Morgunblaðið - 14.03.2001, Síða 44

Morgunblaðið - 14.03.2001, Síða 44
UMRÆÐAN 44 MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ TVEIR ungir nem- ar í sjávarútvegsfræð- um við Háskólann á Akureyri skrifa grein í Morgunblaðið þriðju- daginn 6. mars sem ber yfirskriftina ,,Vandinn skelfilegur verði ekki brugðist við“. Í greinini er ráð- ist ómaklega að Starfsgreinasambandi Íslands og forystu- sveit þess,sérstaklega þó formanni sam- bandsins Halldóri Björnssyni. Vitnað er í fund sem forystumenn sambandsins áttu með ríkisstjórn Íslands um byggða- og atvinnumál á landsbyggðinni. Talað er um að stjórnendur Starfsgreina- sambandsins séu úti á þekju í um- ræðum um sjávarútvegsmál á Ís- landi bæði varðandi veiðar og vinnslu. Greinarhöfundar leyfa sér að rangtúlka skoðanir sambandsins í stað þess að kynna sér málið eins og eðlilegt hlýtur að teljast í málum sem þessum. Þar sem ég er einn af svoköll- uðum forystumönnum í Starfs- greinasambandinu tel ég mig tilknúinn að svara þessari grein þrátt fyrir að hún sé varla þess verð enda full af hroka og útúr- snúningum. Sá sem þetta skrifar hefur yfir 20 ára reynslu af sjáv- arútvegsmálum, hefur starfað í fiskvinnslu, setið í stjórnum útgerðar og fiskvinnslufyrirtækja auk þess að vera í for- svari fyrir fiskvinnslu- fólk á Íslandi til fjölda ára og þykist því þekkja nokkuð vel til þessara mála. Ekki síst vegna þessa hef ég komið að því að móta stefnu Starfsgreina- sambandsins í sjávar- útvegsmálum sem til stendur að ljúka með vorinu. Stefnu sem byggist á skoðunum fiskvinnslufólks um að efla landvinnslu og þar með byggð í landinu. Ég er sem sagt landsbyggðarmaður eins og þeir félagar, reyndar er annar greinarhöfundurinn, Páll Kristjáns- son, sveitungi minn frá Húsavík og þekkir því til starfa minna að verkalýðsmálum og málefnum fisk- vinnslufólks. Leitt er að heyra að hann telji forystusveit Starfs- greinasambandsins vera á villigöt- um í sjávarútvegsmálum, forystu- sveit sem ég tilheyri. Að sjálfsögðu er honum frjálst að hafa sínar skoð- anir, þrátt fyrir að ég telji að hann hafi átt að kynna sér málið betur áður en hann skrifaði þessa grein. Sérstaklega þrjú atriði fara fyrir brjóstið á greinarhöfundum varð- andi hugmyndir Starfsgreinasam- bandsins í sjávarútvegsmálum. Það eru ummæli Halldórs Björnssonar um að dregið verði úr útflutningi á óunnum fiski, fiskur veiddur í ís- lenskri lögsögu verði boðin til sölu á Íslandi og að fiskvinnsluhúsum verði gert kleift að eignast kvóta. Halldór Björnsson er í góðu sam- bandi við félagsmenn Starfsgreina- sambandsins og skynjar stöðu þeirra vel, stöðu fiskvinnslufólks sem kallar eftir auknu starfsöryggi og kvótakerfi sem tryggir búsettu og starfsöryggi þeirra. Þetta er það sem formaður Starfsgreinasam- bandsins hefur verið að kynna und- anfarið og sjávarútvegsnemarnir leyfa sér að rangtúlka. Í fyrsta lagi hlýtur að teljast eðli- legt að unnið verði að því að draga verulega úr útflutningi á óunnum fiski sem veiddur er í íslenskri lög- sögu og fiskvinnslufólki verði veitt þar með aukið starfsöryggi og sjáv- arútvegsfræðingum þar með. Vandi landvinnslunar í dag snýst öðru fremur um að tryggja fyrirtækjum, sem skapa bæði atvinnu og verð- mæti, aðgang að hráefni til vinnslu, það verður ekki gert með því að flytja fiskinn óunnin á markaði er- lendis. Forystumenn Starfsgreina- sambandsins hafa ekki haldið því fram að að stöðva eigi allan útflutn- ing á óunnum fiski heldur að dregið verði verulega úr honum sem að mínu mati er þjóðhagslega hag- kvæmt. Það er ekki rétt fullyrðing að fyrirtæki hafi ekki náð viðunandi árangri í karfa- og flatfiskvinnslu og þess vegna sé í lagi að flytja þessar tegundir út á erlenda mark- aði, hvað með ÚA, Granda og Har- ald Böðvarsson. Þá er það ekki sjálfgefið að útgerðir með lítinn kvóta fái hærra verð fyrir fiskinn með því að selja hann erlendis eins og fram kemur í greininni. Eins og gefur að skilja sveiflast verð á mörkuðum bæði hér heima og er- lendis. Í öðru lagi er það misskilingur og fáfræði að verið sé að boða að allur fiskur sem veiddur er í íslenskri landhelgi verði boðinn upp á mörk- uðum á Íslandi. Hugmyndin gengur ekki út á það. Hins vegar er talið eðlilegt að fiskverkendum á Íslandi gefist tækifæri á að bjóða í allan fisk sem veiddur er í Íslenskri lög- sögu eftir ákveðnum reglum og fyr- irtæki í útgerð og fiskvinnslu geti byggt sig upp með því að skip í þeirra eigu geti landað reglulega í vinnslu á þeirra vegum eins og þekkt er hjá Útgerðarfélagi Akur- eyrar og öðrum stórum aðilum í sjávarútvegi. Þetta er sennilega eitt besta kerfið ef horft er til starfsöryggis fiskvinnslufólks. Á þessu má sjá að skoðanir sjávarút- vegsfræðinganna eru að nokkru leyti þær sömu og eru innan Starfs- greinasambandsins. Í þriðja lagi hafa verið uppi hug- myndir innan Starfsgreinasam- bandsins að byggðatengja eigi kvótann með því að fiskvinnsluhús/ sveitarfélög geti eignast hlutdeild í kvóta sem unninn verði í viðkom- andi byggðalagi. Að mínu mati er þetta ein besta aðgerðin til að tryggja áframhaldandi byggð á landsbyggðinni sem jafnframt myndi stuðla að auknu starfsöryggi fiskvinnslufólks. Það er óeðlilegt að útgerðaraðili í litlu sjávarþorpi geti komist í þá stöðu að hafa alla þorpsbúa undir hælnum með því að geta selt eða leigt frá sér kvóta úr byggðarlaginu og lagt þar með við- komandi samfélag í rúst. Sveitar- félagið og landverkafólk á sinn rétt enda er fiskurinn í sjónum sameign þjóðarinnar samkvæmt 1. grein laga um stjórn fiskveiða. Þá er rétt að benda þeim félögum á að fisk- vinnslufyrirtæki eiga kvóta í dag þrátt fyrir að þær stundi ekki út- gerð. Kvótinn er skráður á skip í eigu annarra. Það þekkir Páll Kristjánsson úr sinni heimabyggð. Í lokin vil ég bjóða þeim Baldri Snorrasyni og Páli Kristjánssyni sjávarútvegsnemum í heimsókn til Húsavíkur og uppfræða þá um hug- myndir Starfsgreinasambands Ís- lands sem settar voru fram á fundi með ríkistjórn Íslands 9. febrúar 2001. Vandinn skelfilegur verði ekki brugðist við Aðalsteinn Á. Baldursson Fiskvinnsla Sveitarfélagið og land- verkafólk á sinn rétt, segir Aðalsteinn Á. Baldursson, enda er fiskurinn í sjónum sam- eign þjóðarinnar. Höfundur er formaður Matvælasviðs Starfsgreinasambands Íslands. AÐ LOKNUM löng- um aðdraganda ákvað borgarráð Reykjavík- ur loksins 13. feb. sl. um hvað íbúar höfuð- borgarinnar fái að greiða atkvæði laugar- daginn 17. mars: ,,Vilt þú að flugvöllur verði í Vatnsmýri eftir 2016?“, eða ,,Vilt þú að flugvöllur fari úr Vatnsmýri eftir 2016?“ Fimm dögum síðar op- inberaði borgarstjóri sitt eigið val, – flug- völlurinn fari. En hvert ætti hann þá að fara? Fyrir nokkrum vikum var borið í hvert hús höfuðborgarinnar 20 síðna blað frá þróunarsviði Ráðhúss Reykjavíkurborgar undir fyrirsögninni ,,Framtíðarborgin Reykjavík“. Á fjórum síðum í miðju blaðsins er fjallað um flugvall- armálið, og borgarbú- um þar m.a. bent á að ef þeir kjósi flugvöll- inn burt úr borginni séu þrír kostir fyrir hendi, Löngusker, Hvassahraun eða Keflavík. Lönguskerjum hafnað Ýmsar hugmyndir hafa áður verið kynntar um gerð nýs flugvallar á sjávarfyllingum í Skerjafirði, þ. á m. á Löngu- skerjum. Þótt enn séu í kynning- argögnum Reykjavíkurborgar tí- undaðir meintir kostir og gallar þeirra var þessi hugmynd þó í reynd formlega afgreidd út af borð- inu í ,,Greinargerð um flugvallar- hugmyndir á höfuðborgarsvæðinu“, sem borgarverkfræðingur gerði fyrir ,,Samvinnunefnd um svæðis- skipulag á höfuðborgarsvæðinu“, og kynnt var á fundi borgarráðs 16. jan. sl. Þar segir á bls. 14: ,,Ekki verða með lauslegri athugun fundin rök sem réttlæta frekari skoðun á flug- vallargerð í Skerjafirði heldur verði leitað annarra lausna varðandi flutning Reykjavíkurflugvallar ef til þess kæmi. Sérstök umsögn Borg- arskipulags Reykjavíkur var einnig mjög neikvæð varðandi staðsetn- ingu flugvallar í Skerjafirði.“ Til viðbótar hefur borgarstjóri nú fyrir nokkru lýst þeirri skoðun sinni, að flugvöllur úti í Skerjafirði kæmi ekki til álita með hliðsjón af ýmsum umhverfisþáttum. Þar með hafa bæði embættis- menn og ráðandi stjórnmálamenn Reykjavíkurborgar hafnað flugvelli úti í Skerjafirði. Sama sinnis eru samgönguyfirvöld og flugrekendur. Hvers vegna er þá þessi kostur enn kynntur í dreifigögnum Reykja- víkurborgar og á spjöldum og myndböndum hennar á flugvalla- sýningunni í Ráðhúsinu í liðinni viku? Hvassahrauni einnig hafnað Í sömu kynningargögnum Reykjavíkurborgar er einnig bent á ,,nýjan völl í Hvassahrauni sunnan Hafnarfjarðar“ sem hugsanlegt flugvallarstæði, og þar taldir upp sjö meintir kostir hans, en aðeins þrír ókostir. Einn ókostanna er orð- aður svo: ,,Frekari mælinga veð- urfars á svæðinu er þörf.“ Af hálfu ráðgjafa borgarinnar eru þetta væntanlega dulkóðaðar upplýsing- ar, sem á mannamáli þýða: ,,Flug- völlur á þessum stað kemur ekki til álita fyrir innanlandsflugið“! Þessi staðreynd hefur að sjálf- sögðu legið ljós fyrir í marga ára- tugi, og er löngu staðfest bæði af ís- lenskum flugmönnum og öðrum sérfróðum aðiljum, sem að málinu hafa komið. Í ofangreindri grein- argerð borgarverkfræðings, sem kynnt var borgarráði 16. jan., segir t.d. á bls. 17 um þennan kost, – sem reyndar er utan höfuðborgarsvæð- isins: ,,Flugmálastjórn telur ekki fýsilegt að flytja innanlandsflugvöll á völl sunnan Hafnarfjarðar vegna óhagstæðs veðurfars og nálægðar við Keflavíkurflugvöll.“ Í yfirlýsing- um samgönguráðherra, nú síðast í grein hans í Morgunblaðinu sl. sunnudag, hefur hann ítrekað stað- fest að flugvöllur í Hvassahrauni sé ekki talinn raunhæfur kostur. Flugleiðir, og þau eldri flugfélög sem stofnuðu félagið, eiga að baki 63 ára samfellda reynslu af íslensk- um flugrekstri. Maður skyldi því ætla, að til þeirra yrði leitað um álit varðandi gerð hugsanlegs nýs flug- vallar sem miðstöðvar innanlands- flugsins í stað núverandi Reykja- víkurflugvallar. Ég hef það skrif- lega staðfest frá bæði forstjóra Flugleiða og framkvæmdastjóra Flugfélags Íslands, að þeir aðiljar, sem undanfarið ár hafa verið að huga að og viðra opinberlega hug- myndir um nýja flugvelli á sjáv- arfyllingum úti í Skerjafirði og á hrauninu sunnan Hafnarfjarðar, hafi aldrei haft samband við þá eða aðra yfirmenn eða sérfræðinga flugfélaganna um slíka kosti. Það liggur reyndar löngu ljóst fyrir, að bæði flugfélögin hafna alfarið hug- myndum um þessa flugvelli sem ónothæfum fyrir grunnþarfir reglu- bundins áætlunarflugs. Miðað við framangreint skiptir því engu máli hvort forsvarsmenn Reykjavíkurborgar telji t.d. Hvassahraun bókhaldslega áhuga- verðan kost. Sömu aðiljar hafa ítrekað staðfest að gerð og rekstur íslenskra flugvalla sé áfram alfarið á vegum ríkisins, og að Reykjavík- urborg hafi ekki í huga að byggja neinn flugvöll. Þá hafnaði bæjar- stjóri Hafnarfjarðar því 17. jan. sl. að til greina komi að gera flugvöll á þessum stað. Hvers vegna er þá hugsanlegur nýr flugvöllur í Hvassahrauni enn kynntur sem kostur í kynningargögnum borgar- innar? Keflavíkurflugvöllur Frá upphafi umræðna um þetta mál hafa samgönguyfirvöld og flug- rekendur margbent á, að verði flug- vellinum vísað úr höfuðborginni, muni umrædd flugstarfsemi þurfa að flytjast til Keflavíkurflugvallar. Ýmsir þingmenn og sveitarstjórn- arfulltrúar á Suðurnesjum hafa reyndar ítrekað hvatt til slíkrar lausnar, og ekki að ástæðulausu, því þeir átta sig vel á því að þangað myndi þá flytjast fjöldi mjög verð- mætra starfa frá höfuðborginni. Þeir kjósendur höfuðborgarinn- ar, sem nk. laugardag hyggjast greiða atkvæði með því að flugvöll- urinn fari úr Vatnsmýrinni eftir 2016, verða því að gera sér vel ljóst að þeir eru þá jafnframt að greiða því atkvæði að öll umrædd flug- og ferðaþjónusta flytjist frá Reykjavík til Keflavíkur. Lokaorð Ég hvet hins vegar íbúa höfuð- borgarinnar til að láta skynsemi sína ráða í þessu máli og mæta vel á kjörstað á laugardaginn. Þar er rétt að hafa í huga þá miklu þýðingu sem Reykjavíkurflugvöllur hefur almennt á sviði öryggismála lands- ins og borgarinnar í víðtækasta skilningi, og jafnframt grunnhlut- verk hans í áframhaldandi þróun ís- lenskrar flug- og ferðaþjónustu. Greiðum atkvæði með því að flug- völlurinn verði áfram í Vatnsmýr- inni eftir árið 2016. Kynning flugvallarkosta Leifur Magnússon Flugvöllur Ég hvet hins vegar íbúa höfuðborgarinnar, segir Leifur Magnússon, til að láta skynsemi sína ráða í þessu máli og mæta vel á kjörstað á laugardaginn. Höfundur er verkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.