Morgunblaðið - 16.03.2001, Qupperneq 25
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 25
dd
Aðalfundur
Björgunarsveitar Hafnarfjarðar
verður haldinn í Turninum, miðbæjarhúsinu,
Hafnarfirði, laugardaginn 24. mars kl. 13
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Önnur mál.
3. Tillaga stjórnar þess efnis að kosið verði
um að samstarfssamningur sveitanna verði
styttur um eitt ár og starfað verði eftir lögum
sveitarinnar frá aðalfundi 2001.
Stjórn Björgunarsveitar Hafnarfjarðar
MJÖG góð þorskveiði hefur verið í
nánast öll veiðarfæri á vertíðar-
svæðinu frá Breiðafirði, suður um
og austur að Höfn. Verkfall sjó-
manna setur því stórt strik í reikn-
inginn hjá vertíðarbátunum, sem
verða að hætta veiðum yfir hábjarg-
ræðistímann. Ljóst er að fisk-
vinnsluhúsin munu öll eiga fisk til
vinnslu fram yfir helgi. Trillukarlar
sjá hins vegar fram á góða tíma nú,
það spáir blíðu og líklegt að verð eigi
eftir að hækka á mörkuðunum, þeg-
ar fiskskorturinn fer að segja til sín.
„Það er ágætis afli í nánast öll
veiðarfæri, nema færi,“ sagði Grétar
Sigurðsson, vigtarmaður í Grinda-
vík, í samtali við Verið í gær.
„Stærri netabátar hafa verið að
koma með upp í 20 tonn inn og
smærri bátarnir með 5 til 10 tonn.
Trollbátar hafa verið að fá ágætt
líka. Línubátarnir hafa verið að
fiska mjög vel og loðnubátarnir
stoppa ekki. Það hefur gengið bæri-
lega að landa þessu öllu. Við erum
með fjóra löndunarkrana og línubát-
arnir eru dálítinn tíma að landa,
þegar þeir koma með svona mikið
svo það hefur kannski orðið einhver
smábið.
Nú eru menn bara að búa sig und-
ir verkfall. Línubátarnir lönduðu vel
flestir um helgina til að stramma sig
af fyrir verkfall og það verður vafa-
lítið mikið um að vera í kvöld og
nótt. Bátarnir mega vera að til 10
eða svo og þurfa að taka upp netin
og koma seint að. Það nýta allir tím-
ann eins og þeir geta. Þetta kemur á
slæmum tíma, sérstaklega fyrir ver-
tíðarsvæðið. Það lamast ansi mikið,“
sagði Grétar.
Trillukarlar mega róa í verkfall-
inu og segir Grétar að frá Grindavík
rói um 20 trillur með línu, einhverjir
séu á netum og svo færabátarnir.
Hann segir að trillunum fari fjölg-
andi enda ætli trillukarlar sér að
gera það gott í verkfallinu, einir um
hituna. Þeir, sem sendi ferskan fisk
utan í flugi, verði að fá fisk og eins
sé líklegt að ýsuverð á innanlands-
markaðnum hækki.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Trillukarlar hugsa sér nú gott til glóðarinnar enda mega þeir einir róa í verkfalli. Á myndinni er verið að landa
úr Brynjari GK 22. Þar var handaflið notað við að koma aflanum úr bátnum og í kar uppi á bryggju.
„Það lamast mjög mikið“
MJÖG góð loðnuveiði var rétt austan
við Ingólfshöfða í gær og kepptust
skipin við að fylla sig fyrir sjómanna-
verkfallið. Þannig þurfti aðeins tvö
köst til að fylla Örn KE í gærmorg-
un, auk þess sem Guðrún Þorkels-
dóttir SU fékk um 600 tonn úr nót
Arnarins. Jón Axelsson, skipstjóri á
Júpiter ÞH, var að kasta á Meðal-
landsbugt þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær. Hann vonaðist
til að ná að fylla skipið áður en verk-
fallið hæfist í gærkvöldi. „Það er
mokveiði og mjög blóðugt að þurfa að
hætta veiðum, alveg skelfilegt. Nú er
loksins farið að mokveiðast úr aust-
urgöngunni og það væri hægt að
veiða úr henni 7 til 10 daga í viðbót,“
sagði Jón.
Vertíðin í góðu meðallagi
Vinnsla á loðnuhrognum er enn í
fullum gangi hjá flestum framleið-
endum. Jón Helgason hjá Haraldi
Böðvarssyni hf. á Akranesi segir að
hrognavinnslan hafi gengið vel til
þessa og átti hann von á að hægt yrði
að skera þá loðnu sem barst til Akra-
ness í gær. Um 400 tonn voru fryst af
loðnu á Japansmarkað hjá HB á
þessari vertíð og segir Jón vertíðina
því hafa verið í þokkalegu meðallagi.
„Það kom reyndar bræla í um viku-
tíma þegar við hefðum getað fryst
mikið á Japan. Eins hefur átan svolít-
ið verið að hrella okkur. En að öðru
leyti er ekki hægt að segja annað en
vertíðin hafi gengið vel,“ sagði Jón.
Hrognavinnsla var einnig í fullum
gangi hjá Síldarvinnslunni hf. í Nes-
kaupstað í gær að sögn Jóns Gunnars
Sigurjónssonar vinnslustjóra.
„Hrognin eru ennþá eins og best
verður á kosið og við náum vonandi
að frysta upp í þá samninga sem
gerðir voru eða um 380 tonn. Við höf-
um lítið heilfryst af loðnu á Japan,
sennilega ekki meira en 80 tonn.“
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
gerði samninga um sölu á um 3.000
tonnum af loðnuhrognum fyrir ver-
tíðina og um 5.000 tonnum af heil-
frystri loðnu á Japansmarkað og seg-
ir Steindór Gunnarsson, deildarstjóri
hjá SH, að væntanlega náist að fram-
leiða upp í gerða samninga.
Framleiðendur SÍF hf. eru búnir
að frysta um 1.500 tonn af loðnu á
Japansmarkað að sögn Bjarna F.
Sölvasonar deildarstjóra og um 800–
1.000 tonn af loðnuhrognum. SÍF
gerði fyrir vertíðina rammasamning
um sölu á um 7.000 tonnum af heil-
frystri loðnu á Japan og segir Bjarni
að enn sé verið að frysta upp í samn-
inginn hjá framleiðendum SÍF í Nor-
egi. Þá séu framleiðendur SÍF búnir
að frysta um 6.000 tonn af loðnu á
Úkraínu og Rússland.
140–150 þúsund tonn
væntanlega eftir af kvótanum
Í gærmorgun höfðu borist um 617
þúsund tonn af loðnu frá áramótum
en rúm 743 þúsund tonn að sumar-
og haustvertíðum á síðasta ári með-
töldum. Á sama tíma á síðasta ári
höfðu borist á land um 704 þúsund
tonn á vetrarvertíðinni en samtals
um 784 þúsund tonn að sumar- og
haustveiði árið 1999 meðtalinni.
Sjávarútvegsráðuneytið ákvað í
gærmorgun, að tillögu Hafrann-
sóknastofnunarinnar, að auka loðnu-
kvóta yfirstandandi vertíðar um 100
þúsund tonn. Ætla má að í gær hafi
þau loðnuskip sem voru að veiðum
náð að veiða á bilinu 20–25 þúsund
tonn og því hafi verið á bilinu 140–150
þúsund tonn eftir af heildarloðnu-
kvótanum þegar yfirvofandi verkfall
sjómanna átti að hefjast í gærkvöldi.
Verkfall stöðvar loðnuveiðarnar
„Blóðugt að
hætta veiðum“
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Hrognavinnslan hefur gengið vel hjá Síldarvinnslunni hf. á Neskaup-
stað og hafa þar verið framleidd um 380 tonn af hrognum.