Morgunblaðið - 16.03.2001, Side 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MARS 2001 27
NORÐMENN hafa ekki í hyggju að
skera niður olíuframleiðslu sína
sagði Sissel Edvardsen, talsmaður
olíu- og orkumálaráðuneytins þar í
gær. Edvardsen sagði í samtali við
AFP-fréttastofuna að slíkar áætlan-
ir væru a.m.k. ekki á dagsskránni
núna.
Ummælin koma í framhaldi af
vangaveltum um að fulltrúar aðild-
arríkja Samtaka olíuútflutningsríkja
(OPEC) muni komast að þeirri nið-
urstöðu á fundi sínum, sem hefst í
Vín í dag, að dregið verið úr fram-
leiðslu aðildarlanda.
Heimildamaður AFP-fréttastof-
unnar tengdur fulltrúanefnd OPEC
hafði fyrr í gærdag gefið í skyn að
Noregur og Mexikó, olíuríki sem eru
utan OPEC, myndu haga fram-
leiðslu sinni í samræmi við niður-
stöður fundarins í Vín.
Edvardsen sagði að ríkisstjórn
Noregs vildi leggja sitt af mörkum til
að tryggja stöðugleika markaðarins.
Hún fylgdist grannt með þróun mála
og væri reiðubúin til að laga sig að
henni ef nauðsyn krefði.
Líklegt er talið að fulltrúarnir
ákveði að minnka heildarframleiðsl-
una um allt að milljón föt á dag.
Markmið OPEC er að halda verðinu
á olíufatinu í 25 Bandaríkjadollurum,
liðlega 2.000 krónum. Fulltrúar
OPEC segjast staðráðnir í að halda
verðinu uppi þótt nýjar upplýsingar
bendi til þess að olíukaup fari nú
minnkandi í mikilvægum Asíulönd-
um, m.a. vegna áhrifa af samdrætti í
efnahag Bandaríkjanna.
Í nýrri skýrslu Alþjóðaorkumála-
stofnunarinnar, IEA, segir að olí-
unotkun í Kína og á Indlandi hafi
minnkað verulega í desember. Hefur
IEA því endurskoðað spá sína um
væntanlega olíunotkun í heiminum á
árinu, hún verði minni en ætlað var.
Höfundar skýrslunnar segja að sam-
ræmdar aðgerðir OPEC til að
minnka framleiðsluna í von um að
halda verðinu háu eigi að hluta til
sök á samdrætti í efnahagsmálum og
minnkandi spurn eftir olíu.
Olíumálaráðherrar OPEC-land-
anna segja á hinn bóginn að vestræn
iðnríki hafi of lengi getað keypt olí-
una á lágu verði og þeir hafi fyrst og
fremst í huga að tryggja að útflutn-
ingsríkin hafi framvegis miklar
tekjur af olíunni.
Enginn niðurskurður í Noregi?
Talið að fulltrúar OPEC-ríkja muni ræða samdrátt í framleiðslu á fundi í Vín
EGYPSKUR leiðsögumaður
sem tók fjóra þýska ferðamenn
í gíslingu sl. mánudag gafst upp
í gærmorgun. Lögreglan beið
Ibrahaims Ali el-Sayyed
Moussa á jarðhæð íbúðarhúss-
ins þar sem hann hélt til og
handtók hann.
Nokkrum klukkustundum
áður en hann gafst upp sagði
Moussa AP-fréttastofunni að
hann iðraðist þess að hafa hótað
að drepa gíslana ef fyrrverandi
eiginkona hans, sem býr í
Þýskalandi, sneri ekki aftur til
Egyptalands með syni þeirra.
Moussa neitaði því einnig í
samtalinu að gíslatakan hefði
verið sviðsett. Hann sagði þó að
mögulegt væri að hann hefði
fengið hugmyndina frá einum
þeirra.
Gíslarnir, sem eru á aldrinum
22–48, munu gefa vitnisburð um
málið.
Hjúkrunar-
kona sek
um morð
FYRRVERANDI hjúkrunar-
kona við sjúkrahús í North-
ampton í Massachusetts í
Bandaríkjunum, Kristen Gil-
bert, hefur verið fundin sek um
morð á fjórum sjúklingum og
tilraun til að myrða tvo í viðbót.
Saksóknarar í málinu sögðu Gil-
bert hafa verið að reyna að
heilla kærastann sinn með því
að gefa sjúklingunum banvæn-
an lyfjaskammt.
Kviðdómur mun síðar taka af-
stöðu til þess hvort Gilbert
verður dæmd til dauða eða
fangavistar.
Kommúnistar
mótmæla
MÓTMÆLI gegn forseta Úkr-
aínu, Leoníd Kuchma, héldu
áfram í gær. Þá gengu 3.000
kommúnistar um götur Kíev og
kröfðust afsagnar forsetans.
Margir þátttakenda í mótmæl-
unum í gær voru ellilífeyrisþeg-
ar sem sakna gömlu Sovétríkj-
anna. Rauðum fánum var haldið
á lofti og sumir sungu „Inter-
nationalinn“, baráttusöng
kommúnista.
Mótmæli gegn Kuchma eru
nánast daglegt brauð í Kíev.
Hingað til hafa þau einkum ver-
ið á vegum stjórnarandstæð-
inga sem telja Kuchma hafa átt
hlut að morði á blaðamanni á
síðasta ári.
60% ánægð
með Bush
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti nýtur nú stuðnings um 60%
kjósenda og er það svipað hlut-
fall og faðir hans, George Bush
eldri, og forverinn í embætti,
Bill Clinton, höfðu fyrstu mán-
uðina í embætti. Í nýrri könnun
sem gerð var fyrir The New
York Times og CBS kemur
fram að meira en helmingur
kjósenda viðurkennir að Bush
sé lögmætur forseti. Þó eru þrír
af hverjum fjórum blökku-
mönnum á því að hann sé ekki
réttkjörinn.
Meirihluti aðspurðra styður
tillögur Bush um skattalækkun
þótt flestir virðist álíta að þær
komi einkum efnafólki að gagni.
Fáir virðast hrifnir af hug-
myndum um að dregið verði úr
fjárstuðningi við grunnskóla
sem ekki standa sig.
STUTT
Gíslatöku
lokið