Morgunblaðið - 01.03.2001, Side 33
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 33
Umboðs- og heildverslun
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609
Læstir
fataskápar
fyrir vinnustaði
Netverslun - www.isold.is
Læstir
skólaskápar
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
- ANNO 1929 -
Í KVÖLD kl. 21.30 verða í Kaffi-
leikhúsinu tónleikar með banda-
ríska djass- og spunatónlistamann-
inum Eyvindi Kang og hljómsveit
íslenskra tónlistarmanna. Eyvindur
Kang er af íslensku bergi brotinn, á
íslenska móður en kóreskan föður,
en býr í Bandaríkjunum. Hann hef-
ur starfað með mörgum merkum
tónlistarmönnum, m.a. Bill Frisell,
Marc Ribot og John Zorn. Í hljóm-
sveitinni eru auk Eyvinds Skúli
Sverrisson bassaleikari, sem einnig
býr í Bandaríkjunum, Hilmar Jens-
son gítarleikari og Matthías Hem-
stock trommu- og slagverksleikari.
Tónlistin, sem leikin verður á tón-
leikunum í Kaffileikhúsinu, er
sprottin af hugmyndum Eyvinds
um samruna indverskrar tónlistar-
hefðar og djass, spuna og raftón-
listar.
Skúli Sverrisson segist hafa
þekkt Eyvind síðastliðin fimm ár og
meðal annars hafa spilað með hon-
um í New York. „Frá því ég kynnt-
ist honum hefur mig langað til að
fara með hann aftur til Íslands, en
hann hefur ekki komið hingað síðan
hann var tíu ára gamall. Mér fannst
betra að við færum saman hingað
en að við fengjum menn til New
York og þegar kom að því að spila
heima komu svo Hilmar og Matti
strax upp í hugann.“
Á tónleikadagskránni verða verk
sem þeir félagar settu saman fyrir
þá sérstaklega. Þeir segjast hafa
byrjað á að snarstefja heilan dag til
að kynnast og varpa fram hug-
myndum og tóku síðan til við að
setja saman ramma að verkunum
sem leikin verða með rými fyrir
spuna. Tónleikarnir verða síðan
teknir upp og gefnir út á vegum
Smekkleysu síðar á árinu.
Eyvindur er fjölhæfur hljóðfæra-
leikari, leikur á fiðlu, lágfiðlu, túbu,
trommur, hljómborð, bassa og svo
má telja. Hann segist að mestu
leika á lágfiðlu sem stendur, en
nýtir einnig rafeindatæknina til að
breyta hljóðunum líkt og þeir félag-
ar allir. „Síðasta árið hef ég nánast
einungis leikið órafmagnaða tónlist
en rafeindatæknin gerir mér kleift
að skoða betur stakan hljóm, staka
nótu. Það er ekki eins og ég sé
kominn að endimörkum hljóðfær-
isins og þurfi rafeindatækni til að
fara lengra, það er frekar að mig
langi til að fara innávið, kanna smá-
atriðin betur.“
Eins og fram kemur verður tón-
listin spunakennd, en þeir segjast
ekki óttast að fólk eigi eftir að eiga
erfitt með að skilja það sem fram
fer. „Einu hlustendurnir sem verða
fyrir vonbrigðum eru þeir sem
koma til að heyra eitthvað fyrir-
fram ákveðið,“ segir Hilmar.
Sífellt yngra fólk
mætir á tónleika
„Sífellt yngra fólk mætir á tón-
leika, fólk sem er ekki upptekið af
því hvort það sé að hlusta á djass
eða eitthvað annað, fólk sem vill
bara heyra góða krefjandi tónlist,“
heldur Hilmar áfram og Skúli bætir
við: „Tónlistin sem við spiluðum áð-
ur fyrr var oft djasskennd og
áheyrendur yfirleitt flestir komnir
til að hlusta á djass. Á síðustu fjór-
um eða fimm árum hafa aftur á
móti sótt tónleika okkar sífellt fleiri
ungmenni sem eru komin til að
heyra góða tónlist og er sama hvort
menn kalla hana djass eða eitthvað
annað.“
„Ég held að markaðssetning á
tónlist sé það eina sem verði til
þess að menn greini tónlist í ólíkar
stefnur,“ segir Eyvindur. „Ég held
að fólk hefði aldrei skipt tónlist nið-
ur í stefnur ef ekki hefði komið til
iðnaðurinn í kringum tónlist, fram-
leiðsla, sala og útgáfa.“
Snýst um að sýna
áheyrandanum virðingu
Hilmar segir að áhuginn á spuna-
tónlist sé meiri en hafi verið áður
og fari enn vaxandi. Líkastil eigi
eftir að draga eitthvað úr áhug-
anum þegar fram líður eins og
gengur og gerist, en tónlistin haldi
velli. „Sem tónlistarmenn erum við
kannski búnir að spila á hljóðfæri í
tíu til tuttugu ár og upptökutæknin
er kannski hundrað ára gömul,“
segir Eyvindur, „en við megum
ekki gleyma því að indversk tónlist
er þúsund ára gömul og er enn ver-
ið að leika hana. Það getur gerst í
heimaborg minni að 60.000 manns
komi á tónleika og ég hef ekki hug-
mynd um hver hljómsveitin er og
hef aldrei heyrt hennar getið. Það
þarf ekki að vera vegna þess að ég
sé óupplýstur eða fylgist illa með,
þannig er þetta bara. Það eru til
óteljandi tónlistarstraumar. Það
sem við erum að gera saman fellur
vel að eyranu og það þarf enga
menntun til að skilja það; tónlistin
stendur á eigin fótum.“
„Við veltum því í sjálfu sér ekki
fyrir okkur hvort fólk eigi eftir að
kunna að meta það sem við erum
að gera,“ segir Skúli, „en treystum
á það að ef við erum að gera það
sem við kunnum að meta sé til fólk
sem kunni að meta það líka.“
„Þetta snýst um það að sýna áheyr-
andanum virðingu,“ heldur Eyvind-
ur áfram, „að tala ekki niður til
hans og halda að maður viti betur
en þeir sem eru að hlusta. Maður
verður að sýna auðmýkt gagnvart
áheyrandanum og tónlistinni.“
Auðmýkt gagnvart áheyr-
andanum og tónlistinni
Morgunblaðið/Kristinn
Eyvindur Kang, Skúli Sverrisson, Matthías Hemstock og Hilmar
Jensson eru með tónleika í Kaffileikhúsinu í kvöld.
SÝNINGARGESTUR fann það út að
sænski grafíklistamaðurinn Helge
Zandén er höfundur hluta mynd-
anna á sýningunni Frumherjar í sal
félagsins Íslenskrar grafíkur,
Tryggvagötu 17. Sýningin hefur
verið framlengd um eina helgi.
Höfundar nokkurra verka á sýn-
ingunni voru óþekktir og nöfn á
sumum verkanna ýmist engin eða
torlesin. Leitað var til gesta með ósk
um upplýsingar ef þeir gætu miðlað
þeim.
Zandén var fæddur í Borås í Sví-
þjóð 1886, dáinn 1972 í Falun. Hann
nam við Althins målarskola í Stokk-
hólmi 1910-1911 og við Konst-
akademien í Stokkhólmi 1911-1917.
Í listferli hans er þess getið að 1929
hafi hann farið kynnisferð til Íslands
en Íslandsmyndirnar (steinþrykkin)
á sýningunni í sal grafíkfélagsins
eru unnar í Kaupmannahöfn 1929
eftir Íslandsferðina.
Helge Zandén starfaði með graf-
íkerum sem kölluðu sig Falugrafík-
era, en það voru fimm grafíkerar
frá Falun og næsta nágrenni.
Falugrafíkerarnir voru: Helge
Zandén, Stig Borglind, Bertil Bull-
Hedlund, Hans Norsbo og David
Tägtström. Það eina sem þeir áttu
sameiginlegt annað en að tengjast
Falun var að þeir voru á sama aldri
og höfðu menntað sig á sama tíma.
Sýningin er opin nk. laugardag og
sunnudag 3.og 4. mars kl. 14-18.
Hægt er að fylgjast með graf-
íklistamanni þrykkja steinþrykk á
verkstæði félagsins um helgina.
Eitt af grafíkverkum Helge Zandén.
Sýningargestur bar
kennsl á grafíkverk
KVARTETT Ómars Axelsson-
ar leikur á Múlanum, 2. hæð
Hús málarans, í kvöld kl. 21.
Auk píanistans Ómars Axels-
sonar leika þeir Hans Jensson,
tenórsax, Leifur Benediktsson
á bassa og Þorsteinn Eiríksson
á trommur.
Á dagskránni eru vel þekkt-
ar sígildar djassperlur.
Aðgangseyrir er 1.200 kr. en
600 fyrir nema og eldri borg-
ara.
Kvartett á
Múlanum
ÞRÆÐIR spunnir Vilborgu
Dagbjartsdóttur í tilefni 18. júlí
2000 er komið út. Ritið hefur að
geyma sjö grein-
ar um skáldskap
og/eða aðrar list-
ir eftir sjö höf-
unda: Svövu
Jakobsdóttur,
Álfrúnu Gunn-
laugsdóttur,
Helgu Kress,
Ingibjörgu Har-
aldsdóttur, Silju
Aðalsteins-
dóttur, Dagnýju
Kristjánsdóttur og Steinunni Sig-
urðardóttur.
Ritstjóri er Helga Kress og
Ingibjörg Haraldsdóttir.
Útgefandi er Háskólaútgáfan.
Ritið er 80 bls. og kemur út í 70
tölusettum eintökum.
Rit
Vilborg
Dagbjartsdóttir
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi olía
MEÐGÖNGUBELTI
brjóstahöld, nærfatnaður
Þumalína, Pósthússtræti 13