Morgunblaðið - 01.03.2001, Síða 62
62 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
ENGINN er svo lánsam-
ur að fara í gegnum lífið
án þess að rekast á ein-
hverja veggi öðru hverju.
Þar er mín fjölskylda
ekkert undan skilin. Ég á
tvö börn með hegðunar-
raskanir, þessi börn þurfa
oft á tíðum öðru vísi
vinnuumhverfi en aðrir.
Þau þrífast illa í miklum
hávaða, fjölmenni og óró-
leika. Þetta á auðvitaðað
við um flest börn. Mun-
urinn er sá að „heilbrigð“
börn aðlagast þessum að-
stæðum en börn með
hegðunarraskanir skaðast
oft á tíðum af þessu.
Þetta er ástæða skrifa
minna að þessu sinni.
Börnin mín sem eru 7 og
8 ára þurfa að fara
klukkutíma í gæslu á dag.
Þessi gæsla er svo kall-
aður heilsdagsskóli innan
skólanna. Börnin mín fara
þangað á hverjum degi kl.
12:30 og eru til 13:30.
Nánast öll börn sem
þurfa að nýta gæsluna sameinast á
þessum tíma dagsins. Þetta þýðir
að tugir barna eru samankomnir til
að borða hádegismat í tveim fær-
anlegum stofum (skúrum). Á þess-
um tíma skapast mjög slæmt
ástand, börnin rekast á, eiga erfitt
með að standa í röðum og vera
kyrr. Oftar en ekki leiðir þetta til
ryskinga milli barnanna. Ég lái
þeim það ekki! Það þyrfti ekki að
bjóða nokkurri fullorðinni mann-
eskju að bíða sársvangri eftir matn-
um við sömu aðstæður. Hvernig
getum við þá boðið börnunum okk-
ur þetta? Meðan það ófremdar-
ástand ríkir hér á landi að ekki séu
allir skólar einsetnir þurfum við að
gera einhverjar róttækar breyting-
ar svo allir geti vel við unað. Að
mínu mati og sjálfsagt margra ann-
arra, þyrfti að opna athvarf í hverj-
um skóla þar sem börn með hegð-
unarraskanir og aðra erfiðleika
gætu verið í hádeginu og á þeim
tímum sem þau ekki geta setið inni
í kennslustund. Í athvarfi sem
þessu þyrfti að starfa fagfólk, þar
vil ég sértaklega kalla til leikskóla-
kennara. Mín reynsla er sú að
menntun þeirra hentar einkar vel til
þess að starfa með börnum í vanda.
Með opnun slíks athvarfs losnar
gæslan við ákveðna spennu og get-
ur betur sinnt „heilbrigðu“ börn-
unum. Betur má ef duga skal, þetta
leysir ekki allan gæsluvandann en
væri þó skref í rétta átt. Þó barn
eigi ekki við erfiðleika að stríða þá
reynast þessar aðstæður þeim erf-
iðar. Við megum ekki gleyma því að
börn þrífast best í skipulögðu um-
hverfi þar sem ró þeirra er lítið
raskað. Helst þyrfti meira rými,
fleira fagfólk og skipulagða starf-
semi svo einhver skynsemi væri í
rekstri gæslna á vegum grunnskól-
anna.
Sennilega hugsa margir er þessa
grein lesa, hvers vegna er þetta fólk
að senda börnin sín í gæslu, af
hverju er það ekki bara með þau
heima? Það væri einfaldast fyrir
alla og ódýrast fyrir menntakerfið!
En svo auðvelt er það ekki. Þjóðfé-
lagið í dag býður hreinlega ekki upp
á að annað foreldrið sé heima.
Venjulegt vísitöluheimili þarfnast
tveggja fyrirvinna! Ég væri meir en
til í að vera heima allan daginn og
hugsa um börnin mín. Við vorum
svo lánsöm að ég gat (með herkj-
um) minnkað vinnu mína um helm-
ing. Mitt mat er að uppeldi barna
okkar sé fjárfesting til framtíðar.
Ég hvet alla foreldra er þurfa að
nýta gæslu skólanna að þrýsta á
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og
krefjast úrbóta á þessu sviði. Ég
hvet Fræðslumiðstöð til að leggja
nú fleiri krónur í uppbyggingu
starfs fyrir börn með sérþarfir inn-
an skólanna. Það mun skila sér þeg-
ar til lengri tíma er litið!
Það skal þó tekið fram að í Sel-
ásskóla þar sem börnin mín stunda
nám er allt kapp lagt á að öllum líði
vel hvort sem þeir eru heilbrigðir
eða ekki. Þó, eins og annars staðar,
skortir skólann fjármagn til að gera
enn betur. Eitt er víst að viljinn er
fyrir hendi í Selásskóla, þangað
ættu aðrir skólar að sækja sína fyr-
irmynd!
KATRÍN BJÖRK
EYJÓLFSDÓTTIR,
Skógarási 5, Reykjavík.
Frá Katrínu Björk
Eyjólfsdóttur:
Opna þyrfti athvarf í hverjum skóla þar
sem börn með hegðunarraskanir og aðra
erfiðleika gætu verið á þeim tímum sem
þau geta ekki setið inni í kennslustund,
segir í greininni.
Hegðunar-
raskanir –
gæsla í skólum
Morgunblaðið/Þorkell