Morgunblaðið - 16.03.2001, Síða 10
FRÉTTIR
10 FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HEILSUGÆSLAN er hornsteinn
heilbrigðisþjónustunnar. Með of lít-
illi nýliðun í röð sérfræðinga í heim-
ilislækningum og brotthvarfi manna
úr greininni molnar hornsteinninn,
að því er fram kom í máli Katrínar
Fjeldsted, Sjálfstæðisflokki á Al-
þingi, sem gerði heilsugæsluna í
Reykjavík að umtalsefni í fyrir-
spurnatíma ásamt flokkssystur sinni
Ástu Möller. Gerðu þær heilbrigðis-
ráðherra fyrirspurnir varðandi
möguleika á þjónustusamningum um
rekstur heilsugæslustöðva í Reykja-
vík og inntu jafnframt eftir ástæðum
fyrir því að heimilislæknar hafa ekki
fengið leyfi hjá Tryggingastofnun
ríkisins til að starfa sjálfstætt við
sérgrein sína á eigin stofum á höf-
uðborgarsvæðinu undanfarin ár.
Katrín sagði að í dag vantaði 15–20
heimilislækna á höfuðborgarsvæð-
inu og um 20 á landsbyggðinni. Með-
alaldur sérfræðinga í heimilislækn-
ingum færi hækkandi, en sífellt fleiri
verkefnum væri beint að heilsugæsl-
unni. Til að fá fleiri nýliða inn í hóp
heimilislækna þyrfti stefna stjórn-
valda að vera skýr og leggja þyrfti á
það áherslu að frumþjónustan stæði
undir nafni.
„Þótt talsvert hafi áunnist og
ráðuneyti heilbrigðismála lagt sig
fram um að fjölga læknum dugar það
ekki til þegar fólk flyst til Reykjavík-
ur í þeim mæli sem verið hefur. Þeir
læknar sem enn eru í vinnu mega
ekki brenna út vegna þrýstings ut-
anfrá, þeir þurfa að fá sín eigin frí og
hafa taugar til að yfirgefa svæði sitt
og sjúklinga þótt enginn fáist afleys-
ari. Þetta er því vandamál fólksins
sem ekki kemst að,“ sagði Katrín
ennfremur.
Í svörum Ingibjargar Pálmadótt-
ur heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra kom fram að í auknum mæli
væri verið að vinna að gerð þjónustu-
samninga á vegum hinna ýmsu ráðu-
neyta. Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið hefði unnið ötullega
að gerð árangursstjórnarsamninga
og þjónustusamninga við eigin stofn-
anir og sjálfstætt starfandi heil-
brigðisstofnanir. Gerði hún ráð fyrir
að samningum af þessum toga mundi
fjölga á næstu mánuðum. Kom fram
að innan heilsugæslunnar í Reykja-
vík væru nú tveir þjónustusamning-
ar í gildi, annars vegar við Heilsu-
gæsluna í Lágmúla og hins vegar við
Læknavaktina, og í báðum tilfellum
væri reynslan mjög jákvæð.
Sagðist hún hafa beint því til
stjórnenda Heilsugæslunnar í
Reykjavík að undirbúa rekstur
næstu heilsugæslustöðvar með það í
huga, að leitað verði eftir sjálfstæð-
um rekstraraðilum til að bera
ábyrgð á starfseminni og gerður við
þá þjónustusamningur. Sagðist hún
helst hafa heilsugæslusvæðið við
Heima og Voga í huga í þessu sam-
bandi, en einnig annars staðar á höf-
uðborgarsvæðinu þar sem vaxandi
þörf væri fyrir nýjar heilsugæslu-
stöðvar. Þá upplýsti ráðherra að 15
heimilislæknar hefðu nú leyfi hjá TR
til að starfa sjálfstætt. Eru þeir allir í
Reykjavík. Sagðist hún fylgjandi
breytilegum rekstri innan heilsu-
gæslunnar og minnti í því sambandi
á að nú eru fimm mismunandi
rekstrarform við lýði innan heilsu-
gæslunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Til að nýir heimilislæknar fái að
taka til starfa þarf samkvæmt samn-
ingi TR við sjálfstætt starfandi
heimilislækna samdóma álit héraðs-
læknis, Læknafélagsins og TR um
að þörf sé á fleiri læknum til starfa.
Ráðherra sagði það skoðun héraðs-
læknis og ráðuneytisins að mikil-
vægt væri að færa samning þennan
frá TR til stjórnar Heilsugæslunnar
í Reykjavík og að því loknu fjölga
stöðum sjálfstætt starfandi heimilis-
lækna. Þetta hefði mætt nokkurri
andstöðu, en vonandi leystust þau
mál þó farsællega og fljótlega.
Heilbrigðisráðherra vill semja við einkaaðila um rekstur heilsugæslustöðva
Segir jákvæða reynslu
af þjónustusamningum
ÁRLEGA verður veitt fé af fjárlög-
um í ferðasjóð íþróttafélaga til að
standa straum af kostnaði við
keppnisferðir þeirra á viðurkennd-
um mótum, verði tillaga til þingsá-
lyktunar tveggja þingmanna Fram-
sóknarflokksins samþykkt á Alþingi.
Flutningsmenn tillögunnar eru
þeir Hjálmar Árnason og Ísólfur
Gylfi Pálmason en í því felst að-
menntamálaráðherra setji reglur
um starfsemi sjóðsins og úthlutun úr
honum.
Í greinargerð með tillögunni kem-
ur fram að drjúgur þáttur í rekstri
einstakra íþróttadeilda sé fjármögn-
un keppnisferða vegna viður-
kenndra móta, svo sem Íslandsmóts
og bikarkeppni. Félögin standi mis-
vel að vígi hvað þennan kostnaðarlið
varðar. Sem dæmi megi nefna þátt-
töku keppnisliða frá Ísafirði í úrvals-
deild körfuknattleiks, þátttöku
knattspyrnu- og handknattleiksliða
frá Vestmannaeyjum, blakliða af
Austurlandi og knattspyrnu-, körfu-
knattleiks- og handknattleiksliða frá
Sauðárkróki og Akureyri. Í ein-
stökum flokkum geti verið um að
ræða fjölda ferða utan af landi til
höfuðborgarsvæðisins þar sem flest
keppnislið í viðkomandi flokkum
eru.
Lið á suðvesturhorninu þurfi
reyndar einnig að leggja í kostnað
vegna keppnisferða út á land en í
sumum tilvikum geti verið um eina
ferð á keppnistímabili að ræða fyrir
höfuðborgarlið á móti jafnvel tíu
ferðum sama keppnisflokks af lands-
byggðinni.
Stofnun ferða-
sjóðs íþrótta-
félaga lögð til
ÞAÐ var sannkallaður alþingis-
kvennafans sem fagnaði fram-
sóknarmanninum Jóni Kristjáns-
syni, formanni fjárlaganefndar, á
kaffistofu Alþingishússins um eft-
irmiðdaginn í gær. Var þar kom-
inn hópur kvenna sem sótti Jón
heim á skrifstofu hans undir lok
jólaanna í fyrra þegar beðið var
lokaatkvæðagreiðslu og þáði veit-
ingar. Við það tækifæri var tekin
mynd af Jóni og alþingiskonunum
sem algjörlega er hafin yfir
flokkadrætti og var hún afhent í
gær ásamt hlýjum kveðjum
kvennanna sem sögðust ætla að
gera þetta að árvissum viðburði.
Á skjali sem Jóni var fengið við
þetta tilefni er þessi vísa: „Hér
situr Jón eins og plantinn plómi /
pæjur mæna upp til hans / eins
og þær mæri einum rómi / þá
öndvegissmíði skaparans.“
Við þetta tilefni þakkaði Jón
kærlega góðar gjafir, en lét þess
um leið getið að þessi mynd færi
upp á vegg á skrifstofunni, hann
þyrði ekki að taka hana með
heim!
Morgunblaðið/RAX
Kvenna-
fans fagn-
aði Jóni
BREYTINGAR á ákvæðum laga
um almannatryggingar er lúta að
rétti ellilífeyrisþega til tekjutrygg-
ingar, voru afgreiddar frá Alþingi í
gær. Þingmenn allra stjórnarand-
stöðuflokkanna sögðust ekki leggj-
ast gegn því að komið væri að hluta
til móts við öryrkja í kjölfar dóms
Hæstaréttar í öryrkjamálinu, en
sátu hjá og vísuðu allri ábyrgð á
ríkisstjórnina.
Önnur og þriðja umræða um
frumvarpið fór fram í gær og var
sérstök atkvæðagreiðsla síðdegis til
að afgreiða málið sem lög frá Al-
þingi, en enginn þingfundur er í
dag og í næstu viku verður nefnd-
avika á Alþingi.
Í áliti meirihluta heilbrigðis- og
trygginganefndar er lögð áhersla á
að samráð hafi verið haft við full-
trúa ellilífeyrisþega áður en frum-
varpið var lagt fram og lýsir meiri-
hlutinn sig sammála þeirri afstöðu
sem fram kemur í athugasemdum
við frumvarpið að til framtíðar eigi
sömu efnisrök við um réttindi elli-
lífeyrisþega og örorkulífeyrisþega
að þessu leyti.
Þó lagði meirihlutinn til breyt-
ingatillögu með lögunum sem sam-
þykkt var, en þar var orðalagi
breytt þannig að ekki færi á milli
mála að þeir sem ekki hafa sótt um
tekjutryggingu en eiga rétt á henni
gætu sótt um hana sér til handa og
ættu þá sama rétt og aðrir sem
réttar munu njóta samkvæmt lög-
unum.
Í áliti minnihluta nefndarinnar
segir að með frumvarpinu megi
segja að ríkisstjórnin hafi nú fallist
á að sömu sjónarmið eigi að gilda
um réttindi ellilífeyrisþega og gilda
um réttindi örorkulífeyrisþega.
Einungis sé þó talið að þessi sjón-
armið eigi að gilda til framtíðar, en
réttur ellilífeyrisþega aftur í tím-
ann ekki viðurkenndur. Þessu mót-
mæli minnihluti nefndarinnar og
færir fyrir því rök að um afturvirka
breytingu hefði átt að vera að ræða.
Hitaveita Suðurnesja
Í gær var einnig samþykkt sem
lög frá Alþingi frumvarp Valgerðar
Sverrisdóttur, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, um stofnun hluta-
félags Hitaveitu Suðurnesja.
Samkvæmt þeim er heimilt að
sameina Hitaveitu Suðurnesja og
Rafveitu Hafnarfjarðar og stofna
hlutafélag um reksturinn er nefnist
Hitaveita Suðurnesja hf. Ríkis-
stjórninni er heimilt að leggja
hlutafélaginu til hlut ríkissjóðs í
Hitaveitu Suðurnesja.
Lög um almannatryggingar samþykkt
Ellilífeyrisþegum tryggð
sömu réttindi og öryrkjum
nýrra kjarasamninga dregst veru-
lega á langinn. Ákvæðin eiga þó að-
eins við og verða því aðeins virk að
kjarasamningar viðkomandi stéttar-
félags hafi verið lausir lengur en í
sex mánuði. Sé nýr kjarasamningur
gerður innan sex mánaða frá því að
eldri kjarasamningur féll úr gildi
hafa þau ákvæði sem frumvarpið fel-
ur í sér enga beina virkni. Ákvæðin
ættu samt sem áður að hafa óbeina
virkni í þá veru að hvetja aðila kjara-
deilu til þess að leysa mál sín fyrr en
ella.
Samtök fiskimanna ekki sökuð
um of mikla verkfallsgleði
Í greinargerð með frumvarpinu er
bent á að kjarasamningar hafi oft
dregist á langinn hjá fiskimönnum
sem lengst hafa átt LÍÚ að beinum
viðsemjendum, þótt samtök vinnu-
veitenda og nú síðast Samtök at-
vinnulífsins, SA, hafi verið þar með
hlutverk. Segir þar að „samninga-
tækni“ LÍÚ sl. 14 ár hafi haft þau
áhrif á kjör og kjarasamninga fiski-
manna að þeir hafi ekki notið kaup-
breytinga á launaliðum eða annarra
kjarabóta til jafns við aðra launþega
í landinu. Þar muni miklu í tíma,
2.343 dögum eða tæplega sex og
hálfu ári á síðustu fjórtán árum.
„Samtök fiskimanna verða varla
með sanngirni sökuð um of mikla
verkfallsgleði til þess að þvinga út-
gerðina til samninga þegar litið er á
að fiskimenn voru sex og hálft ár á sl.
14 árum með lausa kjarasamninga
þegar aðrir nutu kauphækkana
mestallan þann tíma. Þess eru þó
dæmi að kjarasamningar annarra
hafi verið lausir einhverja mánuði,
en afrek LÍÚ í þessum efnum er
einsdæmi,“ segir í greinargerðinni.
GUÐJÓN Arnar Kristjánsson, þing-
maður Frjálslynda flokksins, hefur
lagt fram á Alþingi frumvarp til laga
um breytingu á lögum um stéttar-
félög og vinnudeilur. Með frumvarp-
inu segist hann leggja til réttarbót
fyrir launþega ef upp kemur sú staða
að kjarasamningar séu lausir mán-
uðum saman.
Í frumvarpinu eru lögð til viðbót-
arákvæði þess efnis að launþegum
verði tryggðar sambærilegar launa-
breytingar og öðrum launþegum
hafa verið tryggðar fyrir sömu tíma-
bil eða ár ef svo hagar til að gerð
Sjómenn með lausa samninga í hálft
sjöunda ár á síðustu 14 árum
Kjarasamningar
verði ekki lausir
mánuðum saman
♦ ♦ ♦