Morgunblaðið - 16.03.2001, Síða 2

Morgunblaðið - 16.03.2001, Síða 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ HÆSTIRÉTTUR segir að tollstjóraembættinu í Reykjavík hafi verið óheimilt að opna bókasend- ingar í þeim tilgangi einum að nálgast vörureikn- inga eða önnur gögn til ákvörðunar aðflutnings- gjalda. Tollframkvæmdin hefði gengið í berhögg við einkalífsvernd stjórnarskrárinnar auk með- alhófsreglu stjórnsýsluréttar, en skattheimtu- sjónarmið hefðu aðallega ráðið henni. Í málinu var deilt um fjórar bókasendingar að utan sumarið 1999. Starfsmenn tollgæslunnar í Reykjavík opnuðu þær í því skyni að nálgast vörureikninga inni í sendingunum, svo að ákvarða mætti virðisaukaskatt sem hluta að- flutningsgjalda, áður en móttakanda var gert viðvart um sendingarnar. Maðurinn sem fékk bókasendingarnar reisti málatilbúnað sinn einkum á því, að tollyfirvöld- um væri óheimilt að stunda reglubundna skoðun og opnun allra bókasendinga, sem berast í pósti frá útlöndum. Gilti einu í hvaða tilgangi slík skoðun væri gerð, hvort heldur væri til inn- heimtu virðisaukaskatts eða eftirlits með inn- flutningi. Tollyfirvöld gætu í mesta lagi krafist opnunar bókasendinga við úrtaksathuganir eða annars, ef sérstök rök væru til þess. Persónuleg afstaða fælist í vali manns á lesefni og með að- gerðunum væri vegið að einkalífi hans og tján- ingarfrelsi. Þeir, sem keyptu bækur frá útlönd- um, sætu heldur ekki við sama borð og aðrir, sem fengju annan varning frá útlöndum, svo sem blöð og tímarit. Málefnaleg mörk valdsins Hæstiréttur segir ótvírætt, að tollstjóraemb- ættið hafi víðtæka heimild samkvæmt lögum til að skoða og rannsaka hvers konar varning, sem til landsins er fluttur. „Þessu valdi tollgæslunnar verða þó sett málefnaleg mörk, er dregin verða af ákvæðum stjórnarskrár og meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar auk annarra laga um réttar- stöðu borgaranna,“ segir Hæstiréttur. Af hálfu tollstjórans hafi hin umdeilda tollmeðferð á bókasendingum einkum verið réttlætt með því, að ríka nauðsyn beri til skilvirkrar innheimtu virðisaukaskatts af innfluttum varningi. Þá hafi tollstjórinn lagt á það ríka áherslu, að þessi toll- framkvæmd sé viðtakendum sjálfum til mikils hagræðis. Hæstiréttur segir ljóst, að skattheimtusjón- armið hafi aðallega ráðið tollframkvæmdinni. Póstsendingar frá öðrum löndum falli undir ákvæði stjórnarskrárinnar um friðhelgi einka- lífs. Afskipti af þeim verði því að eiga sér skýra og ótvíræða lagastoð og ríka réttlætingu. Að- ferðin sem slík sé til þess fallin að þrengja að friðhelgi einkalífs og nægi það ekki eitt út af fyr- ir sig, að starfsmenn við tollgæslu séu bundnir þagnarskyldu. Tollstjórinn hafi ekki sýnt fram á, að nauðsynlegt hafi verið að opna reglubundið og fyrirvaralaust póstsendingar að utan að viðtak- endum fornspurðum til að ná því lögmæta mark- miði að innheimta aðflutningsgjöld og ekki hafi verið kostur á öðrum aðferðum í því skyni. Hæstiréttur segir tollstjóra óheimilt að opna allar bókasendingar að utan Tollframkvæmd í ber- högg við stjórnarskrá Þrír heimasigrar í körfuboltanum/B2 Kristinn í hóp bestu dómara í Evrópu/B1 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 4 SÍÐUR Sérblöð í dag  Á FÖSTUDÖGUM RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið út ákæru á hendur Atla Helgasyni fyrir að hafa banað Einari Erni Birgissyni með því að slá hann margoft í höfuðið með hamri á bif- reiðastæði í Öskjuhlíð í Reykjavík hinn 8. nóvember sl. Atli hefur játað að hafa orðið Einari Erni að bana. Ríkissaksóknari krefst þess að Atli verði dæmdur til refsingar og hann verði sviptur leyfi til málflutn- ings fyrir héraðsdómi. Ríkissaksóknari kærir Atla einnig fyrir fjárdrátt með því að hafa dreg- ið sér og notað heimildarlaust í eig- in þágu rúmlega fjórar milljónir sem voru eign fyrirtækis sem hann og Einar Örn áttu. Lögmaður fyr- irtækisins krefst þess að Atli verði dæmdur til að greiða fyrirtækinu rúmlega sex milljónir auk dráttar- vaxta. Atli er einnig kærður fyrir fjár- drátt með því að hafa í opinberu starfi á árunum 1999 og 2000 sem héraðsdómslögmaður og skipaður skiptastjóri dregið sér 1,2 milljónir króna. Þá er honum gefið að sök að hafa dregið sér um 1,7 milljónir sem skiptastjóri þrotabús Agnars W. Agnarssonar. Foreldrar Einars Arnar krefjast þess að Atli verði dæmdur til að greiða þeim samtals 10 milljónir í miskabætur og unnusta hans krefst um 19 milljóna í bætur fyrir missi framfæranda og 5 milljóna í miska- bætur. Ákæra gefin út á hendur Atla Helgasyni GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráð- herra hefur að tillögu veiðimála- stjóra staðfest fimm friðunarsvæði þar sem eldi frjórra laxa í sjókvíum er óheimilt. Fyrir liggja fagleg álits- gerð Veiðimálastofnunar um málið, umsögn dýralæknis fisksjúkdóma og tilmæli veiðimálanefndar. Markaður er rammi þeirra svæða sem fiskeldi getur þróast á en jafnframt verður heimilt að vera með regnbogasilung, bleikju og ófrjóan lax víðar. Eftirtalin svæði við strendur landsins eru nú friðuð: Í Faxaflóa innan línu sem dregin er frá Garð- skaga að Malarrifi á Snæfellsnesi, í Breiðafirði innan línu sem dregin er frá Hellissandi að Látrabjargi, í Húnaflóa og Skagafirði innan línu sem dregin er frá Geirólfsgnúp að Siglunesi, við Skjálfanda innan línu sem dregin er frá Bjarnarfjalli að Tjörnesstá og við Norðausturland innan línu sem dregin er frá Hraun- hafnartanga að Fonti á Langanesi, frá Fonti að Glettinganesi og frá Glettinganesi að Dalatanga. Reglu- gerðin hefur þegar öðlast gildi. Í umsókn veiðimálastjóra segir meðal annars: „Náttúrulegir laxa- stofnar eru mikilvæg og verðmæt auðlind, sem nauðsynlegt er að vernda. Því er nauðsynlegt að beina laxeldi í sjókvíum inn á svæði, sem minna viðkvæm teljast gagnvart um- hverfisáhrifum á veiðiár.“ Einnig er tekið fram að endurskoða megi frið- uð svæði síðar. Svæði undir lax- eldi afmörkuð                                                 FORSTJÓRI Byggðastofnunar mun leita eftir samningum við Kaupfélag Skagfirðinga á Sauðárkróki um leigu efstu hæðar byggingar KS við Ár- torg. Sá kostur að fara með starf- semina inn í Stjórnsýsluhúsið við Skagfirðingabraut er því úr sögunni. „Við erum búnir að athuga málið gaumgæfilega og eins og landið ligg- ur nú er þetta besti kosturinn,“ segir Theódór Agnar Bjarnason forstjóri Byggðastofnunar. Verðhugmynd Byggðastofnunar gengur út frá 740 krónum á fermetrann í húsi KS, en þeim bauðst fermetrinn í Stjórn- sýsluhúsinu á 850 krónur eftir að eigandi Stjórnsýsluhússins, sveitar- félagið Skagafjörður, lækkaði tilboð sitt úr 980 krónum. „Við verðum með ódýrari leigu á fermetra og getum komið allri starf- seminni fyrir á einni hæð,“ segir Theódór. Gísli Gunnarsson forseti sveitar- stjórnar sveitarfélagsins Skaga- fjarðar segist undrandi á þessum málalyktum, enda hafi hann haldið að Byggðastofnun færi í Stjórnsýslu- húsið við Skagfirðingabraut. „Þetta er undarleg ákvörðun, sér- staklega þar sem Byggðastofnun á þriðjunginn í Stjórnsýsluhúsinu, þar sem þróunarsvið hennar er nú. Við höfðum lækkað leiguna úr 980 krón- um á fermetrann í 850 kr en við töld- um það ekki okkur samboðið að keppa frekar við Kaupfélag Skag- firðinga. Síðasti fundur okkar með forstjóra Byggðastofnunar og tveim- ur starfsmönnum stofnunarinnar, gaf okkur tilefni til bjartsýni, en þessar fréttir valda vonbrigðum.“ Byggðastofnun til Sauðárkróks Húsnæði Kaup- félagsins talið besti kosturinn BANDARÍSKIR landgönguliðar frá varnarliðinu veittu í gær banda- rísku flugmönnunum Barböru Gard og Gwen Bloomingdale, sem létust í flugslysi við Vestmannaeyjar 6. mars sl., heiðursfylgd frá bænahúsi Fossvogskirkju til Keflavík- urflugvallar. Í fréttatilkynningu frá banda- ríska sendiráðinu segir að líkams- leifar kvennanna hafi verið brennd- ar og voru kerin send utan til eftirlifandi ættingja í gær. Barbara Gard var landgönguliði í bandaríska hernum til margra ára og var höfuðsmaður þegar hún lauk virkri herþjónustu fyrir land- gönguliðið. Þá starfaði hún lengi með Þjóðvarðliði Texas og hafði þar einnig tign höfuðsmanns. Bloomingdale var lögfræðingur og rak fyrirtæki. Morgunblaðið/Ásdís Líkamsleifar kvennanna voru brenndar og voru duftkerin flutt til Bandaríkjanna í gær. Heiðursfylgd fyrir látna flugmenn FJÓRIR voru fluttir á slysadeild eft- ir umferðarslys við harðan árekstur á Strandarheiði, á Reykjanesbraut- inni, á ellefta tímanum í gærkvöld. Lögregla og sjúkrabílar fóru á slysstað auk tækjabíls sem kallaður var út til að losa fólk úr bílunum. Loka þurfti Reykjanesbrautinni vegna slyssins um tíma. Ekki var vit- að hversu alvarlega fólkið var slasað. Fjórir slösuðust á Strandarheiði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.