Morgunblaðið - 16.03.2001, Síða 21
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 21
✔ Margar stærðir og gerðir
✔ Fáið senda bæklinga
✔ Leitið tilboða
Sumarhús frá Norður-Noregi
Blönduósi - Gestur Guðmundsson
rafvirki, hestamaður og söngvari og
Joddi, fimm vetra foli voru á leið um
vestanverðan ós Blöndu í síðdeg-
isblíðunni og komust ekki hjá því að
sjá hinar framkvæmdir Norðurtaks
frá Sauðárkróki. Verið er að ljúka
framkvæmdum á130 m löngum sjó-
varnargarði við austurbakka
Blönduóss sem staðið hafa yfir í um
mánuð. Mikil þörf er að verja
strandlengjuna við Blönduós því
aurburður úr Blöndu hefur minnk-
að til mikilla muna frá því Blanda
var virkjuð og veldur því að sandur
í fjörunni hefur minnkað og haf-
aldan hefur átt greiða leið að landi
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Sjóvarnar-
garður á
Blönduósi
FULLTRÚAR Grindavíkurlistans
hafa slitið meirihlutasamstarfi við
Framsóknarflokkinn eftir tveggja
ára samstarf í bæjarstjórn Grinda-
víkur. Þetta er í annað sinn á kjör-
tímabilinu sem meirihlutasamstarf
slitnar í bæjarstjórn en Framsókn
var í samstarfi við sjálfstæðismenn
í eitt ár eftir kosningar árið 1998.
Ástæðan fyrir klofningnum nú
er sú að fulltrúar Framsóknar
vildu ekki standa við það það atriði
málefnasamnings flokkanna að
Hörður Guðbrandsson, fulltrúi
Grindavíkurlistans, tæki við for-
mannssæti Ómars Jónssonar,
Sjálfstæðisflokki, í stjórn Hita-
veitu Suðurnesja. Grindavíkur-
kaupstaður á tæp 12% í Hitaveitu
Suðurnesja og hefur Ómar verið
stjórnaformaður frá síðustu bæj-
arstjórnarkosningum.
Hallgrímur Bogason, oddviti
framsóknarmanna, segir að ástæð-
an fyrir klofningnum sé sú að
meirihluta fulltrúa í bæjarstjórn
hafi ekki þótt það samræmast
hagsmunum Grindavíkur að odd-
viti Grindavíkurlistans, Hörður
Guðbrandsson, sem jafnframt hef-
ur verið forseti bæjarstjórnar,
tæki stöðu stjórnarformanns Hita-
veitu Suðurnesja.
„Það var meira en Samfylkingin,
eða Grindavíkurlistinn eins og það
heitir hjá þeim, gat þolað og því
fór sem fór. Við framsóknarmenn
studdum núverandi stjórnarmann í
Hitaveitu Suðurnesja, Ómar Jóns-
son, sem búinn er að vera þar á
kjörtímabilinu og okkur fannst
hagsmunum Grindavíkur betur
borgið með því að hann sæti þar
áfram.“
Sjálfstæðismenn og Framsókn
í meirihlutasamstarf á ný
Að sögn Hallgríms hefur sam-
starfið við Grindavíkurlistann ver-
ið stirt í nokkuð langan tíma, en
hann segist ekki hafa metið stöð-
una þannig að stirðleikinn væri
það mikill að meirihlutinn félli á
því hver sitji sem stjórnarformað-
ur Hitaveitunnar. Hallgrímur
sagði að í framhaldinu yrði fljót-
lega rætt við sjálfstæðismenn um
meirihlutasamstarf í bæjarstjórn
Grindavíkur.
Hörður Guðbrandsson, fráfar-
andi forseti bæjarstjórnar, segir
að aðdragandinn að slitum á sam-
starfi flokkanna spanni tæpt ár.
„Það hafa verið erfiðleikar í sam-
starfinu frá því í fyrravor sem
enda með slitum á meirihlutafundi.
Fyrir ári var ágreiningur um
nokkur mál og þá neituðu fulltrúar
Framsóknarflokksins að mæta á
meirihlutafundi um tíma. Og loks í
gær neituðu þeir að standa við
samkomulagið í málefnasamningn-
um um stjórnarkjör í Hitaveitu
Suðurnesja. Öll önnur stjórnakjör
hafa gengið eftir samkvæmt sam-
komulaginu og við ákváðum þá að
slíta samstarfinu.“
Hörður sagðist meta stöðuna
þannig að líklegast myndu Fram-
sókn og Sjálfstæðisflokkur taka
upp meirihlutasamstarf á nýjan
leik.
Grindavíkurlistinn sleit meirihluta-
samstarfi í bæjarstjórn
Deilt um stjórn-
arsetu í Hitaveitu
Suðurnesja
NÝTT íþróttahús verður vígt laug-
ardaginn 17. mars á Breiðdalsvík
og hefst vígslan kl. 14. Fjölbreytt
dagskrá verður í tilefni vígslunnar
og verður hún í höndum grunnskól-
ans, leikskólans, tónlistarskólans
og Umf. Hrafnkels Freysgoða. Að
lokinni dagskrá í íþróttahúsinu
verður boðið upp á veitingar í
grunnskólanum.
Fyrsta skóflustunga fyrir
íþróttahúsinu var tekin 1. apríl á
síðasta ári af öllum leikskóla- og
grunnskólabörnum í Breiðdals-
hreppi. Bygging hússins hefur tekið
innan við eitt ár og er heildarkostn-
aður um 51 millj. kr. Heildarstærð
hússins er 673 m². Íþróttasalur er
14,5 x 27 m en í húsinu er einnig að-
staða fyrir líkamsrækt. Næsta
framkvæmd á sviði æskulýðs- og
íþróttamála í sveitarfélaginu er
bygging sundlaugar. Ráðgert er að
sundlaugin rísi við hlið íþróttahúss-
ins þannig að samnýta megi bún-
ingsaðstöðu, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Vígsla íþróttahúss
Breiðdalshrepps
AFI/AMMA
Allt fyrir minnsta barnabarnið.
Þumalína, Pósthússtræti 13.