Morgunblaðið - 16.03.2001, Side 1
63. TBL. 89. ÁRG. FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 16. MARS 2001
RÚSSNESKRI farþegaþotu á leið
frá Tyrklandi með 174 innanborðs
var rænt í gær og hún þvinguð til að
lenda í Saudi-Arabíu. Herma fregnir
að ræningjarnir hafi krafist þess að
Rússar hættu hernaði í sjálfstjórnar-
lýðveldinu Tsjetsjníu. Talið var að
ræningjarnir, sem eru að minnsta
kosti tveir, ef til vill fjórir og sagðir
vopnaðir hníf, haka og hugsanlega
sprengjum, væru Tsjetsjenar. Far-
þegar eru flestir rússneskir eða tyrk-
neskir. Fljótlega var allmörgum far-
þegum sleppt og fullyrt var að 15
manns hefði tekist að flýja út um aft-
urdyr en þær fréttir voru ekki stað-
festar. Um miðnætti í gær höfðu
saudiarabískir sérsveitarmenn um-
kringt vélina á flugvellinum í Medina
og var reynt að semja við mennina
um friðsamlega lausn.
Einn af 12 manna áhöfn vélarinnar
hlaut hnífstungu og var sagður alvar-
lega særður. Mun hafa komið til
ryskinga þegar ræningjarnir reyndu
að komast inn í flugstjórnarklefa þot-
unnar. Vélin hrapaði skyndilega nær
þrjú þúsund metra í loftinu meðan
slagsmálin stóðu yfir, að sögn CNN-
sjónvarpsstöðvarinnar.
Rússneskur embættismaður sagði
í gærkvöldi að Vladímír Pútín forseti,
sem var staddur í Síberíu en hélt þeg-
ar aftur til Moskvu, vildi að reynt yrði
að finna friðsamlega lausn á málinu.
En tvær þotur fyrir sérsveitarmenn
hefðu um hríð verið reiðubúnar ef
Saudi-Arabar færu fram á aðstoð.
Flugræningjarnir leyfðu, að sögn
saudi-arabísks embættismanns, kon-
um, börnum og eldra fólki, auk hins
særða, að fara frá borði. Að sögn
saudi-arabísks fréttamanns, er CNN
ræddi við, slepptu ræningjarnir um
60 manns. Sagði hann saudi-arabísk
stjórnvöld reyna að semja við ræn-
ingjana en ekki væri ljóst hverjar
kröfur þeirra væru. „Helsta áhyggju-
efni saudi-arabískra embættismanna
er öryggi farþeganna,“ sagði maður-
inn.
Aleksander Klímov, framkvæmda-
stjóri Vnukovo Airlines, sem rekur
vélina, sagði að af samtölum við flug-
stjóra hennar, Nikolaj Vínogradov,
hefði mátt ráða að ein af kröfum ræn-
ingjanna væri að Rússar hættu hern-
aði í Tsjetsjníu.
Vélinni var rænt nokkru eftir flug-
tak frá Istanbúl klukkan 13.30 í gær
að staðartíma, eða klukkan 11.30 að
íslenskum tíma. Ferðinni var heitið
til Moskvu. Flugvélin er af gerðinni
Túpolev 154 og var í leiguflugi.
Upp úr klukkan þrjú síðdegis að ís-
lenskum tíma lenti vélin í Medina.
Rússneskri farþegaþotu með 174 innanborðs rænt og snúið til Saudi-Arabíu
Ræningjar
slepptu tug-
um gísla
AP
Kona á Vnukovo-flugvelli í Moskvu bíður grát-
andi eftir fréttum af afdrifum fólksins í rúss-
nesku flugvélinni sem var rænt. Á innfelldu
myndinni sést vélin á flugvellinum í Medina í
gærkvöldi.
Riyadh, Ankara, Moskvu. AFP, Reuters.
GOSDRYKKJAFYRIRTÆK-
IÐ Coca Cola í Bandaríkjunum
hefur látið undan þrýstingi frá
kennurum og foreldrafélögum
og ákveðið að draga úr áróðri
sínum fyrir framleiðsluvörunni
í skólum landsins. Frá septem-
ber nk. verður hægt að fá vatn,
ávaxtasafa og fleiri drykki í
gosvélum fyrirtækisins og hið
víðfræga vörumerki verður
fjarlægt af vélunum. Coca Cola
hefur að undanförnu gert sam-
starfssamninga við nokkur fyr-
irtæki er framleiða safa og
fleiri goslausar drykkjarvörur.
Coca Cola hóf að gera samn-
inga við bandaríska skóla fyrir
50 árum um einkaleyfi á gos-
drykkjasölu gegn því að skól-
inn fengi hluta hagnaðarins og
eru slíkar vélar í nær öllum
skólum en fleiri fyrirtæki eru
nú farin að keppa á skólamark-
aðnum.
Offita hrjáir nú 10% allra
bandarískra barna og Samtök
bandarískra hjartasjúklinga
segja að tíðni hjartaáfalla fari
hækkandi meðal barna og ungs
fólks. Offita er sögð vera al-
gengasta ástæðan.
Gosvélar í banda-
rískum skólum
Vatninu
gefið
tækifæri
New York. The Daily Telegraph.
Í ÞVÍ skyni að herða á ráðstöfunum
gegn útbreiðslu gin- og klaufaveiki
boðuðu brezk stjórnvöld í gær slátr-
un minnst 100.000 klaufdýra til við-
bótar við þær rúmlega 200.000 kind-
ur, nautgripi og svín sem nú þegar
hefur verið slátrað eða til stendur að
slátra og eyða. Hollendingar ætla á
mánudag að leggja til að banni við
fyrirbyggjandi bólusetningu búfjár
gegn veikinni verði aflétt í Evrópu-
sambandinu, ESB, að sögn tals-
manns landbúnaðarráðherra lands-
ins, Laurens-Jan Brinkhorst, í gær.
Ekki hafa enn fundist tilfelli gin- og
klaufaveiki í Hollandi.
„Hollenska þingið áleit að slátrun
tugþúsunda og jafnvel hundraða
þúsunda heilbrigðra dýra í varúðar-
skyni væri ósiðleg. Ráðherrann var
sammála og mun ræða málin við hina
ráðherrana (í ESB),“ sagði talsmað-
urinn.
Brezki landbúnaðarráðherrann
Nick Brown skýrði frá fyrirætlunum
stjórnvalda í ræðu í þinginu í Lund-
únum í gær. Æ fleiri lönd grípa til
róttækra varúðarráðstafana til að
hindra að hin bráðsmitandi búfjár-
veiki berist inn fyrir þeirra landa-
mæri. Staðfest var á þriðjudag að
veikin hefði borizt til NV-Frakk-
lands. Um níutíu ríki heims hafa nú
bannað innflutning búfjár, kjöts og
fleiri landbúnaðarafurða, ekki aðeins
frá þeim löndum þar sem veikin hef-
ur greinzt, heldur láta það sama yfir
öll ESB-ríkin ganga.
Framkvæmdastjórn ESB hefur
mótmælt þessum ráðstöfunum, eink-
um banni Bandaríkja- og Kanada-
manna gegn öllum innflutningi kjöt-
og mjólkurafurða frá ESB. Talsmað-
ur framkvæmdastjórnarinnar sagði í
gær, að ekki yrði gripið til gagnráð-
stafana strax, en útilokaði ekki að
banninu yrði svarað með viðskipta-
legum gagnaðgerðum síðar.
Portúgölsk stjórnvöld hvöttu til
þess í gær, að sett yrði bann í öllu
Evrópusambandinu við flutningum á
búfé á fæti. Fyrr í vikunni bönnuðu
Spánverjar, Portúgalar og Belgar
kjötinnflutning frá Frakklandi.
Bretar herða aðgerðir gegn gin- og klaufaveiki
Hollendingar á móti
slátrun í varúðarskyni
Lundúnum. AP, Reuters.
Enn engin merki/28
AP
Franskir embættismenn á eftirlitsstöð í Deulemont í N-Frakklandi með
vatnskönnur sem þeir nota til að blanda í sótthreinsandi efni.
ÁTÖKIN í Makedóníu milli upp-
reisnarsveita albanskra skæruliða
og makedónískra hermanna breidd-
ust út í gær og var, að sögn lögreglu,
barist í grennd Skopje, höfuðborgar
Makedóníu.
Þetta var annar dagurinn í röð
sem herinn og uppreisnarmenn eig-
ast við í hæðunum rétt norður af Tet-
ovo, næststærstu borg Makedóníu.
Íbúar hennar tóku að flýja í gær og
mynduðust langar biðraðir við bens-
ínstöðvar. Að sögn makedóníska rík-
isútvarpsins féllu tveir óbreyttir
borgarar, af albönsku bergi brotnir, í
átökunum. Einn maður lést í fyrra-
dag og fjórtán særðust. Heldur dró
úr bardögunum síðdegis í gær.
Færri Bandaríkja-
hermenn í Bosníu
Pentagon, bandaríska varnar-
málaráðuneytið, tilkynnti í gær að
fækkun bandarískra hermanna í
Bosníu væri hafin. Áætlað er að um
1.000 hermenn verði fluttir þaðan.
Ekki er fyrirhugað að fækka í 5.600
manna bandarísku liði í Kosovo en
sveitirnar eru hluti af friðargæsluliði
Atlantshafsbandalagsins, NATO.
Makedónía
Barist í
grennd
Skopje
Tetovo. AP.
Veldur ugg/26