefið út 84 ákærur á
hendur mönnum, körlum og konum,
vegna glæpa sem framdir voru í
Balkanstríðunum, samkvæmt upp-
lýsingum á heimasíðu dómstólsins.
Þar af eru átta ákærur vegna
meintra nauðgana og misþyrminga á
konum. Aðrar ákærur eru m.a. vegna
meintra þjóðarmorða og annarra
stríðsglæpa en þyngri viðurlög eru
við þeim glæpum en nauðgunum. Sjö
af þeim sem dómstóllinn hefur ákært
eru dánir, þeirra á meðal eru tveir
sem ákærðir eru fyrir að hafa tekið
um sem tóku að myndast eftir upp-
lausn sambandsríkisins.
Feðraveldishyggja
ein undirrótin
Kesic telur því, ólíkt öðrum fræði-
mönnum, þjóðernishyggjuna eina og
sér ekki vera nægjanlega skýringu á
því hvers vegna átökin í löndum fyrr-
um Júgóslavíu urðu eins ofbeldisfull
og raun bar vitni. Þjóðernishyggjan
hafi vissulega skipt máli í þessu
sambandi en þó aðeins í flóknu sam-
spili við feðraveldishyggjuna. Of-
beldið eigi sér með öðrum orðum sál-
og félagsfræðilegar rætur í valda-
uppbyggingu feðraveldisins.
,,Þjóðernishyggja og feðraveldi
eiga sér ákveðin sameiginleg ein-
kenni,“ útskýrir hún í einu rita sinna
og á þar við að báðar komi mörgum
fyrir sjónir sem eitthvað sem sé æv-
arandi og náttúrulegt. Einnig feli
þær báðar í sér stigveldi, þ.e. þá
hugsun að einhver hafi vald yfir öðr-
um; vald yfir þeim sem séu af öðru
kyni, þjóðerni eða annarri menningu.
Þannig feli þær í sér bælingu hinna
sem séu lægra settir, mismunun
þeirra og útskúfun. Þjóðernishyggja
og feðraveldishyggja hafi því saman
ýtt undir stríðsátök og losað úr fjötr-
um ofbeldistilhneigingar í garð
þeirra sem voru öðruvísi.
Þessar ofbeldistilhneigingar voru
þannig notaðar, segir Kesic, til að
koma af stað stríði í Júgóslavíu. Hvað
sem grundvallarástæðum stríðsins
leið var hatrinu beint að þeim sem
voru öðruvísi á grundvelli þjóðernis
eða kyns. Þannig varð hatrið og fyr-
irlitningin gagnvart þeim sem voru
öðruvísi markmið í sjálfu sér og for-
senda þess að hægt var að beita þá
líkamlegu ofbeldi á margvíslegan
hátt.
þátt í nauðgunum í Foca eins og áður
var minnst á.
Meðal þeirra sem þekktastir eru í
hópi ákærðra vegna stríðsglæpa eru
Radovan Karadzic, fyrrverandi leið-
togi Bosníu-Serba, yfirhershöfðingi
Bosníu-Serba, Ratko Mladic og Slob-
odan Milosevic, fyrrverandi forseti
Júgóslavíu. Þótt ákæran á hendur
þeim beinist ekki að nauðgunum og
misþyrmingum kvenna telja margir
ljóst að þeir beri ekki síður ábyrgð á
þeim fjöldanauðgunum sem áttu sér
stað í átökunum á Balkanskaga. Þeg-
ar síðast var vitað fór Karadzic huldu
höfði og sömuleiðis Mladic. Milosevic
dvelur hins vegar í Serbíu og hafa
serbnesk stjórnvöld ekki í hyggju að
framselja hann til Haag.
Vesna Kesic, sálfræðingur frá
Króatíu, sem einnig tekur þátt í ráð-
stefnu Rannsóknarstofu í kvenna-
fræðum næstu helgi, hefur eins og
fleiri lagt áherslu á það í málflutningi
sínum að allar stríðandi fylkingar
hafi tekið þátt í að misbjóða konum
kynferðislega þótt í mismunandi
mæli sé. Kesic hefur rannsakað og
skrifað fjölda rita um ofbeldi gegn
konum í stríðsátökum og m.a. velt því
fyrir sér hvaða þættir það eru sem
umbreyta umburðarlyndu fólki og að
því er virðist friðsömum nágrönnum
í morðingja og nauðgara þegar stríð
brestur á.
Kesic leitar skýringanna ekki ein-
asta í þjóðernisátökum eða þjóðern-
isstefnu heldur einnig í uppbyggingu
feðraveldisins svokallaða en með
feðraveldi er í stuttu máli átt við að
hin karllegu gildi séu ráðandi og kúgi
hin kvenlegu gildi og marki sem slík
allt þjóðfélagið. Segir Kesic í einu
rita sinna að feðraveldið hafi ráðið
ríkjum í stjórnarfari gömlu Júgó-
slavíu sem og í hinum nýju þjóðfélög-
’ Þjóðernishyggjanhafi vissulega
skipt máli í þessu
sambandi en þó
aðeins í flóknu
samspili við feðra-
veldishyggjuna. ‘