Morgunblaðið - 01.03.2001, Blaðsíða 54
MINNINGAR
54 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Sigurbjörn Krist-insson fæddist í
Halakoti í Flóa 2.
nóvember 1956.
Hann lést á heimili
sínu, Brúnalaug 2,
Eyjafjarðarsveit,
hinn 22. febrúar síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru hjónin
Svanhildur Lilja
Kristvinsdóttir og
Kristinn Helgason.
Systkini Sigurbjarn-
ar eru: Helgi, búsett-
ur á Akureyri; Jó-
hannes, búsettur í
Vestmannaeyjum; Vilborg, búsett
í Mosfellsbæ, og Svanur, búsettur
á Selfossi.
Með fyrri konu sinni, Rann-
veigu Tryggvadóttur, átti Sigur-
björn synina Tryggva Rafn, f. 1.
desember 1983, og Helga Krist-
vin, f. 20. apríl 1989. Sigurbjörn
kvæntist Jóhönnu
Kjartansdóttur hinn
18. júlí 1999 og eiga
þau soninn Jóhann
Frey, f. 30. septem-
ber 1992.
Sigurbjörn lauk
prófi frá Samvinnu-
skólanum á Bifröst
vorið 1976 og prófi í
félags- og fjölmiðla-
fræði frá Gauta-
borgarháskóla árið
1987. Frá haustinu
1989 starfaði Sigur-
björn aðallega við
kennslu og náms-
gagnagerð hjá Tölvufræðslunni á
Akureyri. Auk þess sá hann um
bókhald og vann ýmis sérverkefni
fyrir nokkur fyrirtæki á Akur-
eyri.
Útför Sigurbjarnar fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Fallinn er fyrir illvígum sjúkdómi
langt um aldur fram bróðir minn,
Sigurbjörn Kristinsson frá Hala-
koti. Á stundu sem þessari, þegar
maður á besta aldri er hrifinn frá
fjölskyldu og öðrum ástvinum á svo
miskunnarlausan hátt, koma óneit-
anlega upp í hugann áleitnar spurn-
ingar um tilgang þessarar jarðvist-
ar.
Hugurinn reikar til sumarsins
1989. Sigurbjörn hafði búið í Sví-
þjóð um nokkurra ára skeið. Við
Lydía ákváðum að bregða okkur af
bæ og heimsækja hann. Sigurbjörn
orðaði það þá við mig að vegna
breyttra fjölskylduhaga ætlaði
hann að flytja aftur heim og hvort
ég vissi um vinnu fyrir sig. Ég var
nýtekinn við sem framkvæmda-
stjóri hjá Tölvufræðslunni á Akur-
eyri og bauð honum vinnu við
kennslu og námsgagnagerð. Þar
með hófst samstarf sem síðar þró-
aðist upp í djúpa og einlæga vin-
áttu.
Það kom strax í ljós að Sigur-
björn var einstaklega metnaðarfull-
ur í öllu sem hann tók sér fyrir
hendur. Námsefnið sem hann
kenndi var í sífelldri endurskoðun,
jafnvel svo að mér fannst stundum
nóg um. En ef ég gerði athugasemd
var svarið jafnan þetta: „Helgi, dag-
inn sem ég hætti að hafa gaman af
þessu þá hætti ég að kenna.“
Sigurbjörn tók hagsmuni Tölvu-
fræðslunnar iðulega fram yfir sína
og þýddi þá lítið að mótmæla. Ég
hef fáum mönnum kynnst sem hafa
verið jafnsnöggir að finna rök fyrir
því af hverju það var svo sjálfsagt
að gera öðrum greiða. En eitt var
þessum annars glaðlynda og hæfi-
leikaríka manni ómögulegt að læra
og það var að verðleggja vinnuna
sína. Um það getur fjöldi manns
borið sem hann hefur hjálpað á
undanförnum árum. „Þetta tók
enga stund,“ eða „þetta var svo lít-
ið,“ var mun algengara svar en að
hann þægi greiðslu fyrir vinnu sem
þó oft flokkaðist undir sérfræðiað-
stoð.
Þrátt fyrir að Sigurbjörn væri
dulur um eigin mál og bæri tilfinn-
ingar sínar ekki á torg hafði hann
mjög ákveðnar skoðanir á þjóðmál-
um og afar sterka réttlætiskennd. Í
Sigurbirni áttu þeir sem minna
mega sín öflugan málsvara.
Sigurbjörn var mikill náttúruunn-
andi í víðtækustu merkingu þess
orðs. Vorið og sumarið var hans
tími og að fylgjast með vexti og við-
gangi gróðursins var hans líf og
yndi. Hann var ótrúlega fróður um
allt sem varðaði náttúruna og fór
ekki dult með þær áhyggjur sem
hann hafði af því hvernig við geng-
um um landið. „Hugsaðu þér bara
ástandið, Helgi, ef þessi þjóð væri
milljarður,“ sagði hann oft þegar
honum ofbauð ruslið og sóðaskap-
urinn í íslenskri náttúru.
Jóhanna mín, við sendum þér,
Tryggva Rafni, Helga Kristvin, Jó-
hanni Frey og öðrum ástvinum inni-
legustu samúðarkveðju okkar við
fráfall manns sem fyrst og síðast
var drengur góður.
Helgi Kristinsson og fjölskylda.
Kæri vinur. Á lífsleiðinni fer ekki
hjá því að við höfum kynni af æði
mörgum. Suma þekkjum við allt frá
barnæsku, öðrum kynnumst við síð-
ar á lífsleiðinni. Við suma missum
við fljótlega aftur öll tengsl en aðrir
staldra lengur við. Hverju þessi
kynni skila okkur þegar upp er
staðið er hins vegar í engu sam-
hengi við þann árafjölda sem við
höfum þekkt viðkomandi. Það hef
ég svo glögglega fundið þessa síð-
ustu daga. Þannig eru ekki nema
um fjögur og hálft ár síðan við
kynntumst en samt finn ég svo sárt
fyrir því mikla tómarúmi sem
myndaðist við brotthvarf þitt. Þú
ert einn af þeim sem ég er glaður að
hafa kynnst.
Ekki man ég svo glöggt hvernig
fundum okkar bar fyrst saman eða
hvað okkur fór á milli en miðað við
það sem á eftir fylgdi hafa þau sam-
skipti varla verið mjög alvöruþrung-
in. Það var nefnilega þannig að það
heyrði til tíðinda ef við töluðumst
við í fullri alvöru. A.m.k. létum við
það líta þannig út. Við lögðum
metnað okkar í að vera helst aldrei
sammála um nokkurn skapaðan hlut
á yfirborðinu en þróuðum með okk-
ur sérstaka þrætubókarlist þar sem
allt gat orðið okkur að yrkisefni.
Hrepparígur af öllu tagi var vinsælt
umfjöllunarefni, pólitíkin fékk sinn
skerf og yfirleitt hvert það dæg-
urmál sem efst var á baugi í þjóð-
félagsumræðunni hverju sinni. Þú
hafðir þann skemmtilega eiginleika
að geta séð nýjar og óvenjulegar
hliðar á málum og varst ófeiminn
við að draga þær fram. Þannig gát-
um við setið á kaffistofunni í Furu-
völlunum og þráttað tímunum sam-
an og mikið á ég eftir að sakna
þessara stunda. Ekki má þó skilja
þetta þannig að við höfum sífellt
verið að rífast því það gerðum við
aldrei. Undirtónninn var líka stund-
um alvarlegri en virtist við fyrstu
sýn.Til að vera fullkomlega trúr
þessum samskiptamáta okkar þá
ætti ég auðvitað að nota þetta tæki-
færi til að skamma þig fyrir að
hlaupast frá hálfkláruðu verki.
Minna þig á að þú áttir t.d. eftir að
koma til að taka út hjá mér hellu-
lögnina eins og þú varst búinn að
lofa enda varstu óspar á að upplýsa
mig um sérþekkingu þína á þessu
sviði.
Um hugann þjóta ótal skemmti-
leg minningarbrot varðandi það sem
okkur fór á milli. Eftirminnileg er
t.d. skipulagning hinnar miklu svað-
ilfarar sl. haust þegar þú við þriðja
mann náðir í gamla Land Roverinn
suður yfir heiðar og fannst viðeig-
andi að koma norður Sprengisand.
Ég var svo heppinn að rekast á ykk-
ur félagana á hálendinu ofan Eyja-
fjarðar þegar þið áttuð tiltölulega
skammt eftir til byggða. Mig minnir
að það hafi verið eftir að olíutank-
urinn fór að leka en áður en gír-
stöngin brotnaði. Þarna varstu svo
sannarlega í essinu þínu, enda
ástæða til. Veðrið var eins og það
getur best orðið og öræfin skörtuðu
sínu fegursta með nýjum snjó á
fjallatoppum. Þá munu mér seint
líða úr minni sögurnar frá æsku-
stöðvum þínum á Suðurlandi. Menn
og málefni beinlínis lifnuðu við í
meðförum þínum þannig að maður
veltist um af hlátri. Þannig mun ég
alltaf minnast þín og komast í gott
skap.
Áfallið var mikið þegar sjúkdóm-
ur þinn greindist í lok nýliðins árs.
Við vissum fljótlega að baráttan
yrði erfið en ekki að við yrðum að
kveðja þig svo fljótt. Þín verður víða
sárt saknað en enginn hefur þó
misst jafnmikið og Jóhanna og
strákarnir þínir. Það er hjá þeim og
öðrum aðstandendum sem hugur
okkar er á þessum erfiðu tímum.
Halldór Arinbjarnarson.
Lífsklukka þín er hljóðnuð.
Hvað það tekur mig sárt að lífi
þínu skuli vera lokið, þú sem varst
alltaf svo hress og kátur.
Hver á nú að slá fyrir mig Big
Ben klukkuna í Halakoti eða ein-
hverjar klukkur úti í heimi? Hver
gefur mér nú skemmtilegar bænir?
Hver snýr núna öllu við á heimilinu
eftir nokkurra daga heimsókn?
Ekki verða fleiri lopahúfur og dúsk-
ar hannaðir af okkur og ég sem
gleymdi að sýna þér dúskaverk-
smiðjuna mína sem tók við af Jóa.
Elsku Simbi, það eru svo margar
fallegar minningar sem ég á um þig
og er svo þakklát fyrir í dag.
Eins og allir dagar í Halakoti fyr-
ir margt löngu. Saman í Vaglaskógi,
saman á ljóðakvöldi, saman á heim-
ili ykkar Jóhönnu í sumar og aftur
saman í sumar í Eyjum á pysjuveið-
um, svo að lokum saman fyrir þrem-
ur vikum þegar við komum norður
til ykkar.
Takk fyrir allt þetta, takk fyrir að
vera vinur minn og mágur.
Að lokum sendi ég þér hljóða
bæn.
Elsku Jóhanna, Tryggvi, Helgi og
Jói. Guð gefi að ykkur takist að
vinna úr þessari miklu sorg sem á
ykkur er lögð.
Samúðarkveðjur sendi ég til allra
þeirra sem létu sér annt um Sig-
urbjörn Kristinsson frá Halakoti.
Petra.
„Ég færi þér slæmar fréttir,
Bragi minn. Sigurbjörn bróðir dó í
morgun.“ Með þessum orðum til-
kynnti vinur minn, Helgi Kristins-
son, mér andlát bróður síns, nán-
asta vinar og samstarfsmanns fyrir
réttri viku. Þótt ég hafi hálft í hvoru
óttast að svona færi, kom fregnin
illa við mig. Ég hélt alltaf í vonina
um að Simbi gæti leiðrétt þá alvar-
legu skekkju sem fram hafði komið í
lífsbókinni hans aðeins nokkrum
vikum áður. Hann ætlaði sér það og
lagði sig allan fram. En þótt enginn
hafi verið snjallari við að finna og
leiðrétta skekkjur í bókhaldi en
Simbi, reyndist þetta verkefni hon-
um ofviða, aldrei þessu vant. Senni-
lega er það Guð einn sem stemmir
af bókhaldið hjá almættinu.
Ég var svo lánsamur að fá að
kenna við hlið þeirra bræðra, Simba
og Helga, í rúman áratug hjá Tölvu-
fræðslunni. Þeir voru einstaklega
samstiga í öllu sem þeir tóku sér
fyrir hendur og tókst á skömmum
tíma að byggja upp skóla í fremstu
röð á sínu sviði hér á landi. Þótt
þáttur Helga sé eflaust mestur í
uppbyggingarstarfinu var hlutur
Simba stór. Sérgrein hans var bók-
færsla og hann lagði mikla áherslu á
og ómælda vinnu í að færa kennslu í
faginu sem næst raunveruleikanum.
Liður í því var m.a. að útbúa
kennsluefni sem svo sannarlega
markaði tímamót. Námsefnið hans
Simba hefur síðan verið í hávegum
haft í nokkrum af virtari viðskipta-
skólum landsins og er verðugur
minnisvarði um snilli hans og
atorkusemi. Hann er jafnframt ann-
ar tveggja höfunda verkefna- og
próftökukerfisins Salómons. Það
snjalla forrit mun vafalaust létta
mörgum kennurum og nemendum
starfið á komandi árum.
SIGURBJÖRN
KRISTINSSON
!
"
#$
!! "#$! % ! & '!
( "#$!'! ) "#! )
!* "#$!'! (
+,
! ! "#$! - ./( !'!
0!0#! ' 0!0!0#!1
%
%
))2 1 )3
&'
$
-!! . 4
$$ )'! 5 , 1 )
+!! 1 +!!
'!&
+!! '!
6'
5 (
#!!
!0"# #$ 4 1 7'!1
(
%
)3
2 )
4&"(0( 88
"!!
$
)
! *
+&
(0"# .! )! ( ( !,/'!
! ( ( )!'!
).*!
((!
(*! )! !,/( ( ( 4 " !'!1
4
)
.$1 $#(0 "
&& 88
.&"$,&
(
,&
(
!
'
!
#""-
. *
/
0
1/
& ""#-22
, &'!1
3
&%
%
3
-69 3) 3
-22 0( :
(
,&
0 *
4
5
!* ,'!
5
!* ! & !'!
+!!
!* ( '!
7 "#
!* (( 7!'!
'$ #
!* (&( /'!
!!
!*'! )$ .! 1 2'
!!
!*'! (*! !'
' 0!0#!1