Morgunblaðið - 01.03.2001, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 39
VOPNFIRÐINGAR hafaundanfarna mánuði unn-ið markvisst að stefnu-mótun og uppbyggingu
samfélagsins í Vopnafjarðarhreppi
og er nú væntanlegur afrakstur
þessarar vinnu. Fólki hefur fækkað
jafnt og þétt frá árinu 1989, þá voru
þar 927 íbúar en 1. desember í fyrra
voru íbúar orðnir 757. Nú vilja
heimamenn snúa þessari þróun við
með það að leiðarljósi að sókn sé
besta vörnin. Telja menn brýnast að
auka fjölbreytni í atvinnulífinu og
hafa íbúar staðarins unnið að sam-
eiginlegri hugmyndavinnu varðandi
ný sóknarfæri í atvinnumálum.
Þorsteinn Steinsson, sveitar-
stjóri Vopnafjarðarhrepps, segir að
átakið hafi í byrjun orðið til þegar
haft var samband við Þróunarstofu
Austurlands til að leita ráða varð-
andi uppbyggingu í atvinnumálum
sveitarfélagsins og marka þar ein-
hverja stefnu. Niðurstaðan varð sú
að fara óhefðbundna leið sem fólst í
því að virkja heimamenn sjálfa í
þeirri vinnu og fá jafnframt aðstoð
sérfræðinga um leið. Að sögn Þor-
steins var talið mikilvægt að fá
kraftmikla menn úr atvinnulífinu og
blanda þeim saman við fólk af ýms-
um toga á staðnum. Auglýst var eft-
ir þátttakendum í þessa vinnu og
leitað til nokkurra utanaðkomandi
aðila og voru margir tilbúnir að
vinna að verkefninu, að sögn Þor-
steins.
„Það var greinilegt að áhuginn
var mjög mikill á að gera eitthvað í
atvinnumálum hér á svæðinu og það
var mjög gaman að finna fyrir því.
Um 50 Vopnfirðingar störfuðu að
þessu verkefni, sem mynduðu hópa
sem fjölluðu um auðlindir sjávar og
lands, iðnað, verslun, þjónustu og
menningu.“
Þorsteinn segir að fólki hafi í
þessum hópum unnið að því að skil-
greina samfélagið með kostum þess
og göllum og meta aðstæður með
tilliti til þess. Nú er þeirri vinnu lok-
ið og er verið að ljúka við stefnu-
mótunaráætlun sem lögð verður
innan skamms fyrir hreppsnefnd
Vopnafjarðarhrepps. Í framhaldinu
er ætlunin að marka stefnu og ák-
veða hvernig unnið verði að því að
ná settum markmiðum í framtíð-
inni.
Byggja þarf upp nútímalegt
samgöngukerfi
„Ég tel að það sér gríðarlega já-
kvætt fyrir samfélagið að vinna
svona saman og reyna að örva hvert
annað til dáða. Við höfum sagt að
hjálpum við okkur ekki sjálf geri
enginn annar það fyrir okkur og við
teljum að sókn sé besta vörnin. Það
er alveg ljóst að þegar fólk kemur
svona saman og veltir fyrir sér öll-
um möguleikum, kostum og göllum,
kemur alltaf eitthvað upp sem
hjálpar manni til þess að finna nýja
möguleika. Mér finnst þetta virka
eins og smurning á öll tannhjól
hér.“
Að sögn Þorsteins hefur atvinnu-
lífið í stórum dráttum verið í þokka-
legu horfi undanfarið, en það sé
ljóst að í sjávarþorpum hafi þróunin
orðið sú að fiskur sé unninn í mikl-
um mæli úti á sjó og störfum fækk-
að í landi. Sveitarfélagið hefur und-
anfarið verið í framkvæmdum sem
skapað hafa störf hjá iðnaðarmönn-
um og fleirum en að sögn Þorsteins
er ljóst að sveitarsjóður getur ekki
staðið undir slíku til lengdar.
„Hér er ekki um að ræða þenslu
eins og á höfuðborgarsvæðinu
þannig að fólk er vart um sig og
maður finnur fyrir því að það er
fólksfækkun. Helstu skýringarnar
eru kannski þær að atvinnutæki-
færin eru betri annars staðar. En
hins vegar er alveg frábært að vera
hér með börn. Hér er einsetinn
grunnskóli með góðu mötuneyti,
gott bókasafn, tónlistarskóli, allt
eins og það getur best verið. Hér er
einnig gott félagsheimili og góð að-
staða fyrir aldraða. En það þarf að
örva atvinnulífið og þar þarf að
ríkja stöðugleiki.“
Þorsteinn segir að með hug-
myndavinnunni sé verið að reyna að
örva einstaklinga og fyrirtæki til að
fá einkaframtakið til þess að fram-
kvæma hlutina. Ekki að ríki og
sveitarfélög standi einungis í að
byggja upp atvinnulífið. „Það er
hins vegar ljóst að á svona stöðum
þarf ríkisvaldið að byggja upp
grundvallaratriði eins og nútíma-
legt samgöngukerfi á vegum og
með flugi og siglingum. Með því er
líka hægt að stækka atvinnusvæð-
ið.“
Mörg ónýtt tækifæri í
ferða- og veiðimennsku
Að sögn Þorsteins nýtur sveitar-
félagið þess að vera með atvinnulíf
sem tengist bæði landbúnaði og
sjávarútvegi, þannig að ekki þurfi
eingöngu að treysta á fiskvinnslu. Á
Vopnafirði er mjólkursamlag, slát-
urhús og þjónusta við landbúnaðinn
sem veldur því að staðurinn á að
sumu leyti að vera hæfari til upp-
byggingar. Þá segir Þorsteinn að
mörg atvinnutækifæri séu ónýtt í
ferða- og veiðimennsku enda sé
staðurinn þekktur orðinn fyrir góð-
ar laxveiðiár.
„Hér hefur kannski ekki verið
unnið mikið í þessum málum og ég
tel að menn eigi eftir að sjá á næstu
árum að hér verði sprenging í ferða-
iðnaði á svæðinu, en það þarf ein-
hvern tíma til að byggja það upp.“
Einnig er ætlunin að huga að ým-
iss konar smærri iðnaði og frekari
vinnslu á sjávarafurðum enda telja
menn að sjávarútvegurinn verði
áfram einn að stóru þáttunum í at-
vinnulífi staðarins. Sú þekking sem
til staðar er í landbúnaði, mjólkur-
samlaginu og sláturhúsinu ætti
einnig að skapa möguleika á að gera
góða hluti.
„Við teljum að við getum aðeins
kitlað bragðlaukana í fjárfestum
með því að sýna jákvætt hugarfar
og bjartsýni. Ef við sýnum fram á
að við séum með góðar hugmyndir
ættu fjárfestar að vera tilbúnir að
fjárfesta í þeim. Það er auðvitað það
sem skiptir máli, að þeir aðilar sem
hafa peningalega getu séu tilbúnir
til að fjárfesta í hugmyndum sem
upp koma og þar með tryggja og
treysta grundvöll þeirra fyrirtækja
og atvinnutækifæra sem verið er að
setja af stað,“ segir Þorsteinn.
Vopnfirðingar virkjaðir
í stefnumótun í atvinnulífinu
Sókn er besta
vörnin gegn
fólksfækkun
Þorsteinn Steinsson, sveitar-
stjóri Vopnafjarðarhrepps.
verður á
ra að
ganga
að við
fáum eitthvað úr henni líka. Það
er hérna fólk í útskipuninni sem
hefur verið á atvinnuleysisskrá.
Það er því bjartara yfir mönnum
og eins og veðrið er í dag, glaða-
sólskin og hlýtt, eru menn bara
bjartsýnir. Svo þarf bara að koma
hinu fyrirtækinu, rækjuverk-
smiðjunni, í gang á ný og þá fer
heldur betur að lyftast brúnin á
mönnum,“ sagði Siguður.
Ljós í myrkri en blikur á lofti
Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri
í Bolungarvík, segir að vissulega
sé loðnuvertíðin núna ljós í
myrkri og kominn sé meiri afli í
land en lengi áður miðað við árs-
tíma. En hann segir að blikur séu
á lofti í atvinnumálum bæjarins og
ráðist framvindan mikið af við-
brögðum Byggðastofnunar. Ráð-
gerður er fundur í dag milli bæj-
arstjórans, formanns verkalýðs-
og sjómannafélagsins og for-
manns Byggðastofnunar. Ólafur
segir að farið verði yfir stöðu
mála og vonast hann eftir því að
það náist samkomulag um næstu
aðgerðir.
„Ég trúi því og vona að það sé
fullur vilji til þess hjá stjórnvöld-
um að mæta þessum vanda okkar.
Það skal viðurkennast að okkar
vandi eins og annarra er fólginn í
erfiðri rekstrarstöðu rækjuverk-
smiðju og því er mjög eðlilegt að
menn vilji vera varkárir í því að
fara af stað nema að hafa eðlilega
markaðsstöðu. Það þýðir því ekki
að vera í sandkassaleik heldur að
ræða málið saman málefnalega og
á vitrænan hátt,“ segir Ólafur.
Hann segir að haldi Byggða-
stofnun að sér höndum hljóti það
að vera næst í stöðunni að skipta-
stjóri taki ákvörðun um uppboð á
eignum fyrirtækisins.
Fá önnur tækifæri til búsetu
Ólafur segir að fá tækifæri séu
til búsetu í bænum ef ekki tekst að
reisa við rekstur verksmiðjunnar.
Nauðsynlegt sé að halda í reynslu-
ríkt starfsfólk sem kann að vinna
og gera verðmæti úr því hráefni
sem það hefur í höndunum. „Því
miður er fólk farið að leita at-
vinnu annars staðar og við ótt-
umst mjög að margir komi ekki
aftur. Því endurtek ég að unnið
verði að því að halda þessu
reynsluríka fólki í starfi og því
verði tryggð áframhaldandi störf
í byggðarlaginu,“ segir Ólafur.
Hann segir að það sé sterklega í
umræðunni að margir íbúar séu
farnir að huga til hreyfings vegna
stöðunnar í atvinnumálum. Hátt í
80 manns voru í starfi hjá rækju-
vinnslunni Nasco og nú séu 55 á
atvinnuleysisskrá.
Davíð Þorkelsson og Svala Einarsdóttir við útskipun á loðnumjöli í blíðunni í gær.
Ljósmynd/Gunnar Hallsson
Unnið var við útskipun á loðnumjöli í Bolungarvíkurhöfn.
rs Karls-
skyri upp
etto fyrir
hann von-
ðjan geri
m sölu á
þríþætta;
r þekki og
, að þeir
g að þeir
mjólkur-
í kjölfar
mjólkur-
ið er selt
rðist ekki
efur raun-
ve margir
frá gam-
Norður-
kaðssetja
Hólmgeir
gja til um
ótlandi
hefur selt
slanir um
yggst nú
na í verk-
Jótlandi
mariner-
akjöts og
ið Nettó,
ISO og fleiri danskar verslanakeðj-
ur um sölu á því, að sögn Leifs
Þórssonar, sem verður fram-
kvæmdastjóri verksmiðjunnar í
Vidbæk á Jótlandi. Framleiðslu-
geta hennar er um 20 tonn á mán-
uði.
Hin fyrirtækin leggja fyrst og
fremst áherslu á að kynna vöru sína
og hafa fyrstu skrefin verið tekin í
samningum erlendis. Fyrirtækið
Rúllur sem er með verksmiðju í
Sandgerði hefur þegar náð samn-
ingum við Norðmenn um sölu á
fiskirúllum og vonast til þess að
semja við veitingasölur og mötu-
neyti í Danmörku.
Zanus Rex, sem keypti fram-
leiðslu og viðskiptasamninga Akva
á Akureyri á síðasta ári, hefur end-
urnýjað samning fyrri eigenda við
dönsku járnbrautirnar um sölu á
drykkjarvatni í lestum þeirra.
Nemur hann um milljón flöskum á
ári, að sögn Ásgeirs Kolbeinssonar
framkvæmdastjóra sem segir að
auk áðurnefnds samnings hafi verið
gerðir nokkrir minni.
Íslenskt-franskt eldhús hefur
þegar gert samninga við danskt
dreifingarfyrirtæki um sölu á fiski-
paté og Norðurbragð, sem kynnir
ferskan, frosinn fiskikraft í súpur
og sósur, hefur samvinnu við Út-
flutningsráð um dreifingu og sölu í
Danmörku en það selur einkum til
veitingahúsa og mötuneyta, að sögn
framkvæmdastjórans, Halldórs
Árnasonar.
ja og Útflutningsráðs í Bella Center í Kaupmannahöfn
na
Morgunblaðið/Urður
Ferskur fiskikraftur frá Norðurbragði var kynntur í ýmsa fiskrétti sem mæltust vel fyrir.